Morgunblaðið - 05.05.1995, Side 50

Morgunblaðið - 05.05.1995, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ imm Aðaltöiur: 1 )(i2)íi3; Vínningstölur miövikudaginn: jjjlÚinningur for til Danmerkur (2) 15 20 47 BÓNUSTÖLUR D®® Heildarupphæð þessa viku: 48.960.938 1.248.938 UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVJLLUR Aðalfundur Dagsbrúnar Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 6. maí 1995 kl. 13.15. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Breyting á reglugerð styrktarsjóðs. 3. Kaffiveitingar. Félagar fjölmennið. Stjórn Dagsbrúnar. V s EIRAPROl Næsta námskeið til aukinna ökuréttinda hefst þriðjudaginn 9. maí kl. 18 Námskeiðið kostar kr. 95.000 staðgreitt Afborgunarkjör. __ Innritun eftir kl. 13 alla virka daga f síma 670300. 0KUSK0LINNIMJ arabakka 3, Mjóddinni, sírptjjm 0300 f (99<i f. Isíandsmeistaral^eppni í dansi meðgrunnaðferð 6—7. maí í íþróttafiúsinuj Strandgötu, Síafnarfirði Keppni hefst kl. 11.00 báða dagana. Húsið opnað kl. 10.00 báða dagana. Einnig keppt í flokkum með frjálsri aðferð. Verð 1 daaur 2daaar Börn 4 OO 7OO Fullorðnír í stúku 600 10OO 5asti við borð 10OO 1600 ,5jáunist; hre&ö O0 k'át! I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Geðdeild ÞAÐ ERU ekki allir sem eiga heima á geðdeild. Deildin er ekki fyrir fólk sem kann að notfæra að- stöðuna með leikaraskap. Það fólk ætti bara heima á leiksviði. Þeir, sem geta útskrifast af deild- inni, eiga ekki að vera þar lengur eingöngu vegna þess að þeir eiga ekki í nein önnur hús að venda. Það ætti að setja á stofn heimili fyrir þetta hús- næðislausa fólk þar sem það getur dvalið. Það má ekki misnota geðdeildina því hún er ein- göngu fyrir fólk sem er veikt. Almennt þakkar fólk hvorki fyrir né kann að meta að vera heilbrigt. Leiksvið lífsins er nógu stórt fyrir okkur öll. Gígja Thoroddsen Tapað/fundið Perluarmband fannst PERLUARMBAND fannst á Nesbala fyrir nokkru síð- an. Uppi. í síma 611086. Lyklar fundust FIMM lyklar á kippu fund- ust í Faxatúni í Garðabæ á sumardaginn fyrsta. Upplýsingar í síma 658512. Hringur tapaðist TVÍLITUR gull- og silfur- hringur með bláum steini, frá Jens, tapaðist í Vestur- bænum við Nesveg eða Vesturbæjarsundlaug sl. miðvikudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 5611534 eða 5880017. Myndavél tapaðist MINOLTA myndavél tap- aðist á bílaplaninu fyrir framan Sóiheima 25 rétt eftir miðnætti aðfaranótt sl. laugardags. Hafí ein- hver fundið hana er hann beðinn að hringja í síma 12193 eða 611280. Fund- arlaun. Bangsi fannst í Hallarmúla LÍTILL bangsi, sem fannst í Hallarmúla, saknar eig- anda síns. Upplýsingar í síma 685990. Svartur reiðfákur DIMMT ER á dökkum miðum og depurð ríkir á heimilinu. Af einhverjum ástæðum hvarf svarti far- arskjótinn hennar Helgu þar sem hann stóð læstur við heimili hennar í fyrri- nótt. Fákurinn er alsvartur af gerðinni TRECK með ljósum að aftan og framan, táklemmum, bögglabera og ýmsum öðrum auka- hlutum. Hnakkurinn var teypaður með brúnu lím- bandi fremst, gat var á hægra handfangi. Hann var eina farartækið á heimilinu og sá um að koma eiganda sínum úr og í vinnu og annað snatt sem til féll. Því er missir hans mikill og er nú höfðað til bestu tilfmninga þess sem fékk hjólið lánað og er hann, eða aðrir sem hafa séð þennan kostagrip, beðnir að hringja í síma 5544904 eða vinnusíma 691220. Helga. Gæludýr Týndur köttur SMÁVAXINN grábrönd- óttur köttur með hvítar loppur og bringu hvarf að heiman frá sér i Selja- hverfí fyrir u.þ.b. viku. Gegnir nafninu Cero, er eyrnamerktur og var með svarta 61 með bjöllu. Viti einhver um ferðir hans er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 72414. Kisa er týnd HÚN Fluga litla, 1 árs, þrílit læða (svört, ljósbrún, hvít), fór ólarlaus í göngutúr á Lindargötu fimmtudag- inn 27. apríl sl. og hefur ekki sést síðan. Hafi einhver orðið ferða hennar var er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 21387. HOGNIHREKKVISI <s» HANN BR í STEyPUKCOSSONUAA .« LEIÐRÉTT Coldwater ekki Iceland Seafood Ranghermt var í fundar- boði í blaðinu í gær að Magnús Gústafsson væri forstjóri Iceland Seafood Corporation í stað Coldwat- er Seafood Corporation og er beðist velvirðingar á þvl. Þess má reyndar geta að upplýsingar um fundinn og texti komu frá Verslunar- ráði íslands. Pétur en ekki Steini Mishermt var í greininni „í þá gömlu góðu daga“ í blaðinu í gær að Skaga- maðurinn Sigursteinn Há- konarson hefði komið fram á samnefndri skemmtun á Hótel íslandi síðastliðið sunnudagskvöld. Hið rétta er að í forföllum Steina tók Fram-arinn Pétur Krist- jánsson nokkur lög við góð- ar undirtektir. Pennavinir TUTTUGU og fjögurra ára Ghanastúlka með áhuga á bréfaskriftum, ferðalögum o.fl.: Salanmty Farouk, P.O. Box 529, Ayiko Ayikoo, Ogvaa, Ghana. TUTTUGU og sjö ára Ghanamaður með áhuga á ferðalögum og íþróttum: Maxwell Kweku Andrew, P.O. Box 802, Cape Coast, Ghana. FRA Lettlandi skrifar kona sem er í íslandsvinafélag- inu en gleymir að geta um aldur: Vya Ganina, Virsu Street 13-3, 226080 Riga, Latvia. Víkveiji skrifar... VÍKVERJI hefur oftar en einu sinni furðað sig á hversu líf- seigar ýmsar gamlar hugmyndir um mismun kynjanna eru. En látum vera þótt fólk af eldri kynslóðinni sé fast í sama farinu hvað þetta varðar, enda oft erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Hins vegar þykir Víkveija afar sérkennilegt að sjá þessa afstöðu í nýrri sjónvarps- auglýsingu, sem er ætlað að hvetja ungu kynslóðina til dáða. Auglýs- ingin er til að vekja athygli á sam- keppni um bestu, frumsömdu, mjólkurauglýsinguna. Víkverji hef- ur séð tvær útgáfur af þessari aug- lýsingu. í báðum segir móðirin í auglýsingunni að mjólk sé góð fyrir ímyndunaraflið. Þetta sannast á unglingspiltinum í fjölskyldunni, sem lygnir aftur augunum og er í huganum kominn á brunandi ferð á snjóbretti, með ýmsum líflegum tilburðum. Ónnur útgáfa auglýsing- arinnar er framan af eins, en þegar kemur að ímynduninni að þessu sinni er það unglingsstúlkan á heimilinu sem lætur sig dreyma um fyrirsætustörf og gengur hálfnakin eftir sýningarpalli. Víkverja finnst afskaplega gamaldags að setja drauma unga fólksins fram á þenn- an veg; hann er svellkaldur og flink- ur, hún falleg og kynþokkafull. xxx AÐ ER svo sem ekkert eins- dæmi að hlutverkum kynjanna sé stillt upp á þennan hátt. Undar- leg afstaða til kynjanna veldur því meira að segja að stundum búast konur fastlega við að þeim sé This- munað og karlar teknir fram yflr þær. Víkveiji kann að segja af þremur konum, sem allar sóttu um sömu stöðuna innan bankakerfisins. Þær voru allar viðskiptafræðingar að mennt, en íjórði umsækjandinn var karlmaður, sem ekki gat státað af slíkri háskólamenntun. Fólkið hafði starfað hjá bankanum áður, en mislengi. Konurnar þrjár töluðu þó um það sín á milli að þær gætu víst allt eins átt von á því að- karl- maðurinn, sem hafði einna minnstu starfsreynsluna, yrði tekinn fram yfir þær. En ekki endaði sagan svo illa, þótt endirinn væri undarlegur. Ein kvennanna fékk starflð. Hún hafði minnstu starfsreynsluna af konunum þremur og var nánast nýbyijuð. Ög ástæðan, sem. gefin var fyrir þessari ákvörðun? Jú, þessi kona átti tvö böm og lýsti því yfír að hún ætlaði sér ekki að eignast fleiri. Hinar tvær voru barnlausar og vinnuveitendumir litu greinilega svo á að mikil „hætta“ væri á að þær legðust í barneignir og yrðu verri starfskraftar en ella. Miðað við þetta mætti ætla að engin kvenn- anna hefði fengið starfíð, ef þær hefðu allar verið barnlausar. Hæfi- leikar til að kljást við starf yfir- manns virtust minnstu máli skipta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.