Morgunblaðið - 23.06.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1995 3
FRÉTTIR
Göngu- og hjólreiðastígur frá Ægisíðu upp
C
R K
JnergMr
Göngu- og hjólreiðastígurinn hefst við bæjarmörk Seltjarnarness og Reykjavíkur. Sámkvæmt
upplýsingum frá gatnamálastjóra var í fyrra frágangi lokið við þann kafla stígsins, sem nær frá
Ægisíðu eftir ströndinni að Nauthólsvík. Framkvæmdir eru að hefjast við næsta kafla, frá
Nauthólsvík að Kringlumýrarbraut og þaðan áfram í gegn um Fossvogsdal. Frá Reykjanesbraut
liggja nú þegar malbikaðir stígar langleiðina upp Elliðaárdalinn. Síðasti farartálminn á leiðinni er
Kringlumýrarbrautin, en í sumar á að rísa göngu- og hjólreiðabrú yfir hana.
Göngribrú yfir
Kringlumýr arb raut
GONGU- og hjólreiðastígurinn,
sem liggja á frá bæjarmörkum
Seltjarnarness og Reykjavíkur
meðfram Fossvoginum og ná að
tengjast öðrum stígum upp að Ell-
iðavatni og þaðan áfram upp í
Heiðmörk, á að verða tilbúinn að
mestu leyti í haust.
Bygging brúar fyrir hjólandi og
gangandi yfir Kringlumýrarbraut
verður boðin út í sumar, en með
byggingu hennar verður mesta far-
artálmanum á leiðinni rutt úr vegi
hvort heldur sem er fyrir gangandi
eða hjólandi útivistarunnendur.
Framkvæmdir við annan
áfanga stígsins eru nú að hefjast
í Fossvogsdal. Þar er um að ræða
þann kafla, sem nær frá Kringlu-
mýrarbraut upp í Elliðaárdal. Á
þessari leið er malarstígur fyrir,
en hann verður breikkaður og
malbikaður.
Utboð í lagningu þess kafla
stígsins, sem nær frá Nauthólsvík
að Kringlumýrarbraut-var opnað í
vikunni og hefjast framkvæmdir
þar á næstu dögum. í fyrra var
lokið við frágang stígsins allt frá
Ægisíðu að Nauthólsvík.
Ný þyrla Land-
helgisgæslunnar
til landsins í dag
TF-LIF, nýja Super Puma þyrla
Landhelgísgæslunnar lagði af stað
áleiðis til íslands frá borginni
Marseille í Suður-Frakklandi um
klukkan sjö í gærmorgun og er
væntanleg til Reykjavíkur um
klukkan 14 í dag, verði engin rösk-
un á flugáætlun. Formleg móttaka
verður haldin í flugskýli Landhelg-
isgæslunnar í dag þar sem biskup
íslands, herra Olafur Skúlason,
mun blessa þyrluna að viðstöddum
forseta íslands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur, ráðherrum, alþingis-
mönnum, sendiherrum erlendra
ríkja og fleiri gestum.
Lendir fyrst í
Vestmannaeyjum
TF-LÍF var afhent nýjum eig-
endum í borginni Marigana í
Frakklandi á mánudag við lát-
lausa athöfn. Hún flaug frá Mar-
seille í gærmorgun og lenti í borg-
inni Lille um klukkan 11. Þaðan
var flogið til Aberdeen í Skotlandi
og lent þar um klukkan 17. í
fyrstu flugáætlun var að því
stefnt að vélin héldi til Stornoway
í Skotlandi í gærkvöldi þar sem
áhöfnin myndi nátta. Snemma í
dag fer þyrlan lokaáfangann til
íslands og er áætlað að fyrsti við-
komustaður hennar verði Vest-
mannaeyjar, áður. en hún heldur
til Reykjavíkur.
Sýnd almenningi
TF-LÍF er búin öllum fullkomn-
asta neyðar-og björgunarbúnaði
og getur rúmað 20 farþega í sæti
með þriggja manna áhöfn. Áhöfn-
in í flugi hennar til íslands er skip-
uð Páli Halldórssyni yfirflugstjóra,
Benóný Ásgrímssyni flugstjóra og
flugvirkjunum Einari Bjarnasyni
og Jóni Pálssyni.
Þyrlan verður almenningi til
sýnis á morgun á flugvelli Land-
helgisgæslunnar við Nauthólsvík
frá klukkan 13 til 17, ásamt TF-
SÝN, TF-GRÓ og TF-SIF, §em
skipa flugflota Landhelgisgæsl-
unnar.
Morgunblaðið/RAX
Sundaklettur
Eimskip býður viðskiptavini sína velkomna í nýja viðskiptaþjónustu við Korngarða
í norðurenda Sundahafnár. Skrifstofur Eimskips, Landsbankans og Tollsins á
Sundahafnarsvæðinu hafa flust í þetta nýja og glæsilega húsnæði sem hlotið hefur
nafnið Sundaklettur.
Við þessar breytingar mun þjónusta við viðskiptavini Eimskips eflast enn frekar.
í Sundakletti færð þú almenna flutningaþjónustu, flutningaráðgjöf, sérstaka þjón-
ustu vegna búslóðaflutninga og smápakkasendinga auk allrar þeirrar þjónustu sem
áður var veitt í eldra húsnæðinu. í Sundakletti verða einnig skrifstofur rekstrarsviðs
Eimskips.
Styttan af Nonna
komin heim
BRON S AFSTEYP A og gifsmót
Nonnastyttunnar svokölluðu
eru komin til íslands frá Þýska-
landi. Anna S. Snorradóttir
fann gifsmót af styttunni af rit-
höfundinum Nonna eftir Nínu
Sæmundsson á kornhlöðulofti
Korpúlfsstaða 9. október árið
1992. Unnið hefur verið að því
að gera bronsafsteypu af mót-
inu í bænum Speicher í ná-
grenni við Köln í Þýskalandi í
vetur. Styttan kom með Helga-
felli Samskipa til Islands á
þriðjudagskvöld. Núna bíður
hún á Samskipasvæðinu eftir
því að fara með Mælifellinu til
æskustöðva Nonna á Akureyri.
Samskip hafa flutt styttuna án
endurgjalds til Þýskalands og
aftur til baka til Islands. Sú
hugmynd hefur komið fram að
vígja styttuna á afmælisdegi
Akureyrar, 29. ágúst í sumar.
„Allt okkar starf miðar að því að veita
viðskiptavinum okkar góða, skilvirka og
persónulega þjónustu. (Sundakletti getur
þú fengið afgreidd öll flutningsskjöl í einni
ferð á einum stað".
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
EIMSKIP
Sími 525 7000 • Fax 525 7179
Netfang: mottaka@eimskip.is
effisna