Morgunblaðið - 27.07.1995, Page 46

Morgunblaðið - 27.07.1995, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ EINNIG KERAMIK OG STÁL HELLUBORÐ VEGGOFNAR OG OFNAR UNDIR BORÐ FAGOR HE-414 BLÁSTURSOFN MEÐ GRILU ■ VERD STAÐGREITT KR. /^\/^\ /~~\S~\/ OT oT iT Jr Æ | . ■ I ’ . % AFBORGUNARVERÐ KR. 28.400 - VISA OG EURO RAÐGREIÐSLUR S ennfremj^. uPppVOTTA KÆ LISHAP^ L.A. Café • Laugavegi 45a • 101 Reykjavík ‘X, 'lgartilbod Humar- og kjúklingaragú í engiferbættri hunangsrjómasósu. „Chateaubriand“ glóðarsteikt miðbik nautalundar, borið fram með bakaðri kartöflu, soðnu grænmeti, fersku salati, smjörsteiktum sveppum og rauðvínssósu „Cabernet Sauvignon". Djúpsteikt vanilluískúla með heitri karamellusósu. Adeins kr. 1.880. Rétt verð kr. 3.760. Munið léttu álagninguna á okkar stórglæsilega léttvínsseóli. Hinn frábæri dúett Anna Karen og Kristján Guðmundsson leika fyrir matargesti allar helgar Eini staðurinn með diskótek alla daga vikunnar frá kl. 22.30. Eldhúsið opið alla daga frá kl. 18.00-22.30. Borðapantanir í síma 562-6120 Pantið borð tímanlega. JltotgtsftMaMfr - kjarni málsins! ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Stutt hugleiðing um lúpínu „Hvað er með ásum? Hvað er með álfum?“ Nú er svo komið að að- förin að lúpínunni er orðin pólitísk. Vígreifur foringi hersins með vélorf að vopni er Hjörleifur Guttormsson. Hann hefur ritað lofrit um öræfi Austurlands og vill víst breiða út öræfin. Það virðist ganga vel enda fýkur nú jarðvegur vorrar beinaberu fjallkonu hratt á haf út. Og kór Náttúru- verndarráðs syngur með í fjarska og fær snilling frá Nýja-Sjálandi til að segja vorum fávísum að það sé ljótt að græða upp örfoka land sem hefur fengið gæðastimpil ráðsins til að vera áfram örfoka. Og svo er plöntunasisminn of- stækur að auglýst er eftir sjálfboðaliðum til að út- rýma þessari merkustu landgræðsluplöntu síðari ára. Ja héma! Eg vil benda ykkur á að lesa grein í ársriti Skógræktarfélags íslands 1944 um bæjarstað og Alaskalúpínu eftir Guð- jón Jónsson. Ef til vill breytist hugsunarháttur- inn þá. Og við bætist að nú á að stimpla sum tré óíslensk. Mikil er viskan. Bara birki á Þingvöllum, enga útlendinga. Ekki greni og furu, sem veita fegurð og skjól. Þjóðlegt skal það vera. En hvað er þjóðlegt? Vita þessir menn hvað óx hér fyrir tíu þúsund árum, eða tíu milljón árum? Era þær tijátegund- ir óþjóðlegar í dag, þó þær hafi dáið út tímabundið. Væri óþjóðlegt að flytja geirfugl til landsins í dag (ef slíkir fyndust) af því hann er ekki hluti af lífrík- inu í dag. Nei notið þið frekar ykk- ar takmarkaða tíma og fjárráð til að græða landið, já til að sá lúpínu! Finnst ykkur ekki betra að tjalda í gróðurvin en í eyðisandi með ryk í vitum? Óli Hilmar Jónsson, arkitekt. íslendingar kunna að gefa VALGEIR Matthíasson bað Velvakanda fyrir eftir- farandi: „Þegar ég fletti Dag- blaðinu laugardaginn 22. júlí, las ég ummæli Eiríks Sigurbjörnssonar um að íslendingar kynnu ekki að gefa. Þetta fannst mér stingandi og ætti hann að biðja íslensku þjóðina opin- berlega afsökunar á þess- um ummælum sínum. Þetta er honum persónu- lega ekki til framdráttar. Mín skoðun er sú að íslendingar séu örlátir og standi vel saman. Skemmst er að minnast Súðavíkurslyssins og margra annarra hörmunga sem dunið hafa yfir okkur Islendinga. Þær safnanir hafa skilað stórkostlegum árangri. Eins má geta rausnarskaþ íslendinga í garð hiiina ýmsu líknarfélaga og ein- staklinga sem orðið hafa fyrir ýmsum áföllum í lífi sínu.' Þetta segir allt um rausnarskap íslendinga og samheldni, sem segja þarf.“ Tapað/fundið Hnífur tapaðist SVISSNESKUR hnífur tapaðist við Kleifarvatn. Á honum hékk skjaldarmerki íslands. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í Sverri í síma 555-1393 eða 555-0397. Filma týndist FYRIR hálfum mánuði týndist átekin filma sem á var m.a. bamaafmæli. Lík- legt þykir að hún hafi glat- ast í miðbænum en er þó ekki víst. Skilvís finnandi hringi í síma 552-3433. Gæludýr Kettlingar ÞRÍR átta vikna gamlir kettlingar óska eftir góðu heimili. Uppl. í síma 567- 7919. Læðu vantar heimili SVÖRT 4ra mánaða gömul læða þarf að eignast gott heimili sem fyrst. Uppl. í síma 587-6409 eða 568- 2373. Kettlingar TVEIR svartir og hvítir 7 vikna gamlir kettlingar þurfa að komast á góð heimili. Uppl. í síma 587-6678. HÖGNIHREKKVÍSI SKÁK Umsjón Margeir Pétursson HVÍTUR á leik Staðan kom upp á stór- mótinu í Dortmund sem lauk á fimmtudaginn. Hol- lendingurinn Jeroen Pik- et (2.625) hafði hvítt og átti leik gegn Þjóðveijanum Eric Lobron (2.595) 28. Hxe6+!- Kxe6 29. d5+ - Ke7 30. De2+ - Rde5 31. Bxe5 - Rxeð 32. Dxe5+ - Kd7 33. De6+ - Kd8 34. Dd6+ - Ke8 35. Hh3 - He4 36. Dc6+ (Betra virðist strax 36. He3 - Hxe3+ 37. fxe3 og svart- ur tapar hróknum á f8) 36. - Kd8 37. He3 - Hxe3 38. fxe3 - Hh8?? (Eini varnarmöguleikinn var 38. - Ke7! Svartur hefði ekki átt kost á því ef hvítur hefði leikið strax 36. He3) 39. Df6+ - Kd7 40. Dxh8 og skömmu síðar, eftir að tímamörkunum hafði verið náð, gafst Lobron upp. Urslitin í Dortmund: 1. Kramnik, 7 v. af 9. 2. Karpov, 6 'Ti v. 3.-4. Peter Leko og ívantsjúk, 5 v. 5. Lautier, 4 ‘A v. 6.-7. Piket og Short, 4 v. 8.-9. Barejev og Beljavskí, 3‘A v. 10. Lobron, 2 v. Víkveiji skrifar... Eftirfarandi texta er að finna í leiðarvísi fyrir töfraáhöld sem keypt voru nýlega í leikfangaversl- un í Reykjavík, og ætluð eru fyrir börn 8 ára og eldri. „Galdrar með reyk. Áhöld: Sígaretta og tvö kon- íaksglös sem eru rök að innan. Galdurinn: Töframaðurinn hellir sígarettureyk - rétt eins og væri hann fljótandi - úr einu glasinu í annað. Þetta mun áhorfendum ekki takast. Blástu varlega reyk inn i annað raka glasið og nú geturðu satt best að segja hellt reyknum fram og aftur, því rakinn dregur reykinn inn í glasið. Ef einhver áhorfenda vill prófa skaltu hafa til reiðu tvö þurr glös til þess að hon- um takist þetta ekki.“ Þessi ófögnuður blasti við móður ungs drengs sem fékk töfraáhöldin í afmælisgjöf á dögunum. Drengur- inn er reyndar ekki orðinn 8 ára, en vegna mikils áhuga hans á töfra- brögðum ákváðu foreldrar hans að gefa honum áhöldin og aðstoða hann við að læra einföldustu töfra- brögðin. Umræddur drengur hefur ekki aðgang að sígarettum á sínu heimili en móðirin hugsaði til þess með hryllingi að kannski myndu önnur börn, sem væru að prófa sig áfram í töfrabrögðum án aðstoðar foreldra sinna, reyna þetta bragð. ví miður er þetta ekki eina töfrabragðið þar sem sígarett- ur eru notaðar því í leiðarvísinum er einnig kenndur sígarettuhnútur þ.e. að hnýta hnút á sígarettur. Það er með ólíkindum að svona nokkuð skuli fýrirfinnast í leiðbein- ingum sem fyrst og fremst eru ætl- aðar börnum. Töfrasettinu fýlgdu tveir leiðarvísar, annar á dönsku, og var hann inni í kassanum, en hinn á íslensku, og var honum smeygt inn í plastið sem var utan um kassann. Þýðandinn, sem er nafngreindur framan á íslenska leið- arvísinum, hefur þýtt dönsku leið- beiningarnar af mikilli samvisku- semi, en hefði innflytjandinn haft einhveija ábyrgðartilfynningu hefði hann látið gera útdrátt úr bæklingn- um og fjarlægt þann danska áður en varan var sett á markað. Þetta var ekki það eina sem for- eldrarnir höfðu út á töfraáhöldin að setja. Á kassanum og í leiðarvís- inum stendur „Töfrabragðasett með 50 töfrabrögðum", en einungis var hægt að gera rúmlega helming töfrabragðana með áhöldunum sem í kassanum voru. Til að hægt væri að gera hin töfrabrögðin varð að bæta við ýmsum hlutum, svo sem saumnál, vasaklút, eldspýtum og fleiru. Flestir þessara hluta eru að vísu til á öllum heimilum, en þar sem afmælisgjöfin var tekin í notk- un í sumarbústað og ekki hafði verið gert ráð fyrir þessum auka- hlutum þegar pakkað var niður til ferðarinnar, varð drengurinn fyrir vonbrigðum yfir því hve lítið var hægt að gera með töfrasettinu. xxx ví miður rákust foreldrar drengsins á fleiri dæmi um óvönduð vinnubrögð í gerð leik- fanga þennan afmælisdag. Dreng- urinn fékk að gjöf spurningaleik sem hefur verið til í meira en tvo áratugi, en foreldrarnir könnuðust við hann frá því að þau voru börn. Eitt spjaldið í spurningaleiknum heitir Höfuðborgir, en þar eiga börnin að reyna kunnáttu sína í landafræði. Annað hvort hefur inn- flytjandinn keypt mikið magn af leiknum fyrir nokkrum árum og ekki þurft að endurnýja birgðirnar, eða framleiðandanum hefur ein- hverra hluta vegna ekki þótt þörf á því að uppfæra upplýsingarnar í spurningaleiknum því á þessu spjaldi eru meðal annars eftirfar- andi spurningar: „Hvað heitir höf- uðborgin í Tékkóslóvakíu?" og „Hvað heitir höfuðborgin í Júgó- slavíu?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.