Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMIMIIMGAR
+ Gunnar Öm var
fæddur 12. jan-
úar 1974. Hann lést
af slysförum 28.
apríl sl. Foreldrar
hans voru Kristín
Guðmundsdóttir og
William Þór Dison.
Foreldrar Kristínar
voru Guðmundur
Jónasson bifreiða-
stjóri, frá Múla í
Línakradal og
Stefanía Eðvarðs-
dóttir húsmóðir, frá
Helgavatni í Vatnsd-
al. Þau létust bæði
árið 1985. Móðir Williams Þórs
er Þórunn Ingimarsdóttir fyrr-
um bankastarfsmaður frá
Laugarási í Reykjavik. Systkini
Gunnars eru Eðvarð Þór, fædd-
ur 1. febrúar 1970, og Stefanía
Sif, dædd 26. júlí 1975. Unnusta
Eðvarðs Þórs er Margrét Sigrún
Þorsteinsdóttir. Gunnar Örn
verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin kl. 13.30.
HANN Gunnar Örn er farinn á vit
meira spennandi ævintýra en þessi
heimur getur boðið upp á.
Gunnar Örn lifði hratt og gerði
flest það sem honum datt í hug.
Hann var keppnismaður mikill og
alltaf óragur við keppni hvort sem
var á skíðum, hestum eða vélsleðum
en það var nýjasta dellan hjá honum.
Þetta keppnistímabil var hans fyrsta
og var hann „bjartasta vonin“ að
sögn þeirra er til þekktu og hafði
gengið mjög vel í vetur.
Allt í einu kom kallið stóra, honum
var falið mikilvægara hlutverk á
öðrum stað. Staðreynd sem við hin
verðum að læra að lifa með og horf-
ast í augu við. Sorg er ekki eitthvað
sem líður hjá, hún varir að eilífu í
hjörtum okkar. Gaidurinn^er sá að
við lærum að lifa með sorginni og
takast á við hana, en allt tekur sinn
tíma.
Fyrstu kynni mín af Gunnari Erni
voru þegar við vorum krakkar í
Garðabænum. Ég bjó í næsta lundi
við þau systkinin og samgangurinn
var þó nokkur. En svo kynntist ég
fjölskyldunni aftur haustið 1989. Ég
man hvað ég var feimin að koma
aftur í Víðilundinn. Nú var ég orðin
kærasta stóra bróður Gunnars og
Stefaníu, krakkanna sem ég hafði
verið að leika mér með í gamla daga.
Heimurinn er svo lítill og tilviljanirn-
ar svo margar.
Gunnar Órn var einstaklega barn-
góður og hjálpsamur. Minnisstæðast
er auðvitað þegar við Eðvarð fluttum
sl. haust. Þá var Gunnar Örn manna
fyrstur til að bjóða fram aðstoð sína,
ég held hann hafí helst viljað pakka
fyrir bróður sinn, honum fannst
þetta ganga svo hægt hjá honum.
Gunnar sá nefnilega loksins fram á
það að komast í stærra herbergi og
vera meira út af fyrir sig. Nokkuð
sem hann hafði dreymt um lengi.
Þær eru ófár stundirnar sem ég
átti með Gunnari Erni í vetur, því
ég gat orðið stillt klukkuna eftir
honum. Hálftíu mætti hann í morg-
unmat til mín og þá var mikið spjall-
að um heima og geima eins og hon-
um einum var lagið.
í dag kveðjum við drenginn okk-
ar. Minning hans lifir í hugum okkar
og Guð mun gefa okkur syrk í þess-
ari erfiðu raun.
Þó að kali heitur hver
hylji dali jökull ber
steinar tali og alit hvað er
aldrei skal ég gleyma þér.
' (Vatnsenda-Rósa)
Margrét Sigrún
Þorsteinsdóttir.
Það hefur oft verið sagt að lífið
sé hverfult. Aldrei hefur mér orðið
þýðing þessara orða jafn ljós og síð-
astliðinn föstudag er mér var til-
kynnt að frændi minn Gunnar Örn
hefði látist af slysförum. Það er
óskiljanlegt að ungur maður eins og
hann eigi ekki eftir að
fylgja okkur lengur á
lífsbrautinni.
Það er margt sem
kemur upp í hugann
þegar tíðindi sem þessi
berast. Strax í æsku
var Gunnar Öm at-
orkumikill drengur,
hann fór ungur í sveit
að Skarði í Landssveit
og undi hann hag sín-
um vel í sveitinni, enda
nóg að gera fyrir ork-
umikla drengi á stóm
býli.
Þekking hans á
sveitastörfum kom honum síðar vel,
er hann dvaldi sumarlangt á búgarði
hér í Þýskalandi árið 1992.
Eina helgina þetta sumar brá
hann sér í heimsókn til mín suður
til Augsburg og er þessi helgi mér
að mörgu leyti minnisstæð, enda
skemmtum við okkur vel. Við brugð-
um okkur að sjálfsögðu út á lífið
eins og kallað er, en tækifæri til
þess höfðu víst ekki verið mörg í
sveitinni þetta sumarið. Er heim var
komið ákváðum við að fá okkur
pönnukökur að íslenskum sið. Þegar
gestgjafinn dró fram nýkeyptan raf-
magnshandþeytara með nokkru
stolti til þess að hræra deigið þótti
Gunnari Erni nú tími til kominn að
taka matseldina í sínar hendur, raf-
magnstæki væri óþarfi í svona smá-
ræði. Ekki mátti heyrast að gerðar
yrðu þunnar pönnukökur, heldur
átti pannan að vera barmafull af
deigi svo þær yrðu nú vel matmikl-
ar. Það er náttúrlega ekki að því
að spyija að þetta urðu bestu pönnu-
kökur sem ég hef smakkað. Margar
fleiri skemmtilegar minningar koma
upp í hugann þegar hugsað er til
Gunnars Arnar, þótt þær verði ekki
settar hér á blað.
Elsku Kristín, Willi, Eðvarð, Stef-
anía, Þórunn og Sigrún, guð blessi
ykkur og styrki á þessum erfíðu tím-
um. Þótt ævi Gunnars Arnar hafí
verið stutt mun minningin um þenn-
an væna dreng lengi lifa.
Árni Gunnarsson,
Miinchen, Þýskalandi.
Elsku frændi.
Mig langar að kveðja þig með
nokkrum fátæklegum orðum.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir
og erfítt er að skilja þegar ungur
maður er hrifinn brott í blóma lífs-
ins. Guð hlýtur að ætla þér stærra
hlutverk hinum megin. Og við sem
erum hérna ennþá vitum að afi okk-
ar og amma hafa tekið vel á móti þér.
Ég var átta ára þegar þú fæddist
og mér fannst það stórmerkilegt.
Þú varst fyrsta barnið sem ég fékk
að skipta á. Það fannst mér mikill
heiður. Skírnardeginum þínum man
ég líka vel eftir, sólbjartur dagur í
Garðakirkju.
í jólaboðum hjá Dúfu ömmu á
Miklubrautinni gast þú svo sannar-
lega hieypt fjöri í hópinn og strítt
okkur eldri frændsystkinunum.
Kinningabrotin eru svo mörg, þau
geymum við öll í hjarta okkar og
þar lifír þú áfram.
Hver minning er dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi.
Hin ijúfu og hljóðu kynni
af alíiug þökkum vér. s
Þinn kærleikur i verki var gjöf
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum
sem fengu að kynnast þér.
(Davíð Stefánsson)
Elsku Kristín, Willi, Eðvarð, Sig-
rún, Stefanía, Björn, Þórunn óg aðr-
ir ástvinir, ég vil biðja almáttugan
Guð að gefa okkur styrk og þrek í
þessari miklu sorg.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfír storð
þeirra mál ei talar tunga
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir)
Blessuð sé minning þín.
Guðrún Gunnarsdóttir
og fjölskylda.
Hann Gunnar Öm er dáinn, farinn
frá okkur, elskulegi frændinn okkar,
sem var samt bara 21 árs. Við stönd-
um eftir með svo mikla sorg í hjört-
um og reynum að skilja tilgang þess
að svona ungum og lífsglöðum dreng
skyldi ekki auðnast að vera lengur
hjá fjölskyldu sinni og vinunum öll-
um.
Við sem höfum fylgst með honum
alla tíð, munum svo vel litla strákinn
sem endalaust kom okkur á óvart
með uppátækjum sínum, stóra strák-
inn sem var svolítill gaur og þurfti
stundum að taka spor í sár hér og
þar þegar kappið hafði verið of mik-
ið. Duglega keppnisstrákinn sem
vann ótal verðlaun bæði í skíða-
keppni og eins fyrir hestamennsku
þegar hann dvaldi í sveitinni hjá vin-
um sínum á Skarði í Landsveit.
Og unga manninn sem var kominn
með meirapróf og frænka gamla
átti bágt með að skilja að það væri
rétt að hann Gunnar Örn væri orðinn
svona gamall að hann gæti keyrt
stóran farþegabíl.
Og nú í vetur fór hann að taka
þátt í keppni á vélsleðanum sínum
og var þegar búinn að vinna til verð-
launa.
Hann sem var svo kátur þegar
hann var að fara til Akureyrar til
að taka þátt í véisleðakeppni og síð-
an svo skyndilega var lífí hans hér
lokið.
Það er erfítt fyrir litlu frændurna
að skilja að Gunnar Örn, stóri góði
frændinn, sé dáinn, en Gunnar Óm
var alveg einstaklega barngóður.
Við verðum að trúa því að hans
hafi beðið annað og meira verkefni
að vinna. Við vitum líka að nú er
hann hjá ömmu og afa sem þótti svo
vænt um strákinn sinn.
Hann kallar ekki framar sæl
frænka mín eins og hann gerði allt-
af svo hressilega þegar hann gekk
fram hjá skrifstofunni minni en ein-
mitt þannig ætla ég að muna hann
brosandi og glaðan.
Guð geymi strákinn okkar.
Signý Guðmundsdóttir.
Borinn er til hinstu hvílu í dag,
frændi okkar og vinur, Gunnar Örn
Williamsson. Það var á björtum vor-
degi þegar sólin skartaði sínu feg-
ursta að fregnin um að hann Gunn-
ar Örn væri látinn barst okkur til
eyma. Skyndilega var sem ský drægi
fyrir sólu og það var myrkur í hug-
um okkar. Maður spurði sig hvernig
það mætti vera að drengur svo heil-
brigður og hress væri nú frá okkur
tekinn í blóma lífs síns.
En þá rann sú blákalda staðreynd
upp fyrir okkur að allt er í heiminum
hverfult og svo er um okkur menn-
ina líka. Gunnar Öm var alltaf þrótt-
mikill og hafði ætíð nóg fyrir stafni.
Hann varð snemma góður skíðamað-
ur og þau voru ekki fá verðlaunin
sem hann sópaði til sín á unglingsár-
unum í skíðaíþróttinni. Seinna
kynntist hann vélsleðaíþróttinni og
það var ekki að sökum að spyrja að
þar varð hann fljótt í fremstu röð.
Alltaf naut hann dyggrar aðstoðar
og stuðnings foreldra sinns og systk-
ina við það sem hann tók sér fyrir
hendur og er vart hægt að hugsa
sér samhentari fjölskyldu. Eftir að
hafa dvalist erlendis meira og minna
í fjögur ár vom kynni okkar við
Gunnar Örn að endurnýjast og
styrkjast síðasta árið. Hann hafði
svo einstaklega gott lag á bömum
og var alltaf svo léttur og kátur.
Það var því ekki auðvelt að útskýra
fyrir Jónasi litla að frændi hans, sem
hann hafði svo mikið dálæti á, væri
látinn. Missir okkar og söknuður er
nánast óbærilegur en eftir lifir minn-
ingin um góðan dreng.
Elsku Wiili, Kristín, Eðvarð og
Stefanía, á sama hátt og Gunnari
Erni tókst að taka hveiju sem að
höndum bar með jafnaðargeði og
æðruleysi, mun ykkur takast að
vinna á sorginni með samheldni og
viljastyrk. Við sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur á þess-
um erfíðu tímum.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(V atnsenda-Rósa)
Stefán, Eyrún, Jónas
og Signý.
Föstudagurinn 28. apríl mun seint
gleymast. Þá fengum við þær hræði-
legu fréttir að besti vinur okkar
Gunni væri fallinn frá. Fréttin kom
sem þruma úr heiðskíru lofti og átt-
um við bágt með að trúa þessu og
á þessi atburður eftir að lifa með
okkur um ókomna tíð. Svona hrika-
legir atburðir vekja óneitanlega
spurningar sem aldrei verður svarað
og það eina sem maður getur er að
halda lífinu áfram jákvæður.
Leiðir okkar lágu saman þegar
við vorum að æfa skíði hjá skíða-
deild Armanns, um tíu ára aldurinn.
A þessurn aldri kom Gunni okkur
þannig fyrir sjónir að ekkert biti á
hann. Hann var án efa konungur
deildarinnar, en það tók ekki langan
tíma að komast inn fyrir skelina og
fljótlega vorum við orðnir bestu vin-
ir. Margar af okkar bestu minning-
um sækjum við í Bláfjöllin sem og
í keppnisferðir sem við fórum og
tengist Gunni þá óneitanlega aðal-
hlutverkinu í einu og öllu, því að
uppátækin hjá einum manni voru
engu lík enda Gunni gjörsamlega
óútreiknanlegur. Um bílprófsaldur-
inn fór hugur okkar að leita annað
og þótt við værum hættir að æfa
skíði hélst vinskapurinn og styrktist
sem á leið. Við fórum allir í fram-
haldsskóla, við í bóknám en Gunni
í iðnnám. Gunni eirði sér ekkert allt
of lengi í skólanum því að lífskraftur-
inn var svo mikill og áhugamálin
mörg. Upp úr þessu fór Gunni að
vinna á ýmsum stöðum allt frá því
að mála biðskyldulínur upp í að baka
brauð. Á þeim tíma átti bíladellan
hug hans allan og er ekki hægt að
segja annað en að ófáar glæsikerr-
urnar hafí staldrað við í Víðilundin-
um. Einnig hafði hann mjög gaman
af því að kynna sér hegðun manns-
ins og fóru flest allar mannlífskann-
anirnar fram á skemmtistöðum
borgarinnar. Upp á síðkastið átti svo
sleðasportið hug hans allan, en í
vetur bytjaði_Jiann fyrst að keppa
og það með mjög góðum árangri,
enda keppnisskapið óbilandi. Upp
úr krafsinu hafði svo nokkrar medal-
íur og tvær „dollur“ en það var hans
skilgreining á verðlaunabikurum.
Er óhætt að segja að Gunni hafi
verið langhressastur af okkur öllum
og það var ósjaldan sem hann fékk
„slakaðu aðeins á“ þegar hann var
að reyna að fá mann útúr húsinu,
enda Gunni ekki týpan sem maður
sér leggja kapal í rólegheitunum.
Svo mikill var lífskrafturinn að oft
fannst okkur hinum nóg um. Gunni
var eins mikill og góður vinur og
hugsast getur og náði vinskapurinn
út fyrir allt og alla. Gunni hafði sín-
ar ákveðnu skoðanir á hlutunum og
fengum við vinirnir því óspart að
heyra það ef honum mislíkaði það
sem við vorum að gera, enda var
Gunni með afbrigðum hreinskilinn.
Að eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öilum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson)
I dag er komið að því að kveðja
góðan vin. Við siík tímamót veltir
maður fyrir sér hvers vegna Gunni
fékk kallið svona snemma, en það
hlýtur að vera satt sem þeir segja
að þeir bestu fari fyrstir. Það sem
situr eftir er minningin og ótrúleg
tómleikakennd en við getum huggað
okkur við að h'ann er nú á góðum
stað og líður vel.
Elsku Kristín, Willi, Eddi, Stefan-
ía, Þórunn og Sigrún, við færum
ykkur okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Guð veri með ykkur í sorg-
inni og gefi ykkur styrk til að tak-
ast á við það sem framtíðin ber í
skauti sér. Elsku Gunni, við eigum
eftir að sakna þín sárt og þú munt
alltaf lifa í minningu okkar. Hvíl í
friði.
Þínir vinir,
Davíð, Haraldur og Pétur.
Hún er konan, sem kyrrlátust fer
og kemur þá minnst þig varir
og les úr andvaka augum þér
hvert angur, sem til þín starir.
Og hún er þögul og ávallt ein
og á ekki samleið með neinum.
GUNNAR ÖRN
WILLIAMSSON
Því hún er sorgin, sem sefar hvert mein,
og sífellt leitar að einum.
(Tómas Guðmundsson.)
Það voru sorgarfréttir sem Kristín
færði mér á tvítugsafmælisdaginn
minn 28. apríl síðastliðinn, að Gunn-
ar Örn væri látinn. Það var mikið
áfall að missa svo góðan vin sem
Gunnar var.
Ég kynntist Gunnari fyrir um það
bil níu árum er ég hóf að æfa skíði
hjá skíðadeiid Ármanns. Við urðum
strax ágætis félagar sem betur fer,
því upp frá því áttu leiðir okkar eft-
ir að liggja mikið saman, hvort sem
var með hinum strákunum, Stefaníu
eða jafnvel með stelpunum f bekkn-
um. Það var sama hvar maður var
með Gunnari, í kringum hann var
alltaf eitthvað að gerast og yfírleitt
mikið fjör. Gunnar Örn var afskap-
lega hress og myndarlegur strákur
og það var ávallt gaman að fara
með honum að skemmta sér því
maður vissi aldrei upp á hveiju hann
tæki. Ég man að það var ósjaldan
að ég var í bænum að kvöldi til með
vinkonum mínum að hann birtist
með eitthvert skemmtilegt uppá-
tæki.
Margar góðar minningar um
Gunnar rifjast upp fyrir mér þegar
ég lít til baka, en á minni stuttu
ævi hef ég aldrei kynnst jafn lífs-
glöðum manni og Gunnar var. Hans
ferðalag hér á jörðu var allt of stutt,
en vegna þeirrar lífsgleði sem hann
bjó yfir og hve kraftmikill hann var
held ég að hann hafí gert jafn mik-
ið og jafnvel meira en margir gera
á langri ævi.
Ég átti því láni að fagna að fá
að kynnast honum og eiga með hon-
um góðar stundir. Þannig minnist
ég hans með miklum söknuði og ég
veit að hann skilur eftir skarð í lífi
flestra sem þekktu hann, sem erfitt
verður að fylla. Það verður skrítið
að hringja í Víðilundinn án þess að
lenda á löngu snakki við Gunnar.
Það verður erfitt að halda áfram
ferðalagi lífsins eftir að hafa misst
svo góðan vin sem Gunnar var, en
við varðveitum minningarnar um
hann í bijósti okkar. Við verðum þó
að halda ferðalaginu áfram glöð og
dugleg, svo við getum sagt honum
frá því sem á daga okkar hefur drif-
ið er við hittumst fyrir hinum megin.
Nú er ferðalag hans að baki og
eftir lifa minningar um góðan pilt.
Blessuð sé minning vinar míns.
Elsku Kristín, Willi, Eðvarð, Stef-
anía og Þórunn. Ég votta ykkur
mína dýpstu samúð og megi Guð
styrkja ykkur og leiða í gegnum
þennan erfiða kafla lífsins.
Guðrún Jóhanna
Georgsdóttir.
Það var í vor að Gunnar Örn sagði
mér frá því að hann hugðist taka
þátt í vélsleðakeppni í vetur. Hann
var alltaf að bralla eitthvað sem
vakti áhuga minn á að fylgjast með
og eins var það með vélsleðamennsk-
una. Um leið og fyrstu snjóar féllu
voru Gunnar Örn og hans félagi
mættir til fjalla í nágrenni við bæ-
inn, en þar stunduðu þeir félagarnir
sínar íþróttir. Oft hittumst við við
Litlu kaffístofuna en þar lögðu
Gunnar Örn og félagar ávallt upp.
Ég er nokkrum árum eldri en Gunn-
ar Örn og félagar og hélt mér leyfð-
ist að gefa þéssum ungu mönnum
góð ráð. Eitt skipti sem við hittumst
var ég að skammast yfír því að hann
væri ekki með kompás með sér en
í næsta skipti á eftir sem við rák-
umst saman á fjöllum sýndi hann
mér áttavitann að hann væri með-
ferðis og ekki laust við að það væri
smá stríðnisglott á bakvið hjálminn.
Hann tók sportið alvarlega, stundaði
æfingar af kappi, fór vel með vélsleð-
ann og var varkár. Hann setti mark-
ið hátt eins og tvö af mótum vetrar-
ins bera vitni um en þar skipaði
hann sér í efstu sæti. Þarna var á
ferðinni efnilegur drengur. En að
það skyldi enda svona. Maður fyllist
reiði, sorg og söknuði í senn og spyr
sjálfan sig af hveiju hendir þetta
ungan og efnilegan mann sem lífíð
blasti við. En engin svör fást.
í dag kveðjum við Gunnar Örn
Williamsson með söknuði og þökkum
um leið fyrir þær stundir þegar leið-
ir okkar lágu saman.
Kristín, Willi, Stefanía, Eddi, Sig-