Morgunblaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 35 .
AÐSENDAR GREINAR
Hvenær á að taka mark
á Ríkisendurskoðun?
ÁGÆTU núverandi
og fyrrverandi utan-
ríkisráðherrar.
Kannski er of seint að
spyija Jón Baldvin
Hannibalsson að þess-
ari spurningu en samt
geri ég það en auðvit-
að hlýtur að vera hægt
að fá svar frá núver-
andi utanríkisráð-
herra. Þessi spurning
brennur mér á hjarta
vegna þess að 1 gegn-
um árin hefur óspart
verið bent á Ríkisend-
urskoðun þegar háttv-
irtir ráðherrar hafa
þurft að skera niður í
ríkisgeiranum. Auðvitað. eiga þeir
að taka mark á þessari þörfu stofn-
un því hún hefur margsinnis sann-
að ágæti sitt.
En nú bregður svo við að Ríkis-
endurskoðun gefur út skýrslu um
Sýslumannsembættið á Kefla-
víkurflugvelli og hvað þá? Ekkert
mark er tekið á stofnuninni. Þar
segir að undanfarin þijú ár hafi
verið framkvæmdur svo mikill nið-
urskurður að lengar verið ekki
gengið. í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar kemur fram að stofnunin
dregur í efa að fullnægjandi gæsla
sé í hliðum varnarsvæðisins og
eftirlit í lögreglubifreið sé ekki
fullnægjandi nema tveir lögreglu-
menn sinni því þar sem sönnuna-
rörðugleikar kunni að gera vart
við sig og er lagt til að þessi hluti
verði styrktur. Þessi athugasemd
vekur upp þá spurn-
ingu hvort ekki eigi
að banna að lögreglu-
menn séu einir við eft-
irlit bæði vegna þeirra
sjálfra og þá ekki síst
vegna borgaranna.
Þetta er nær daglegt
brauð hjá lögreglunni
á Keflavíkurflugvelli
sökum niðurskurðar.
Einnig kemur fram
að löggæsla í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar er
ekki í nægjanlega
góðri stöðu. Ríkisend-
urskoðun nefnir að
þjálfunarmál lögregl-
unnar séu ekki í nægj-
anlega góðu lagi. Það er mjög al-
varlegt mál t.d. hvað varðar lög-
gæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Lögreglunni er falið að annast hin
ýmsu tæki í Flugstöðinni og þá á
ég við að lögreglumenn þurfa að
kunna á þau til að geta brugðist
rétt við. Það er alvarlegt ef þjálfun-
arskortur verður þess valdandi að
menn geta ekki sinnt sínum störf-
um sem skyldi. Þetta er spuming
sem ráðamenn verða að taka tillit
til, ekki síst þar sem talað er um
Island sem útstöð landamæra Evr-
ópu. Ekki hefur borið mikið á því
að fjármagni sé veitt til þjálfunar
í þessum málaflokki.
Auðvitað er sérstaða Sýslu-
mannsembættisins mikil. Almenn-
ingur verður ekki svo mikið var
við þá starfsemi sem hjá því er
nema þá í tollgæslu, þegar borgar-
Embætti sýslumanns
á Keflavíkurflugvelli er
í fjársvelti, segir Einar
Helgi Aðalbjörnsson,
sem hér allar um
umsögn Ríkisendur-
skoðunar og löggæslu
í flughöfninni.
arnir fara erlendis og þá þegar
þeir koma til baka, kannski sakna
þeir þess ekki. Ekki á þetta síst
við um lögreglumennina því að
þeir eru nú orðnir svo fáir að þeirra
verður varla vart. Það sést kannski
best á því hversu langt hefur verið
gengið í niðurskurði að ef vantar
einn lögreglumann á vakt að degi
til kemur ekki lögreglumaður í
hans stað og þegar vantar tvo á
vakt þá er eingöngu kallaður út
lögreglumaður í fjóra tíma af tólf.
Það segir sig sjálft -að skerðing
verður bæði á löggæslu á varnar-
svæðinu og ekki síst í Flugstöðinni.
Er nema von að ég spyrji þess-
ara spurninga í ljósi þess að ekk-
ert hefur komið frá utanríkisráðu-
neytinu um að ráðuneytið ætli að
fara eftir þessari skýrslu Ríkis-
endurskoðunar. Virðist því vera að
eingöngu sé tekið mark á stofnun-
inni þegar þarf að réttlæta niður-
Einar Helgi
Aðalbjörnsson
skurð. Ekki þekki ég valdsvið Rík-
isendurskoðunar en það hlýtur að
vera umhugsunarefni að ekki sé
tekið mark á stofnuninni þegar hún
bendir á að niðurskurður sé kominn
langt niður fyrir öll velsæmismörk.
Þótt auðvitað sé gott að ráðuneyti
geti sýnt fram á að þau haldi að
mestu áætlun um niðurskurð, þá
verða ráðherrar að gæta þess að
niðurskurður hjá stofnunum þess
sé ekki það mikill að rekstrar-
grundvöllur sé brostinn. Ekki
treysti ég mér til að vitna í ákveðn-
ar tölur um niðurskurð í utanríkis-
ráðuneytinu í valdatíð fyrrverandi
ráðherra en þó rekur mig minni
til að hafa lesið það í einni árs-
skýrslunni að tekist hafi nær alveg
að halda áætlun um niðurskurð
hjá ráðuneytinu. Ekki hefur verið
neitt sérstaklega um það getið í
skýrslum ráðuneytisins að aukning
var á fjármagni til aðalskrifstofu
á kostnað annarra stofnanna innan
þess.
Nú er svo komið að embætti
sýslumannsins á Keflavíkurflug-
velli er í algjöru íjársvelti og vita
starfsmenn ráðuneytisins það
manna best. Auðvitað er þetta
embætti ekki nein undantekning
en ríkisendurskoðun hefur tekið
embættið út og sagt sitt álit. Þann-
ig að eitthvað virðist standa í ráðu-
neytismönnum að taka mark á
stofnuninni. Tölur um þá aukningu
afbrota sem orðið hefur vart við í
tíð fýrri ríkisstjórnar eru kannski
sú eina mælanlega aukning í starf-
semi sem átt hefur sér stað í henn-
ar tíð. Er sorglegt til þess að vita.
Þetta fjársvelti til löggæslumála á
íslandi hlýtur að vekja upp spum-
ingu hjá þjóðinni allri hvort ekki
sé tími til kominn að ráðherrar
vakni af þessum djúpa svefni sem
þeir hafa sofið í sambandi við lög-
gæslumál almennt og geri eitthvað
í málunum.
Við lestur stefnuskrár núverandi
ríkisstjórnar er ekki minnst á lög-
gæslumál og sakna ég þess. Það
hefur þó komið fram hjá báðum
ríkisstjórnarflokkunum í kosninga-
baráttunni sem nú er nýliðin að
þeir ætla að taka þau mál föstum
tökum. Verðum við að trúa því að
þeir efni þau fyrirheit. Ekki er það
víst að það borgi sig að kosta upp
á úttekt frá Ríkisendurskoðun hjá
öðrum lögregluembættum á land-
inu, því það sýnir sig að ef sú út-
tekt kallar á aukið fjármagn þá
er ekki tekið mark á stofnuninni.
Oft hefur það verið sagt að nýir
vendir sópi best og nú er að sjá
hvort koma Halldórs Ásgrímssonar
í ríkisstjórn hafi ekki þau áhrif að
hann beiti sínum mætti til eflingar
löggæslunnar. Spurning er hvort
augu Þorsteins Pálssonar fari ekki
að opnast því löggæslan er jú und-
ir hans stjórn að mestu leyti.
Dómsmálaráðherra ætti nú á sínu
öðru kjörtímabili að sjá að hann
verður að fara að bretta upp erm-
ar og efla löggæsluna. Það hafa
margar greinar verið skrifaðar um
mál löggæslunnar og margar góð-
ar, þó held ég að besta greinin í
langan tíma hafi komið frá Helga
Kristjánssyni lögreglumanni í
Keflavík sem birtist fyrir skömmu
í Morgunblaðinu. Ættu ráðamenn
að geta notað hana sér til leiðbein-
ingar. Nú þegar Halldór Ásgríms-
son er kominn í embætti utanríkis-
ráðherra vona ég að hann lesi yfir
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
Sýslumannsembættið á Keflavík-
urflugvelli. Eftir þann lestur held
ég að utanríkisráðherra sjái að
þetta fjársvelti embættisins á
Keflavíkurflugvelli gengur ekki
upp.
Höfundur er lögregluvarðsljóri á
Keflavíkurflugvelli og
áhugamaður um stjómmál.
Velkomin í Mosfellsbœ
/
Qarðyrkjusýning 5 ♦ - 7. maí í Ahaldahúsi
Mosfellsbœjar, Völuteig 2
Sýningin ferfram í
Áhaldahúsi Mosfeils-
bæjar að Völuteig 2
Hafravalns-
vegur j
Úlfarsfell
' *
\ »
Leirvogur
Helgaíei!
1000 m
Samtök garðyrkju- og umhverfisstjóra á
Islandi stendur fyrir sýningunni og verður
aðaláherslan lögð á vélar og verkfæri til
notkunar skrúðgarðyrkju.
Einnig er sýnishom af safnhaugagerð og
greinatætara í vinnslu. Kynning á
leiktækjum af ýmsum gerðum, ráðgjöf í
garðyrkju o.fl.
íÞetta mun vera fyrsta sýning sinnar
tegundar á Islandi og margt forvitnilegt að
sjá, jafnt fyrir fagmenn, starfsmenn bæjar-
og sveitarfélaga og hinn almenna
garðeiganda.
í^osfellingar og aðrir landsmenn eru
hjartanlega velkomnir.
Enginn aðgangseyrir. Veitingasala á
staðnum.
Jfýningin verður opnuð föstudaginn 5. maí
kl. 15.00 að viðstöddum boðsgestum.
Sýningin er öllum opin laugardag og
sunnudag milli kl. 10.00-18.00.
Sýningaraðilar:
Frjó, Gróðurvörur, Ellingsen, Vetrarsól, Hrím, Glóbus, Atlas, Vélar- ogþjónusta,
Ingvar Helgason, Sorpa, Landgrœðslan, Bamagaman, Bamasmiðjan, fóhann Helgi & Co.