Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Blindrafélagið veitir Morgunblaðinu viðurkenningu
Framlag til byltingar í aðgengi
blindra að upplýsingum
'TIfinrfraféfayið fiaAf/ar
Morgunblaðlnu
af afíiuy fyrirframfag iiffeirrar
fiyfiingar / ahgenyi fjfindra oy sjónsÁerira
ah uppfýsinyum, sem álgdfa
JfCoryunSfahsins d rafrœnu formi er.
CfA. CBfindraféfaysins
7!afnarJt JKtfmiuun. fi,rmniur
Æéá
Arni Magn-
ússon að-
stoðar Finn
ÁRNI Magnússon hefur verið ráð-
inn aðstoðarmaður Finns Ingólfs-
sonar iðnaðár- og
viðskiptaráðherra.
Ámi er tæplega
þrítugur að aldri.
Hann lauk Sam-
vinnuskólaprófi
frá Bifröst en hef-
ur starfað sem
frétta- og dag-
skrárgerðar-
maður, m.a. á
Tímanum, Ríkis-
sjónvarpinu og Ríkisútvarpinu.
------» ♦ ♦-----
Söfnun Krýsuvíkur-
samtakanna
4 millj.
söfnuðust
FJÓRAR milljónir króna söfnuðust
fyrir nýrri borholu við Krýsuvíkur-
skóla í söfnun Krýsuvíkursamtak-
anna á Rás 2 í gær. Að sögn Snor-
ra Welding formanns samtakanna
hafa samtökin þar með náð að safna
fyrir 2/.i hlutum þeirra 6 milljóna
sem áætlað er að kosti að bora
nýja holu. Hitaveita skólahússins
hefur verið í lamaséssi í annað ár
og var efnt til söfnunarinnar til að
bæta úr því.
Snorri sagði að enn vantaði fé
sem nemi virðisaukaskatti við fram-
kvæmdina og viðgerðum og ýmsum
framkvæmdum sem væru á áætlun-
inni. Hann kvaðst vongóður um að
fleiri framlög ættu eftir að bætast
við, ekki síst þar sem óskir um
framlög hefðu verið lagðar fyrir
ýmis stórfyrirtæki sem ættu eftir
að leggja erindi fyrir stjórnir sínar.
Einnig kvaðst hann binda vonir við
að Lionsklúbbar ættu eftir að
bregðast við ákalli fjölumdæmis-
stjóra Lions-hreyfingarinnar um að
leggja málinu lið.
Snorri sagði að sennilega hefðu
5-700 aðilar lagt söfnuninni lið, ein-
staklingar, fyrirtæki, starfsmanna-
hópar, lionsklúbbar, kvenfélög,
kirkjusóknir og hvers kyns samtök.
Hann sagði áætlanir gera ráð
fyrir að framkvæmdir hæfust þann
15. þessa mánaðar og sagði að
þessi niðurstaða ætti að geta gert
það kleift,
Snorri Welding vildi koma á
framfæri þakklæti samtakanna til
allra þeirra sem lagt hefðu málefn-
inu lið.
BLINDRAFÉLAGIÐ afhenti
Morgunblaðinu í gær skjal,
þar sem þakkað er af alhug
það framlag blaðsins til bylt-
ingar í aðgengi blindra og
sjónskertra að upplýsingum,
sem útgáfa Morgunblaðsins
á rafrænu formi er, eins og
segir í skjalinu.
Nú stendur yfir ráðstefna
norrænu blindrafélaganna
hér á landi og ber hún yfir-
skriftina Aðgangur blindra
og sjónskertra að upplýsing-
um og menningu. Gísli
Helgason, sem á sæti í und-
irbúningsnefnd ráðstefn-
unnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að
Blindrafélaginu hefði þótt
vel við hæfi að veita Morgun-
blaðinu viðurkenninguna á
ráðstefnu um þessi mál.
„Morgunblaðið vann að und-
irbúningi útgáfu blaðsins á raf-
rænu formi um fjögurra ára
skeið og við hjá Blindrafélaginu
áttum ávallt mjög gott samstarf
við blaðið. Þann 10. desember
sl. hófst svo útgáfan, sem felst
í því að texti Morgunblaðsins
er sendur á tölvutæku formi til
Blindrafélagsins og síðan er
notaður talgervill til að lesa
blaðið fyrir blinda og sjón-
skerta," sagði Gísli.
Forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, kynnti sér raf-
ræna útgáfu Morgunblaðsins í
gær og sagði í ávarpi sínu á
ráðstefnunni að ísland væri
líklega 7. landið í Evrópu,
þar sem dagblað er fært á
rafrænt form með þessum
hætti.
Hlutverk
bókasafna
Á ráðstefnu norrænu
blindrafélaganna, sem
stendur til 7. maí, er fjallað
um ýmis efni, þ.á m. hlut-
verk almenningsbókasafna
og blindrabókasafna.
Gísli Helgason sagði að
samkvæmt norskri könnun
fjölgaði útlánum á bókasöfn-
um ef þau byðu upp á
hljóðbækur, því ýmsir nýttu
sér þær þótt þeir væru ekki
blindir, til dæmis þeir sem
ættu við lestrarörðugleika
að stríða eða vildu iyóta
þess að hlusta á talað mál.
„Eftir að við stofnuðum Hljóð-
bókaklúbb Blindrafélagsins
kom í Ijós að hér á landi er
sama uppi á teningnum. Al-
menningsbókasöfn hafa keypt
hljóðbækur af okkur, til dæmis
Borgarbókasafnið."
RAGNAR R. Magnússon, formaður Blindrafélagsins, afhendir Haraldi Sveinssyni, framkvæmda-
sljóra Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins og Ingvari Hjálmarssyni, umsjónarmanni tölvumála
á Morgunblaðinu, viðurkenningu Blindrafélagsins fyrir útgáfu blaðsins á rafrænu formi.
Þorskneysla í Bandaríkjunum
hefur dregist saman um 36%
ÞORSKNEYSLA í Bandaríkjunum dróst saman
um 36% á Qögura ára tímabili, úr 192.000
tonnum árið 1989 í 120.000 tonn 1993. Inn-
flutningur á þorskafurðum var 150.000 tonn
1979-1987 en er 60.000 tonn nú.
Markaðshlutdeild sjávarafurða á bandarísk-
um matvælamarkaði er 6% og er ársvelta
markaðarins 650 milljarðar dala eða tæplega
41.000 milljarðar íslenskra króna. Þetta kom
fram í erindi Magnúsar Gústafssonar forstjóra
Coldwater Seafood Corporation á fundi Amer-
ísk-íslenska verslunarráðsins í gær.
Magnús sagði að fiskneytendur hefðu snúið
sér í ríkara mæli að ýsu, steinbíti og Iaxi í
stað þorsks, einkum vegna óreglulegs fram-
boðs og verðhækkana. Þorskur var í fjórða
sæti meðal sjávarrétta á borðum landsmanna
árið 1989 en þriðja sæti árið 1993 og segir
Magnús að botnfisktegundir séu 2% aðalrétta
sem neytt er í Bandaríkjunum og mögulegt
að sækja fram á kostnað annarra aðalrétta
því leitt hefði verið í Ijós að landsmenn vildu
ekki eyða hærra hlutfalli af ráðstöfunartekjum
í matvæli, en það væri nú undir 14%.
Fram kom að neysla á sjávarréttum hafi
lítið breyst í áranna rás og á lista yfir tíu al-
gengustu fæðutégundir á matseðlum Bándarí-
skra veitingahúsa árið 1973, 1983 og 1993
hafi sjávarréttir ekki komist á blað.
Vilji neytenda ráði
Lagði Magnús til að reynt yrði að koma
meira til móts við neytendur í stað þess að
gera ráð fyrir að þeir þyrftu á vörunni að
halda og gerði grein fyrir könnun sem gerð
var þeirra á meðal og leiddi í ljós meðal ann-
ars að fjórðungur þeirra vildi hollustufæði og
19% leggðu meiri áherslu á bragðgæði en holl-
ustu.
Sagði hann að niðurstaðan væri sú að þrátt
fyrir mikla umfjöllun um hollustu væri meiri-
hluti neytenda á þeirri skoðun að bragð og
gæði væru mikilvægari en hollusta og nær-
ingargildi. Þess vegna ætti markaðssókn fyrir
fískafurðir að ganga út á það að um væri að
ræða bragðgóðan mat sem jafnframt væri
hollur, í stað þess að kynna hann sem hollan
og jafnframt bragðgóðan.
Magnús sagði jafnframt að söluaðilar afurð-
anna leggðu mesta áherslu á stöðugt framboð
og verðlag þar sem breytingar á matseðlum
væru ekki mjög tíðar. Gengi sala eldisafurða
vel meðal annars vegna þess að framboð og
gæði væru stöðug.
Loks sagði hann að íslenskar fiskafurðir
hefðu engin séreinkenni í huga neytandans
lengur. Verðlag væri á reiki og þeir þekktu
ekki vöruna sem íslenska, þótt þeir könnuðust
ef til vill við einstök vörumerki.
Milljón til
Tsjetsjníju
RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
þykkt tillögu Halldórs Ás-
grímssonar, utanríkisráðherra,
að veita 16.000 dollara eða um
eina milljón króna, til neyðar-
aðstoðar vegna flóttamanna-
vandans í Tsjetsjníju.
Samkvæmt upplýsingum
Mannúðardeildar Sameinuðu
þjóðanna hafa hundruð þús-
unda íbúa Tsjetsjníju flosnað
upp frá heimilum sínum vegna
stríðsins þar. Hjálparstofnanir
Sameinuðu þjóðanna háfa tekið
höndum saman um átak til
aðstoðar þeim sem verst eru
settir. Mannúðardeild Samein-
uðu þjóðanna hefur yfirumsjón
með hjálparstarfinu og sam-
hæfir aðgerðir hjálparstofnana
þeirra sem vinna að því að út-
vega fólkinu húsaskjól, vatn,
hreinlætisaðstöðu, fæði, klæði
og Iyf og annast börnin í flótta-
mannahópnum.
Annasamt hjá
lögreglunni á
Sauðárkróki
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
ANNASAMT hefur verið hjá
lögreglunni á Sauðárkróki und-
anfarið en aðfaranótt sl. þriðju-
dags var brotist inn í félags-
heimilið Miðgarð í Varmahlíð,
unnar þar nokkrar skemmdir
og stolið meðal annars sjón-
varpi, stýrikerfi ljósabúnaðar
ásamt ýmsum smærri tækjum
og búnaði.
Þá var aðfaranótt miðviku-
dags brotist inn í sjö bíla á
Sauðárkróki og stolið úr þeim
útvörpum, geislaspilurum, rad-
arvörum og myndavél og unnar
skemmdir á bílunum.
Að sögn lögreglunnar hafa
allir þeir sem komu við sögu í
báðum þessum málum verið
handteknir og teljast þau að
fullu upplýst.
Tímakaup í ung-
lingavinnunni
Fá 90% af
Dagsbrún-
artaxta
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að 14 og 15 ára unglingar hjá
Vinnuskóla Reykjavíkur fái
90% tímakaups unglingataxta
Dagsbrúnar að launum í sum-
ar.
Tillagan kom frá stjórn skól-
ans og þýðir að 14 ára fá
182,40 krónur á tímann og 15
ára 206,72 krónur. Erþað 8,6%
hækkun frá fyrra ári. Hefur
þessi viðmiðun verið notuð hjá
skólanum um langt árabil.
Tívolí á
Miðbakka
JÖRUNDUR Guðmundsson
hefur fengið leyfi til að reka
Tívolí á Miðbakka við Reykja-
víkurhöfn 8.-23. júlí.
Samþykkti hafnarstjórn um-
sókn Jörundar í lok apríl en
gerði meðal annars að skilmál-
um að hávaði frá starfseminni
stríddi ekki gegn mengunar-
varnareglugerð. Fjallað var um
málið í borgarráði og áhersla
lögð á að eftirlit yrði haft með
starfseminni og leyfi afturkall-
að ef hávaðamörk yrðu ekki
virt.