Morgunblaðið - 30.06.1995, Page 11

Morgunblaðið - 30.06.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995 11 FRÉTTIR i ► i i > > 7 ) > i i i i Rannsóknarstofa í lyfjafræði án fjárveitinga úr sjóðum HÍ Þjónusturannsóknir standa undir grunnrannsóknum UMFANGSMIKLAR þjónusturann- sóknir í Rannsóknarstofu Háskóla íslands í lyfjafræði standa að miklu. leyti undir grunnrannsóknum í greininni, að sögn Þorkels Jóhannes- sonar, prófessors og forstöðumanns rannsóknarstofunnar. Þorkell segir að stofnunin fái eng- ar fjárveitingar til rannsókna úr sjóðum HÍ ekki fremur en flestar aðrar stofnanir eða rannsóknarstof- ur HÍ. Hún fái aftur á móti fjár- magn til að standa að mestu undir kennslu á vegum stofnunarinnar. Hörð samkeppni við erlendar rannsóknarstofur Þorkell gagnrýnir þær aðstæður sem rannsóknarstofnunum HÍ séu yfirleitt búnar. „Það er einfaldlega hrikaleg staðreynd," sagði Þorkell í samtali við Morgunblaðið „að með þessum hætti verður HÍ ekki vís- indastofnun til langframa heldur einungis kennslustofnun á háskóla- stigi“. Hann sagði að stofnunin hafi allnokkrar sértekjur og sé þannig betur sett en ýmsar aðrar stofnanir HÍ.“ Rannsóknarstofan sinnir öllum réttarefnafræðirannsóknum fyrir dóms- og kirkjumálaráðuneytið sem snerta rannsókn opinberra mála. „Ráðuneytið gerði samning við rannsóknarstofuna fyrir tíu árum sem rennur út um næstu áramót. Þessi samningur er skuldbindandi fyrir báða aðila. Ráðuneytið skuld- batt sig til að beina öllum viðskipt- um til okkar og við skuldbundum okkur til að útvega mannafla og tækjabúnað til að sinna þeim,“ sagði Þorkell. Samkeppni á sviði réttar- efnafræði er því engin að sögn Þor- kels. Rannsóknarstofan er aftur á móti í harðri samkeppni við erlend- ar rannsóknarstofur að því er varð- ar mengunarrannsóknir og rann- sóknir fyrir lyfjaframleiðendur og ýmsa einkaaðila. „í flestum tilvik- um er verð okkar samkeppnisfært en stundum vill þannig til að send- ingarkostnaður ræður úrslitum að rannsóknir eru ódýrari hér en er- lendis. Til marks um góða samkeppn- isstöðu okkar er að Bandaríkjamenn á Keflavíkurflugvelli eru meðal bestu viðskiptamanna okkar.“ Grunn- og þjónustu- rannsóknir samnýttar Þorkell sagði að farin hefði verið sú leið í rannsóknarstofunni að nýta aðstöðu tii þjónusturannsókna til grunnrannsókna í lyfjafræði og eit- urefnafræði. „Við höfum reynt að fara þá leið að toga grunnvísindalega þætti út úr þjónusturannsóknunum alveg hliðstætt því sem gerist á sjúkrahús- um við úrvinnslu á farnaði sjúklinga sem þar vistast. Við höfum til að mynda framkvæmt PCB-mælingar í jarðvegi og víðar fyrir ýmsa aðila. Á sama tíma hefur einnig verið lögð áhersla á að ákvarða magn PCB- efna í dýrum og mönnum. Þannig hefur magn þessara efna verið kann- að í heila, blóði og bijóstamjólk kvenna, svo og í fálkum og æðar- fugli. Loks má nefna að vísindaleg ritgerð verður samin með hliðsjón af niðurstöðum úr fjölmörgum bruggsýnum sem tekin hafa verið og greind hér á stofunni og mörg önnur dæmi mætti nefna," sagði Þorkell. VEIÐIN byrjaði afar vel í Álftá, hér eru f.v. Dagur Garðarsson, Helgi Eyjólfsson og Jón Sveinsson með fjóra af sjö löxum sem veiddust þar fyrsta daginn. Þverá gefur Norðurá lítið eftir AFAR góð veiði hefur verið í Þverá og Kjarrá síðustu daga og segja má að ekki minna hafi verið um að vera þar en í nágrannaánni Norðurá. Á hádegi í gær voru komnir um 345 laxar á land og menn að draga bæði stóra laxa og smáa, meira og minna grálúsuga. „Það er óhætt að segja að veiðin hafi verið allgóð að undanförnu," sagði Kristján Krist- jánsson kokkur í veiðihúsinu að Helgavatni við Þverá í gær. Enn er megnið af aflanum tveggja ára fiskur úr sjó, en smálax er með vaxandi hlutdeild og allt er þetta fallegur fiskur, stærri laxinn yfirleitt 10 til 13 pund og smálaxinn 4 til 6 pund. Stærsti laxinn til þessa vóg 17 pund, en í gærmorgun kom 16 punda fiskur á land. Að sögn Krist- jáns kokks, er áin mjög veiðileg, tær og mátuleg. Þá má geta þess, að fyrstu laxarnir hafa veiðst í Litlu Þverá sem rennur í Þverá en er jafn- an seinni til. Glæðist í Laxá í Leir. „Það hefur verið frekar rólegt, en hefur verið að glaðna að undan- fömu. Talsvert af nýjum físki hefur komið inn með vaxandi straumi," sagði Jón Oddur Guðmundsson leið- sögumaður við Laxá í Leirársveit í gærdag. Voru þá komnir 47 laxar á land, allir að þremur undanskildum á svæðinu frá Laxfossi og niður úr. Fyrsti laxinn veiddist fyrir ofan Eyrarfoss í fyrradag, en aðeins þrír laxar höfðu farið um teljarann. „Laxinn var að stökkva mikið í Lax- fossinn í morgun, kannski að hann sé í þann mund að dreifa sér bet- ur,“ bætti Jón Oddur við. Skot í Elliðaánum Það veiddust 7 laxar í Elliðaánum á þriðjudaginn og var það fyrsta alvöru lífsmarkið í ánum. Þá veidd- ist fyrsti og eini flugulaxinn til þessa, svo og stærsti lax sumarsins 10,5 punda. í gærmorgun voru þó aðeins 13 laxar komnir á land og því víðs fjarri að ástandið sé að verða eðli- legt, enda bættist enginn lax við á miðvikudaginn og tregt var í gær- morgun. A fjórða tug laxa hefur þó gengið um teljarann og hafa þar af tveir veiðst. Fjölbrauta- skóli Vest- ur lands færir út kvíamar SKÓLA Vesturlands á Akranesi var slitið laugardaginn 9. júní. Brautskráðir voru 82 nemend- ur, þar af 46 stúdentar. Auk þeirra luku 24 prófi af tækni- sviði, 4 af uppeldisbraut og 4 luku verslunarprófi. Einnig brautskráðust 2 sjúkraliðar og 2 nemendur af sérkennslu- braut. í ræðu skólameistara, Þóris Ólafssonar, að verið væri að undirbúa kennslu í kvöldskóla í Stykkishólmi á næsta skóla- ári. Þá sagði hann að 750 nem- endur hefðu stundað nám við skólann á skólaárinu, á Akra- nesi, í Snæfeílsbæ og Stykkis- hólmi. Auk þeirra sóttu 230 nemendur ýmis námskeið á vegum Farskóla Vesturlands en hann tilheyrir fjölbrautaskó- lanum. Skólameistari gat þess einnig að verkfall kennara hefði haft mikil áhrif í skólanum en um 100 nemedur hættu námi þess vegna. Námsstyrkur Akraneskaup- staðar, 300 þúsund krónur, var veittur í 5. sinn. Styrkinn hlaut Hafdís Bjarnadóttir nýstúdent en liún stefnir að tungumála- tengdu viðskiptanámi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.