Morgunblaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ______________________________________VERIÐ______________________________________ ^ Stjórnarformaður SH ræddi um samkeppni sölusamtakanna á aðalfundi Sölumiðstöðvarinnar Skyldi engtin undra þó hart sé barizt „STÖÐUGT minnkandi aflaheimild- ir á íslandsmiðum hafa leitt til vax- andi samkeppni milli fyrirtækja um kvótann og um viðskipti sem á einn eða annan hátt leiða af kvótanum. Þar getur verið um að ræða sam- keppni um olíusölu, vátryggingavið- skipti, skipaflutninga og um sölu og útflutning afurða. Þama eru miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi og skyldi engan undra þó hart sé um þá barizt. Gagnstætt því sem áður var verða þessi viðskipti ekki aukin með því einu að auka sókn í takmarkaða fiskistofna. Um slíkt er ekki að ræða þar sem fískaflinn er fyrirfram gefín stærð og byggir á úthlutuðum heimildum. Þau verða aðeins aukin með því að ná þeim frá einhveijum sem fyrir er og minnka þar með hans hlut,“ sagði Jón Ingvarsson, formaður stjómar SH, meðal annars á aðalfundi samtakanna í gær, og bætti við: „Það er sannfæring mín að Sölumiðstöðin sé nú betur í stakk búin en nokkm sinni fyrr til að taka þátt í þeirri samkeppni sem framundan virðist verða og engin ástæða til að skorast undan í þeim leik.“ Jón Ingvarsson fjallaði nánar um þessa samkeppni og sagði svo: „Þessi samkeppni birtist okkur með- al annars síðastliðið haust þegar íslenzkar sjávarafurðir keyptu tæp- an þriðjung hlutaljár í Vinnslustöð- inni í Vestmannaeyjum og réðu þar með yfír meirihluta í félaginu ásamt samstarfsfyrirtækjum sínum sem áttu fyrir dijúgan hlut í félaginu. Yfirlýstur tilgangur með kaupunum var að komast yfír afurðasölu Vinnslustöðvarinnar, en félagið hafði alla tíð verið aðili að SH. Ekki stefna SH að eiga í framleiðslufyrirtækjunum Hið sama mun hafa legið að baki þegar Kaupfélag Eyfirðinga gerði Akureyrarbæ, sem á 53% í Útgerð- arfélagi Akureyringa hf., tilboð um kaup á hlutabréfum bæjarins í því skyni að tryggja Islenzkum sjávaraf- urðum hf. sölu ÚA. Þessi tvö dæmi sýna okkur ef til vill hvers er að vænta í þessum efnum í framtíðinni. Það er ekki stefna Sölumiðstöðv- arinnar að eiga hlut í einstökum framleiðslufyrirtækjum innan vé- banda sinna enda vandséð hvernig fyllsta hlutleysis verði gætt svo vel sé í slíkum tilvikum. Gæti ekki hugs- azt að framleiðendum innan SH þætti óeðlilegt að forstjóri eða aðrir I starfsmenn SH ættu sæti í stjórnum | einhverra frystihúsa innan SH j vegna eignaraðildar SH að frysti- húsurn? Fæ ég ekki séð annað en að slíkt leiddi fyrr eða síðar til tor- tryggni. Hins vega mælir ekkert gegn því að Sölumiðstöðin hafi forgöngu um að safna saman hluthöfum meðal aðildar- og samstarfsfyrirtækja um þátttöku í rekstri framleiðslufyrir- tækja og getur þá að sjálfsögðu komið til þátttöku félagsins í fjár- i festingum um stundar sakir.“ SH skilaði 624 millj. kr. rekstrar- hagnaði árið 1994 Afkoma SH og dótturfyrirtækja 1994, í þús. kr. 1993, I þús. kr. Rekstrartekjur 23.458.800 21.543.435 Rekstrargjöld 22.829.046 20.946.548 Hagnaður eftir skatta 629.754 BBBMMiiifflifef557m SH 302.611 227.460 Coldwater Seafood 117.528 249.080 IFPL, Grimsby 134.256 105.116 IFSA, París 13.347 -4.333 IFPG, Hamborg 4.183 1.432 IFPC, Tokyo 66 '81 Jöklar hf. 37.641 34.920 Umbúðamiðstöðin 13.391 547 lcecon 1.869 -15.841 REKSTUR Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna gekk vel á árinu 1994 og á það jafnt við um móðurfyrir- tækið í Reykjavík og dótturfyrir- tækin heima og erlendis. Rekstrar- tekjur samstæðunnar á árinu námu 23.5 milljörðum króna miðað við 21.5 milljarða árið þar á undan og hækkuðu um 9% milli ára. Rekstrar- gjöld voru 22,8 milljarðar króna í fyrra en 20,9 milljarðar 1993 og nemur hækkunin 9%. Hagnaður eft- ir skatta er því 624 milljónir króna 1994 eða um 3% af veltu, á móti tæpum 597 milljónum króna árið á undan. Þetta kom fram á aðalfundi SH; sem hófst í Háskólabíó í gær. Arið 1994 var heildarframleiðsla frystihúsa, frystiskipa og annarra framleiðenda, sem fela SH sölu af- urða sinna, 117.700 tonn eða 15,6% meiri en árið áður. Þar af nam fram- leiðsla innlendra aðila 101.900 tonn- um, sem er 12.000 tonnum meira en 1993 eða 13,3% og erlendra að- ila 15.800 tonnum á móti 11.900 tonnum árið áður, sem er um 33,8% aukning. Mest varð framleiðslu- aukningin í loðnu, um 89.500 tonn. 8.400 tonn í karfa, 3.500 tonn í loðnuhrognum, um 1.900 tonn í rækju, 1.300 tonn í ýsu og 80 tonn í humri. Verulegur samdráttur varð hins vegar í þorski, ufsa, grálúðu og hörpudiski. Af heildarframleiðslunni í fyrra var framleiðsla frystiskipa 43.200 tonn, að meðaltaldri framleiðslu er- lendra skipa, eða 37% af framleiðslu SH. Framleiðsla innlendu frystiskip- anna var 27.400 tonn eða 27% af heildinni. Á síðastliðnu ári nýttu 33 frystiskip sér þjónustu SH, þar á meðal 9 erlend í eigu ýmissa aðila. í upphafí þessa árs hafa 9 skip bæst í hópinn og sinnir SH nú þjón- ustu við 42 frystitogara, þar af 15 erlenda. Af einstökum framleiðendum árið 1994 var mest framleitt hjá Útgerð- arfélagi Akureyringa hf. eða 11.400 tonn að verðmæti 2.745 milljónir króna og 14.200 tonn hjá Granda hf. að verðmæti 2.435 milljónir króna. Næstir í röðinni voru Þor- móður rammi hf. með 1.494 milljón- ir króna að verðmæti. Vinnslustöðin hf. var með 1.493 milljónir króna og Haraldur Böðvarsson hf. með 1.349 milljónir króna. Sala SH í Reykjavík nam 2,84 milljörðum króna Heildarútflutningur frystra sjáv- arafurða frá íslandi 1994 var 244.000 tonn að verðmæti 55,7 milljarða króna miðað við fob-verð- mæti. Þar af var útflutningur SH 103.300 tonn að verðmæti 23,3 milljarðar króna eða 43% alls út- flutnings á frystum afurðum miðað við magn og 42% miðað við verð- mæti. Auk þess annaðist félagið sölu og þjónustu fyrir erlenda aðila og nam heildarsalan fyrir þá 17.100 tonnum að verðmæti 2 milljarðar króna. SH flutti út um 1.300 tonn af ferskum afurðum fyrir um 700 milljónir króna. Heildarsala Sölu- miðstöðvariilnar í Reykjavík nam þannig 121.700 tonnum eða 28,4 milljörðum króna að verðmæti mið- að við cif-verð, sem er 34% verð- mætisaukning frá fyrra ári. Hlut- deild SH í útflutningi landsmanna á frystum þorski miðað við magn var 41%, á ýsu 45%, ufsa 52%, karfa 42%, rækju 35%, humri 44%, hörpu- diski 52%, síld 51% og frystum loðnuafurðum 66%. Helstu breytingar á árinu 1994 voru þær að salan til Asíulanda jókst um 79%, en til sölusvæðis Þýska- landsskrifstofu SH varð 39% aukn- ing.-Sala til Bandaríkjanna jókst um 18% og um 8% til Bretlands. Um 4% samdráttur varð í sölu til sölu- skrifstofu SH í Frakklandi. Sala Hambórgarskrifstofu aldrei meiri í fyrra seldi Coldwater Seafood Corporation 40.900 tonn að verð- mæti 189 milljónir dollara sem er 2% minna i magni og 6% í verð- mæti, en samdráttur varð í sölu verksmiðjuframleiddrar vöru, eða um 9% í magni og 1% í verðmæti. Samdrátturinn á rætur sínar að rekja til minni sölu til stómotenda. Sala gegnum umboðsmannakerflð er hins vegar svipað og ’93. í fyrra varð mikil söluaukning í verksmiðju- framleiddri vöm, m.a. vegna tíma- bundins samnings við Campbell So- up fyrirtækið. Viðskiptin við Long John Silver’s gengur vel á árinu. Á sl. ári skilaði félagið 1,7 millj- óna dala hagnaði eftir skatta á móti tæpum 3,7 milljónum árið 1993 og nemur bókfært eigið fé nú 26 milljónum dollara og er eiginfjár- hlutfallið rétt um 30%. Veik staða dollars hefur enn ekki dregið úr þorsk- og ýsuframboði til Bandaríkj- anna, vegna þess hversu veikt sterl- ingspundið hefur einnig verið. Öðru máli gegnir hins vegar um ufsa, karfa, rækju og hörpudisk, sem leita í ríkara mæli á Evrópumarkað. Icelandic Freezing Plants Ltd. í Grimsby seldi 21.700 tonn í fyrra fyrir 57,5 milljónir sterlingspunda og er það 12% aukning í magni og verðmæti miðað við 1993. Þar af nam sala verksmiðjuframleiðslu 13.600 tonnum á móti 11.900 tonn- um árið áður, sem er um 14% aukn- ing í magni og 8% í verðmæti. Flakasala og aðrar endursöluvörur námu 7.600 tonnum á móti 6.600 tonnum árið áður sem er tæp 14% aukning í magni og 22% í verð- mæti. Rekstrarhagnaður IFPC nam I. 255 milljónum sterlingspunda á móti rúmri einni milljón punda árið áður. í árslok var eigið fé félagsins 6,5 milljónir punda og eiginljár- hlutfall 38%. Heildarsala Icelandic Freezing Plants GmbH í Hamborg í fyrra reyndist 27.200 tonn að verðmæti 132 milljónir þýskra marka, sem er um 37% aukning í magni og 38% í verðmæti. Salan þar hefur aldrei verið jafnmikil. Þyngst vegur aukin rækjusala, sem nam 4.800 tonnum að verðmæti um 48 milljónir marka en það er 2.900 tonnum meira en árið áður. SH er stærsti seljandi karfa í Evrópu og seldi skrifstofan 10.200 tonn á móti 6.700 tonnum árið áður. Ennfremur varð þar mik- il síldarsala. Mjög jákvæð þróun var í sölu á smásölupakkningum en um 12% af veltu félagsins voru smásölupakkn- ingar karfa, rækju og þorsks. Nam verðmæti þeirra um 15,8 milljónum marka. Er það 28% aukning milli ára, en hlutdeild fullunninna afurða þar 73% af veltu félagsins. Mark- aðsstaðan hefur styrkst verulega á þessu sölusvæði undanfarin ár. Rekstur Hamborgarskrifstofu SH skilaði 97 þúsund marka hagnaði í fyrra. Á síðasta ári seldi Icelandic France SA í París 14.300 tonn að verðmæti um 240 milljónir franskra franka sem er um 16% samdráttur í magni en verðmætið er óbreytt miðað við ’93. Parísarskrifstofan seldi einnig vörur fyrir eigin reikn- ing að verðmæti 116 milljónir franka, sem er 12% aukning frá fyrra ári. Reksturinn skilaði rúm- lega 1 milljón franka hagnaði. í fyrra seldi Söluskrifstofa SH í Tókíó 42.500 tonn að verðmæti II, 9 milljarða japanskra yena sem cr um 79% aukning í magni og 73% í verðmæti. Mikilvægustu markaðs- lönd skrifstofunnar í Tókíó eru Jap- an, S-Kórea og Taiwan, en sala frystra sjávarafurða til Kína er einnig hafin. Starfsemi skrifstof- unnar hefur aukist jafnt og þétt frá stofnun hennar 1989. mita CC-50 mm ■ ■ m ■ ■ ■ b ■ Frisklegt vortilboð MJOG TAKMARKAÐ MAGN VERÐ ÁÐUR 419.520 KR TILBOÐSVERÐ 89.950- “ “150 blaða bakki fyrir A4 blöð. “Ljósritar 10 síður á mínútu. -Sérstök stilling til að ljósrita ljósmyndir. “Minnkun og stækkun 64% -156%. “Blaðastærð: Frumrit B4 og minna, afrit A5 og A4. ggill Guttormsson-Fjölval hf. Mörkin 1-128 Reykjavlk • Slmar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821 Helstu söluaðilar: REYKJAVÍK, Penninn Hallarmúla - AKUREYRI, Bókval - SAUÐÁRKRÓKUR, Bókabúð Brynjars - ÍSAFJÖRÐUR, Straumur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.