Morgunblaðið - 05.05.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 13
LANDIÐ
Glæsileg hesta-
sýning í Eyjum
Vestmannaeyjum - Hestasýning
fór fram í Eyjum nýlega en það er
í fyrsta skipti sem slík sýning fer
fram í Vestmannaeyjum.
Unglingar úr Hesta-
íþróttafélaginu Herði í
Mosfellsbæ komu með
hesta sína til Eyja og
sýndu Vestmannaeying-
um listir hestamenns-
kunnar en hestamenn í
Eyjum ásamt Magnúsi
Kristinssyni, útvegs-
bónda, sáu um undirbún-
ing sýningarinnar.
Hestamenn í Eyjum
leituðu til bæjaryfirvalda
og fengu úthlutað svæði á
nýja hrauninu, þar sem
nú er búið að gera skeið-
völl, hringvöll, með góðri
sýningarflöt og þar átti
að halda hestasýninguna.
A sýningunni á laugar-
dag, sem reyndar þurfti að flytja
til vegna veðurs, var fánareið,
skeiðsýning, skrautsýning, hestar
í hringtaumi, tölt, fjórgangur,
hlýðniæfingar, hindrunarstökk og
ýmislegt fleira. Mesta athygli fékk
hindrunarstökkið þar sem hestarn-
ir voru meðal annars látnir
stökkva yfir logandi hindranir. Þá
vakti athygli Eyjamanna hæfni
unglinganna til að láta hestana
hlýða, t.d. við að láta þá heilsa,
hneigja sig og velta sér.
Hátt í 300 Eyjamenn fylgdust
með sýningunni á laugardaginn
og voru þeir ánægðir með
skemmtilega sýningu. Magnús
Kristinsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að heimsókn hesta-
mannanna til Eyja hefði í alla staði
tekist mjög vel.
25 hross eru í Eyjum, en hesta-
menn þar eru með sérstaka deild
MAGNÚS Kristinsson, útvegsbóndi í
Eyjum, bar hitann og þungann af und-
irbúningi og framkvæmd hestasýning-
arinnar í Eyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
UNGLINGAR úr Hesta-
íþróttafélaginu Herði ríða
fánareið í botni Friðarhafnar
í Eyjum.
HINDRUNARSTÖKK vakti mikla athygli Eyjamanna.
í Hestamannafélaginu Geysi í
Rangárvallarsýslu, þannig að um
helgina nær tvöfaldaðist fjöldi
hrossa í Vestmannaeyjum. Allir
hestarnir sem komu til Eyja voru
hýstir á „South Fork“, búgarði
Magnúsar Kristinssonar í Lyng-
felli, meðan á Eyjadvölinni stóð
en þeir héldu til lands á ný á
mánudaginn.
opvð LANQUR LAUQARDAQURj sPennandj
io-l7r LAUQAVEQUR OQ NÁQRENNI tilboð '
Laugavegi 52 — Sími 562-4244
Vorum að taka upp stórkostlegt
úrval af gjafavörum frá Rosenthal
og sýnum nýja hönnun frá hinum
heimsfræga tískukóngi Qianni
Versace sem er orðinn einn helsti
hönnuður Rosenthal í dag og kemur
stórkostlega á óvart.
Við sýnum einnig nýja
borðstellið „Promenada"
sem er eins og það hafi verið
hannað með arfleifð
v
Islendinga í huga afhinum
frábœra ítalska Aldo Rossi.
Láttu nýjungarnar frá Rosenthal ekki
fara fram hjá þér á löngum laugardegi./
Ifað blása nýir vindar í verslnnin|ní
Rosenthal.
.
■
'
Bomullarpey
ir
6
4
vou
Laugavegi 51
sími 551-8840
jakkar
.990,-
sumarjakkar
5.990, -
Pólobolir
1.990, -
Jakkaföt
9.990, -
Skyrtur
1.990, -
Bolir
890,-
Þaðerkomið sumar...