Morgunblaðið - 23.06.1995, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 23.06.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSIIMS FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1995 41 Sogæðabjúgur - fitubjúgur - sogæðanudd Eru lög- brot út- sjónar- semi? Frá Valdimar Jóhannessyni: í GREIN Mbl 8. júní sl er það talið bera vott um útsjónarsemi að komast upp með að bijóta lögin. Skrifin bera vott um sérkennilegt mat ritstjórnar blaðsins nema þau flokkist undir mistök og verði þá leiðrétt. Greinin er undir fyrirsögn- inni „Gróska í guðaveigum“. Hún lýsir þróun sem orðið hefur í vínveit- ingamálum þjóðarinnar. Vínveit- ingastaðir eru nú um 350 talsins á landinu, einn fyrir hveija 750 íbúa. í Reykjavík eru 141 vínveitingastað- ur, einn staður fyrir hveija 700 íbúa. Árið 1954 voru þeir þrír. Því er lýst í greininni að bann við áfengisaug- lýsingum torveldi aðilum í veitinga- rekstri að auglýsa drykkjarvörur sín- ar. Blaðamaður Mbl bætir svo við: „Mörgum veitingamönnum og jafnvel áfengisframleiðendum hefur þó með útsjónarsemi tekist að aug- lýsa vörur sínar í íjölmiðlum. Allir vita til dæmis við hvað er átt þegar veitingastaður auglýsir að “einn stór“ kosti þetta eða „glas af öli“ kosti hitt.“ Hvað finnst Mbl um „útsjónar- semi“ þeirra sem ekki greiða skatta, komast með „útsjónarsemi“ hjá því að skila virðisaukaskatti, nota „út- sjónarsemi" til að fá tugmilljónir í | tekjur af ólöglegum áfengisauglýs- ' ingum eins og framkvæmdanefnd HM ’95 gerði með því að gerast málaliði fyrir erlendan áfengisfram- leiðanda? Ber okkur að dást að útsjónarsemi vínveitingastaða sem selja smyglað vín eða landa? Er aðdáunarvert að spara sér þannig útgjöld í sköttum? Er aðdáunarverð útsjónarsemi vín- veitingastaða sem selja börnum okk- ar áfengi niður á fermingaraldur? ■ Ber okkur að dást að útsjónarsemi • vínveitingastaðanna, sem aldrei missa leyfi til áfengissölu, þó að þeir séu staðnir að lögbrotum? VALDIMAR JÓHANNESSON, framkvæmdastjóri átaksins Stöðvum unglingadrykkju. , Ánægja með sýningu | Frá Nils 0. Dietz: ÉG LAS í Morgunblaðinu um helgina að sett hafi verið upp myndasýning I um flóðin í Noregi í anddyri Morgun- blaðshússins. Ég hef einnig lesið margar góðar fréttagreinar skrifað- ar af Urði Gunnarsdóttur með mynd- um Kristins Ingvarssonar, en þau voru í Noregi, þegar flóðin voru í hámarki. Sem betur fer er mesta hættan yfirstaðin, en eftir stendur öll eyðileggingin á ræktuðu landi, 0 skógum, vegum, íbúðarhúsum og öðrum byggingum. Ég vil koma á framfæri þakklæti 0 mínu fyrir þetta virðingarverða framtak sem Morgunblaðið hefur sýnt með mikilli umfjöllun sinni um flóðin í Noregi og þær góðu greinar sem skrifaðar hafa verið og hinar lýsandi myndir sem þeim hafa fylgt. Bæði ísland og Noregur eru lönd sem þekkja því miður hinar hrika- legu hliðar náttúruhamfara og þær M hörmungar sem þær hafa í för með sér fyrir smáar byggðir og þjóðina í heild. £ NILS 0. DIETZ, séndiherra Noregs á íslandi. Frá Styrmi Sigurðssyni: SOGÆÐABJÚGUR (lymphö- dem) er afmörkuð próteinrík vökvasöfnun á millifrumusvæði sem verður vegna vanhæfni sog- æðakerfisins að flytja þennan vökva frá vefjum til blóðrásar. Bjúgurinn getur verið tilkominn vegna meðfæddra galla á sogæða- kerfinu (Primár Lymphödem) eða að eitthvað kemur fyrir hið óskadd- aða sogæðakerfi (Sekundár Lymp- hödem) (T.d. eftir aðgerð í kjölfar bijóstakrabbameins). Sogæðanudd er aðeins einn hluti af bjúgmeðferðinni. Bjúgmeðferðin samanstendur af: 1. Úmhirðu húð- ar. 2. Sogæðanuddi. 3. Þrýstium- búðameðferð. 4. Sogæðaleikfimi. Umhirða húðar kemur í veg fyr- ir sýkingu hjá sogæðabjúgssjúkl- ingum, en ónæmiskerfi þeirra er veiklað. Sogæðanuddið ýtir undir að sog- æðavökvinn fari beint að næsta eitli eða fari framhjá honum, að verið sé að veita framhjá skemmd í vegastæði eða losa umferðarstíflu með því að nota hliðarvegi og/eða búa til aðrar umferðaræðar. Sog- æðanudd eitt og sér hefur tak- mörkuð bjúglosandi áhrif. Sog- æðanudd virkar ekki með olíu. An olíu næst betra samband við húðina en í henni eru sogæðarnar sem á að ná til. Annars verður of sleipt, því það er þetta áreiti (léttur nún- ingur á húðina) sem veldur teygjuáreiti í sogæðunum og þær fyllast af sogæðavökva. Þetta „ilm- olíunudd“ er því ekki sogæðanudd og.ætti því að nefna öðru nafni. Þrýstiumbúðameðferð (teygju- sokkur/armur og teygjubindi) hækkar þrýstinginn í vefnum og virkar eins og vöðvapumpa, eykur streymi sogæðavökvans að næsta eitli og kemur í veg fyrir bandvefs- myndun. Sogæðaleikfimi er sérhönnuð til að auka hreyfanleika og/eða koma í veg fyrir stirðleika í herðum og hindra meiri bjúgmyndun. Fitubjúgur (Lipödem) stafar af þrýstingi fitufruma á sogæðarnar í húðinni. Ekki er vitað af hveiju þessi bjúgur upprunalega byijar. Einkenni fitubjúgs er jafnmikill bjúgur á báðum neðri útlimum frá mjaðmakambi („reiðbuxnasnið") niður á ökkla og innanvert á hnjám. Fitubjúgur á handleggjum þekkist líka. Einnig eru þrýstings- eymsli og auðvelt að gera mar- bletti. Bjúgmyndunin er aðallega á kvöldin. í meðferðinni verður að hafa í huga að sogæðanudd eitt sér hefur lítið að segja (sbr. áður). Nuddið minnkar vökvasöfnunina og léttir þannig á þyngslatilfinningunni. Með því að byrja rólga á þrýstium- búðameðferðinni er hægt að ná góðum árangri. Ef fitumyndun (Adipositas) er fitubjúgnum samfara, sem mjög oft kemur fyrir, verður sjúklingur- inn að leita sér ráðgjafar um hita- einingalítið heilsufæði og fara í lík- amsrækt (sk. Trimform kemur ekki í staðinn). Auk fitubjúgs get- ur einstaklingurinn haft sogæða- bjúg vegna galla í sogæðakerfinu (Primár Lymphödem), hormóna- tengdan bjúg (Cyklisch idiopatisch Odem) eða bláæðabjúg (Phlebö- dem). Sjúklingurinn getur líka haft blöndu af þessu öllu. Meðferðarað- ili verður að geta greint þarna á milli. Það er því ekki sjálfsagt að fara í meðferð við fitubjúg hvar sem er. Einnig ætti læknir að skoða sjúkling með tilliti til hvort alvar- legir sjúkdómar séu orsökin að bjúgnum (nýrna -hjarta- lungna- sjúkdómar). Sumstaðar er mikið notuð sk. „pumpuermi/skálm“ (Pne- umomassage) sem er loftfyllt ermi/skálm sem gefur þrýsting er byijar í hönd/rist og endar í arm- krika/nára. Tækið er svo gott sem það nær. Það er aðeins hjálpartæki með sogæðanuddinu og þrýstium- búðameðferðinni. Ekki ætti að nota þetta tæki eitt og sér. Sér- staklega ber að vara við notkun tækisins þegar meðferðaraðilinn veit ekki um frábendur (Kontra- indikatiosen) pumpuerminnar. Hið takmarkaða gagn pumpunnar skýrist með því að: 1) Það þrýstir öllum vökvanum upp í handarkrik- ann/nárann og þar sem oft er búið að fjarlægja eitla getur myndast stífla (einnig getur myndast stífla þó allir eitlar séu til staðar. 2) Það „mjólkar" bara vatnið úr vefnum en í sogæðabjúg og fitubjúg mynd- ar prótein aðallega bjúginn. 3) Vegna samansafnaðs próteins get- ur myndast bandvefsherzli. Mér finnst hafa skort á fag- GRÍSAVEISLA 1995 Grillsérfrœóingarn ir Óskar Finnsson og Ingvar Sigurðsson ú Argentínu kynna grisakjöt i vcrslunum i allt sumar Sáfiæðmgamir segja að það þurfi enga sérfræðinga grísakjöt ð mati sérfræðinga er grísakjöt góður kostur á grillið. Það er einfalt að grilla grísakjöt, það er alltaf ferskt, verðið er mjög hagstætt og svo er það bara svo gott. Grísahnakki, grísariý grísakótilettur, grísalœrisneiðar og grisalundir eru tvímælalaust grillmatur sumarsins. Helsti kostur grísakjötsins er þó sá að þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að grilla það, því grísakjöt svínvirkar án sérfræðinga. Grísakjöt . & m án sérfrœðinga mennsku í sambandi við meðferð á bjúg og ég gat því ekki setið á mér að skrifa eitthvað til upplýs- ingar um svið sem ég þekki nokk- uð vel. Að lokum verð ég að mótmæla því að Tryggingastofnun ríkisins tekur ekki þátt í kostnaði við bjúg- meðferð hjá löggiltum sjúkranudd- urum með námskeið í bjúgmeðferð, en það er 180 stundir eða 4 vikur tekið í Þýskalandi. T.r. tekur aftur á móti þátt í kostnaði við bjúgmeð- ferð hjá sjúkraþjálfurum eftir viku- námskeið hér heima. Ég óska hér með eftir svari, hvernig á þessu standi. Heimildir: A. Földi: Lymphologie. C. Bringezu O. Schreiner: Die Therapieform Manuelle Lymphdrainage. STYRMIR SIGURÐSSON, Leirubakka 24, Reykjavík. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, simi 567-1800 ^ Löggiid bílasala Opið laugard. kl. 10-17 og sunnudag kl. 13-18 Renault Clio 1,4 RT '91, 5 dyra, svartur, 5 g., ek. 47 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 740 þús. Toyota 4Runner diesel Turbo '94, 5 g., ek. aðeins 13 þ. km., sóllúga, rafm. í rúð- um o.fl. Sem nýr. V. 3.150 þús. Daihatsu Rocky '90, (USA-týpa), 5 g., ek. 50 þ. mílur. V. 990 þús. MMC Tredia 4x4 Sedan '87, 5 g., ek. 129 þ. km., mikið endurnýjaður, nýskoöaður. V. 360 þús. Honda Accord 2.0 EX '87, sjálfsk., ek. 155 þ. km. (langkeyrsla), rafm. í rúðum o.fl. Fallegur bíll. V. 650 þús. Sk. ód. M. Benz 190E '93, sjálfsk., ek. aðeins 29 þ. km., sóllúga o.fl. V. 2.550 þús. Daihatsu Feroza EL ’90, 5 g., ek. 114 þ. km. Tilboðsverð 850 þús. Mercury Topaz 4x4 ’88, rauður, sjálfsk., ek. 86 þ. km., dráttarkúla, tveir dekkja- gangar, einn eigandi. Toppeintak. V. 690 þús. stgr. MMC Colt GLi '92, 5 g., ek. 51 þ. km. V. 840 þús. MMC Lancer GLXi Hlaðbakur ’91, silf- urgrár, 5 g., ek. aðeins 34 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 990 þús. Nissan Sunny 1.6 SLX Sedan '90, 5 g., ek. 71 þ. km. V. 660 þús. Peugeot 405 GR ’91, 5 g., ek. 70 þ. km. V. 860 þús. Toyota Corolla Touring XL ’91, 5 g., ek. 78 þ. km. V. 1.050 þús. MMC Colt GLXi '91, sjálfsk., m/öllu, ek. 70 þ. km. V. 890 þús. Cherokee Limited '89, sjálfsk., ek. aðeins 64 þ. km., leðurinnr. o.fl. Toppeintak. V. 1.890 þús. MMC Lancer GLXi 4x4 Station '93, 5 g., ek. 61 þ. km., álfelgur, rafm. í öllu. V. 1.450 þús. Hyundai Pony LS Sedan '94, 5 g., ek. 25 þ. km. Tilboðsverð 780 þús. Sk. ód. MMC Lancer GLXi '94, dökkgrænn, sjálfsk., ek. 9 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl. V. 1.450 þús. Sk. ód. Chevrolet Blazer S-10 Thao ’86, sjálfsk., ek. 75 þ. mílur. Góður jeppi. Tilboðsverð 730 þús. Ford Bronco II ’84, rauður, 4 g., ek. 110 þ. km., nýsk. '96. Tilboðsverð 490 þús. Subaru E-10 4x4 Minibus ’88, 7 manna, 5 g., ek. aðeins 67 þ. km. V. 490 þús. MMC Colt GL ’91, 5 g., ek. 40 þ. km. V. 720 þús. Sk. ód. Fjörug bílaviðskipti. Vantar góða bfla á skrá og á staðinn. Nissan Sunny 2000 GTi '92, rauður, 5 g., ek. 70 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm. Suzuki Vitara JXI '92, hvítur, 5 g., ek. aðeins 26 þ. km., fallegur jeppi. V. 1.530 þús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.