Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 86
86 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Ný blómaverslun
Verið velkomin í nýja blómaverslun í
húsnæði Blóma og Ávaxta í Hafnarstræti
Aldrei meira úrval af blómum,
blómaskreytingum og gjafavörum
Kynnið ykkur vikuleg tilboð okkar!
^íoarB Lófy
Hafnarstræti 4 4f
‘s"0i 551-11'-''
Gleðilega páska
w
v::1 í
'W
Yfir 30 ára reynsla
S.G.Einingahús
SG Einingahús hf,
Eyrarvegi 37, Selfossi
sími 98-22277 fax 98-22833
Sölushrifstofa í Reykjavik 588 11 40
Islensk hús hönnuð og byggð
fyrir íslenskar aðstæður.
Húsin frá SG eru bæði traust og hlý.
VelduSG.
Sumartilboð
(natural
collection)
Hreinsir, andlitsvatn og dagnœring
allt á kr. 509,-
Boots hefur 150 ára reynslu á
lækningarmætti jurta og
ávaxta.
Boots prófar ekki vörumar á
dýrum. Hágæða rannsóknar-
stofur rannsaka vöruna lengi á
sjálfboðaliðum áður en hún er
sett á markað.
Jafnvel í dag em til sölu allt að
því heimalagaðar snyrtivörur
án alls eftirlits, varist að kaupa
slíkar vörur því þær geta valdið
skaða.
Boots gætir fyllsta öryggis við
val á sérhverju innihaldi. Nat-
ural Collection línan inniheldur
ávexti og jurtir, eins og t.d.
jasmínu sem róar húð og ilmur-
inn hjálpar gegn þunglyndi.
Mangó inniheldur mikið af A-,
B-, B2-, C- og E-vítamínum. Kók-
oshnetur mýkja húð og laga
slitna hárenda. Rósmarín er
ilmlæknandi og styrkir einnig
húð og hársvörð. Svona mætti
lengi telja. Hvort sem þú vilt
slappa af í nærandi freyðibaði
eða nota frískadi sturtusápu,
lækna þurra húð og djúpnæra
illa farið hár, þá er Natural
Collection svarið.
Gæðavara á góðu verði.
Fæst í: Apótek: Árbæjar -
Blönduóss - Borgamess - Dal-
víkur - Djúpavogs - Egilsstaða -
Grafarvogs - Hellu - Hvolsvallar
- Hafnar - Kópavogs - Ólafsfjarð-
ar - Ólafsvíkur - Patreksfjarðar
- Sauðárkróks - Siglufjarðar.
Eyjakaup - Fjarðarkaup - Hag-
kaup - Heilsug. Kirkjubæjar-
klaustri - Lyfsalan Vík - Mangó
Keflavík - Venus Sandgerði -
Vörahús KÁ, Selfossi.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Um debetkort
KONA hringdi í Velvakanda
og sagði frá því að sl. sum-
ar hefði hún farið í verslun,
greitt með ávísun og sýnt
nýlegt vegabréf sitt og talið
að hún væri með lögleg
skilríki, en annað kom á
daginn. Afgreiðslumaður-
inn neitaði að taka við ávís-
uninni nema hún sýndi de-
betkort og sagði að önnur
skilríki tæki hann ekki gild.
Konan sagðist hafa orðið
reið og látið það bitna á
afgreiðslumanninum. Þegar
henni rann reiðin fékk hún
að heyra hans hlið á málinu
sem var á þann veg að
starfsfólki væri uppálagt að
taka engin skilríki nema
debetkort gild, því ef það
gerði það ætti það á hættu
að missa vinnuna. Konunni
finnst undarlegt að þetta sé
raunin því þeir sem nota
debetkort nota líkast til ekki
ávísanahefti lengur og þeir
sem ekki vilja nota debet-
kort geta ekki framselt
ávísanir án þeirra.
Hvar er
Jenný B?
Hinrik Líndal skrifaði Vel-
vakanda:
„Kæri Velvakandi.
Astæða þess að ég leita
á náðir yðar er sú að ég er
að reyna að hafa uppi á
manneskju sem ég stóð í
bréfaskriftum við fyrir
nokkrum árum. Nafn henn-
ar er Jenný B. Jónsdóttir.
Millinafn hennar gæti verið
Berglind eða Bára. Hún bjó
á árunum 1986-90 í Ade-
leide í Astralíu ásamt fjöl-
skyldu sinni, en fluttist eftir
það annað. Hún hafði áhuga
á að fara „heim“ til íslands
og starfa sem flugfreyja.
Ef einhver gæti veitt mér
upplýsingar um afdrif henn-
ar eða ef hún er búsett á
íslandi og sæi þetta, þá vil
ég endilega komast í sam-
band við hana aftur.
Með þakklæti,
Hinrik Lindal,
Dslervoldgade 46-1,
5800 Nyborg, Danmark.
Tapað/fundið
Gleraugu töpuðust
LÉTT sporöskjulöguð
málmgleraugu með munstri
á spöngum í grænu hulstri,
sem á stóð Ralph Lauren,
töpuðust sl. mánudags-
morgun líklega á gönguleið-
inni frá Seltjamamesi að
Menntaskólanum í Reykja-
vík. Skilvís finnandi er vin-
samlega beðinn að hafa
samband við Þóru í síma
617317.
Silfurkross fannst
STÓR silfurkross með steini
fannst sl. þriðjudag fyrir
utan Húseigendafélagið,
Síðumúla 29, og fær eig-
andinn hann afhentan þar
gegn greinargóðri lýsingu.
Snyrtiveski
tapaðist
STÓRT grænröndótt snyrti-
veski tapaðist í marslok á
Skólavörðustíg eða ná-
grenni. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband í
síma 31214 eða 21868.
Gæludýr
Týndur
páfagaukur
LJÓSBLÁR og hvítur páfa-
gaukur flaug út um glugga
á heimili sínu við Barða-
strönd á Seltjarnamesi sl.
laugardag, á kosningadag-
inn. Geti einhver gefið upp-
lýsingar um afdrif hans vin-
samlega hringið í síma
625504.
Kisa í
óskilum
GRÁ 3-4 mánaða kettlingur
fannst í Akurgerði sl.
sunnudagskvöld. Greinilegt
er að hún kemur frá góðu
heimili því hún er vön gæl-
um og góðu atlæti. Eigand-
inn er vinsamlega beðinn
að hringja í síma 29060.
BRIPS
Umsjón Guöm. Páll
Arnarson
í ANNARkl umferð und-
anúrslita íslandsmótsins
fengu margir vesturspilarar
það viðfangsefni að spila
út frá þessari hendi gegn
þremur gröndum:
Vestur gefur, NS á
hættu: .
Norour
♦
f
♦
♦
Vestur
♦ ÁDG1085
V ÁD10
♦ 98
♦ 96
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði 3 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Hvaða útspil myndi les-
andinn velja?
Það flokkast undir
óraunsæja vonarhyggju að
leggja af stað með spaða-
drottningu. Enda var gjald-
ið fyrir það útspil 630.
Hjartaásinn tryggir vörn-
inni á hinn bóginn 500 í
eigin vasa!
Norður
♦ 9632
f 9
♦ G
♦ ÁKDG753
Vestur Austur
♦ ÁDG1085 4 4
f ÁD10 IIIIH ▼ K742
♦ 98 111111 ♦ D76543
♦96 ♦ 108
Suður
♦ K7
f G8653
♦ ÁK102
♦ 42
Eftir hjartaásinn út, tekur
vömin þijá slagi á hjarta og
sex á spaða. Margir fundu
þetta fallega útspil og veittu
suðri ráðningu fyrir þessa
gírugu þriggja granda sögn.
Reyndar tapast þijú lauf
einnig með bestu vöm. Aust-
ur spilar út spaða og vestur
tekur fyrstu tvo slagina á
ÁD. Vestur spilar spaða
áfram og austur trompar
yfir blindum með áttunni.
Hjarta yfir á ásinn og enn
spaði, gefur vöminni síðan
fimmta slaginn á lauftíu.
SKÁK
Um.sjón Margeir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á al-
þjóðlegu móti í Kaupmanna-
höfn í mars í viðureign Dan-
anna Erlings Mortensens
(2.500) og Curts Hansens
(2.630), nýbakaðs Norður-
landameistara, sem hafði
svart og átti leik.
30. - Hxd3! (En ekki 30. -
Dxc3 31. Hxb7 og þaðan af
síður 30. - Hel+ 31. Bfl -
Dxc3 32. Hxb7 - H8e4??
33. Hxf8+! - Kxf8 34. Df2+
og það er svartur sem verður
mát) 31. Hxf8+ (Neyðarúr-
ræði því 31. cxd3 — Hel+
er mát) 31. - Hxf8 32. cxd3
- Hxf2 33. Dxf2 - Dxc3
og hvítur gafst upp því hann
hefur tapað manni.
Fjórir skákmenn komu
beint af þessu móti í Kaup-
mannahöfn á Norðurlanda-
mótið í Reykjavík. Yngsti
stórmeistari heims, Ungveij-
inn Peter Leko, sigraði ör-
ugglega: 1. Leko 8 v. af 11
mögulegum, 2. Maksimenko,
Rússlandi 7 v. 3-5. Pinter,
Ungveijalandi, Moskalenko,
Úkraínu og Glek, Rússlandi
6V2 v. 6. Curt Hansen 6 v.
7. Hector, Svíþjóð 5V2 v. 8.
Carsten Höi 5 v. 9-10. Lars
Bo Hansen og Peter Heine
Nielsen 4 Vi v. 11. Emms,
Englandi 3‘/2 v. og 12. Erling
Mortensen 2 'h v.
Sem sjá má hafa þeir Curt
Hansen, Hector, Lars Bo
Hansen og Mortensen Iíklega
allir verið komnir með hug-
ann við Norðurlandamótið.
Frammistaða þeirra allra var
fremur slök. Merkilegt var
að ekkert fréttist af þessu
móti fyrr en NM var lokið.
Það kom hvorki á Internet
né í helstu skákblöð fyrr en
um síðustu helgi.
Víkverji
PÁSKAR eru elzta hátíð kris-
tinna manna og raunar mun
eldri en kristnin. Rætur þeirra eru
frá tímum Hebrea, sem voru hirð-
ingjar, sem flökkuðu milli bithaga
með sauðfé og geitur. Um þetta
má allt lesa í Sögu daganna, sem
geymir mikinn fróðleik um páska
sem annað úr almanaki okkar.
Orðið páskar er komið úr hebr-
esku, pesah, og það sést í elztu
íslenskum handritum frá því um
1200 og er orðið þar oftast í karl-
kyni, eins og raunar í nútímamáli,
en einnig finnst það sem kvenkyns-
orð í handriti að gömlum norskum
lögum og einnig í Noregskonunga-
sögum frá byijun 13. aldar. Þar
er kvenkynsmyndin páskir, svo
sem í Hákonarsögu Hákonarsonar
og Þorlákssögu biskups.
xxx
*
ISÖGU daganna segir að aldrei
hafi verið getið um almennan
gleðskap á páskum, enda tóku
páskarnir aldrei við hlutverki
vorhátíðar meðal almennings á ís-
skrifar...
landi, svo sem varð sunnar í Evr-
ópu. Því er það vart annað en
undantekning til að sanna regluna,
er Ólafur Stefánsson heldur páska-
gildi í Viðpy árið 1800. Aðal-
skemmtun íslendinga var á sum-
ardaginn fyrsta, er þeir héldu vor-
hátíð og er ástæðan skiljanleg,
þar sem sumardagurinn fyrsti
þykir oft og einatt of snemma á
ferðinni sem vorhátíð miðað við
veðurfar.
xxx
PÁSKAR eru eitt lengsta frí
ársins, og þá geta menn hvílt
sig frá amstri daglegrar vinnu.
Margir fara á fjöll, stunda skíða-
íþrótt og skíðalandsmótið er jafnan
haldið um páskana._ Að þessu sinni
er það haldið á^ ísafirði á hinu
nýja skíðasvæði ísfirðinga, en hið
gamla fór illa í snjóflóðum í fyrra
eins og menn rekur minni til. Sagt
er að hið nýja skíðasvæði gefi hinu
gamla ekkert eftir og er vonandi,
að ísfirðingar geti notið þessa nýja
svæðis um ókomna framtíð.
NÚ þegar þessi mikla hátíð fer
í hönd er ekki úr vegi að
hafa uppi nokkur varnaðarorð. Enn
er ekki kominn miður apríl og því
allra veðra von. Það er þvi nauð-
synlegt áður en haldið er á fjöll
að huga vel að veðurspám og fara
ekki, nema útlit sé gott. Ennfrem-
ur má minna á, eins og raunar
veðurfræðingur Veðurstofunnar
gerði, er síðasta áhlaup gerði og
fólk lenti í vegvillum í stórhríð, að
hver veðurspá á sinn gildistíma, í
raun sinn síðasta söludag eins og
mjólkin, og því er nauðsynlegt að
hlusta ávallt á nýjustu spána.
Skjóttr geta skipazt veður í lofti
og því aldrei of varlega farið. ís-
land er land andstæðna og því
getur gert afar válynd veður. En
hvað sem því líður, vill Víkveiji
óska lesendum sínum skemmti-
legrar páskahátíðar um leið og
hann segir:
/