Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
L
1
Syngjandi kirkja
Aldarminning Sigurðar Birkis, söngmálastjóra.
ÞÓ að söngur og
tónlist hafi frá önd-
verðu verið snar þáttur
í kirkjulífi íslendinga
eða um hartnær þús-
und ára skeið, var það
ekki fyrr en á því Herr-
ans ári 1941, sem emb-
ætti Söngmálastjóra
Þjóðkirkjunnar var
stofnað. Verkefni hans
er eins og segir í iög-
um: „Að hafa með
höndum yfirumsjón og
skipulagningu • kirkju-
söngs innan þjóðkirkj-
unnar.“ Það var þáver-
andi biskup íslands,
Sigurgeir Sigurðsson,
sem hafði forgöngu um stofnun
þessa embættis. Honum voru söng-
mál kirkjunnar afar hjartfólgin og
hann beitti kröftum sínum að fram-
gangi málsins í kirkjuráði, á presta-
stefnu og loks með lagasetningu
Alþingis. Dr. Ármann Snævarr seg-
ir í Kirkjurétti sínum að frumvarpið
hafi farið greiðlega í gegn um Al-
þingi og þó án verulegrar umræðu.
Mér er nær að halda, að frá upp-
hafi hafi faðir minn haft ákveðinn
mann í huga í þetta embætti. Hann
var Sigurður Birkis, þá söngkennari
og þjálfari Landssambands ís-
lenskra karlakóra. Þeirra erinda
kom hann oft til ísafjarðar og gisti
á æskuheimili mínu. Þess má og
geta að Sigurður Birkis stjómaði
100 manna kór á Alþingishátíðinni
1930. Faðir minn og Sigurður vom
miklir vinir, og föður mínum var
því vel kunnugt um hæfíleika hans
og áhuga á kirkjumálum.
Sigurður Birkis var fæddur 9.
ágúst 1893 að Krithóli í Skagafirði.
Foreldrar hans vom hjónin Eyjólfur
Einarsson bóndi frá Mælifellsá og
Margrét Þormóðsdóttir. Eigi ólst
hann þó upp hjá þeim heldur hjá
fósturforeidram sínum, séra Valdi-
mar og Steinunni Briem, lengst á
Staðarstað. Hann stundaði nám í
Flensborgarskóla og fór síðan utan
til Danmerkur og lagði stund á
verslunarfræði og söngnám í Tón-
Jistarskóla Kaupmannahafnar í þrjú
ár. í eitt ár var hann við framhalds-
nám á Ítalíu. Að því loknu hóf hann
lífsstarf sitt, sem var alfarið á sviði
söngsins. Hann hefur kennt mörg-
um söng um dagana, þar á meðal
var t.d. Stefán Islandi.
Sigurður Birkis varð söngmála-
stjóri kirkjunnar 1.
september 1941.
Stuttu eftir að hann
tók við störfum skrifaði
hann grein í Kirkju-
blaðið og Iýsir þar við-
horfi sínu til starfsins
og segir m.a.:
„Kirkjan hefur alltaf
skilið það, hvað söng-
urinn er mikil náðarg-
jöf Guðs, og því megum
við þakka henni af
hjarta og mörgum okk-
ar kirkjunnar mönnum,
allt frá Jóni biskupi
Ögmundarsyni, sem
fékk fyrsta söngkenn-
arann til landsins
(1106-1107) og all til séra Bjarna
Þorsteinssonar, fyrir allt sem þeir
hafa gert fyrir sönginn í landinu."
Þá minnist Birkis á orgelin, sem
hann segir, að séu komin í flestar
kirkjur og að organistar hafi mest
og best unnið að söng í byggðum
landsins. Hann telur þó enn skorta
mikið á, að þeir séu nógu vel undir-
búnir fyrir starf sitt. Þar vitnar
hann í skýrslur, sem hann hafði
safnað um ástand mála, og dregur
af þeim þessa ályktun:
„Það mun alls ekki fátítt, að
prestar geti ekki ekki notað suma
sálma við guðsþjónustur, sem þeir
þó hefðu kosið, vegna þes að organ-
istinn getur ekki spilað lagið.“ Þó
telur hann undravert, hvað sumir
organistar hafa komið á góðum
kirkjusöng þrátt fyrri stutt nám og
erfíðar ástæður. Hann telur brýna
þörf á að hlú betur að organistum,
veita þeim betri starfsskilyrði og
meiri menntun. í því skyni stofnaði
Sigurður Birkis söngskóla þjóðkirkj-
unnar, sem segja má að hafi verið
undanfari Tónskólans.
í greininni, sem kalla má eins
konar stefnuyfirlýsingu, ræðir Birk-
is um kirkjukórana, hve mikil sé
þörfin á stofnun þeirra með formleg-
um hætti. Þar má segja, að hafí
orðið vakning. Á embættisferðum
sínum um landið og að tilhlutan
hans vora stofnaðir hátt á annað
hundrað kirkjukórar. Kóramir bók-
staflega „sprattu upp“ hver af öðr-
um, hvar sem hann fór líkt og her-
deildirnar hjá Napóleon forðum
daga. Þá hvetur Birkis til þess, að
söngkennarar barnaskóla séu jafn-
framt organistar, og bendir á, að
grundvöll að kirkjusöng verði að
Syngjandi kirkja er sigr-
andi kirkja, segir Pétur
Sigurgeirsson, sem hér
skrifar um Sigurð Birk-
is, fyrsta söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar.
leggja hjá bömunum.
Á þetta leggur hann mikla
áherslu og segir: „Eg er enn sömu
skoðunar og þegar ég byrjaði á
starfinu, að maður verður að gera
allt sem hægt er til þess að undir-
staðan að safnaðarsöngnum sé lögð
hjá börnunum, að börnunum séu
kenndir sálmar og sálmalög." Þar
var Birkis forspár er við hugsum
til hinna mörgu nýstofnuðu barna-
kóra kirkjunnar sem er nýjasti vaxt-
arbroddurinn í söngstörfum kirkj-
unnar.
Minnist ég þess, er við hjónin
voram hér á kyrrðardögum fyrir
síðustu páska, og vorum hér við
guðsþjónustu, hvernig börnin önn-
uðust að heita má alfarið, bæði
messusvör og safnaðarsöng, og
gerðu það bæði listrænt og af mik-
illi kunnáttu, - svo að aðdáun vakti.
Hver veit nema landsmót bamakóra
kirkjunnar verði innan skamms.
Þó að Birkis leggi áherslu á
kirkjukóra, þá dregur hann ekki úr
nauðsyn þess að söngurinn sé al-
mennur og segir: „Nauðsynlegt er,
að hver einasti maður syngi með,
því að takmarkið er að kirkjusöngur
verði almennur í öllum kirkjum,"
ítrekar hann. Að ná-því marki er -
þegar á allt er litið - hið fullkomna
takmark.
Ein fyrsta minning mín um Sig-
urð Birkis er frá bernskuáram í for-
eldrahúsum heima á ísafirði, er við
söfnuðumst saman við grammófón-
inn og hlustuðum hugfangin á
hljómplötu með einsöng hans. Kynni
okkar urðu bæði löng og góð. Ég
var einn í hópi þeirra mörgu sem
hann kenndi tónfræði í guðfræði-
deild Háskólans. Þar starfaði hann
í 30 ár.
Lýsingu á störfum Sigurðar Birk-
is mætti gefa með sömu orðum og
skráð era í bréfi Páls postula:
„Stunda þetta, ver allur í þessu!“
Pétur
Sigurgeirsson
FYRIR SUMARDAGINN FYRSTA!
SKÓVERSLUN KÓPAVOGS
Hamraborg 3, símii 554-1754
I kr. 3.500
/ÍAERCURV
Kr. 3.580
Póstsendum
J
St. 31-38
, hvítt/blótt
■ # n tnn I
St. 32-38
Svart, hvítt
Ljósaskór
' Kr. 3.600
SIGURÐUR Birkis, fyrsti söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, f. 1893, d. 1960.
(Tím. 4: 12.) Birkis gaf sig óskiptan
og heils hugar að köllun sinni.
yinnugleði hans var dæmalaus.
Áhuginn geislaði út frá honum, hlý-
hugur hans og vinarþel. Hann var
djúpt hugsandi, viðkvæmur, tilfinn-
ingaríkur og glaðsinna. Hann hló
svo hvellt og bjart og smitandi.
Þegar hann skellihló, fékk hann alla
með sér í hláturinn. Innst inni var
hann mikill alvörumaður.
í umsögn sinni um menn og
málefni var hann varkár, en sífellt
jákvæður, uppörvandi í kennslu
sinni og stjórnsýslu. Þessi jákvæðu
viðhorf hans voru sprottin af um-
hyggju hans og kærleika í garð
náungans. Brákaðan reyr braut
hann ekki - eins og spáð var fyrir
Meistaranum frá Nasaret. Það
spratt ávallt eitthvað gott í sporum
Sigurðar Birkis.
Matthías Jochumsson orti einu
sinni í minningu vinar síns:
Skjótur varstu vinur og vaskur í för
loganum var líkast þitt lífs og sálarijör.
Þannig er Sigurði Birkis vel lýst.
Hann var skjótur í fasi, snöggur í
viðbrögðum, kraftmikill - líkt og
„stormsveipur" - gagntekinn, ósér-
hlífinn og einbeittur að ná settu
marki. í eðli sínu var hann mjög
hlédrægur, ég veit það háði honum,
en þó framsækinn þegar áhugamál
hans áttu hlut að máli og hann
„gleymdi" sjálfum sér í hita leiks-
ins. Hann var umfram allt val-
menni, göfuglyndur góður drengur,
samviskusamur og lifandi í trú sinni.
Sigurður Birkis lést aðfaranótt
gamlársdags 1960. Hér á meðal
okkar er eftirlifandi eiginkona hans
Guðbjörg Birkis Jónasdóttir, Krist-
jánssonar, læknis, en hann var
framkvöðull náttúrulækninga hér á
landi.
Kæra frú Guðbjörg Birkis, þú
stóðst við hlið eiginmanns þíns og
studdir hann með ráð og dáð í um-
fangsmiklu og erilsömu, krefjandi
starfi. Já, stundum var söngskólinn
á heimili ykkar. Þegar við minn-
umst Sigurðar Birkis og þökkum
honum brautryðjendastarf, þá átt
þú líka sömu þökk og virðingu okk-
ar. Við biðjum þér allrar blessunar,
börnum ykkar, Regínu Margréti og
Sigurði Kjartani, tengdabörnum og
fjölskyldum.
Syngjandi kirkja er sigrandi
kirkja. Tvíefld er sungin bæn, segir
máltækið, og því sagði Páll postuli:
„Ávarpið hver annan með sálmum
og Iofsöngvum og andlegum ljóðum.
Syngið og leikið fyrir Drottin í hjört-
um yðar.“ (Ef. 5: 19.).
Söngmálastjórar okkar hafa hver
af öðram í hálfa öld lagt fram alla
krafta sína á þeirri sigurgöngu.
„Fari einn fyrir, fýlgja hinir,“ kvað
Davíð frá Fagraskógi. Þannig hafa
þeir Sigurður Birkis, dr. Róbert A.
Ottósson og nú Haukur Guðlaugs-
son haft forystu í söng og tónlistar-
vakningu kirkjunnar. Námskeiðin
hér í Skálholti eru einn vottur um
það. Þakkir okkar beinast til þeirra
allra. Á helgum stað og stórri stund
heiðram við sérstaklega og blessum
brautryðjandann, þegar öld er liðin
frá fæðingu hans.
Guð blessi minningu Sigurðar
Birkis. Megi verkin sem hann vann
kirkju sinni og fylgdu honum inn í
himininn vera landi og þjóð til ævar-
andi blessunar.
Höfundur er biskup.
Hressingar- og menningarferð
til Mallorka í júní:
aersKipuiogo rero a vegum riugieioo rynr uigrarreiagsroiK og t|olSKyldur.
i júni eru hlýindi og sólskin sem hentar gigtarsjúklingum svo ógætlega.
Áætlunarflug, gegnum Lúxemborg til Palma að degi til.
Unnt er að velja um tveggja eða þriggja vikna dvöl.
DvaliS er á góðu nútimalegu strandhóteli á Palma Nova.
Morgunyerður af hlaðborði og kvöldmatur allan timann.
Fluglei&ir bjóöa takmarkaban mióaf jölda á mjög hagstæðu verbi
og sérverö fyrir börn. Boðið er upp á skoðunarferðir af ýmsu
tagi, kvöldskemmtanir, likamsrækt og félagstarf.
Ákvöröun barí að taka sem fvrst- leitið því upplýsinqa strax.