Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Harðar umræður á Alþingi um þingsályktunartillögu
þingflokks Þjóðvaka um veiðileyfagjald
Ráðherra vændi flutn-
ingsmann um að ganga
erinda stórfyrirtækja
Snarpar umræður urðu á Alþingi í gær þeg-
ar þingmenn ræddu þingsályktunartillögu
Þjóðvaka um veiðileyfagjald.
Flutningsmenn benda á
sjö leiðir um hvernig hægt
væri að standa að því að
leggja á veiðileyfagjald
HART var deilt á Þorstein Pálsson
sjávarútvegsráðherra í umræðum um
þingsályktunartillögu þingflokks
Þjóðvaka um veiðileyfagjald á Al-
þingi í gær; umræður sem Þorsteinn
sagði í lokin að hefðu þróast í rétta
átt en gagnrýnendur hans sögðu þau
ummæli hans til marks um að hann
væri úr takt við þær umræður sem
fram hefðu farið í þingsalnum og
hann en ekki þeir hefði breytt um
áherslur eftir því sem leið á umræð-
una.
Þorsteinn gaf í skyn í umræðunum
að Ágúst Einarsson, fyrsti flutnings-
maður tillögunnar, gengi erinda stór-
fyrirtækja sem varaformaður stjórn-
ar Granda, og gætti hagsmuna stór-
fyrirtækja í sjávarútvegi, sem mundu
e.t.v. sjá sér fært eftir lögleiðingu
veiðileyfagjalds að kaupa upp ein-
staklingsútgerðirnar sem stæðu höll-
ustum fæti í greininni. Þetta kallaði
Ágúst það ómerkilegasta sem gerst
hefði í íslenskri stjórnmálaumræðu
undanfarin ár og kallaði Þorstein
Pálsson ómerking í sínum máiflutn-
ingi.
Þorsteinn kvaðst síðar í umræð-
unni ekki hafa veist að persónu Ág-
ústs Einarssonar með fyrrtöldum
ummælum um stórfyrirtæki og
einkaútgerðir heldur rætt um líklega
þróun í sjávarútvegi eftir lögleiðingu
veiðileyfagjalds.
I umræðunum kom m.a. fram að
þingflokkur Kvennalistans styður til-
lögu Þjóðvaka, sem gengur út frá
að Alþingi samþykki að taka upp
veiðileyfagjald. Þingflokkur Alþýðu-
flokksins styður tillöguna einnig.
Ólafur Ragnar Grímsson þingmað-
ur Alþýðubandalags kvaðst tilbúinn
að standa að breytingu á orðalagi
þingsályktunartillögunnar og rök-
stuðningi í greinargerð í því skyni
að stuðia að samþykkt tillögu um
að Alþingi kanni möguleika á að
taka upp veiðileyfagjald. Hann taldi
sérstaklega brýnt að aðskilja umræð-
ur um það grundvallármál sem veiði-
leyfagjald væri frá umræðum um
almenna fiskveiðistjórnun en taldi
að flutningsmönnum hefði ekki tek-
ist það sem skyldi og vanda þyrfti
betur til rökstuðnings tillögu um
veiðileyfagjald.
Sjónarmið fjármálaráðherra
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra lýsti sig fylgjandi því að sjávar-
útvegurinn taki'á sig þann kostnað
sem ríkissjóður ber nú af starfsem-
inni, svo sem með rekstri rannsókna-
stofnana, afnámi lægra trygginga-
gjalds á sjávarútveg en aðrar at-
vinnugreinar og afnámi þeirrar nið-
urgreiðslu hluta launakostnaðar
greinarinnar sem fælist í sjómanna-
afslætti. Við þær aðstæður að sjávar-
útvegurinn greiði kostnaðinn af
starfseminni sé hins vegar rétt að
hann að dreifi til þjóðarinnar arðinum
af auðlindinni.
Pétur Blöndal þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins lýsti sig andvígan
skilgreiningu núverandi fyrirkomu-
lags á eignarhaldi veiðiheimilda,
kvaðst hlynntur veiðileyfagjaldi og
ræddi kosti þess fyrirkomulags að
dreifa veiðileyfum til allra lands-
manna og leyfa þeim að versla með
þau. Breyta þyrfti um kerfí mildilega
og leyfa afskriftir þeirra eigna, sem
aflaheimildir nú væru, á 15-20
árum. Það væri langur tími í lífi ein-
staklinga en skammur tími í lífi þjóð-
ar.
Þingsályktunartillagan sem einnig
var lögð fram á síðasta þingi gerir
ráð fyrir því að Alþingi álykti að
taka beri upp veiðileyfagjald í sjávar-
útvegi og feli sjávarútvegsráðherra
að skipa nefnd til að undirbúa lög-
gjöf um þetta efni. í nefndinni eigi
sæti fulltrúar frá öllum þingflokkum
og helstu samtökum útgerða, sjó-
manna og fiskvinnslu.
Nefndin kanni hvaða form veiði-
leyfagjalds sé heppilegast með tilliti
til áhrifa m.a. á fjárhagslega stöðu
sjávarútvegs, fiskveiðistjórnun, við-
skipti með veiðileyfi, hagstjóm hér-
lendis, byggðaþróun, samkeppnis-
stöðu atvinnuvega og ríkisfjármál.
Nefndin leiti ráðgjafar hjá sérfræð-
ingum á sviði fiskihagfræði og kynni
sér fyrírkomulag í öðrum löndum og
skili áliti fyrir marslok 1996 og verði
frumvarp um veiðileyfagjald lagt
fyrir Alþingi á vorþingi 1996.
Sjö leiðir nefndar
í greinargerð eru rakin helstu rök
flutningsmanna fyrir veiðileyfagjaldi
og einnig raktar sjö leiðir um hvern-
ig hægt væri að standa að því að
leggja á veiðileyfagjald.
Agúst Einarsson þingmaður Þjóð-
vaka mælti fyrir þingsályktunartil-
lögunni og rakti efni greinargerðar-
innar. Hann sagði að með tiliögunni
væri hreyft merkilegu og mikilvægu
máli. í reynd væri um tvískipta um-
ræðu að ræða; annars vegar um físk-
veiðistjórnun og hins vegar hvort og
þá hvemig ætti að leggja á veiði-
leyfagjald fyrir úthlutaðar aflaheim-
ildir.
„Þessi þingsályktunartillaga fjall-
ar ekki um stýrikerfið heldur um
gjaldtöku fyrir úthlutaðar aflaheim-
ildir,“ sagði Ágúst. Hann sagði að
sameign þjóðarinnar á fiskimiðum
væri ótvíræð og það gilti um veiði-
leyfi, eins og annað sem er af skorn-
um skammti, að þau væru ávísun á
verðmæti; verðmæti sem ríkið hefði
hingað til úthlutað án gjaldtöku þótt
vísi að slíku gjaldi megi finna í lögum
um þróunarsjóð íslands.
Réttlætissjónarmið
„Rök fyrir veiðileyfagjaldi eru
ýmiss konar, meðal annars réttlætis-
sjónarmið. Það særir réttlætiskenr.d
manna að verslað sé með veiðiheim-
ildir og þeir sem fengu þær upphaf-
lega geti hagnast verulega með því
að selja eða leigja. Þeir hafa ekkert
greitt fyrir þær, hvorki við úthlutun
í upphafi né árlega úthlutun. Veiði-
leyfagjald hefur verið innheimt af
íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum
með gengisskráningu undanfarna
áratugi. Gengið var tiltölulega hátt
skráð sem leiddi til þess að innflutn-
ingur varð ódýrari.
Útgerðin hefur í reynd alltaf greitt
nokkurs konar auðlindagjald eða
veiðileyfagjald. Þannig hefur af-
rakstri af sjávarútvegi verið veitt inn
í hagkerfíð þjóðinni til hagsbóta,"
sagði Ágúst.
Ágúst sagði síðar að aðrar at-
vinnugreinar hefðu hins vegar þurft
að sætta sig við það gengisstig sem
hentaði sjávarútvegi hveiju sinni.
Þegar illa hafí árað í sjávarútvegi
hafi gengið verið fellt með afleiðing-
um sem allir þekki. Þessi stefna eigi
-ekki við iengur þegar stefnan sé að
halda gengi sem stöðugustu, verð-
bólgu sem lægstri og freista þess að
aðrar atvinnugreinar nái að byggjast
upp við hlið sjávarútvegs.
Eitt af helstu vandamálum okkar
í hagstjórn sé hversu illa hefur geng-
ið að byggja upp aðrar útflutnings-
greinar enda þoli sjávarútvegurinn
miklu hærra gengi en annar útflutn-
ingsiðnaður. Liður í að byggja upp
almehnan samkeppnisiðnað og út-
flutningsiðnað sé að sjávarútvegur
greiði fyrir aðgang að auðlindinni.
Agúst sagði veiðileyfagjald eðlilegt
og rökrétt framhald þjóðarsáttar um
jafnvægi og stöðugleika í efnahags-
málum.
Sighvatur Björgvinsson, Alþýðu-
flokki, lýsti stuðningi við þingsálykt-
unartillöguna og röksemdafærslu
Ágústs Einarssonar. Sighvatur taldi
hins vegar rangt hjá flutningsmönn-
um að gera ráð fyrir að fela ríkis-
stjórn, sem er andvíg veiðileyfa-
gjal’di, að framfylgja þeirri stefnu
sem í tillögunni felst. Fyrir liggi að
ef það sé eitthvað sem hæstvirtur
sjávarútvegsráðherra geti ekki hugs-
að sér þá sé það að fylgja slíkri
stefnu. „Það er ekki rétt að slíkum
aðilum, hvað þá heldur ríkisstjórn
sem öll virðist vera andstæð þessari
stefnu, sé falið það verkefni að gera
tiltögu um framkvæmdina. Ég hefði
frekar viljað sjá þessa tillögu í frum-
varpsformi," sagði Sighvatur.
Hann hvatti til þess að talsmenn
veiðileyfagjalds útfærðu hugmynd-
ina í frumvarpsformi en vísi því úr-
lausnarefni ekki til ríkisstjórnar og
ráðherra sem vitað sé að vilji ekkert
með slíka stefnu hafa. Frekar ætti
að leggja til að Alþingi samþykkti
að kjósa nefnd til að semja frumvarp
um málið í stað þess að leggja það
í hendur sjávarútvegsráðherra.
í framhaldi af athugasemd Krist-
ins H. Gunnarssonar um að málið
ætti fremur heima í efnahags- og
viðskiptanefnd en sjávarútvegsnefnd
þar sem yfirlýst væri af hálfu flutn-
ingsmanna að málið snerti fremur
skattheimtu en stjórn fiskveiða,
sagði Ágúst Einarsson að tillaga um
að sjávarútvegsnefnd fjallaði um
málið væri þaulhugsuð en gild rök
væru fyrir að fela hvorri tveggja
nefndinni að fjalla um málið. Hann
kvaðst þó opinn fyrir leiðbeiningum
forseta þingsins um í hvaða farveg
ætti að fella málið.
Kvennalisti styður
veiðileyfagjald
Guðný Guðbjörnsdóttir upplýsti að
landsfundur Kvennalista hefði Ijallað
um og samþykkt stuðniniv við veiði-
leyfagjald enda næðist <Jrki samstaða
um að endurskoða sjávarútvegs-
stefnuna í anda hugmynda Kvenna-
Iistans um byggðakvóta. Hún sagði
að þingflokkur Kvennalista styddi
allur þingsályktunartillöguna, sem
hún sagði fjalla um eitt mesta rétt-
lætismál sem uppi væri í íslenskum
stjórnmálum í dag og löngu tíma-
bært væri að Alþingi tæki á málinu.
Einar K. Guðfinnsson sagði að
með þessari tillögu yrðu þau tíma-
mót að í greinargerð hennar kæmi
fram að þeir sem tala fyrir auðlinda-
skatti á sjávarútveg viðurkenni að
eðlilegt sé að samskonar gjald sé
lagt á aðrar auðlindir, svo sem orku
fallvatna. Hann vitnaði í fímm ára
Morgunblaðsgrein Ágústs Einars-
sonar og spurði hvort hægt yrði að
samræma auðlindaskatt því að veita
t.d. trillukörlum aðgang að auðlind-
inni umfram eigendur frystitogara.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
stutt síðan allir þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins hefðu greitt atkvæði með
hliðstæðri gjaldtöku þegar samþykkt
var gjaldtaka á innflutningsleyfi
samkvæmt ákvæðum GATT-samn-
ingsins. Þar eins og varðandi afla-
heimildir hefði verið um að ræða
réttindi sem ríkið hefði tekið að sér
að skammta og þar með hefðu þau
öðlast verðmæti.
Landsbyggðarskattur?
Svanfríður Jónasdóttir, einn
flutningsmanna tillögunnar, sagði
nauðsynlegt að Alþingi ræði þetta
mál og taki ákvörðun um það til að
sætta þjóðina við það ástand sem
skapast hefði. Hún andmælti þvi
sérstaklega sem Kristinn H. Gunn-
arsson hafði haldið fram að veiði-
leyfagjald væri sérstakur skattur á
landsbyggðina, sem væri líklegur til
að auka enn á fólksflutninga til
höfuðborgarsvæðisins.
Það sé hins vegar skattur á lands-
byggðina að ungir menn sem ætla
að hasla sér völl í greininni þurfi
að kaupa sér kvóta af þeim sem
hefðu í upphafi fengið þau réttindi
ókeypis í hendur. í gengisstefnu
undanfarinna áratuga fælist líka
skattur á landsbyggðina. Vegna
hennar stæðu byggðarlögin á lands-
byggðinni uppi með frystihúsin ein
og sjávarútvegurinn hefði drepið af
sér aðrar atvinnugreinar. Þetta væri
552 1150-5521370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, framkva mdasijori
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, tOGGiiiUR fasieignasali
Nýkomnar til sölu m.a. eigna:
Séríbúð - Garðabær - gott lán
„Stúdíó“íbúð á 3. hæð og í risi, rúmir 100 fm. Næstum fullg. Allt
sér. Suðursvalir. 40 ára húsnlán kr. 5,1 millj. Vinsæll staður. Mjög
gott verð.
Fyrir smið eða laghentan
sólrík 3ja herb. íb., tæpir 80 fm, v. Grensásveg. Nýtt eldh. Gólfefni
o.fl. þarf að endurn. Góð sameign. Laus fljótl. Vinsæll staður miðsvæð-
is í borginni.
Skammt frá Hlemmtorgi - frábært verð
Sólrík lítil 2ja herb. íb., tæpir 50 fm, á 2. hæð í reisul. steinh. Lítið,
gott eldhús. Gott sturtubað. Laus fljótl.
Digranesvegur - einbhús - fráb. útsýni
Mikið endurn. einbhús m. stórri 3ja herb. íb. á hæð. I kj. 2 herb., bað
m.m. Stór lóð m. háum trjám. Verð aðeins 9,8 millj. Eignaskipti mögul.
Við Bogahlíð - nágrenni
óskast á söluskrá góð 3ja herb. íb. í skiptum fyrir:
1. Einbhús í Mosfbæ, nýtt og gott.
2. Sérhæð í Hlíðunum. Úrvalseign á fráb. stað.
3. Endurnýjaða endaíb. við Safamýri. 5 herb. m. tvöf. bilsk.
4. 4ra herb. glæsil. endaíb. í nýja miðbænum m. góðum bílsk.
Vinsamlega leitiö nánari upplýsinga sem veittar eru aðeins á skrifstofunni.
• • •
Opið ídag kl. 10-14.
Einbhús m. 4ra-5 herb. íb.
óskast íborginni eða nágr.
Má þarfnast endurbóta.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 552 1150-552 1370