Morgunblaðið - 05.05.1995, Side 20

Morgunblaðið - 05.05.1995, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT ' STUTT Kennir lögreglu um uppþot GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein, kenndi í gær lögreglu um það að engu munaði að til uppþota kæmi í London- derry á Norður-írlandi í fyrra- dag. Það varð til þess að John Major, forsætisráðherra Bret- lands, hætti við að koma til borgarinnar auk þess sem það stefndi friðarviðræðum á Norður-írlandi í voða. Krafð- ist Major afsökunar á uppá- komunni en Adams tók það ekki í mál. Kínversk risarotta TVEIR kínverskir hermenn fönguðu fyrir skömmu risa- rottu sem vóg 3,5 kg og var 60 sm löng með hala. Dýrinu er lýst svo að það hafí loppur líkt og köttur og 20 sm hala eins þykkan og-þumalfíngur manns. Rottunni, sem fannst í útjarði Peking, verður lógað eftir að dýrafræðingur hefur litið á hana. Minni hagvöxtur vegna stöðu marksins SLÆMAR efnahagsspár og atvinnuleysi eru merki þess að ris marksins hefur sett sitt mark á þýskt efnahagslíf, að sögn hagfræðinga. Hafa stjómvöld loks viðurkennt að viðvaranir stjómenda þýskra stórfyrirtækja hafí verið á rökum reistar en þeir vöruðu við því að draga myndi úr efnahagsbatanum vegna styrkrar stöðu marksins. Gera stjómvöld ráð fyrir því að hagvöxtur verði undir þremur prósentum á þessu ári. Meiri mengun í Norðursjó en talið var OLÍULINDIR menga Norð- ursjó mun meira en áður var talið. Veldur olía sem fer til spillis dauða físka og annarra sjávardýra, að því er fram kemur í nýrri skýrslu um ástand sjávar. Að sögn Johns Gray, sjávarlíffræðings við Óslóarháskóla hefur komið í ljós að í nokkurra kílómetra radíus frá norsku olíuborpöll- unum í Norðursjó hefur allt líf þurrkast út. Segir Gray, í samtali við The New Scient- ist, að ástandið sé líklega enn verra í kringum olíuborpalla Breta. Reynt að koma á samningafundi Króata og Krajina-Serba Serbíuforseti á móti nýju strídi við Króata Reuter KRÓATÍSKIR hermenn og óbreyttir borgarar í líkfylgd Zoravnos Malnars, lögreglumanns sem féll í bardaga við Króatíu-Serba í þorpinu Okuciani í fyrradag. Franjo Tudjman Króatíuforseti hefur hótað að gripa til hernaðar á ný ef Serbar geri fleiri eld- flaugaárásir á Zagreb. Genf, Zagreb. Reuter. ALÞJÓÐLEGIR sáttasemjarar sögðu í gær að leiðtogar Króatíu- Serba í Krajina-héraði og forystu- menn Króata hefðu samþykkt að ræða saman í Genf en fundurinn yrði þó ekki í þessari viku. Reynt væri að ná sáttum um fundardag. Króatar náðu með skyndiáhlaupi að leggja undir sig mikilvægt svæði Króatíu-Serba fyrr í vik- unni. Talið er að þjóðemissinnaðir harðlínumenn í Krajina muni fara halloka vegna sigra Króata og tals- menn málamiðlana í deilunum við stjórnvöld í Zagreb eflast. Umrætt svæði í vesturhluta Sla- voníu hafði verið undir yfírráðum Króatíu-Serba frá 1991 er Serbía og Króatía áttu í stríði sem lyktaði með ósigri hins síðamefnda. Harð- línumaðurinn Milan Martic, forseti hins svonefnda Krajina-lýðveldis þjóðarbrots Serba í Króatíu, er sagður hafa gefíð Króatíuher ágæta afsökun fyrir því að hefja vopnaviðskipti með að banna í einn sólarhring umferð um mikilvægan þjóðveg Króatíu, E-70, er liggur um svæðið og hóta að honum yrði endanlega lokað. Hlynntur samningum Forsætisráðherra Krajina, Bor- islav Mikelic, er öndvert Martic hlynntur samningum við Króata og tókst í desember að semja um eðlileg viðskipti og samgöngur við þá. Ætlunin var að samkomulagið yrði upphaf að endanlegum friðar- samningi. Martic reyndi að fá þing- ið til að víkja Mikelic en það mis- tókst. Fordæma eldflaugaárás Mikelic var að sögn heimildar- manna á leið til Zagreb á þriðjudag til að semja um vopnahlé er gerð var eldflaugaárás á borgina sem Serbum var kennt um. Talið er að Martic og menn hans kunni að hafa staðið fyrir árásinni en Mi- kelic fordæmdi hana og sagði stjóm sína ekki hafa átt neinn þátt í henni. Stjórn Slobodans Milosevic Serbíuforseta hefur hætt hem- aðarstuðningi við þjóðbræðurna í Bosníu til að fá aflétt viðskipta- banni Sameinuðu þjóðanna og full- yrt er að Martic og yfirmaður hers Krajinu-Serba, Milan Celeketic, njóti lítils stuðnings hjá Milosevic vegna harðlínustefnu sinnar. Martic gæti nú orðið að lúta í lægra haldi í valdabaráttunni gegn Mikelic vegna ósigursins gegn Króatíuher í Slavoníu. Reuter Keðjugengi til vegavinnu MEÐLIMIR nefndar Sameinuðu þjóðanna um pyntingar lýstu í gær furðu sinni á því að keðju- gengi svokölluð hefðu verið tekin upp að nýju í Alabama. Keðju- gengi eru hópar refsifanga sem hlekkjaðir eru saman á fótum og vinna utan fangelsismúranna. Hyggst nefndin kanna hvort að keðjugengin gangi í berhögg við alþjóðlegar reglugerðir. Var- formaður hennar, Peter Burns, sagði að þrátt fyrir að svo virtist sem að ekki væri um pyntingar að ræða, væri þessi refsiaðferð niðurlægjandi auk þess sem að hún væri stórt stökk aftur á bak. Á myndinni halda tvö keðjugengi til vinnu við hraðbraut nærri Huntsville í Alabama. -----» ♦ ♦ I fangelsi fyrir að neita að moka snjó Middlesex Borough, New Jersey. Reuter. DÓMARI í New Jersey hefur dæmt 81 árs gamian og veikan mann til tveggja daga fangelsisvistar fyrir að neita að moka snjó af gangstétt- inni fyrir framan húsið hans. Joseph Verebly, sem gengur við staf og er á lyfjum við sjúkleika af ýmsu tagi, var fundinn sekur um að óhlýðnast lögum þar sem hann mokaði ekki snjó af gangstétt eftir óveður í febrúar sl. „Ég get ekki mokað sjálfur og ég ætla ekki að borga einhveijum krakka 25 dollara fyrir að gera það. Ég borga há gjöld til borgar- innar, hún getur sjálf séð um snjó- moksturinn, sagði gamli maður- inn.“ F ili A1 ÞIÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.