Morgunblaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Hlutur inn- lends bjórs minnkar MARKAÐSHLUTDEILD innlends bjórs hefur dregist nokkuð saman undanfama mánuði. Þannig höfðu íslensku bjórframleiðendumir tæp- lega 63% hlutdeild á tímabiiinu jan- úar til apríl samanborið við um 71% hlutdeild á sama tíma í fyrra. Heildarsala bjórs á þessu fjögurra mánaða tímabili yar alls rösklega 2,1 milljón lítra en var 1,9 miiljónir lítra á sama tíma í fyrra, sem er um 12% aukning. Nýjar tegundir hafa á þessu tímabili náð einhverri fótfestu á markaðnum. Má þar nefna Faxe, Lapin, DAB og Orangje Boom sem hver um sig höfðu 0,3-0,6% hlut á fyrsta ársþriðjungi. „Þrátt fyrir að hlutdeildin sé að minnka varð söluaukning hjá báðum íslensku framleiðendunum í lítrum talið,“ segir Benedikt Hreinsson, markaðsstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar. Aðspurður um samkeppnisstöðu fyrirtækisins eftir tollalækkun af erlendum bjór um síðustu mánaða- mót segir Benedikt að innlendi bjór- inn sé ennþá mun ódýrari en sá er- lendi því fyrirtækið hafí þegar lækk- að sitt verð. „Við ætlum ekki að missa þá hlutdeild í markaðnum sem búið er að að byggja upp. Hins veg- ar er ljóst að við þurfum að taka verðlækkunina alfarið á okkur.“ VIÐSKIPTI Aukin bjórneysla Markaðshlutdeild framleiðenda í janúar-apríl 1994 og 1995: Ölgerðin E.S. Viking brugg Becks Heineken Holsten m.32,2% 130,4% 135.1% 7,2% 5,8% 5,9% 5,2% IHII: Pripps E!^’5% U,6% Anhauser lf^5í[% Aðrir 2,5% 6,6% Markaðshlutdeild bjórtegunda í janúar-apríl 1994 og 1995: Egils Gull 22,2% 24,7% kipting órsölu 1995 Mi 1994 irum- Jan.-apr., Jan.-apr., iðum: lítrar lítrar Budweiser '6% Aðrar tegundir Dósir 1.255.601 1.040.217 Flöskur 309.680 374.854 v.h.-fiö. 161.908 124.082 Kútar 408.641 364.992 Bjórsala íheild, jan.-apr.: : 2.135.830 1.904.145 Apótekarar brutu sam- keppnislög SAMKEPPNISRÁÐ hefur kveðið upp þann úrskurð að innkaupa- og dreifingarfyrirtæki apótekara í landinu, Klasi hf., hafi brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga með því að mæla fyrir um það við apótek að þau selji ekki vörur frá öðrum aðila. Jafnframt telur ráðið að sam- starfssamningur apóteka við annað fyrirtæki sitt, eignarhaldsfélagið Sveip sé skaðlegur samkeppni. Málsatvik eru þau að í júní 1994 barst Samkeppnisstofnun erindi frá heildversluninni T.H. Arasyni þar sem kvartað var undan viðskipta- háttum Klasa. Tilefni kvörtunarinn- ar var dreifibréf Klasa til hluthafa sinna þar sem þeim tilmælum er m.a. beint til hluthafanna að þeir taki ekki til dreifingar Hudosil-húð- vörur sem T.H. Arason annast dreif- ingu á. Samkeppnisráðs telur ljóst að eig- endur Klasa og Sveips séu markaðs- ráðandi í smásölu á varningi sem seldur er í apótekum. Með því að senda tilmæli eða fyrirmæli á borð við þau sem fram hafi komið í dreifi- bréfinu sé Klasi hf. því að misbeita ráðandi stöðu sinni. Þar sé um skað- lega samkeppnishindrun að ræða skv. samkeppnislögum, auk þess sem slík háttsemi bijóti í bága við góða viðskiptahætti í atvinnustarf- semi í skilningi laganna. Því leggur ráðið bann við afskiptum Klasa hf. og Sveips hf. af sölu apóteka á öðr- um vörum en þeim sem fyrirtækin dreifa. Einnig kannaði Samkeppnis- stofnun samstarfssamning Sveips og einstakra apóteka. Þar skuld- binda apótekarar sig m.a. til að kaupa tilteknar vörur eingöngu af Sveipi eða Klasa auk þess sem þeir skuldbinda sig til að hafa ekki á boðstólum vörur sem að mati Sveips fást ekki á viðunandi kjörum. Sam- keppnisráð telur augljóst að slíkur samningur sé skaðlegur samkeppni. Samstarfssamingamir hafa þegar verið felldir úr gildi. Verða „píparar" vatnsvirkjar? Ákveðið að halda áfram starfsemi Ráðstefnuskrifstofunnar Stöðug aukning á ráð- stefnuhaldi útlendinga STÓR sérbúinn jeppi verður á íslandsbásnum á alþjóðlegri sýn- ingu í Genf þar sem skipuleggjendur funda, ráðstefna og hvatn- ingarferða hvaðanæva að úr Evrópu munu bera saman bækur sínar. Ársæll Harðarson, framkvæmdasljóri Ráðstefnuskrifstof- unnar, fylgdist með er bíllinn var hífður um borð í skip á dögunum. TILLAGA verður lögð fyrir aðalfund Félags pípulagningameistara á aðal- fundi félagsins í dag um að breyta nafni félagsins í Meistarafélag vatns- virkja. Jafnframt er gert ráð fyrir að starfsheiti stéttarinnar verði vatns- virki en ekki pípulagningamaður. Þetta starfsiieiti er ekki nýtt í stéttinni því um eða eftir 1950 tók hópur meistara í Félagi pípulagn- ingameistara það upp. Sömu menn stofnuðu síðan Féiag vatnsvirkja hf. sem starfað hefur á Keflavíkurflug- velli og einnig verslunina Vatnsvirkj- ann hf. í Reykjavík. Á fundinum í dag verður einnig lagt til að opna félagið fyrir meistur- um á landsbyggðinni en fram til þessa hefur það eingöngu starfað á höfuðborgarsvæðinu. Tillagan felur einnig í sér að inntökugjöld verði afnumin og lög félagsins aðlöguð að þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi starfsgreinarinnar. UMSVIF í ráðstefnuhaldi fyrir út- lendinga hérlendis hafa farið stöðugt vaxandi undanfarin þijú ár og útlit fyrir að þau verði enn meiri á næstu tveimur árum. Ákveðið hefur verið að halda áfram samstarfi aðila í ferðaþjónustu um Ráðstefnuskrif- stofu Islands en þriggja ára reynslu- tími er liðinn. Þetta kom fram á aðalfundi Ráðstefnuskrifstofunnar 19. apríl sl. en um 25 fyrirtæki og stofnanir eiga nú aðiid að henni. Ráðstefnuskrifstofan vann á síð- asta ári að ýmsum markaðsverkefn- um og tók þátt í sérhæfðum sýning- um í London og Genf. Þá hefur ver- ið lögð áhersla á að hvetja íslendinga í alþjóðlegum samskiptum að taka að sér hlutverk gestgjafa og bjóða til ráðstefna í auknum mæli hér á landi. Skrifstofan gerðist aðili að Evrópusambandi ráðstefnuborga fyrir hönd Reykjavikur og hlaut kynningarmyndband um borgina 2. verðlaun í samkeppni sambandsins. Upplýsingar skortir um ráðstefnumarkaðinn Hins vegar kom fram í máli Ár- sæls Harðarsonar, framkvæmda- stjóra, á aðalfundinum að verulega skortir á að upplýsingar séu fyrir hendi um þennan markað, þar sem engin greining fer fram á tilgangi dvalar erlendra ferðamanna. Ráð- stefnuskrifstofan hefur þó safnað saman upplýsingum um ráðstefnur þijú sl. ár og sýna þær stöðuga aukn- ingu. Fundaraðstaða hérlendis þykir hafa batnað verulega fyrir ^minni fundi og viðburði en að mati Ársæls þarf að taka ákvörðun um að byggja nýtt ráðstefnuhús. íslendingar eigi ekki möguleika á að hreppa sumar ráðstefnur þar sem slíkt hús sé ekki fyrir hendi. En burtséð frá því eigi íslendingar enn mikla möguleika á að auka sín umsvif á þessu sviði. Ráðstefnuskrifstofan hefur nú þriðja árið í röð skipulagt þátttöku íslenskra fyrirtækja í sýningu fyrir ráðstefnumarkaðinn í Genf dagana 16.-18. maí. Þar munu Ferðamála- ráð, Reykjavíkurborg, Flugleiðir, Ferðaskrifstofa íslands, Ráðstefnur og fundir, Samvinnuferðir-Landsýn, Urval-Útsýn og Jöklaferðir kynna þjónustu sína. ' : É Ný sending af eldri Oilily vörum Frábært úrval af strigaökóm ! - wSRllSi - xfLhL úLfúfo*. ■ sfj-' • t • f 1 ■ IV' HORII.DIO M BORGARKRINGUNNI Sími 68 95 25. PU FÆRÐ UPPLYSINGAR UM HM'95 **#D»*> ICELAND 1995 A VERALDARVEFNUM http://www.handball.is ORACLE W o r I d W i d e W e b I n t e r f o c e Kit TEYMI O R AC í E HUGBÚNAÐUR Á i S lA N D I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.