Morgunblaðið - 05.05.1995, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.05.1995, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tekin með 300 alsælutöflur, amfetamín og kókaín Mesta magn alsælutafla sem fundist hefur MESTA magn alsælutafla, sem fundist hefur hér á landi, fannst þegar líkamsleit var gerð á 21 árs gamalli stúlku í Leifsstöð fyrir síð- ustu helgi. Stúlkan var að koma frá Amstérdam og hafði, auk rúmlega 300 alsælutafla sem hún hafði falið í leggöngum sínum, tæp 300 grömm af amfetamíni falin innan klæða og eitt gramm af kókaíni. Tollgæslan á Keflavikurflugvelli leitaði á stúlkunni þegar hún kom til landsins á föstudag og fann þá 289 grömm af amfetamíni og gramm af kókaíni. Þá var stúlkan skoðuð betur og fundust alsælutöfl- umar í leggöngum hennar. Annar farþegi í sömu vél, piltur á sama aldri og stúlkan, var hand- tekinn um leið og hún. Engin fíkni- efni fundust við leit á honum. Sam- kvæmt uppiýsingum lögreglu mun hann hafa fjármagnað kaupin en hún tekið að sér að flytja þau til landsins, þ.e. vera svokallað burðar- dýr. Stúlkan og pilturinn voru úr- skurðuð í gæsluvarðhald. Hénni var HLUTI rúmlega 300 alsælu- tafla, sem fundust við leit á 21 árs stúlku í Leifsstöð. sleppt úr haldi á sunnudag og hon- um á miðvikudagskvöld, þegar málið var fullrannsakað. Hvorugt þeirra hefur komið við sögu fíkni- efnalögreglunnar áður. Alsæla í tísku Helsta efni í alsælutöflum er amfetamín, sem blandað er með LSD-sýru og verður neytandi efnis- ins fljótt háður því. Kristján I. Kristjánsson, lögreglufulltrúi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að lögreglan hefði upplýsingar um að neysla á alsælu hefði aukist undanfarið. „Þetta virðist vera í tísku núna,“ sagði hann. „Við höf- um fundið töflur áður, en aldrei í jafn miklu magni." Neyslan vex hratt Kristján sagði að hver tafla væri einn skammtur og væri seld á 3.500 til 5.000 krónur. „Alsæla hefur mismunandi áhrif á neytendur. Þeir sem hafa neytt efnisins áður þurfa meira næst, svo neyslan vex hröð- um skrefum." Kristján sagði að málið væri full- rannsakað og yrði sent embætti rík- issaksóknara á næstunni. -í I Morgunblaðið/RAX STARFSEMI Björgunar h.f. var í fullum gangi í gær. Fylliefni er dælt úr skipinu. t Umsóknum um malarnám hafnað ingurinn af því verið nýttur. Viðræður við Björgun HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur hef- ur samþykkt að hafna að svo stöddu nýjum umsóknum um malarnám í sjó sé efnistaka ekki á vegum borg- ar eða borgarfyrirtækja. Hannes Valdimarsson, hafnar- stjóri, sagði að samkvæmt 10 ára gamalli könnun hefðu 12 milljónir rúmmetra af nýtanlegu efni verið á hafnarsvæðinu. Nú hefði um helm- Hafnarstjórn hefur falið Hannesi að taka upp viðræður við Björgun h.f., sem hefur malarnámsheimild, og sagðist Hannes myndu ræða við fyrirtækið um nýtinguna, ástandið í námunum og hugsanlega nýtingu annars staðar. Þorsteinn Pálsson Halldór Ásgrimsson Helgi Agústsson Síldarviðræðum lauk í gær án samkomulags TVEGGJA daga viðræðum ís- lands, Noregs, Rússlands og Færeyja um stjórnun veiða úr norsk-íslenzka síldarstofninum og takmörkun veiða í Síldar- smugunni lauk án árangurs í Reykjavík í gær. Mikið bar á milli um kvóta til handa Færey- ingum og íslendingum, sem hafa enn ekki fengið hlutdeild í vexti stofnsins á undanförnum árum. Þorsteinn Pálsson Vorum tilbúnir að slaka á kröfum ORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra segist harma að ekki hafi náðst samkomulag á fjög- urra landa fundinum um stjórnun veiða úr norsk-íslenzka síldarstofn- inum. Hann segir að íslendingar hafi verið tilbúnir að slaka mjög á kröfum sínum til að ná bráðabirgða- samkomulagi. Ekki einkaeign Norðmanna „Mér fínnst Norðmenn með óskilj- anlegum hætti líta svo á að stofninn sé þeirra einkaeign. í ljósi sögulegr- ar reynslu er hann eign fjögurra þjóða og samningarnir hljóta að fara fram á þeim grundvelli," sagði Þor- steinn í samtali við Morgunblaðið. „Við vorum, þrátt fyrir afstöðu Norðmanna á undanförnum árum að neita um viðræður, tilbúnir að gera bráðabirgðasamkomulag, sem á þessu ári hefði þýtt minni híut- deild okkar en við hijótum að gera kröfu til í endanlegum samningi. Eigi að síður eru Norðmenn fjarri því að nálgast okkur í þessu efni. Við sýndum það á fundunum að við vorum reiðubúnir að slaka talsvert á okkar kröfum.“ Þorsteinn sagði að íslendingar vildu stunda ábyrgar veiðar í Síldar- smugunni og hefðu því ákveðið að hefja samningaviðræður við Færey- inga til að kanna hvort löndin gætu sameiginlega samið um aflamark fyrir skip sín. „Við myndum ákveða okkur sanngjama hlutdeild og hugs- anlega gagnkvæman rétt til veiða innan landhelgi hvors annars. Þetta yrði auðvitað bráðabirgðaráðstöfun, en ég teldi mjög æskilegt að þessar þjóðir næðu samstöðu í málinu,“ sagði Þorsteinn. 1-2 milljónir tonna i Síldarsmugunni Sjávarútvegsráðherra sagðist vona að hægt yrði að koma á að nýju viðræðum við Rússa og Norð- menn um framtíðarnýtingu síldar- stofnsins. Hann sagði að ljóst væri að síldin gengi nú í Síldarsmuguna í miklu magni, á milli ein og tvær milljónir tonna af hrygningarstofn- inum. „Það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíðarstjómun á stofninum ef samkomulag næst ekki. Mér fínnst Norðmenn ekki taka nægilega mikið tillit til þeirra sam- eiginlegu framtíðarhagsmuna," sagði Þorsteinn. Stein Qwe Samkomu- lag hefði orðið öðrum fordæmi STEIN Owe, formaður norsku viðræðunefndarinnar í fjög- urra landa viðræðum Noregs, Is- lands, Rússlands og Færeyja um stjórnun norsk-íslenzka síldar- stofnsins, segir norsk stjórnvöld hafa orðið fyrir vonbrigðum með að ekki tókst að ná samningum. „Veiðar á úthafinu og þróun þeirra eru mikilvægt mál. Við höfð- um vonazt til að það gæti tekizt að komast að samkomulagi milli strandríkjanna, þannig að koma mætti á stjórnun eða ramma um þær veiðar, sem þau gætu stundað, og að einnig mætti hindra veiðar á alþjóðlegu hafsvæði. Slíkt sam- komulag hefði verið öðrum fordæmi og hefði getað haft heppilegar af- leiðingar bæði fýrir síldarstofninn og löndin, sem nýttu hann.“ Owe sagði að ekki væri rétt að taka svo til orða að slitnað hefði upp úr viðræðunum. Samkomulag hefði ekki náðst og nýr fundur hefði ekki verið ákveðinn, en að tala um viðræðuslit væri misvísandi. Helzta ástæða þess að samkomu- lag náðist ekki, hefði hins vegar verið sú að langt hefði verið á milli aðila um stærð á kvóta til handa íslandi og Færeyjum. Owe vildi ekki tjá sig um hugsan- leg viðbrögð Norðmanna við því að íslenzk skip hæfu nú veiðar í Síldar- smugunni. „Við teljum mjög óheppilegt, ef þessi skip hefja veið- ar. Við höfum einmitt reynt að forð- ast það ástand, sem nú stefnir í,“ sagði hann. Aðspurður hvort orsök þess, hvemig komið væri, væri ekki að Norðmenn hefðu árum saman neit- að að ræða við íslendinga um síldar- stofninn, sagði Owe: „Mér finnst að hefðu menn viijað ná samningi nú, hefði það verið hægt þótt við hefðum skamman tíma til stefnu. Það var ekki of seint að funda nú.“ Halldór Ásgrímsson Skammsýni Norðmanna kemur okkur í koll HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra segir mikil von- brigði að ekki hafi tekizt __ að ná bráðabirgðasamkomulagi íslands, Noregs, Rússlands og Færeyja um stjórnun á síldarstofninum í Síldar- smugunni. íslendingar hafi lagt sig mjög fram um slíkt, en Norðmenn sýnt mikla þvermóðsku. Halldór segir að miklar væntingar hafí verið hér á landi til síldveiða. „Það var alveg Ijóst að við gátum ekki gengið frá bráðabirgðasam- komulagi nema það gæfi okkar skip- um bærilegt svigrúm," sagði Hall- dór. „Það virtist ekki vera vilji til þess af hálfu Norðmanna og það eru mikil vonbrigði. Ég tel að þessi nið- urstaða skaði mjög framtíðarhags- muni þjóðanna varðandi síldarstofn- inn. Það er að koma í bakið á mönn- um að það skuli aldrei hafa verið efnt til raunverulegra viðræðna um þetta mál fyrr en nú upp á síðkast- ið. Ég var sjávarútvegsráðherra í átta ár og það var talað um það við Norðmenn á hveiju einasta ári að það væri nauðsynlegt að setjast nið- ur til samninga. Þeir sögðu að það kæmi ekki til greina fyrr en síldi gengi út á alþjóðlegt hafsvæði. Við margvöruðum við því að það væri alltof seint og undir það tóku Rúss- ar, Færeyingar og aðrar þjóðir. Nú er þessi skammsýni Norðmanna að koma okkur öllum í koll.“ Engin tilmæli til skipanna Halldór sagði að nú myndu veið- ar íslenzkra skipa í Síldarsmugunni fara fram, án bráðabirgðasam- komulags við Noreg og Rússland. „Við verðum að setjast niður ein- hvern tímann á næstunni til að halda áfram að reyna að ná samn- ingum til lengri tíma, en samningar til skemmri tíma eru í meiri fjar- lægð í dag en fýrir tveimur dög- um,“ sagði hann. Halldór sagði að næsta skref af hálfu íslendinga yrði að ræða við Færeyinga um að löndin tvö kæmu sér saman um fyrirkomulag veið- anna. Hins vegar hefðu enn sem komið væri engin tilmæli verið gef- in til útgerðarmanna eða skipstjóra um ,að takmarka veiðar í Síldar- smugunni. „Nú er fundinum lokið og þeir halda þá áfram við veiðam- ar. Svo er það síðari tíma ákvörðun hvort og með hvaða hætti veiðarnar verða takmarkaðar," sagði utanrík- isráðherra. Helgi Agústsson X-ÍELGI Ágústsson, formaður ís- lenzku viðræðunefndarinnar á fundinum um stjórnun síldarstofns- ins, sagði er viðræðum hafði verið hætt, að strandað hefði á því að Rússar og Norðmenn hefðu ekki vilj- að samþykkja kröfur íslendinga og Færeyinga um kvóta. Hann vildi hins vegar ekki nefna neinar tölur í því sambandi. „Við gerðum kröfu um sanngjarn- an og hæfilegan kvóta fyrir Island til veiða á þessu ári. Við teljum það ekki vera neina áhættu að veiða úr stofninum í ár. Það eru stórir ár- gangar á leiðinni og í framtíðinni mætti gefa sér betri tíma til að jafna út þá veiði, sem yrði nú í sumar. En það varð ekki samkomulag um þetta, því miður,“ sagði Helgi. Beðið um viðræður í áratugi Hann sagði að nýr fundur hefði ekki verið boðaður. Fyrsti fundur landanna, sem haldinn var í Ósló í seinustu viku, hefði að mati íslend- inga verið haldinn á elleftu stundu. „Við höfum í mörg ár, jafnvel ára- tugi, reynt að fá Norðmenn að samn- ingaborðinu um stjórnun og verndun síldarstofnsins, en þeir hafa ekki hlustað a okkur. Núna, þegar loksins tekst að ná fundi, eru skipin á leið- inni á rniðin," sagði Helgi. Aðspurður hvort stirfni hefði gætt í viðræðunum af hálfu Norðmanna og Rússa, sagði Helgi: „Það er að minnsta kosti óhætt að segja að þeir hafi farið afar varlega.“ I' ormenn íslenzku og norsku sendinefndanna voru sammála um að hin óleysta deila Noregs og ís- lands um veiðar í Smugunni í Bar- entshafi hefði ekki haft áhrif á við- ræðurnar um síldarstofninn. Kröfur um sanngjarn- i an og hæfi- ! leg’an kvóta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.