Morgunblaðið - 05.05.1995, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ1995 29
AÐSENDAR GREINAR
Agreiningur sjálfstæð-
ismanna á Suðurlandi
• Gísli Gíslason Árni Böðvarsson
í MORGUNBLAÐ-
INU 22. apríl sl. ritar
Eggert Haukdal grein,
sem ber sömu yfir-
skrift og þessi. Eggert
leynir ekki gremju
sinni yfir að hafa misst
þriðja sætið á lista
sjálfstæðismanna á
Suðurlandi, sem leiddi
til klofningsframboðs
hans sem bar nafnið
Suðurlandslistinn.
Ekki hlaut það fram-
boð nægan hljóm-
grunn til að fleyta hon-
um á þing. Eggert rek-
ur sögu og samskipti
þeirra Þorsteins Pálssonar, Árna
Johnsens og sín sjálfs, allt frá árinu
1983. Hans niðurstöðu um þessi
samskipti má draga saman eitthvað
á þessa leið. „Ámi og Þorsteinn,
sem hafa komið flokknum í ýmsar
ógöngur og skilja ekki sjónarmið
bænda, vilja ekki vinna með honum
og hafa með óheilindum bolað hon-
um af lista sjálfstæðismanna, sem
hefur leitt til þess að hann er nú
fyrrverandi þingmaður og sjálf-
stæðismenn hafa tapað einum
manni í Suðurlandskjördæmi".
Ekki virðist Eggert telja sig eiga
nokkra sök á sundurþykkju þeirra
þremenninga og ekki virðist hann
á nokkurn hátt gera sér grein fyr-
ir að sjaldnast er einn sekur þá
tveir deila.
Ákvörðun um prófkjör
sjálfstæðismanna
Aðdraganda þess að sjálfstæðis-
menn efndu til prófkjörs má að
nokkru rekja til stjórnarfundar
kjördæmisráðs ungra sjálfstæðis-
manna (símafund) á Suðurlandi,
enda var meirihluti stjórnarmanna
á því að æskilegt væri að viðhafa
prófkjör til að stilla á framboðslista
flokksins fyrir komandi alþingis-
kosningar. Mönnum fannst þetta
sérstaklega mikilvægt ef það sýndi
sig að fleiri en þrír frambjóðendur
sæktust eftir þrem efstu sætum á
listanum, en Eggert lýsti því yfir
að hann sæktist eftir öðru sæti,
enda teldi hann það öruggt þing-
sæti. Drífa Hjartardóttir lýsti því
yfir að hún sæktist eftir þriðja
sætinu, og Árni Johnsen sóttist
eftir öðru sætinu. Almennt gerðu
sjálfstæðismenn á Suðurlandi ekki
ágreining um að Þorsteinn Pálsson
skyldi leiða listann. Hér var því
komin sú staða að fjórir frambjóð-
endur sóttust eftir þrem efstu sæt-
unum og voru stjórnarfulltrúar
Kjördæmisráðs ungra sjálfstæðis-
manna á Suðurlandi almennt á því
að engin uppstillingarnefnd væri
þess umkominn að gera upp á milli
þessara ágætu frambjóðenda. Próf-
kjör var því að okkar mati eina
leiðin til að fá úr því skorið hvem-
ig listi sjálfstæðismanna á Suður-
landi skyldi líta út fyrir alþingis-
kosningarnar og væri því lýðræðis-
legasta og sanngjarnasta leiðin fyr-
ir alla.
Fyrir kjördæmisráðsfund sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi ákváðu
formenn allra ungliðahreyfinga
sjálfstæðismanna á Suðurlandi að
leggja fyrir fundinn tillögu þess
efnis að viðhaft skyldi prófkjör.
Þetta var gert og samþykkti kjör-
dæmisráðsfundurinn að sjálfstæð-
Fullyrðing Eggerts
Haukdals er kjánaleg,
segja Gísli Gíslason
og Árni Böðvarsson,
sem hér fj alla um
framboðsmál Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi.
ismenn á Suðurlandi skyldu viðhafa
prófkjör. Atkvæðagreiðslan fór
þannig að 45 greiddu atkvæði með
prófkjöri gegn 44 atkvæðum, sem
voru fylgjandi því að uppstillingar-
nefnd skyldi raða á listann. Það
var því ákveðið, með eins atkvæðis
mun, að fara í prófkjörið, eins og
Eggert réttilega segir í grein sinni.
Eggert lýsir því yfir að strax
síðastliðið haust hafi verið ljóst að
það ætti að bola honum í burtu
með uppstillingu á lista. Hinsvegar
hafi prófkjör orðið niðurstaðan.
Orðrétt skrifar hann „Ég hafði
engin afskipti af því hvor leiðin var
farin. Vissi að mér var ekki ætlað
líf hvor leiðin sem yrði farin“. Það
er rétt hjá Eggerti að hann hafði
engin afskipti af því hvor leiðin
væri farin, en það liggur í hlutarins
eðli að í prófkjöri eru það sjálfstæð-
ismenn á Suðurlandi sem raða í
efstu sætin á listanum og það eru
þeir sem ætla frambjóðendum líf
eða ekki líf.
Prófkjörið og
alþingiskosningarnar 1995
Allir vita hvernig prófkjörið fór.
Eggert hafnaði í fjórða sæti. í grein
sinni segir Eggert orðrétt „Eftir
að mér hafði verið hafnað í próf-
kjöri að fyrirsögn efstu manna list-
ans tók ég ekki sæti á listanum“.
Hér fullyrðir Eggert að Þorsteinn
Pálsson og Árni Johnsen hafi hrein-
lega sagt hundruðum eða jafnvel
þúsundum sjálfstæðismanna
hvernig átti að kjósa í prófkjörinu.
Þetta er kjánaleg fullyrðing og í
raun móðgun við allt sjálfstæðis-
fólk á Suðurlandi. Hitt er rétt sem
Eggert skrifar, honum var hafnað
í prófkjörinu og þeirri lýðræðislegu
niðurstöðu hefði hann betur unað.
Eggert klauf heldur flokkinn og fór
fram með sérlista, sem skilaði hon-
um ekki inn á þing. Aftur á móti
hjálpaði Suðurlandslistinn með
framboði sínu Alþýðuflokksmanni
inn á þing og víst er að Jón Bald-
vin fær seint fullþakkað Eggerti
Haukdal fyrir hjálpina.
Höfundar voru formenn Eyverja
FUS i Vestmannaeyjum og
Hjörleifs FUS í
Vestur-Skaftafellssýslu þegar
tillaga um prófkjör var afgreidd
á kjördæmisráðsfundi
sjálfstæðismanna á Suðurlandi
haustið 1994.
ZERO-3®
Mjódd, sími 557-4602.
Opið virka daga kl. 13-18, laugard. 13-16
Póstv.sími 566-7580.
Gifstrefjaplötur til notkunar á veggi, loft og gólf
* ELDTRAUSTAR
* HLJÓÐEINANGRANDI
I MJÖG GOTT SKRÚFUHALD
* UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR
VIÐURKENNDAR AF
BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS
P. Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 • Reykjavlk • sími 38640
SPRENGJA
DOMUDEILD
KJÓLAR
DRAKTIR
DRAKTIR
BUXUR
BOLIR
BOMULLARSKYRTUR
RÓSÓTT VISCOSE DRESS
BÓMULLAR PILS
GLANS PILS SÍÐ
HERRADEILD
SKYRTURBÓMULL
SMITHS BUXUR
PEYSUR
HERRA JAKKAR
SUMAR STAKKAR
JAKKAFÖT
PÓLÓ BOLIR
DR. MARTENS SKÓR
VERÐ ÁÐUR Tt LBOCSVERÐ
3990,- 1990,-
12700,- 7990,-
7990,- 5990,-
3790,- 1990,-
1690,- 990,-
3290,- 2300,-
6980,- 3990,-
2990,- 1990,-
4790,- 3590,-
VERÐ AÐUR TILBOÐSVERÐ
2990,- 1990,-
5790,- 3990,-
3990,- 2990,-
9990,- 6990,-
7990,- 5990,-
13990,- 9990,-
2490,- 1990,-
8490,- 4990,-
ÁSAMT FJÖLDA SPRENGITI LBOÐA
AÐEINS FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG