Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 47
FRÉTTIR
Fyrirlestur um stór
áfallaviðbúnað
GUÐLAUG Einarsdóttir, núverandi formaður félagsins,
afhendir presthjónunum heiðursskjal.
Heiðursfélagar í Kirkju-
félagi Digraness
3. LANDSÞING Landsbjargar,
landssambands björgunarsveita,
verður haldið í Félagsheimili Kópa-
vogs, Fannborg 2, dagana 5. og 6.
maí.
Á föstudeginum kl. 13.30 verður
haldinn fyrirlestur um stóráfallavið-
búnað. Fyrirlesturinn er opinn öllu
áhugafólki um þessi mál. Fyrirlest-
urinn flytur Josef Hopf, forstöðu-
maður rannsóknarstofnunar í snjó-
flóðum og skriðuföllum í Týról í
Austurríki. Hann mun koma víða
við í sínu erindi og byggja á reynslu
sinni og starfi til langs tíma.
Að loknum fyrirlestri Josefs fara
fram pallborðsumræður undir stjórn
Vordagarí
Hafnarfirði
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ J.C. Hafnar-
fjarðar og Miðbæjar verður haldin
dagana 5. og 6. maí í Miðbæ í Hafn-
arfirði.
í dag, föstudag, verður forsala
aðgöngumiða á HM á íslandi 1995,
kökubasar Barnakórs Þjóðkirkjunn-
ar, Ostahúsið verður með kynningu
á framleiðslu sinni og snyrtivöru-
kynning verður á Mariu Calland í
Dísellu.
Á laugardag kynnir Junior Cham-
ber í Hafnarfirði starfsemi sína, for-
sala verður á aðgöngumiðum HM,
útileiktækjakynning frá versluninni
Leikbær/Ritbær, ratleikur verður í
verslunum Miðbæjar, kökubasar
Barnakórs Þjóðkirkjunnar, boðið
verður upp á andlitsmálun í umsjón
Leikfélags Hafnarfjarðar, víking-
arnir koma í heimsókn í tilefni af
kynningu Ferðamálaráðs Hafnar-
fjarðar, verðlaunaafhending fer
fram í ljósmyndamaraþoni Æ.T.H.
og Filmur og framköllun, keppni
verður í streetball á vegum J.C.
Hafnarfjörður, grillkynning í boði
10-11 og Pepsi Cola, hjólaskoðun,
hjólreiðaþrautir fyrir 9-12 ára, No
Name snyrtivörukynning í Dísellu,
sumarlína í hársnyrtingu verður
kynnt á Hársnyrtistofunni Carter og
Snæfinnur vinur Búnaðarbankans
kemur og sprellar.
Aðstoðarprest-
ur í Grafarvogi
SÓKNARNEFND
Grafarvogssafn-
aðar hefur kjörið
Sigurð Arnarson,
guðfræðing, bind-
andi kosningu sem
aðstoðarprest í
Grafarvogi.
Grafarvogur er
fjölmennasta sókn
landsins. Sigurður
verður fyrsti prest-
urinn sem þangað er vígður og mun
biskup íslands, herra Olafur Skúla-
son, vígja hann þann 21. maí nk.
kl. 10.30 í Dómkirkjunni.
Málþing um
breytingar á
ljósmæðra-
þjónustu
UÓSMÆÐRAÞING verður haldið
dagana 5. og 6. maí nk. í BSRB-saln-
um, Grettisgötu 89. Þar verður fjall-
að um stefnur og strauma í faglegum
málefnum stéttarinnar og m.a. mun
dr. Ulla Waldenström, dósent við
Stokkhólmsháskóla, kynna niður-
stöður umfangsmikillar rannsóknar
á nýrri ljósmæðraþjónustu við Suður-
sjúkrahúsið í Stokkhólmi.
Það er Ljósmæðrafélag íslands
sem stendur fyrir málþingi þessp.
Þar verður fjöldi fyrirlestra m.a. um
hlutverk Ijósmæðrafélagið, siðaregl-
ur ljósmæðra, stöðuna í menntunar-
málum stéttarinnar og faglegt sam-
Sigmundar Ernis Rúnarssonar
fréttamanns. Þar verður leitast við
að svara eftirfarandi spurningum.
Eru íslensk stjórnvöld undirbúin
undir stóráföll? Skilja þau mikilvægi
sjálfboðaliðasamtaka á hættutím-
um?
Þátttakendur verða dr. Ólafur
Proppé, formaður Landsbjargar,
Kristbjörn Óli Guðmundsson, ritari
Slysavarnafélags íslands, Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík,
Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunar-
fræðingur landlæknisembættisins,
sr. Kristján Björnsson, sóknarprest-
ur Hvammstanga og Kristján Þór
Júliusson, bæjarstjóri á ísafirði.
starf ljósmæðra og fæðingarlækna.
Einnig verður rætt um breytingar á
ljósmæðraþjónustunni hér á Iandi og
skýrt frá niðurstöðum könnunar á
heimaþjónustu ljósmæðra. Þá verður
þátttakendum á Ljósmæðraþingi
skipt í umræðuhópa og niðurstöður
kynntar.
Þingið hefst eins og áður sagði
föstudaginn 5. maí árdegis og lýkur
um hádegi á laugardag. Að þinginu
loknu efnir Ljósmæðrafélag íslands
til aðalfundar síns.
Velferð kom-
andi kynslóða
DR. TAE-CHANG Kim, prófessor
við Háskólann í Kyushu í Japan og
forseti Institute for Integrated Study
of Future Generations í Osaka, flytur
laugardaginn 6. maí fýrirlestur á
vegum Heimspekideildar Háskóla
Islands í samvinnu við Iðntækni-
stofnun.
Fyrirlestur Dr. Kims nefnist Um-
hyggja fyrir velferð komandi kyn-
slóða og verður fluttur á ensku.
í lestri sínum ræðir Dr. Kim um
eðli framtíðarfræða, helstu viðfangs-
efni þeirra og um nokkrar þær ólíku
leiðir sem fara má til að hugsa um,
spá um og e.t.v. móta framtíðina.
Kjaminn í erindi hans varðar hugtak-
ið „velferð" - hvernig hægt sé að
bera umhyggju fyrir hag komandi
kynslóða og hvaða ábyrgð núlifandi
kynslóðir beri á framtíðarheill mann-
kyns, svo og jarðarinnar sem það
byggir.
Fyrirlestur Dr. Tae-Chang Kim
verður fluttur í stofu 101 í Odda,
hann verður um klukkustundar lang-
ur og hefst kl. 17. Öllum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Sýning stóð-
hesta í Gunn-
arsholti
ÁRLEG vorsýning Stóðhestastöðvar
ríkisins verður haldin í Gunnarsholti
laugardaginn 6. maí. Sýningin hefst
kl. 14.
Á dagskrá hennar er hópreið
Hestamannafélagsins Geysis kl. 14,
árvarp formanns stjórnar Stóðhesta-
stöðvarinnar, sýning á stóðhestum
NÝJAR VÖRUR
NÝ SNIÐ
D A N M A R K
Borgarkringlunni
Sumartilboð til 10. maí
Afabolir -20%
Á FUNDI Kirkjufélags Digranes-
prestakalls í Kópavogi 27. apríl
sl. voru sóknarpresturinn sr. Þor-
bergur Kristjánsson og kona hans
frú Elín Þorgilsdóttir kjörin heið-
ursfélagar og þökkuð mikilvæg
og heillarik leiðtogastörf í félag-
inu frá stofnun þess.
sem tamdir voru og þjálfaðir veturinn
1994-1995 og verðlaunaafhending.
Sýndir verða í reið þeir fjögurra
og fimm vetra folar á stöðinni sem
tamdir hafa verið og þjálfaðir í vet-
ur. Verðlaunagripir verða veittir
efsta hesti í þessum aldurshópum á
Stóðhestastöðinni. Gripir þessir eru
gjöf frá Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins.
Ennfremur verða sýndir og kynnt-
ir margir efnilegir stóðhestar víðs
vegar að sem dæmir hafa verið nú
síðustu daga. Aðgangseyrir að sýn-
ingunni verður 500 kr. fyrir 14 ára
og eldri.
Að lokinni sýningu verður kven-
félagið Unnur með kaffisölu í húsa-
kynnum Landgræðslunnar.
Islandsmót í
Svarta-Pétri
ÍSLANDSMÓT í Svarta-Pétri verður
haldið á Sólheimum í Grímsnesi laug-
ardaginn 6. maí í 7. sinn. Fresta
varð mótinu vegna veðurs en til stóð
Félagið var stofnað árið 1975.
Allt starf félagsins hefur verið
unnið til styrktar líknarmálum
hverskonar og til uppbyggingar
félagslegra samskipta og samveru
safnaðarfólks á kristilegum
grunni.
að halda það 1. apríl sl. Keppt er
um Svarta-Péturs-styttuna sem er
farandbikar, en einnig verður veittur
fjöldi aukaverðlauna. Allir þátttak-
endur fá viðurkenningarskjöl.
Hlé verður gert á mótinu um kaffi-
leytið og þátttakendum boðið upp á
pylsur og gos. Eins og áður verður
brugðið á það ráð að setja saman tvo
stokka af spilum þannig að eins spil
parast saman (karlkyn- karlkyn,
kvenkyn-kvenkyn) og gefa með því
fleirum tækifæri til að vera með.
Mótið er fyrst og fremst hugsað fyr-
ir þroskahefta en er opið öllum sem
áhuga hafa. Aðstoðarfólk verður við
hvert spilaborð.
Þátttökugjald er 300 kr. á mann.
Sætaferðir verða frá Umferðarmið-
stöðinni í Reykjavík kl. 13 og kosta
1.000 kr. á mann og frá Árnesti,
Selfossi, kl. 14.10. Styrktaraðilar að
þessu sinni eru SS, Myllan, Egill
Skallagrímsson, Nói-Siríus, SBS, Is-
landsbanki, Selfossi, og Foreldra- og
vinafélag Sólheima. Mótið hefst í
íþróttaleikhúsinu kl. 15 og áætluð
mótsslit eru kl. 18.
Námskeið um
málefni fatlaðra
FFA, fræðsla fyrir fatlaða og að-
standendur, sem Landssamtökin
Þroskahjálp, Sjálfsbjörg, Landssám-
band fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra og Styrktarfélag van-
gefinna eiga aðild að, stendur fyrir
tveimur námskeiðum laugardagana
6. og 13. maí nk.
Námskeiðið 6. maí ber heitið Að
flytja að heiman. Námskeiðið er ætl-
að þroskaheftum einstaklingum, 18
ára og eldri, og foreldrum þroska-
heftra.
Námskeiðið laugardaginn 13. maí
ber heitið Að eiga fatlað barn. Nám-
skeiðið er ætlað foreldrum fatlaðra
bama á aldrinum 6-12 ára. Nám-
skeiðið er unnið í samvinnu við for-
eldra fatlaðra bama á þessum aldri
og í samræmi við óskir þeirra um
hvað þeir vilji helst sjá á námskeiði
sem þessu. Boðið verður upp á barna-
gæslu meðan á námskeiðinu stendur.
Þema námskeiðsins verður hið fatl-
aða barn og fjölskylda þess.
Frekari upplýsingar em veittar hjá
Landssamtökunum Þroskahjálp.
Garðyrkjusýn-
ing í Mosfellsbæ
SAMTÖK garðyrkju- og umhverfis-
stjóra á íslandi standa fyrir garð-
yrkjusýningu í Áhaldahúsi Mosfells-
bæjar, Völuteig 2, 5.-7. maí.
Áðaláherslan verður lögð á vélar
og verkfæri til notkunar í skrúðgarð-
yrkju. Einnig er sýnishorn af safn-
haugagerð og greinatætara í vinnslu.
Kynning á leiktækjum, ráðgjöf í
garðyrkju o.fl.
Enginn aðgangseyrir er og er veit-
ingasala á staðnum. Sýningin verður
opnuð föstudaginn 5. maí kl. 15 að
viðstöddum boðsgestum. Sýningin er
opin laugardag og sunnudag kl.
10-18.
■ JASSBARINN Á föstudags- og
laugardagskvöld leikur Tríó Þóris
Baldurssonar, á sunnudag leikur
síðan Tríó Ólafs Stephensens frá
kl. 22 tU 1.
■ CAFÉ ROYALE Á laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Hunang
blandaða danstónlist fyrir gesti.
■ HÓTEL STYKKISHÓLMUR
Hljómsveitin Sixties leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld. Plata
hljómsveitarinnar kemur út 20. maí.
■ SKÁLAFELL MOSFELLSBÆ
Á föstudagskvöld leikur hljómsveitin
Hunang. Á laugardagskvöldinu
verður tískusýning, undirfatasýning
og leikþáttur verður s<mdn«-