Morgunblaðið - 18.11.1995, Side 1
80 SIÐUR LESBOK/C/D
264. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR18. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lausn í
Bosníu
aðnást?
Osaka, París. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sneri í gær
heim frá Japan til að taka þátt í
viðræðunum um frið í Bosníu í Dayt-
on í Ohio. Er jafnvel búist við, að
samningar takist um helgina.
Christopher kvaðst telja, að nær-
vera sín gæti flýtt fyrir samningum
en vildi engu um það spá hvort þeir
væru á næsta leiti. Þó er haft eftir
ónefndum manni í einni samninga-
nefnd deiluaðila, að samningar muni
nást í dag eða á morgun.
Tekist er á um stöðu Sarajevo,
höfuðborg Bosníu. Serbar vilja
skipta borginni en múslimar ekki.
Þá hafa samningar um væntanlegar
kosningar í landinu verið erfiðir og
stjórnarskrármálin eru óútkljáð.
Vonda og góða Iöggan
Sagt er, að Bandaríkjamenn beiti
þeirri tækni í samningaviðræðunum
að láta Richard Holbrooke leika
„vondu lögguna", sem láti engan í
friði, jafnvel með frekju og yfir-
gangi, en síðan komi Christopher,
„góða löggan“, og fái menn á sitt
band út á alúðina eina.
■ Stríðsglæpamenn/18
-----» ♦ ♦-----
Uppfylla
ekkiCFE
Vín. Reuter, The Daily Telegraph.
RÚSSAR höfðu í gær gerst brotleg-
ir við sáttmálann um fækkun hefð-
bundinna vopna í Evrópu (CFE) eft-
ir að frestur til að fullnægja skilyrð-
um hans rann út á miðnætti.
Önnur ríki, svo sem Hvíta-Rúss-
land, hafa ekki getað eyðilagt tilskil-
inn ijölda vopna vegna fjárskorts
og fá því lengri frest. Úkraínumenn
og Rússar þurfa að leysa deiluna
um framtíð Svartahafsflotans til að
úkraínska stjórnin gæti staðið við
sinn hluta sáttmálans.
Helsta vandamálið snýst um þann
hluta sáttmálans sem kveður á um
takmarkanir við fjölda vopna við
landamæri aðildarríkjanna.
Fulltrúar Sameiginlega samráðs-
hópsins, eftirlitsstofnunar í Vín,
leggja nú mikið kapp á að finna
málamiðlun í deilunni.
-----♦ ♦-------
Nýjar tíllögur
um N-Irland
London. Reuter.
BRESKA stjórnin reyndi í gær að
hleypa nýju lífi í friðarumleitanir á
Norður-írlandi með því að láta lausa
84 fanga úr Maze-fangelsinu við
Belfast.
Ennfremur sagðist John Major
forsætisráðherra hafa lagt fram nýj-
ar tillögur við írsku stjórnina til að
þoka áfram friðarviðræðum, sem
hefur miðað lítt frá því samkomulag
tókst um vopnahlé á N-írlandi fyrir
rösku ári. „Vonandi verður af leið-
togafundi bráðiega," sagði Major.
HARÐVÍTUGT verðstríð á
breskum blaðamarkaði um
tveggja ára skeið leiddi í gær
til lokunar blaðsins Today, sem
var í eigu blaðasamsteypu ástr-
alska fjölmiðlakóngsins Rup-
erts Murdochs. Hafði hann var-
ið miklum fjármunum til þess
að hressa upp á blaðið en án
árangurs. Seldist það verst
fimm blaða hans. Jafnframt
ákvað hann að hækka Times
úr 25 pensum í 30 frá og með
nk. máuudegi. Vart hafði það
verið tilkynnt er söluhæsta
stórblað Bretlands, Daily Tele-
graph, boðaði einnig hækkun,
úr 35 pensum í 40. Murdoch
hóf blóðugt verðstríð á breska
blaðamarkaðinum í ágúst 1993
er hann lækkaði Times úr 45
pensum í 30. Leiddi það til víxl-
verkunar og mikillar verð-
lækkunar dagblaða þar í landi.
Hefur lækkunin ekki skilað sér
í nægilega aukinni sölu. Af
þeim sökum og ásamt hækk-
andi pappírsverði hefur blaða-
útgáfa barist í bökkum í Bret-
landi. Á myndinni lesa tveir
menn síðasta tölublaðið af
Today. Því var hleypt af
stokkunum 1986 og er fyrsta
breska dagblaðið sem leggur
upp laupana frá 1971 er The
Daily Sketch var lokað.
í Svíþjóð skall óveðrið á seinni
hluta fimmtudagsins og fólk í bílum
á leiðum í kringum Jönköping
tepptist strax þá um kvöldið og
sátu sumir fastir í sextán tíma.
Það voru bæði snjókoman og
stormurinn sem uslanum ollu.
Dæmi voru um, að hús fykju hrein-
lega burt og mikið var um að tré
brotnuðu undan veðrinu og snjó-
þunganum, fykju um koll og yllu
hættu og tjóni.
Óveðrið gekk yfir Gautaborg í
fyrrinótt og gær. Þar þykir veðrið
hið versta síðan 1955. Fólk var
hvatt til að vera heima og um tíma
óskuðu yfirvöld helst eftir að sett
væri á útgöngubann. Allar sam-
göngur innan og við vestur- og
suðurhluta landsins fóru úr skorð-
um. Tré féllu víða á rafmagnslínur
og ollu rafmagnsleysi á um 150
þúsundum heimila.
Samkvæmt fréttum frá sænsku
BARRY Houghton, stjórnarformað-
ur Rainford-fjarskiptafyrirtækisins,
gerði sér lítið fyrir og keypti þorpið
Salperton skammt frá Cheltenham
og allt sem því tilheyrir.
Salperton er fornt þorp sem get-
ið er í Dómsdagsbókinni, skrá um
landareignir í Englandi sem gerð
var að frumkvæði Vilhjálms bast-
arðs árið 1086.
veðurstofunni mjakaðist veðrið
austur yfir landið. Búist var við að
óveðrið skylli á Stokkhólm í nótt.
Fannfergi í Danmörku
Frá því í fyrri nótt hefur kyngt
niður snjó í Danmörku, fyrst á
Norður-Jótlandi og síðan á Sjá-
landi. Kaupmannahöfn hefur heldur
ekki farið varhluta af snjókomunni
og í nágrenni borgarinnar er víða
meiri snjór en lengi hefur sést. Að
venju fór öll umferð úr skorðum.
Fólki hefur verið ráðlagt að halda
sig heima.
Flugumferð um Kastrup fór úr
skorðum og féll flug niður fram
eftir degi.
Spáð er snjó og heiðskíru veðri
og kætir það danska krakka, sem
annars eiga því ekki að venjast að
sjá snjó nema á jólakortum.
Kaupverðið var 8 milljónir punda,
jafnvirði 800 milljóna króna, og létti
íbúunum mjög er Houghton hét því
að hrófla ekki við byggingum. Með
kaupunum eignaðist Houghton 17.
aldar herragarð, 33 íbúðarhús hlað-
in úr Cotswold-steini, 700 hektara
lands, kirkju frá tímum Normanna
og sveitabæ þar sem búið er með
170 nautgripi og 600 kindur.
' , ;
ís»ii«œ
jSPPIlÉÉSHfí# œ;S
WmSSSBBBsi
BIFREIÐAR fastar í skafli í Gautaborg í gærmorgun en þar var verra veður en mælst hefur frá 1955 eða í 40 ár.
Reuter
Oveður gengrir yfir Vestur-Svíþjóð og norðurhluta Danmerkur
Flest fór úr skorðum í
miklu óveðri í Gautaborg-
Reuter
I dag lokað í gær
VERSTA óveður í ein fjörutíu ár gekk yfir Vestur-Svíþjóð í gær og
stefndi austur yfír landið til Stokkhólms. Kyngdi snjónum niður og af-
leiðingarnar voru meðal annars umferðaröngþveiti og rafmagnsleysi.
Herinn var kallaður til aðstoðar við að hjálpa fólki úr bílum, sem fennt
hafði, og við að koma nauðsynlegri heimahjálp til þeirra, sem þess þurftu.
í Danmörku var einnig snjókoma og kom fannfergið öllu daglegu lífí
úr skorðum og olli miklum umferðartöfum og -teppu víða um land.
■ Brjálað veður/19
Keypti sér þorp
London. Reuter.