Morgunblaðið - 18.11.1995, Síða 6

Morgunblaðið - 18.11.1995, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fulltrúi R-listans Vill tekju- tengja gjöldin ÁRNI Þór Sigurðsson, borgarfull- trúi R-listans, lét þau ummæli falla á borgarstjórnarfundi í fyrrakvöld að svigrúm sveitarfé- laga varðandi álögur þyrfti að rýmka. Nefndi hann sem dæmi að með því væri hægt að leggja hærra útsvar á þá, sem væru tekjuhærri, og lægra á þá, sem eru tekjulægri. Eins gæti fast- eignaskattur verið mismunandi eftir verðmæti eigna. Þetta kom fram í umræðum um nýlega samþykkt borgarráðs á umsögn borgarlögmanns. Um- sögnin byggði á þeirri tillögu sjálf- stæðismanna frá 15. desember sl. að þess yrði farið á leit við félags- málaráðherra að flutt verði frum- varp, sem heimili að lækka eða fella niður holræsagjald, sem tekjulitlum elli- eða örorkulífeyris- þegum er gert að greiða. -----» ♦ ♦ Eindaga bifreiða- gjalds verð- ur breytt LAGT hefur verið fram stjómar- frumvarp um breytingar á lögum um bifreiðagjald, en verði frum- varpið að lögum verður óheimilt að skrá eigendaskipti bifreiðar nema gjaldfallið bifreiðagjald hafi áður verið greitt. Aðrar breytingar eru þær helst- ar að eindagi bifreiðagjalda sem hefur verið síðasti dagur næsta mánaðar eftir gjaldadaga færist fram um mánuð og verður síðasti dagur mánaðarins á undan eða 31. janúar og 31. júlí ár hvert. Þá er heimild fjármálaráðherra til að hækka bifreiðagjöld með reglugerð í samræmi við hækkun byggingarvísitölu ár hvert afnum- in og gert er ráð fyrir að í framtíð- inni verði það „hlutverk löggjafans að ákveða hækkun bifreiðagjalds í stað þess að lögin kveði á um vísitölubundna hækkun“. Skemmdir á Hornbjargi NOKKRAR skenimdir . urðu á sliskju og landgöngustiga við Hornbjargsvita í óveðrinu á Vest- fjörðum í lok síðasta mánaðar. Að sögn Tómasar Sigurðssonar hjá Vita- og hafnamálastofnuninni mældist ölduhæðin á öldudufli sem staðsett er í Aðalvík tæplega 13 metrar í óveðrinu. Hann sagði skemmdir álíka þessum áður hafa orðið í óveðrum. Vitinn á Hornbjargi og önnur mannvirki þar eru nú lokuð og að sögn Tómasar var gengið tryggi- lega frá þeim fyrir veturinn. Hall- dór Blöndal samgönguráðherra hefur lýst því yfir að hann sé fylgj- andi því að Slysavarnafélagið fái húsnæðið á Hornbjargi til afnota, en ákvörðun um það hefur enn ekki verið tekin. Tómas sagði að menn frá slysavarnadeildinni á SLISKJA og neðsti hluti land- göngustigans við Hornbjargs- vita skemmdist í óveðri í lok október. Þegar slysavarna- menn frá ísafirði voru þarna á ferð nýlega varð að nota stiga úr varðskipi til að kom- ast upp að vitanum. ísafirði hefðu nýlega farið til að kanna aðstæður á Hornbjargi og þeir myndu síðan gefa Slysavarna- félaginu skýrslu. Sagði hann brýnt að taka ákvörðun um framtíð mannvirkj- anna á Hornbjargi hið fyrsta. Morgunblaðið/Birgir S. Valsson TRYGGILEGA hefur verið gengið frá húsakosti á Hornbjargi til að verja hann fyrir skemmdum i vetur. Talsmaður norska sjávarútvegsráðuneytisins Norðmenn liafa úthlut- að kvóta á hverju ári „ÞAÐ ER erfitt fyrir norska sjávarútvegsráðuneytið að koma með viðbrögð við ummælum ís- lenska sjávarútvegsráðherrans á meðan þjóðirnar eiga í viðræðum um þetta ,mál í London,“ sagði Bernt Ellingsen, talsmaður norska sjávarútvegsráðuneytis- ins, þegar undir hann voru borin ummæli Þorsteins Pálssonar um þá ákvörðun Norðmanna að leyfa veiðar á einni milljón tonna af síld úr norsk-íslenska síldarstofn- inum. Þorsteinn sagði við Morgun- blaðið að ákvörðun Norðmanna bæri vott um óskiljanlegan dóna- skap og yfirgengilega ögrun, en Norðmenn tilkynntu ákvörðun sína á sama tíma og strandríki við Norður-Atlantshaf sátu á fundi í London og ræddu um stjórn veiða í Síldarsmugunni. Engin niðurstaða um hlutverk svæðastofnunar á fundi NEAFC „Ég vek athygli á því að þetta er ekki í fyrsta skipti sem Noregur úthlutar kvóta fyrir norsk-íslenska síldarstofninn. Noregur hefur tek- ið ákvörðun um þetta á. hveiju ári í nærri tvo áratugi. Ákvörðunin hefur verið tekin, en viðræðurnar halda áfram í London,“ sagði Ell- ingsen þegar hann var spurður hvort ekki hefði verið óheppilegt að tilkynna þessa ákvörðun á sama tíma og viðræðurnar stæðu yfir í London. Engin niðurstaða hefur fengist á fundi aðildarríkja Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) sem nú stendur yfir í London, um hvert skuli vera hlut- verk svæðisstofnunar við stjórnun veiða úr síldarstofninum. I þeim hluta viðræðnanna hefur fram að þessu nær eingöngu verið fjallað um hvert eigi að vera hlutverk stofnunarinnar. Er nú búist við að niðurstaðan verði sú að fresta frekari umfjöllun og halda fundi síðar um það mál. Orðrómur sem ekki er á rökum reistur Þegar rætt var um það um hversu stóran hluta síldarstofnsins umrædd milliríkjastofnun ætti að fjalla, skýrði fulltrúi Norðmanna frá því að þrálátur orðrómur um að Norðmenn ætluðu að eigna sér 90% af stofninum væri úr iausu lofti gripinn. Utanríkisráðherra vill að stór sjávarútvegsfyrirtæki verði gerð að hlutafélögu m Kvóti tengdur eignarformi HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segist telja mjög eðlilegt að gerð verði sú krafa til sjávarút- vegsfyrirtækja af ákveðinni stærð, að þau verði gerð að hlutafélögum þannig að hver sem er geti fjárfest í þeim. Hann segist telja þetta betri leið til að dreifa kvótaeign heldur en að setja hámark á kvótaeign fyrirtækja, en þá hugmynd hefur Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra viðrað. Dreifð eignaraðild Halldór sagði að mikil hætta væri á að fyrirtæki reyndu að fara framhjá ákvæðum um hámarks- ,-kvótaeign með því að stofna fleiri fyrirtæki. Afleiðing þess gæti orðið sú að ekki yrði gætt fulls hagræð- is. Hann sagðist hins vegar hafa skilning á því sjónarmiði sem lægi að baki svona hugmynd. „Mér finnst mjög eðlilegt að það sé gerð sú krafa til sjávarútvegsfyr- irtækja af ákveðinni stærð, að þau opni sig, enda liggja framtíðarhags- munir þessara fyrirtækja í því að það sé opnað fyrir nýtt fjármagn inn í þau þannig að þau nýti krafta sína enn betur. Það er mikið fé að safnast upp í lífeyrissjóðum lands- manna og það er nauðsynlegt fyrir sjóðina að fleiri fyrirtæki komi inn á almennan markað til þess að þeir geti ávaxtað sitt fjármagn. Ég minni á að lífeyrissjóðirnir eru eign allra landsmanna. Eg held að það sé mikilvægt að menn hugi að því að greiða fyrir því að fleiri og fleiri eignist sjávarútvegsfyrir- tæki landsmanna og það er best gert með því að það sé gerð krafa um að þau séu á almennum mark- aði og hver sem er geti fjárfest í þeim,“ sagði Halldór. Halldór sagðist vera sammála því sjónarmiði að aflaheimildir ættu ekki að safnast fyrir á fáar hend- ur. „Ég bendi á að þó að fyrirtæki eins og Útgerðarfélag Akureyringa sé stórt fyrirtæki og hafi fengið úthlutað miklum kvóta þá er ekki hægt að tala um það eins og fyrir- tæki í eigu einstaklings. ÚA er fyr- irtæki fjöldans á staðnum. Sama má segja um fyrirtæki eins og Síld- arvinnsluna í Neskaupstað. Að því koma fjölmargir aðilar m.a. í gegn um eignaraðild bæjarins." Gang- brautir ekki virtar GANGANDI vegfarandi hafði samband við lögreglu og lét vita af því að hann hefði verið hætt kominn á Miklubraut, þeg- ar ökumaður virti ekki rautt ljós við gangbraut, heldur ók áfram. Gangandi vegfarandinn lenti í þessum hremmingum um kl. 19 á fimmtudag, en slapp ómeiddur eftir að hafa kastað sér frá bílnum. Sams konar atvik varð á gangbraut á Suðurlandsbraut, á móts við Hótel Esju, skömmu fyrir hádegi í gær. Þar sinnti ökumaður ekki rauða ljósinu við gangbrautina og átti kona, sem var á leið yfir götuna, fótum fjör að launa. Gripinn við framsal ÞRÍR menn voru handteknir á fimmtudag, eftir að einn þeirra reyndi að skipta ávísun í útibúi íslandsbanka við Hlemm. Gjaldkera þótti framsal mannsins á ávísuninni undar- legt og kallaði til lögreglu. Maðurinn vísaði á tvo féiaga sína, sem hann sagði að hefðu beðið sig að skipta tékkanum. Lögreglan fann félagana skammt frá, eða á veitinga- staðnum Keisaranum. Við yfir- heyrslur sögðu mennirnir, að þeir hefðu fundið svokallað „filofax" og ávísunin hefði leynst þar, Sótti mann í Grindvíking ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann í Grindvík- ing í gærmorgun, en skipið var statt um 70 mílur norður af Homi. Þyrlan var fjóra klukku- tíma í björgunarfluginu. Flug- leiðin var um 200 mílur, sem er með lengri flugum sem þyrl- an fer í. Óttast var að maðurinn þjáðist af alvarlegri hjartabilun. Að sögn læknis á Borgarspítala er líðan mannsins eftir atvikum góð, en hann verður á hjarta- gjörgæslu næsta sólarhring. Ekki er talið að hann sé í lífs- hættu. Skíðlogaði í 11 tunnum LÍKLEGT þykir að kveikt hafí verið í raslatunnum við Templ- arahöllina við Eiríksgötu í fyrri- nótt. Skíðlogaði í ellefu tunnum og urðu skemmdir á húsinu. Lögreglunni barst tilkynning um brunann kl. rúmlega 1 um nóttina. Þá logaði í tunnunum og eldur hafði sviðið tvær hurð- ir á húsinu og nærliggjandi timburskúr. Nokkur reykur komst inn á jarðhæð hússins, en slökkviliðið reykræsti og gekk það greið- lega. 53 fóru of hratt 53 ÖKUMENN óku of hratt í borginni á fimmtudagskvöld og var einn þeirra sviptur ökurétt- indum. Sá ók yfir Gullinbrú á 103 kílómetra hraða, en leyfilegur hámarkshraði þar er 50 km á klukkustund.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.