Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 49
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Bj örgunarsveit
leitar aðstoðar
/
Otrúlegt úrval
af jakkafötum
Öðruvísi efni
og öðruvísi snið
HANZ
KRINGLUNNI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands undir stjórn Petri Sakari ásamt kór Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Tónlistaruppeldi
- tónlistarkynning
'ptu
tækifærið!
Frá Hirti Þórarinssyni:
GRUNNSKÓLARNIR á Selfossi í
samstarfi við Fjölbrautaskóla Suð-
urlands og Tónlistarskóla Árnesinga
hafa sl. þijú ár skipulagt og staðið
að tónleikahaldi og
tónlistaruppeldi
meðal nemenda
sinna. Þetta er
iangtíma viðfangs-
efni.
Markmiðið er
tvíþætt, annars
vegar skemmtun á
líðandi stundu og
hins vegar mótun
Hjörtur
Þórarinsson
framtíðarviðhorfs æskufólks til tón-
listar.
Á líðandi stund er þetta skemmt-
un, fróðleikur og unaður þeirra sem
fá þessa upplifun og opinberun á
vettvangi tónlistarinnar. Þetta skerp-
ir tilfinningu og skilning þess mikla
fjölda nemenda sem nýta tómstundir
sínar við tónlistariðkun. Jafnframt
styrkist og eflist áheyrenda- og aðdá-
endahópurinn, sem tónlistarfólkið
okkar getur treyst á í framtíðinni.
Stór hópur listamanna
Sá stóri hópur listamanna sem
komið hefur til okkar sl. þrjú ár,
hefur lagt grunn að vaxandi hópi
áhugasamra og virkra áheyrenda á
tónlist. Stærstu og eftirminnilegustu
stundirnar hafa verið þau tvö skipti
sem Sinfóníuhljómsveitin kom. í
fyrravetur náðum við til allra grunn-
skólanemenda í Árnessýslu auk
grunnskólanemenda á Selfossi.
Haldnir voru tvennir nemendatón-
leikar um daginn og síðan almennir
tónleikar um kvöldið.
3.000 áheyrendur
Áheyrendur þennan dag voru um
3.000. Hinn 28. marz sl. kom sinfón-
íuhljómsveitin í annað sinn, en vegna
þess að kennsla í grunnskólanum var
ekki hafín og hafði fallið niður und-
anfarnar vikur, tókst ekki að und-
irbúa nemendur fyrir þessa tónleika
eins og unnið hafði verið að af hálfu
flytjenda og stjórnenda. Þess vegna
var verkefnavali breytt og framsetn-
ing þess bar heitið Almennir fjöl-
skyldutónleikar undir stjórn Petri
Sakari, kynnir og einleikari var Jón-
as Ingimundarson. Jónas brá á leik
með sinni tækni og tilfinningu fyrir
túlkun á ungversku fantasíunni eftir
Franz List. Áður aðstoðaði hann
hljómsveitina við að kynna einstök
hljóðfæri og hljóðfærafjölskyldur í
tónverki B. Britten. Þá söng kór Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, kórstjóri
Jón Ingi Sigurmundsson og ein-
söngvari Kristjana Stefánsdóttir. Tvö
síðustu verkin sem hljómsveitin flutti
voru Dansar úr „Seldu brúðirtni“ eft-
ir Bédrich Smetana og Karneval for-
leikur eftir Antonin Dvorak.
Þakkir og von um
endurfundi
íþróttahúsið á Selfossi var þétt
setið og þétt staðið af fagnaðarsöm-
um áheyrendum ungum og öldnum.
Miklar þakkir skulu ítrekaðar til
allra listamanna er fram hafa komið
á þessum þrem árum og von um
endurfundi á næstu árum og vissa
um vaxandi áhuga unga fólksins á
tónlistarupeldi og tónmenningu.
HJÖRTUR ÞÓRARINSSON,
rekstrarstjóri Tónlistarskóla
Árnesinga.
Upplýsingar um
Intemettengingu
við Morgunblaðið
VEGNA fynrspurna varðandi
Internet-tengingu við Morgun-
blaðið, skal eftirfarandi áréttað:
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upplýs-
ingar um blaðið, s.s netföng starfs-
manna, upplýsingar um hvemig
skila á greinum til blaðsins og
helstu símanúmer.
Morgunblaðið á Internetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á Internetinu á tvo vegu.
Annars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða með
því að tengjast heimasíðu blaðsins
og velja Morgunblaðið þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á Internetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Internetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir
og myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við Internet
Þeir sem hafa Netseape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik að
tengjast blaðinu. Einungis þarf að
slá inn þá slóð sem gefin er upp
hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
vcrið_r*íst.
Mótöld
Heppilegast er að. nota a.in.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar. Hægt
er að nota afkastaminni mótöld
með Gopher-forritinu.
Frá Guðnýju Unni Jökulsdóttur:
ATBURÐIR vetrarins minntu okkur
enn einu sinni á nauðsyn þess að
hafa sterkar og vel þjálfaðar björg-
unarsveitir. Ef við gleymum því um
stund er náttúran viss um að minna
okkur fljótlega á það aftur.
Þegar á reynir er fjöldi fólks úr
Ingólfi, björgunarsveit Slysavarna-
félagsins 5 Reykjavík, eins og öðrum
björgunarsveitum á landinu, boðinn
og búinn að fara hvert á land sem
er og hvenær sem er og leggja tals-
vert á sig til þess. Þau voru ófá
skiptin í vetur sem við aðstoðuðum
Reykvíkinga í vondu veðri og ófærð.
Fyrst og fremst erum við björgunar-
sveit Reykjavíkur þó við sinnum
með glöðu geði útköllum hvar sem
er á landinu séum við beðin um
það. Við erum hluti af almanna-
varnaskipulagi borgarinnar og höf-
um lagt áherslu á að þjálfa meðlimi
í björgunm fólks úr rústum, t.d.
eftir jarðskjálfta. Ekki má gleyma
stórum hluta starfs okkar sem er
björgun og aðstoð á sjó og erum
við eina björgunarsveitin í Reykja-
vík sem sinnir því.
Rekstur björgunarsveita er ekki
ódýr, sama hversu mikið reynt er
að halda rekstrarkostnaði niðri.
Nauðsynlegt er að halda tækjum,
bæði farartækjum og smærri bún-
aði, í góðu ástandi svo þau séu tilbú-
in þegar kallið kemur. Einnig verða
félagarnir í sveitinni að kunna á
búnaðinn sem kostar bæði tíma og
peninga.
Annað slagið kemur að þvi að
björgunarsveitir leita til fólksins um
aðstoð og nú er komið að því. í
dag, föstudag, og á morgun, laugar-
dag, verður merkjasala Björgunar-
sveitar Ingólfs. Þá munu skólabörn
ganga í hús í Reykjavík og bjóða
merkin á 200 krónur. Það er því
ósk okkar að Reykvíkingar taki
börnunum vel og kaupi merki. Mun-
ið að með því að styrkja björgunar-
sveitina ykkar eruð þið að hjálpa
okkur að hjálpa öðrum.
GUÐNÝ UNNUR JÖKULSDÓTTIR,
Björgunarsveit Ingólfs.
Lukkuhappdrætti Alþýðuflokksins á Reykjanesi
Þann 8. apríl sl. fór fram dráttur hjá sýslumanni Kópavogs
í Lukkuhappdrætti Alþýðuflokksins á Reykjanesi.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Þrjár tölvur Hyundai 466G:
0545 1453 0463
Tíu utanlandsferðir tii Dublin, írlandi:
2171 1608 1925 1920 1738
2538 1930 1758 1165 1483
Fjörutíu vinningar á HM’95, tveir
aðgöngumiðar á hvert númer:
1712 1114 2176 1680 2186
2535 1730 2131 2191 1733
1796 1168 1478 1725 1716
2637 1753 2260 0910 2708
1598 0501 0548 0355 2371
1448 2111 3000 1589 2878
2096 2211 2091 1624 0304
0552 2508 2999 1743 0354
Ferðavinningar eru afhentir gegn
afhendingu vinningsmiða hjá
söluskrifstofu Samvinnuferða/
Landsýnar, Hafnargötu 35, Keflavík,
sfmi 92-13400.
Miðar á HM’95 verða afhentir gegn
framvísun vinningsmiða hjá
Alþýðuflokksfélagi Kópavogs,
Hamraborg 14a, 2.h. t.h., Kópavogi,
s. 91-44700: Föstudag 5. maí nk. kl.
16.00—19.00 og laugardag 6. maí
nk. kl. 10.00—13.00. Nánari
upplýsingar s.s. um tölvuvinninga
vera veittar í s. 91 -44700 á ofan-
greindum dögum og timum.
Alþýðuflokkurinn á Reykjanesi.