Morgunblaðið - 17.05.1995, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 17.05.1995, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ STEFANIAINGUNN JÓHANNESDÓTTIR DONEGAN + Stefanía var fædd í Iteykja- vík 2. apríl 1948. Hún lést á heimili sínu í Bandaríkjun- um 15. apríl síðast- liðinn. Stefanía var dóttir hjónanna Huldu Magnúsdótt- ur og Jóhannesar Bjarnasonar. Hún var elst fjögurra systkina, en þau eru: Aslaug Þóra, f. 1948, d. 1982, Bjarni Magnús, f. 1953, og Guðmunda Hulda, f. 1955. Stefanía gekk í Melaskóla og tók verslunarpróf úr Hagaskóla 1965. Hún dvaldi eitt ár sem au pair-stúlka í Englandi eftir skóla. Hún vann sem ritari hjá Sambandinu um tíma og síðan hjá Flugféiagi íslands, þar til hún fluttist með eiginmanni sínum George Jos- eph Donegan til Bandaríkj- anna. Eignaðist hún tvö börn, George Jóhannes, fæddan 1973, háskólanema, og Huldu Eliza- beth, fædda 1973, framhalds- skólanema. Stefanía var jörðuð í Arlington-kirkjugarði í Wash- ington D.C. 24. apríl sl. Minn- ingarathöfn um hana fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst hún klukkan 15.00. MIG langar að minnast með nokkr- um orðum elskulegrar mágkonu * minnar Stefaníu Donegan sem lést að heimili sínu í Bandaríkjunum þann 15. apríl síðastliðinn. Meðal ættingja og vina var hún alltaf kölluð Steffý. Ég hitti hana fyrst sumarið 1973 þegar hún kom til íslands með son sinn George Jóhannes nokkurra mánaða gamlan til að dvelja hér nokkrar vikur. Ég hafði oft heyrt talað um Steffý og alltaf þótti mér gæta aðdáunar í rödd þeirra sem um hana töluðu. Það átti eftir að renna upp fyrir mér að það var ekki að ástæðulausu því hún var einkar falleg og heillandi kona, hlý og notaleg sem gaf fólki í kringum sig svo mikið af sjálfri sér. Það var ekki hægt annað en líða vel í ná- vist hennar. Erfitt er að minnast á Steffý frá þessum dögum nema minnast á systur hennar Ásu, sem var ári yngri en Steffý. Voni þær miklar vinkonur og notaði Ása öll tækifæri sem gáfust til að heim- sækja systur sína til Ameríku. Ása lést 1982, langt fyrir aldur fram. Var hennar sárt saknað. Steffý og maður hennar George reyndu að koma reglu- lega til íslands með börnin sín, George Jó- hannes, fæddan 1973 og Huldu Elizabeth, fædda 1978, til að leyfa þeim að sjá og kynnast landinu og ættingjum sínum. Einnig höfum við fjöl- skyldan hér heima reynt að heimsækja þau eins oft og kostur hefur verið. Alltaf var jafn gott að koma til þeirra, gestrisni var þeim í blóð borin. Steffý var mjög lagin við að matbúa og baka. Ófá skiptin höfum við setið að borðum á heimili þeirra og troðið í okkur kræsingum. Ekki má gleyma hversu gaman henni þótti að fara í búðir. Hún vissi hversu mikil kjarakaup maður gat oft gert í Ameríku og fannst henni að maður mætti ekki láta tækifær- in renna sér úr greipum þegar maður sá eitthvað sem mann lang- aði í. Þegar hún fór í samkvæmi var hún alltaf hrókur alls fagnaðar því hún hafði gvo smitandi hlátur að fólk varð ósjálfrátt glatt þegar hún var nálægt. Síðasta ferðin sem hún og ijöl- skylda hennar fóru til íslands var um síðustu jól. Áttum við saman yndislegar stundir um jól og ára- mót. Hittum við hana síðan í febr- úar á heimili hennar káta og hressa að vanda. Ekki grunaði mig þá að það yrði í síðasta skipti sem ég sæi hana. Hún var tekin frá okkur en minningin um yndislega manneskju verður aldrei frá okkur tekin. Hugurinn leitar ósjáfrátt til George, Jóa og Huldu, þau hafa misst manneskju sem hélt heimilinu saman og gæddi það h'fi. Ég vona að Guð mildi þeim sorgina. Elsku Hulda og Jóhannes, missir ykkar er óbætanlegur. Ég kann engin orð sem geta huggað. Guð blessi minninguna um Steffý. Herdís Guðjónsdóttir. Systurnar Stefanía Ingunn, eða Steffý, og Áslaug Þóra, eða Ása, voru mjög samrýndar. Sú er þessar línur skrifar leit eftir þessum litlu systrum nokkur sumur. Við vorum systkinadætur og ólumst allar upp á Grenimel. Þær á nr. 22 og ég á nr. 14. Það var mikill samgangur milli fjölskyldnanna. Ég minnist þess þegar maður tók sprettinn eft- ir melnum, til að athuga hvort Hulda frænka væri ekki tilbúin með krakkana í skrúðgönguna 17. júní. Ása og Steffý eignuðust bróður, t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall STEFAIMÍU EINARSDÓTTUR, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 25. apríl sl. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki hjúkrunardeildar 3B á Hrafnistu. Sigrfður Hinriksdóttir, Jóhanna Hinriksdóttir. t Eiginmaður minn, faðir og afi, SIGURÐUR GÍSLASON, Suðurgötu 74, Hafnarfirði, sem lést í Borgarspítalanum 4. maí si., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 18. maí kl. 13.30. Jóhanna Hinriksdóttir, Guðrfður Sigurðardóttir, Jóhanna Árnadóttir, Sigurður Árnason. Bjarna Magnús, og systur, Guð- mundu Huldu. Ég leit hálfpartinn á þessi systkini sem mín eigin. Sumrin liðu við leik og barnapöss- un. Steffý gekk í Melaskóla, síðar í Hagaskóla og lauk þaðan prófi úr verslunardeild 1963. Þegar hún var 17 ára fór hún í vist sem „au pair“ til London. Hún var þar í eitt ár. Ári síðar kynnist hún George Josep Donegan, stórmyndarlegum Bandaríkjamanni sem talaði ís- lensku ágætlega. Hann var við- skiptafræðingur. Steffý og George voru gefin saman í Landakotskirkju árið 1969, en George er kaþólskrar trúar. Ég gleymi aldrei hvað Steffý var falleg brúður, er hún gekk inn kirkjugólfið með Jóhannesi föður sínum. Við misstum mikið þegar hún flutti af landi brott og settist að í Wasington D.C. En hún hélt alltaf sambandinu við gamla ísland. Hringdi vikulega í Huldu móður sína. Öll fjölskyldan heimsótti ísland um síðustu jól, og var það yndisleg- ur tími, ekki síst fyrir foreldrana, Huldu og Jóhannes. Það var mikið um heimsóknir til ættingja og vina þann tíma og Steffý var ákveðin í að koma aftur nú í sumar, en hinn illvígi sjúkdómur sigraði að lokum, eftir átta ára baráttu. Steffý kvartaði aldrei. Hún var hetja. Við vissum að hún væri alvar- lega veik, en þegar við hittum hana svo, var ekki hægt að sjá að svona stutt væri í endalokin. Steffý bar með sér birtu og glað- værð hvert sem hún fór. Enga manneskju hef ég þekkt sem hafði jákvæðara lífsviðhorf. Það var mannbætandi að spjalla við hana. Listhneigð var þessi glæsilega frænka mín, hún átti auðvelt með að teikna og mála og eru til all- margar myndir er hún gerði sér til gamans. Steffý var mikil húsmóðir, mat- argerð hennar var einstök og á augabragði hafði hún reitt fram stórkostleg veisluföng. Nú á þessum erfíðu tímamótum bið ég góðan Guð að styrkja þau öll, foreldra hennar, systkini, George og börnin og blessa minn- inguna um einstæða manneskju sem aldrei gleymist. Ingunn Jensdóttir. Þegar vinir hverfa á braut hins óþekkta spyr maður af hveiju og af hveiju hún. Það er gott að eiga góðar minn- ingar um góða konu, góðar minn- ingar ylja í sorg og söknuði. í dag verður minningarathöfn um hann Steffý, eins og hún var alltaf kölluð. Hún giftist til Bandaríkjanna og kynntist ég henni eitt sinnið þegar hún kom heim til íslands, það var fyrir tuttugu árum hjá Huldu mömmu hennar. Þá var haldið konuboð og borðið hlaðið af tertum INGUNN GUNNLA UGSDÓTTIR + Ingunn Gunn- laugsdóttir fæddist á Reynhól- um í Miðfirði 4. jan- úar 1910. Hún Iést á öldrunarheimilinu Seljahlíð í Reykja- vík 6. maí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Guðmundsdóttir og Gunnlaugur Eiríks- son. Ingunn var þriðja í röð sjö systkina. Látin eru auk Ingunnar: Ing- ólfur, Þorbjörg, Margrét og Eiríkur Ólafur. Eftirlifandi eru Guð- mundur og Þórdís. Eiginmaður Ingunnar, Guðmundur Bjarna- son, lést í fyrrasumar. Ingunni og Guðmundi varð ekki barna auðið, en þau ólu upp fósturdótt- urina Halldóru Björt Óskars- ÞÁ Ingunnar Gunnlaugsdóttur er minnst, kemur hlýja og fegurð fyrst í hugann. Hlýjan, umhyggjan, og eiginleikinn að sjá og finna það besta í fari hvers og eins. Fegurðin, sem augu náttúrubarnsins skynja í öllu, hvort sem sólin skín eða rökkvar af dægri. Þó Ingunn hafi iengst af búið í bæjum, og síðar borg, var hún ávallt stúlkan í dalnum. Sveitin hennar, Miðfjörður, var henni svo kær, að hvenær sem tök voru á í samræðum, kom hún minningunni um Reynhóla, bæinn í dalnum, óðal feðranna að. Ingunn Gunnlaugsdóttir stundaði nám við Héraðsskólann á Laugum í Þingeyjarsýslu. Eftir nám veiktist hún alvarlega og þurfti að dvelja um árabil á sjúkrahúsum. Þá, þegar depurð sækir á húg okkar flestra við slíkar kringumstæður, kom sér vel fyrir stúlkuna úr dalnum að skynja náttúruna og alla hennar feg- urð með gagnrýnu auga náttúru- barnsins. Trúlega kunni Ingunn allt nema eitt, það að gefast upp. Margra vandamál urðu að hismi einu, er hún tók til hugar og handa. Hún hitti hann á ísafirði. Þau áttu samhljóma hjörtu, og innsigluðu taktinn. Þau giftu sig, hún og Guð- mundur Bjarnason, 20. nóvember 1937. Þeim gat ekki orðið barna auðið, en samt er þau fluttu suður, höfðu þau í farteskinu litla stúlku, fósturdótturina Halldóru Björt Ósk- dóttur og kjörson- inn Ómar Þór Guð- mundsson. Ingunn stundaði nám við Héraðsskólann á Laugum í Þingeyj- arsýslu, auk þess sótti hún námskeið í saumaskap í Reykjavík. Ingunn vann mikið utan heimilis, t.d. við sjúkrahúsið á Isafirði, og síðar við saumaskap á Kópa- vogshælinu. Hún var virkur félagi í Mæðrafélagi Reykjavíkur og bar ætíð hag barna og þeirra, er lakara hlut- skipti áttu í samfélaginu, mjög fyrir brjósti. Útför Ingunanr fór fram frá Fossvogskirkju í gær, þriðju- daginn 16. maí. arsdóttur. Síðar eignuðust þau kjör- soninn Ómar Þór Guðmundsson. Hvað sem gekk, var alltaf þessi reisn yfir frú Ingunni, frænku, ömmu í Kópó, eða hvað hver kaus að ávarpa dalastúlkuna og heims- borgarann. Hvað er líf án dauða, lækur án hlíðar? Svona hugsaði hún og lifði. Að vera klettur, er enginn máttur hrærir, glöggt auga er græt- ur, þá enginn sér, þannig var hún Ingunn. Þinni minningu mun ætíð hátt haldið. Guðmundur R. Jónsson. Elsku amma mín. Nú er komið að kveðjustund. Mig tekur sárt að kveðja þig. I hjarta mínu er mikið tómarúm en minningarnar um þig eru svo marg- ar og góðar að það hjálpar svolítið. Mínar fyrstu minningar um þig eru úti á stóra túninu í Kópó, þegar þú varst að leika við okkur Nonna bróð- ur. Þú taldir ekki eftir þér að steypa þér í kollhnís fyrir okkur og fara í eltingaleik, feluleik og eða hvað sem okkur datt í hug og Teddi kisinn þinn fylgist með öllu saman. Já, allar minningar um þig eru fullar af hlýju hvort sem ég minnist þín frá barnæsku minni eða eftir að ég fór að eldast meira og stofnaði fjölskyldu. Þú vildir alltaf hjálpa öll- eins og ávallt hjá þeim, þá smakk- aði ég fyrst ostatertu og þurfti að pína hana í mig. Við hlógum mikið af því mörgum árum seinna, alltaf mun ég minnast hennar þegar ostaterta er fyrir framan mig. Við mæðgurnar og mágkona heimsóttum hana fyrir tveimur árum og var það ógleymanleg ferð. Það var allt fyrir okkur gert, ekið um Wasington og Baltimore og allt mögulegt skoðað og þau hjónin Georg og Steffý voru óþreytandi að segja frá og sýna okkur. Ekki var hægt að koma til henn- ar án þess að fara í verslunarmið- stöð og fór hún auðvitað með okkur í það flottasta og var óþreytandi að hjálpa til við að finna eitthvað fyrir okkur til að vera ánægðar með. Svo varð að leyfa okkur að smakka amerískan morgunverð. Það var spjallað langt fram eftir og ekki ófá hlátursköstin. Alltaf var hún hress og kát þrátt fyrir veikind- in og ekki var hægt annað að sjá en að henni liði vel. Það var yndislegt að fá að vera með þeim þegar þau komu um jól- in, öll fjölskyldan saman komin. Guð geymi þig Steffý mín, ég þakka þann tíma sem ég fékk að njóta þín. Elsku Hulda, Jóhannes og Munda, Guð gefi ykkur styrk í ykk- ar sorg. Elsku Haddý systir mín og Bjarni mágur, ykkar missir er mikill, Guð sé ávallt með ykkur. Sigríður Guðjónsdóttir. um ef eitthvað bjátaði á og varst alltaf svo létt og kát. Já, amma mín þú varst yndisleg kona og ég kveð þig með miklum söknuði og virðingu. Ég veit og trúi því að nú séuð þið afi saman á ný og að ykkur líður báðum vel núna. Vertu sæl, elsku amma mín, og þakka þér fyrir allt. Hvíl þú í friði og lifi minning þín. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesús, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer, sitji Guðs englar yfir mér. (H. Pétursson) Þín, Ingunn A. Guðmundsdóttir. Elsku amma. Ég vissi alltaf að sá tími kæmi að þú kveddir en það er svo sárt að taka því þegar kallið kemur. Ég mun alltaf geyma minn- ingu þína í hjarta mínu. Eg minnist kvölda okkar saman þegar ég var að skoða töluboxið þitt og þú sast við sauma. Ég er svo glöð að hafa kynnst þér svo vel því við vorum svo góðar vinkonur. Það var alltaf hægt að segja þér allt því þú skildir allt svo_ vel. Ég man þegar ég kom í heim- sókn, alltaf tókstu á móti manni með brosi og hlýju. Og er þið afi fluttust í Seljahlíð og bjugguð þar í lítilli sætri íbúð, þá fór heilsan að gefa sig, en alltaf var svo gott að koma til ykkar. En nú veit ég að þið afi eruð sam- an á ný í höndum Guðs. Hafið þökk fyrir allt sem þið hafið gefið okkur. Elsku mamma, megi góður Guð styrkja þig í sorg þinni. Sara. Erfídrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar í síma 22322 FLUGLEIDIR iiHm Lorrm»iR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.