Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Fyrstu ÓLAFUR Bjarni og Stefán Gísli Haraldssynir i Brautarholti í Skagafirði með fyrstu lömb sum- arsins en sauðburður er hafinn Morgunblaðið/Halldór lömbin víðast hvar. Að þessu sinni var fyrsta ærin, sem bar á þeim bæ, tvílembd og komu þau i heiminn aðfaranótt sumardagsins fyrsta, FRÉTTIR_______________________ Afkoma ríkissjóðs fyrstu þrjá mánuði ársins Tekjur ríkisins mun meiri en áætlað var AFKOMA ríkissjóðs var betri fyrstu þijá mánuði ársins en gert var ráð fyrir og skýrist það einkum af því að skatttekjur af vöruinn- flutningi landsmanna urðu hærri en áætlað var. Tekjur ríkissjóðs urðu 1,8 millj- örðum meiri fyrstu þijá mánuði ársins en áætlanir ijárlaga gerðu ráð fyrir. Þá urðu útgjöldin 300 milljónum lægri en áætlað var. Bolli Bollason skrifstofustjóri í ijármálaráðuneytinu segir að þótt tölur fyrstu þriggja mánaða ársins segi lítið um árið í heild reikni ráðu- neytið með að fjárlagatalan, 7,5 milljarða rekstarhalli, eigi að stand- ast. Ljóst sé að á móti auknum útgjöldum, sem komi fram síðari hluta ársins, hækki tekjurnar. Meiri tekjur af VSK. Heildartekjur ríkissjóðs urðu 26,6 milljarðar króna og heildar- gjöld 31,7 milljarðar króna fyrstu þijá mánuði ársins. Því nam rekstr- arhallinn 5,1 milljarði en í greinar- gerð frá fjármálaráðuneytinu, sem lögð var fram á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag, segir að þetta sé 2,1 milljarðs betri útkoma en reiknað hafði verið með. Þar munar mestu í innheimtu virðisaukaskatts eða tæplega millj- arði króna og skýrist sú viðbót nær alfarið af meiri tekjum af innflutn- ingi sem hefur aukist mun meira en áætlað var. Sú þróun kemur einnig fram í viðbótartekjum af innflutnings- og vörugjöldum. Þá eru tekju- og eignarskattar talsvert meiri en gert var ráð fyrir og telur íjármálaráðuneytið að batnandi afkoma einstaklinga og fyrirtækja liggi að baki. Þá eru vaxtatekjur langt umfram áætlun fjárlaga. Á móti vegur að tekjur af tryggingagjaldi eru nokkuð lægri en spáð hafði verið. Áhrif af kennara- verkfalli Gjöld á sama tímabili urðu 300 þúsund krónum lægri en greiðslu- áætlun sagði fyrir um. Almenn rekstrargjöld stofnana urðu 200 milljónum lægri en áætlað var. Mesta frávikið frá greiðsluáætlun er hjá menntamálaráðuneyti, eða 440 milljónum lægri útgjöld og er kennaraverkfallið helsta ástæða þess. Rekstrartilfærslur urðu heldur hærri en greiðsluáætlun gerði ráð fyrir. Þar munar mest um greiðslur til almannatrygginga, eða 500 milljónir umfram áætlanir, einkum vegna sjúkratrygginga. Þá koma nýgerðir kjarasamningar til með að auka ijárþörf almannatrygginga um 1,3 milljarða umfram ijárlög. Minni lánsfjárþörf Hrein lánsfjárþörf ríkisins nam 9,5 milljörðum fyrstu þijá mánuði ársins sem er tveimur milljörðum undir áætlun. Verg lánsfjárþörf, þ.e. hrein lánsijárþörf að viðbætt- um afborgunum af löngum lánum, nam 17,6 milljörðum, sem er einn- ig tveimur milljörðum undir áætl- un. Þetta stafar af betri rekstraraf- komu ríkissjóðs en gert var ráð fyrir í upphafi árs. Á sama tíma í fyrra var hrein lánsijárþörf 12,2 milljarðar og verg lánsijárþörf 20 milljarðar. Lántökur ríkisins námu 15,2 milljörðum króna á tímabilinu eða einum milljarði lægri en áætlað var. Innlend lánsijáröflun hefur gengið treglega það sem af er ár- inu en áætlanir fjármálaráðuneytis- ins gerðu ráð fyrir því. Erlendar lántökur nema 11,2 milljörðum nettó sem er samkvæmt áætlun í upphafi árs. I fyrra námu erlendar lántökur ijórum milljörðum nettó. v Morgunblaðið/Árni Sæberg HELLEN M. Gunnarsdóttir frá Rannsóknarþjónustu Háskólans, Björn Bjarnason menntamálaráð- herra, Sigmundur Guðbjarnason, prófessor og formaður stjórnar Samstarfsnefndar atvinnulífs og skóla, og Gissur Pétursson, fulltrúi Starfsfræðslunefndar fiskiðnaðarins. Tilboði í Norðurá hafnað STJÓRN Veiðifélags Norðurár hef- ur hafnað tilboði Péturs Pétursson- ar um leigu á ánni til fimm ára, 1996 til 2000. Bauð Pétur rúmlega 160 milljónir á umræddum fimm árum auk nýs veiðihúss á svæðinu Norðurá 2. Pétur bauð bankatryggingar fyr- ir fjármununum og sagði evrópska veiðiskrifstofu í samvinnu við-sig. Aðalfundur Veiðifélags Norðurár er á næstu grösum og vafalaust verður mál þetta rætt þar fram og til baka. „Það er mikil þversögn í því sem Pétur heldur fram og þeim veru- leika sem við þekkjum sem höfum staðið í því að selja veiðileyfi um árabil, innanlands sem utan. Við höfum unnið að því hörðum hönd- um síðustu árin að ná niður verði veiðileyfa og árangurinn er umtals- SILUNGSVEIÐI hefur farið vel af stað, Jón Þ. Einarsson fékk þessa sex vænu urriða fyrsta daginn í Elliðavatni. verður, enda hafa viðsemjendur okkar sýnt mikinn skilning á stöðu markaðarins. Svo kemur svona til- boð sem skapar bændum óraun- hæfar væntingar, skaðar þá þróun sem verið hefur í verðlagsmálum og það jafnvægi sem hefur verið að nást milli verðlagningar veiði- vatna og greiðslugetu veiðimanna. Getur hreinlega sett allt á byijunar- reit á ný. Það er fráleitt annað en að þessir menn verði að hækka verulega verð veiðileyfa og það er Ijót atlaga að íslenskum stanga- veiðimönnum," segir Friðrik Þ. Stefánsson, formaður SVFR. Sporðaköst Frágengið er, að þeir Börkur Bragi Baldvinsson og Eggert Skúlason fréttamaður vinni saman sex nýja þætti í syrpunni „Sporða- köst“ á komandi sumri. Gerð þátt- anna hefur legið niðri um tíma, en alls hafa tólf þættir litið dagsins Ijós, verið sýndir á Stöð 2 og gefn- ir út á myndböndum. Hafa þeir notið mikilla vinsælda meðal veiði- manna. Að sögn Eggerts Skúlason- ar er búið að velja „tökustaði", en ekki er endanlega útséð um hveijir verða „andlit“ hvers þáttar utan í tveimur tilvikum. Eggert verður sjálfur andlit þáttar sem fjallar um Laxá í Leirársveit og Ámi Baldurs- son í þætti sem fjallar um Laxá í Dölum og Langá. Þá verða þættir um Haffjarðará, vötn á fjöllum í Húnaþingi og Rangárnar. Sjötti þátturinn verður liklega frá Laxá á Refasveit. Vertíðarlok Skemmtinefnd SVFR lýkur sinni vertíð á föstudagskvöldið með síð- asta opna húsi vetrarins. Valin- kunnir veiðimenn lýsa í máli og myndum tveimur af eftirsóttustu svæðum félagsins, Halldór Þórðar- son og Walter Lenz ræða um neðsta svæðið í Norðurá, frá Laxfossi, og skírskota til júníveiða. Jón G. Bald- vinsson fjallar síðan um svæði 1 og 2 í Stóru-Laxá. Leonardó da Vinci-áætlunin Fyrstu styrk- irnir auglýstir FYRSTU styrkir til samstarfsverk- efna innan Leonardó da Vincis áætl- unar Evrópusambandsins og EES um samstarf á sviði starfsmenntunar á framhaldsskóla- og háskólastigi og á sviði endur- og símenntunar í at- vinnulífinu verða auglýstir í Lögbirt- ingarblaðinu 5. maí. Styrkirnir falla undir stuðning við aðgerðir til að bæta skipulag og fyrirkomulag starfsmenntunar í aðildarríkjunum. Þeim er ætlað að efla tungumála- þekkingu, þróun og útbreiðslu á ný- mælum á sviði starfsmenntunar. Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra sagði að Leonardó-áætlunin tæki við af svokallaðri Comett-áætl- un og væri lögð sérstök áhersla á samskipti og menntun á sviði starfs- menntunar. Hann sagði að ESB og EES ríkin ættu aðild að áætluninni og væru 50 milljarðar lagðir til henn- ar næstu 5 árin. Hvert aðildarríki ber ábyrgð á að auglýsa og kynna möguleika áætlunarinanr í sínu landi. „Ég hef mikinn áhuga á að íslend- ingar átti sig á möguleikum áætlun- arinnar og hafí að markmiði að nýta sér tækifæri sín sem best því þau eru mörg. En þó fjármunirnir séu miklir á okkar mælikvarða er sam- keppnin hörð. Því þurfa menn að undirbúa sig vel og setja markið hátt,“ sagði Bjöm. Af verkefnum innan Leonardó má nefna mannaskipti og má reikna með að ekki færri en 100 íslendingar eigi þess kost að fara til Evrópu árlega. Um verður að ræða nemendur á hin- um ýmsu skólastigum, ungt ófaglært fólk, kennara og starfsmenn sem bera ábyrgð á starfsþjálfun í fyrir- tækjum. Yfirgripsmeiri en Comett Menntamálaráðuneytið hefur gert samning við Rannsóknarþjónustu Háskólans um að taka að sér rekstur landsskrifstofu áætlunarinnar. Hel- len M. Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarþjónustu Háskólans, sagði að Leónardó væri yfirgrips- meiri áætlun en Comett því iðn- og framhaldsskólastigið væri innifalið í henni. Hún sagði að áætluninni hefði verið hleypt af stokkunum um ára- mót og yrðu fyrstu styrkirnir aug- lýstir í Lögbirtingarblaðinu 5. maí. Styrkirnir næðu til nýjunga í starfs- menntamálum, t.d. með nýtingu tölva og ijarkennslu, og tungumála- náms svo eitthvað væri nefnt. Um- sóknarfrestur er til 31. júlí. Hellen kynnti ráðstefnu um starfs- þjálfun og endurmenntun á Grand Hótel í Reykjavík 11. maí. Efnt er til ráðstefnunnar í tengslum við Leonardó-áætlunina og verða opnun- arávörp frá fulltrúum menntamála- ráðuneytis og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Að því loknu tekur við kynning á Leonardó-áætl- uninni, starfsemi landsskrifstofu Leonardós á íslandi og samstarfs- nefnd atvinnulífs og skóla og hlut- verki hennar í framkvæmd áætlunar- innar. Rannsóknarþjónusta Háskól- ans skráir þátttakendur. Árangur af Comett Hjá Sigmundi Guðbjarnarsyni, prófessor og formanni Samstarfs- nefndar atvinnulífs og skóla, kom fram að íslendingar hefðu nýtt sér Comett-áætlunina með ýmsum hætti. Haldin hefðu verið 8 nám- skeið fyrir styrk frá Evrópusamband- inu, styrkir hefðu verið veittir til námsgagnagerðar, nemendaskipta og starfsmannaskipta. Fyrir milli- göngu Sammenntar hafa um 45 nemendur skóla á háskólastigi farið í starfsþjálfun í fyrirtækjum eða stofnunum í öðrum löndum Evrópu. Á móti hafa komið hingað sjö erlend- ir nemendur. Niu starfsmenn íslenskra fyrir- tækja og stofnana hafa sótt sér starfsþjálfun og endurmenntun til Evrópu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.