Morgunblaðið - 27.07.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.07.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ1995 25 AÐSENDAR GREINAR Helgi Hálfdanarson Ríki og kirkja EKKI er langt síðan hér voru stofnuð samtök til baráttu fyrir skilnaði ríkis og kirkju. Þeir sem þar fylktu liði vitnuðu til lýðræð- is, og í fljótu bragði má svo virð- ast sem fólk þetta hafi nokkuð til síns máls. Og alltaf birtast annað veifið greinar í blöðum, þar sem færð eru rök fyrir skiln- aði, bæði fjárhagsleg og siðferði- leg. Skammt er síðan hugur ís- lendinga í þessu efni var kann- aður með hefðbundnum hætti, og var svo að sjá sem dijúgur hluti þjóðarinnar féllist á stefnu fyrr greindra samtaka. Þó verður ekki annað séð en að þjóðin vilji kirkju, með eða án sambands við ríki. Og hér má að fleiru hyggja, sem kynni að hafa áhrif á stefnu manna í þessum skilnaðarmálum. Býsna langt er nú liðið síðan fram fóru forsetakosningar á landi hér. Menn hafa að vonum látið sér vel líka, að forseti sá, sem nú situr, hefur hvað eftir annað boðizt til að sitja áfram, og allir verið því fegnir að þurfa ekki að sinna meira um það. Þó kvað draga að því óðfluga, að ekki verði undan ekizt að hugsa fyrir nýrri ráðstöfun á þeim starfa. Líklegt má telja, að enn fari sem áður, að fáir þeirra, sem hæfir þættu, gæfu kost á sér til slikrar þjónustu, nema svo bráðvel tækist til, að núverandi forseti byði sig enn fram. Einstakt happ má það kallast, hve vel hefur skipazt fram að þessu frá upphafi. Og ætla má, að vandfengin yrði sú persóna, sem gegndi þessu starfi af slíkri smekkvísi og þokka sem núverandi forseti. En þrátt fyrir þessa happareynslu er nokkur hætta á því, þegar fram í sæk- ir, að embætti þetta eigi það fyrir sér að koðna niður í lág- kúrulegan hégóma, sem flestir meti lítils. Hætt er við að þar muni bera einna hæst hálfstaðl- aðar tyllidagaræður, og veizlu- sukk hér heima og út um hvipp- inn og hvappinn, borðaklipping- ar og skóflustungur, eða jafn- gildi slíkra athafna, að ógleymd- um afliendingum marklausra verðlauna fyrir guðveithvað. Nú skal hér borin fram tillaga til hyggilegrar athugunar. Hún er á þá leið, að embætti biskups og forseta verði sameinuð í eitt. Skyldi hið nýja embætti heita „Biskup íslands" og bera þess merki í framkvæmd. Ætti þá íslenzk kirkja og stórbrotin menningarsaga hennar um aldir að veita starfinu tilhlýðilegan myndugleik. Umsvif forseta- embættisins yrðu minnkuð veru- lega við sameininguna, án þess þar kæmi nokkuð í staðinn. Ef henta þætti, yrði eitthvað af störfum biskups eftirlátið vígslubiskupum eða kirkjuráðu- neyti. Hér væri ekki aðeins um að ræða dtjúgan sparnað, heldur einnig nokkra tryggingu fyrir því, að forsetaembættið verði ekki, þegar tímar líða, viljalaust handbendi stjórnmálaspekúl- anta, sem engan raunverulegan tilgang hefði og aldrei gæti að gagni komið til eins eða neins. Ef einhvern tíma í hulinni framtíð kæmi upp sú staða, að Alþingi væri að meiri hluta skip- að þeim dauðans lyddum, að ófyrirleitinni ríkisstjórn tækist að böðla þar til samþykktar ein- hveiju því, sem þorri lands- manna teldi þjóðinni háskalegt, jafnvel með fnyk af því sem sízt mætti nefna, þá væri þess að vænta, að biskup hefði í krafti heilagrar vígslu sinnar mann- dóm til að bjarga sæmd þjóðar- innar, hagsmunum hennar, og stjórnarskrá ef því væri að skipta, fremur en ótíndur stjórn- málagarpur, eða einhver sem sagður væri starfa sem eitthvert óskilgreint „einingartákn" með því að standa skilyrðislaust með valdabröskurum, einnig þegar þeir væru að rjúfa einingu þjóðarinnar um sjálfstæði sitt, frelsi og fullveldi. Slík skipan mætti haldast meðan þjóðin vill kirkju. Ef sá vilji breytist, koma tímar og koma ráð. En meðal annarra orða: Lán- samir eru Reykvíkingar, að ekki skuli Kató hinn eldri sitja hér í borgarstjórn, því öllum ræðum hlyti hann að ljúka á þessa leið: „Auk þess legg ég til, að ráðhús- ið verði sprengt í loft upp.“ JRIGANO Áður 340.000 með fortjaldi Ocean 298.000 DÚKUR FYLGIR FRÍTT SBSilLAGÐWN ÆGSIfR Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 51 I 2200 Rosenthal Glæsilegar gjafavörur ^ vCfe/ ' ''j 10jmfWviegarida PowerPC 601 örgjörvi 500 MB harðdiskur 8 MB vinnsluntinni (stœkkanlegt A Innbyggt geisladrif (CD^BföM) > 16 bita víðóma hljóð (i/iiT og úxfak^ Innbyggt Etheritíet (AA&f) 15" App^e-skjá'f^ íslenskt húapfíaborð íslenskt styrikerfi ^ Ibwer Madntosh 6100 Power Maclnto Apple Multi| 0/66 8/500 CD m 15" skjár Apple-umboðið SKIPHOLTI 21 • SÍMI: 511 5111 Heimastðan: http:IIwww.apple.is I I J i i Matar- og kaffistell í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244. Sjöundi himinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.