Morgunblaðið - 05.05.1995, Page 1
104 SIÐUR B/C/D
100.TBL.83.ÁRG. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kosningabaráttan í Frakklandi
harðnar á endasprettinum
Ummæli Chiracs
valda ókyrrð
París. Reuter.
VIÐUREIGN forsetaframbjóðend-
anna í Frakklandi hefur harðnað
síðustu daga og í gær olli Jacques
Chirac ókyrrð á frönskum fjármála-
markaði þegar hann kvaðst mundu
krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um
hugsanleg nýmæli innan Evrópu-
sambandsins, ESB, að lokinni ríkja-
ráðstefnunni á næsta ári. Einn nán-
asti samstarfsmaður hans sagði, að
bæri Lionel Jospin sigur úr býtum
á sunnudag myndi það leiða til ít-
alsks ástands í Frakklandi.
Talið er, að Chirac hafi teflt
nokkuð á tvær hættur með ummæl-
um sínum um þjóðaratkvæða-
greiðsluna en með þeim var hann
einkum að höfða til þeirra 20% kjós-
enda, sem enn hafa ekki gert upp
hug sinn. Á hann við, að kosið verði
um fyrirhugað myntbandalag ESB-
ríkjanna en hann nefndi það einnig
í nóvember sl. en dró þá í land með
það fljótlega. Þá eins og nú ókyrrð-
ist frankinn nokkuð.
Jacques Delors, fyrrverandi for-
seti framkvæmdastjórnar ESB og
stuðningsmaður Jospins, sagði í
gær, að með yfirlýsingu sinni hefði
Chirac unnið gegn frönskum hags-
munum og kynt undir efasemdum
Stiknuðu
risaeðlurn-
arlifandi?
HIMINNINN var rauðglóandi
um alla jörð og hitinn eins og í
bakaraofni. Næstum allar plönt-
ur brunnu til ösku og hver ein-
asta skepna undir berum himni
stiknaði lifandi. Þannig hljóðar
kenning margra vísindamanna
um dauða risaeðlanna og flestra
annarra lífvera fyrir 65 milljón-
um ára og hamfarirnar urðu
þegar risastór loftsteinn rakst á
jörðina.
Nokkuð er um liðið síðan flest-
ir vísindamenn féllust á, að loft-
steinn hefði valdið aldauða
margra tegunda á þessum tíma
en það er fyrst nú, að það hefur
verið skýrt hvernig það gerðist,
að sögn dagblaðsins San Franc-
isco Chronicle. Áður var talið,
að mikið ryklag um alla jörð
eftir áreksturinn hefði valdið
myrkri og kulda en það, sem
menn lærðu af halastjörnunni
Shoemaker-Levy 9 og árekstri
hennar við Júpíter á síðasta ári,
hefur breytt því.
Nú er talið, að við áreksturinn
hafi gífurlega mikið af bergi
beinlínis gufað upp og borist út
fyrir gufuhvolfið þar sem það
þéttist aftur í smásteina eða
sandkorn. Þegar allt þetta efnis-
magn kom aftur inn í gufuhvolf-
ið rauðhitnaði það og olli hálf-
gerðum heimsendi á jörðu niðri.
Verkamannaflokkurinn sigurvegari í kosningum í Englandi og Wales
í öðrum ESB-ríkjum um heilindi
Frakka. Þetta léti hann sér sæma
í von um að ná atkvæðum þeirra,
sem væru andvígir Maastricht-sam-
komulaginu.
Yfirlýsingar Alain Juppes utan-
ríkisráðherra og líklegs forsætis-
ráðherra Chiracs vöktu einnig at-
hygli en hann sagði, að sigraði
Chirac myndi stjórn hans tilkynna
um skattahækkanir og niðurskurð
fyrir júnilok.
■ Öryggi og óánægja/21
Vilja synina fijálsa
Reuter
NOKKUR hópur kvenna í Seoul í
Suður-Kóreu efndi til mótmæla í
gær og krafðist þess, að synir
þeirra og aðrir, sem þær sögðu
vera samviskufanga, yrðu látnir
lausir úr fangelsi. Ýmis mannrétt-
indasamtök, til dæmis Amnesty
International, haldaþví fram, að
hundruð pólitískra fanga séu enn
í s-kóreskum fangelsum.
Við gröf
vinar
JESSE J. Cosens frá Manitoba í
Kanada var einn af 4.000
Kanadamönnum, fyrrverandi
hermönnum í síðari heimsstyij-
öld, sem tóku þátt í hátíðarhöld-
um í Holten í Hollandi í gær
þegar þess var minnst, að 50 ár
eru frá því landið var frelsað úr
klóm nasista. 1.400 Kanadamenn
létu lífið í bardögunum í Hol-
landi og hér er Cosens við gröf
eins vinar síns.
Reuter
Serbar
í hefnd-
arhug
Knin. Reuter.
SERBNESKIR harðlínumenn
í Bosníu og Króatíu hótuðu í
gær að gera innrás í Vestur-
Slavoníu, sem Króatar hafa
náð á sitt vald, nema króatíski
herinn færi þaðan.
Radovan Karadzic, leiðtogi
Bosníu-Serba, og tveir af
helstu samstarfsmönnum hans
ræddu við leiðtoga Serba í
Króatíu, þjóðernissinnann
Milan Martic, um árásir króat-
íska hersins á serbneskar her-
sveitir. í sameiginlegri yfirlýs-
irigu þeirra sagði að það væri
skylda Sameinuðu þjóðanna
að tryggja að króatíski herinn
færi frá Vestur-Slavoníu, ella
myndu Bosníu- og Króatíu-
Serbar ráðast inn í héraðið.
200 serbneskir hermenn í
Vestur-Slavoníu virtu að vett-
ugi vopnahléssamkomulag
sem náðist í fyrradag en gáf-
ust upp í gær eftir harða bar-
daga.
■ Serbíuforseti/20
Stefndi í mikinn ósignr
fyrir Ihaldsflokkinn
SAMKVÆMT fyrstu tölum úr sveit-
arstjórnarkosningunum í Englandi
og Wales stefndi í mikinn ósigur
íhaldsflokksins að sögn BBC, breska
nkisútvarpsins. Bentu þær til, að
íhaldsflokkurinn fengi 24% atkvæða,
sem væri það minnsta frá upphafi,
Verkamannaflokkurinn 49% og
Fijálslyndi demókrataflokkurinn
23%. Gangi þetta eftir má búast við
miklum umræðum innan íhalds-
flokksins um stöðu Johns Major for-
sætisráðherra sem leiðtoga flokksins.
Tekist var á um 12.000 sæti í
sveitarstjórnum og hefur íhalds-
flokkurinn haft þriðjung þeirra eða
4.000. Ýmsir frammámenn í íhalds-
flokknum voru búnir að búa sig und-
ir að tapa allt að 1.500 og sögðu að
töpuðust 2.000 myndi það kynda á
ný undir umræðum um hæfileika
Majors til að leiða flokkinn. BBC
sagði hins vegar, að stæðust þessar
fyrstu spár myndu íhaldsmenn tapa
meira en helmingi sætanna 4.000.
Besta útkoman í 30 ár
Fái Verkamannaflokkurinn 49%
atkvæða er það besti árangur hans
í 30 ár og fijálslyndir geta einnig
vel við sinn hlut unað. í kosningunum
fyrir fjórum árum fékk íhaldsflokk-
urinn 35% atkvæða, Verkamanna-
flokkurinn 36% og fijálslyndir demó-
kratar 21%.
Fréttaskýrendur segja, að mið-
stéttarfólk hafí snúið sér að Verka-
mannaflokknum í stórum stíl í þess-
um kosningum og boðar það ekki
gott fyrir íhaldsflokkinn í næstu
þingkosningum. Niðurstaðan nú er
Iíka mikill sigur fyrir Tony Blair,
leiðtoga Verkamannaflokksins, sem
hefur unnið að því að loSa flokkinn
við gamlar og úreltar kennisetningar.
Snerist um landsmálin
Sagt er, að kosningarnar i gær
hafi fremur snúist um landsmálin en
sérmál sveitarfélaganna og því eru
úrslitin mikið áfall fyrir Major og
ríkisstjórnina. Hún hefur orðið fyrir
hveiju áfallinu á fætur öðru síðan
hún sigraði naumlega í þingkosning-
unum 1992. Hún hefur ekki staðið
við loforð um að hækka ekki skatta,
mikil innbyrðisátök hafa verið í
flokknum út af Evrópumálunum og
mörg hneykslismál hafa leikið hann
grátt.