Morgunblaðið - 05.05.1995, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Málverkasýning- Sigrúnar
Eldjárn í Norræna húsinu
Ahrif, hugmynd-
ir og tilfinningar
Morgunblaðið/Þorkell
„MYNDIRNAR eru ekki þrungnar af táknum og boðskap," seg-
ir Sigrún Eldjárn um verkin á sýningunni í Norræna húsinu.
„ÉG HEF mikla þörf fyrir að búa
til myndir og það sem mér finnst
skipta einna mestu máli í myndlist-
inni er að reyna að vera sjálfri mér
trú og þróa áfram vinnu mína en
eltast ekki við línur sem aðrir
leggja,“ segir Sigrún Eldjárn en
sýning á verkum hennar stendur
nú yfir í Norræna húsinu. „Það er
sjálfsagt að vera opinn fyrir áhrif-
um hvaðanæva, frá fiskbúðinni,
listasafninu, náttúrunni eða fólkinu
í kringum mann. En að lokum á
maður það aðeins við sjálfan sig
hvað út kemur.“
Á sýningunni eru liðlega þrjátíu
málverk frá undanfömum þremur
árum. Öll eru þau unnin með olíu
á striga. Viðfangsefnið er nú sem
fyrr mannfólk, landslag og uppstill-
ingar; allt saman sígild myndefni
sem Sigrún kveðst nálgast á sinn
hátt. „Myndimar eru ekki þmngnar
af táknum og boðskap. Að baki
þeim liggja ekki miklar hugmynda-
fræðilegar pælingar heldur eru þær
litir, form og myndbygging, áhrif,
hugmyndir og tilfínningar. Mig
langar til að koma kyrrðinni til
skila en líka því óvænta. Kraftinum
sem fólginn er í einni appelsínu,
físki eða mannveru, landi, vatni og
lofti og sambandinu sem myndast
milli þessara þátta."
Tengir fletina saman
Þótt viðfangsefni Sigrúnar séu
hefðbundin em verkin nýstárleg.
Mörg þeirra em nefnilega samsett
af nokkmm smærri verkum og
mynda þarínig eina heild. Form sem
minnir á altaristöflur. „Mig langaði
að prófa að fara út úr þessu fer-
kantaða formi og fá nýja vídd inn
í verkin. Maður getur ekki alltaf
hjakkað í sama farinu."
Mikil birta býr í verkunum á sýn-
ingunni en Sigrún fullyrðir að hún
hafí ekki markvisst verið að mála
björtu hliðarnar á tilvemnni.
„Myndimar urðu bara svona.“ Birt-
an er henni þó síður en svo á móti
skapi enda á hún vel við á þessum
árstíma. Sigrún segir líka að marg-
ir sýningargestir hafí látið svo um
mælt að sýningin hafí glatt þá.
Sigrún efndi síðast til einkasýn-
ingar fyrir tvelmur ámm en sýning-
in í Norræna húsinu er fjórtánda
einkasýning hennar. Hún segir að
verk sín hafí ekki tekið stakkaskipt-
um frá síðustu sýningu en vonar
að einhver þróun hafi átt sér stað.
„Eflaust hefur eitthvað breyst hjá
mér. Það vona ég að minnsta kosti.“
Sigrún nýtur þess út í ystu æsar
að vera myndlistarmaður en viður-
kennir fúslega að erfitt sé að lifa
af listinni. Engu að síður segir hún
að mikil gróska sé í íslenskri mynd-
list og mun meiri íjölbreytni en
verið hefur. Sigrún segir að engin
ákveðin stefna ráði ríkjum og sú
staðreynd veiti listamönnunum
meira frelsi. „Ég veit til dæmis
ekki hvort ég tilheyri einhveijum
ákveðnum stíl eða stefnu. Ég reyni
bara að skila mínu.“
Með barnabók í smíðum
Sigrún hefur jafnan í mörg hom
að líta en hún hefur einnig fengist
við að rita bamabækur á liðnum
ámm. Listakonunni hefur reyndar
tekist að sameina ritstörfín og
myndlistina á þeim vettvangi þar
sem hún myndskreytir bækur sínar
sjálf. Næsta bók hennar, Skordýra-
þjónusta Málfríðar, er nú í smíðum
og kemur að líkindum út í haust.
„Eg mun vinda mér í að klára hana
þegar sýningunni lýkur.“
Málverkasýning Sigrúnar Eld-
járn í Norræna húsinu er opin dag-
lega frá 14-19 en henni lýkur
sunnudaginn 14. maí.
ÞAÐ er eitt af meginmarkmið-
um Félags íslenskra hákóla-
kvenna að auka víðsýni meðal
félagsmanna og með því fororði
gengst félagið nú fyrir kynn-
ingu á japanskri menningu, list-
um og menntum. Kynningin
verður haldin á japönskum veit-
ingastað í Reylgavík en þar á
að snæða hefðbundinn japansk-
an mat. Einnig verða fengnir
fjórir gestir til að halda fyrir-
lestra um japanskt_þjóðfélag,
menningu og siði. Ölöf Haf-
steinsdóttir mun fjalla um fæðu-
menningu Japana, Kristín
ísleifsdóttir talar um mennta-
og þjóðfélagsmál, Katrín Þor-
valdsdóttir talar um þarann sem
efnivið í sköpun og að lokum
mun Ragnar Baldursson flytja
erindi um siðvenjur í Japan.
Brynja Runólfsdóttir, gjald-
keri félagsins, segir að fundir
sem þessir séu haldnir u.þ.b.
fjórum sinnum á ári. Áður hafa
verið haldnir fundir um Wagner
og Niflungahringinn og einnig
um Karen Blixen svo eitthvað
sé nefnt, en nú hefur verið
ákveðið að gera eitthvað nýstár-
legt. „Það er einnig tilgangurinn
að vinna betur úr þeim menning-
artengslum sem eru þegar á
milli Islands og Japans,“ bætir
Geirlaug Þorvaldsdóttir, for-
Japönsk menn-
ingarveisla
Morgunblaðið/Kristinn
GEIRLAUG og Brynja halda hér á japanskri matarskál og sam-
urai-sverði. Fyrir aftan er japönsk mynd af búddisku tákni um
náð og miskunn.
maður félagsins, við. Tengslin segir Geirlaug ennfremur, t.d.
eru raunar meirí en margur eru hinar hefðbundnu japönsku
heldur á milli þessara þjóða, matarskálar notaðar á svipaðan
hátt og gömlu íslensku askarnir
og fleira mætti nefna.
Á stefnuskrá félagsins er nú
að opna félagið meira en hefur
verið og stefna inn á nýjar
brautir í starfsemi þess. Félagið
ætlar að standa fyrir ýmsum
námskeiðum fyrir konur, t.d. um
stjórnun, en eitt slíkt var haldið
í febrúar síðastliðnum og þótti
takast vel. Brynja segir að þegar
eftir fundinn hafi komið fram
óskir um framhaldsnámskeið
sem bendir til að nokkur þörf
sé á leiðbeiningu í stjórnun fyr-
ir konur. „Að mínu mati,“ segir
Brynja, „eru konur ekki nógu
áræðnar. Það þarf eilítið að
byggja konur upp í þessum efn-
um.“ Félagið ætlar einnig að
standa fyrir námskeiði um eitt-
hvert tiltekið skeið í íslenskrí
menningarsögu sem Jón Böð-
varsson, íslenskufræðingur, ætl-
ar að hafa umsjón með.
Geirlaug og Brynja vildu taka
það fram að þessi námskeið
væru öllum opin, bæði konum
og körlum innan sem utan fé-
lagsins. Þetta á einnig við um
japönsku menningarkynning-
una, en hún fer fram á þriðju-
daginn 9. maí kl. 19.30 á veit-
ingahúsinu Samurai en þátttöku
þarf að tilkynna til félagsins
fyrir mánudagskvöld.
Kennslustundin eftir
Ioneseo í nýrri þýðingu
LEIKARARNIR Gísli Rúnar Jóns-
son, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
og Guðrún Þ. Stephensen leiklesa
einþáttunginn Kennslustundina eft-
ir Eugene Ionesco næstkomandi
mánudag í Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans. Einþáttungurinn er í
nýrri þýðingu Gísla Rúnars Jóns-
sonar, undir stjórn Bríetar Héðins-
dóttur. Á undan talar Örnólfur
Ámason rithöfundur um Ionesco
og leikhús fáránleikans.
Kennslustundin er íslenskt heiti
einþáttungsins „La Lecon" sem Io-
nesco skrifaði á frönsku, tungu for-
feðra sinna í móðurætt, árið 1950.
Leikurinn var frumsýndur á Théa-
tre du Poche, þann 20. febrúar
1951 í leikstjóm Marcel Cuvelier.
„íslenskum leikhúsgestum var
fyrst kynnt Kennslustundin í sam-
sýningu með einþáttungnum Stól-
arnir hjá Leikfélagi Reykjavíkur
þann 13. apríl 1961. Leikstjóri var
Helgi Skúlason en með hlutverkin
fóm Gísli Halldórsson (prófessor-
inn), Guðrún Ásmundsdóttir (nem-
andinn) og Árni Tryggvason (ráðs-
konan).
Leiklesturinn í Listaklúbbnum á
mánudagskvöldið hefst kl. 20.30.
Öllum er heimill aðgangur og er
aðgangseyrir kr. 500, en kr. 300
fyrir félaga í Listaklúbbnum.
STEINUNN Ólína Þorsteins-
dóttir, Gísli Rúnar Jónsson og
Guðrún Þ. Stephensen.
Söngtón-
leikar á
Flug Café
TÓNLISTARSKÓLINN í Keflavík
stendur fyrir söngtónleikum á Flug
Café á sunnudagskvöld og hefjast
þeir kl. 20. Þar munu kórar skólans
ásamt söngnemendum flytja fjöl-
breytta efnisskrá.
Þama er um að ræða barnakór
skólans og kór söngnemenda, en
eldri nemendur barnakórsins tóku
meðal annars þátt í landsmóti
barnakóra um síðustu helgi í Kópa-
VOgi.
Stjórnandi bamakórsins er Gróa
Hreinsdóttir, en söngkennari skól-
ans er Árni Sighvatsson. Undirleik-
ari er Ragnheiður Skúladóttir.
Hándel,
Bach og
Schubert
FYRSTU vortónleikar Nýja
tónlistarskólans verða hljóm-
sveitartónleikar sunnudaginn
7. maí kl. 20.30, í tónleikasal
F.Í.H. í Rauðagerði 27.
Á efnisskrá tónleikanna á
sunnudaginn er Rinaldo-svítan
eftir Hándel, sem gerð er upp
úr samnefndri óperu hans.
Fjórði Brandenborgarkonsert
Bachs er annað verkefni tón-
leikanna. Hann er sá með ein-
leiksflautunum tveim en tveir
nemendur skólans, þær Magna
Joensen og Halldóra Ingimars-
dóttir leika á flautumar. Fiðlu-
leikshlutverkið í konsertinum,
sem leynir mjög á sér, er í hönd-
um eins kennara skólans,
Zbigniews Dubik.
Síðasta verkið á tónleikunum
er Sinfónía nr. 5 í B-dúr eftir
Schubert. Þá bætast í hópinn
kennarar skólans svo og blást-
urshljóðfæraleikarar úr Sinfó-
níuhljómsveit íslands. Hljóm-
sveitarstjóri verður Ragnar
Bjömsson.
Bottesini-
septettinn
í Bústaða-
kirkju
BOTTESINI-septettinn heldur
sína fyrstu tónleika í Bústaða-
kirkju á sunnudag 7. maí.
Á efnisskrá verða verkin Plus
Sonat, Quam Valet, Kvartett
fyrir hom og strengi eftir Þor-
kel Sigurbjömsson, Till Eu-
lenspiegel - Einmal Anders sem
er útsetning Franz Hasenöhrl á
Till Eulenspiegels Lustige
Streicher eftir Richard Strauss
fyrir kvintett og loks Septet
Op. 20 eftir Beethoven.
Bottesini-septettinn skipa:
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla,
Herdís Jónsdóttir lágfiðla, Sig-
urður Halldórsson, selló, Þórir
Jóhannsson, kontrabassi, Ár-
mann Helgason, klarinett,
Darren Stonham, fagott og
Emil Friðfínnsson, hom.
Aðgangseyrir er 1.000 en
500 kr. fyrir nemendur.
Styrktar-
tónleikar í
Selásskóla
GARZIELLA Provedel heldur
styrktartónleika á vegum Sorp-
timistaklúbbs Reykjavíkur í
hátíðarsal Selásskóla á sunnu-
dag kl. 14.
Garziella er fædd á Torino á
Ítalíu. Hún er sorptimista-systir
og fyrrverandi formaður í Cat-
anzaro klúbbnum. Graziella
Provedel er prófessor í píanóleik
í Cosenza á Ítalíu. Graziella
hefur leikið í öllum stærstu
borgum Ítalíu, einnig víða um
Evrópu og fengið góðar viðtök-
ur.
Á efnisskrá eru verk eftir
Grieg, Clementi, Debussy og
Granados.
Skólalúðra-
sveit í
Ráðhúsinu
ÚRVALSSVEIT Landssam-
bands íslenskra skólalúðra-
sveita leikur í Ráðhúsi Reykja-
víkur á sunnudag kl. 17. Stjóm-
andi er Robert Darling.
Á efnisskránni eru verk eftir
Dysðrí, Purcell, Bizet, Jacob,
Bach, Bender og Grainger.
Næsta landsmót SíSL verður
haldið á Neskaupstað 2.-4. júní
nk. í samtökunum em 40 lúðra-
sveitir.