Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 19
Ssmi/iitinilerlli1
llBÍSfl
HUSGAGNAHOLUN
Bíldshöfði 20-112 Rvik - S:587 1199
œrsta
er
s
iólatré
6
Hátiðin hefst efúr 13 daga
Fyrsta desember hefst sex vikna Jjölskylduhátíð jólasveinsins í
verslunum og fyrirtœkjum í Hveragerði og síðast en ekki síst
Tívolíhúsinu sem búið er að breyta í 6 þúsund m2 Jólaland!
Fjolbreytt skemmti-
DAGSKRÁ FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
LEIKDÆTTIR Á FJÓRUM
LEIKSVIÐUM
TÍVOLÍ FRÁ Englandi
MARKAÐSTORG
ÍSLENSKIR JÓLASVEINAR
HÚSDÝRAGARÐUR
TÓNLISTARATRIOI
Grýla og Leppalúði
St/ersta JÓLATRÉ
Á fSLANDI Í
Forsala vegabrefa i
Jólaland hefst 24. nóv.
Klippið auglýsingarnar út
og safnið. Þeir sem koma
með allar 9 auglýsingarnar
í Jólalandfá viðurkenningu
frá jólasveininum Sankti
Kláusi. Nöfn þeirra fara í
pott og verða glœsilegir
vinningar dregnir út á
Þorláksmessu.
Kynnir: Mókollur
EIMSKIP
FLUGLEIÐIR
Bretar bíða spenntir eftir sjónvarpsviðtali við Díönu
FiSJeNBoRG
fataskápur úr
massivri lútaðri
furu B:90 H:200
D:60cm
i
Kr.
67.500,-
Verið velkomin
Tekið upp með leynd
seint á brennukvöldi
ERLENT
Versta veður um áratugaskeið gengur yfir Danmörku og Svíþjóð
London. Daily Telegraph.
MIKIL eftirvænting ríkir í Bret-
landi vegna sjónvarpsviðtals við
Díönu prinsessu sem sýnt verður
í Panorama, vinsælasta dægur-
málaþætti BBC-stöðvarinnar,
næstkomandi mánudagskvöld.
Undarlega þykir prinsessan hins
vegar hafa haldið á málum er hún
samþykkti sjónvarpsviðtalið og
hefur hún jafnvel verið sökuð um
að koma aftan að Elísabetu
drottningu, tengdamóður sinni.
Mikil leynd hvíldi yfir viðtalinu.
Fjögurra manna sveit frá BBC
mætti í Kensington-höllina að
næturþeli til þess að taka það
upp. Venjulegt kvöld var ekki val-
ið, heldur brennukvöldið 5. nóvem-
ber þegar breska þjóðin minnist
Guy Fawkes, Englendings sem
stóð fyrir misheppnaðri tilraun til
að sprengja konung og þinghúsið
í loft upp árið 1605.
Díana er sögð hafa fallist á það
sl. sumar að sitja fyrir svörum en
lét þó aldrei neinn aðstoðarmanna
sinna eða fulltrúa hirðarinnar vita.
Hvorki einkaritari hennar né
blaðafulltrúi höfðu hugmynd um
málið þar til það varð opinbert sl.
þriðjudag, níu dögum eftir að við-
talið átti sér stað.
Prinsessan er sögð hafa brotið
allar siðareglur er hún lét hjá leið-
ast að ráðfæra sig við tengdamóð-
ur sína, Elísabetu drottningu, fyr-
ir fram. Voru liðnir níu dagar frá
því viðtalið var tekið er hún hafði
samband við hirðina. Og í stað
þess að ræða við drottninguna bað
hún einkaritara hennar, Sir Rob-
ert Fellowes, að láta hana vita.
Þykir fæstum það tilviijun að það
skyldi bera upp á 47 ára afmælis-
Diana
prinsessa
fyrra,“
dag Karls prins að
hún lét hirðina, og
um leið fjölmiðla, vita
af viðtalinu.
Díana
gagnrýnd
Þannig gagnrýnir
leiðarahöfundur Daily
Telegraph Díönu og
segir hana hafa gert
flest rangt varðandi
viðtalið. „Hún hefur
sér þó það til málsbóta
að Karl prins kom illa
fram við hana með
því að játa framhjá-
hald og ræða opin-
skátt um hjónabandið
í sjónvarpsviðtali og bók
segir í leiðara blaðsins.
„Hætt er við, að viðtalið verði
einungis til þess að ýfa upp gömul
sár og framlengja umræðuna um
innanhússerjur og misheppnað
hjónaband þeirra Karls prins. „Þó
kann svo að fara að prinsessan
hafi notað samtalið til að sýna
sáttfýsi og góðan hug í garð kon-
ungsfjölskyldunnar þar sem und-
irtónninn verði sú ósk hennar að
helga sig uppeldi framtíðarkon-
ungs Breta og yngri sonarins.
Ollum sem annt er um velferð
konungdæmisins verða í það
minnsta að vona það,“ sagði í leið-
ara blaðsins.
En hvetjar kynnu að vera
ástæðurnar fyrir því að Díana fer
í sjónvarpsviðtal? Hún er sögð
óhress með þá fyrirstöðu sem
Karl prins er sagður hafa sýnt
þeirri fyrirætlan hennar að gegna
nokkurs konár farandsendiherra-
hlutverki. Sömuleiðis
finnst henni sem hirð-
in hafí reynt að ýta
sér til hliðar. Loks
finnst henni sem
mjög fijálslega hafí
verið farið með sann-
leikann í frásögnum
fjölmiðla af meintu
eldheitu vinfengi
hennar og ýmissa
karlmanna, þ. á m.
Wills Carlings, fyrir-
liða rúgbí-landsliðs-
ins. Þarfnist það leið-
réttingar við.
Reiði í höllinni?
Af hálfu hirðarinn-
ar hafa menn ekki viljað tjá sig
um væntanlegt sjónvarpsviðtal en
hermt er að þar kunni æðstu menn
bæði Díönu og ekki síður BBC lit.1-
ar þakkir. Drottningin verður við-
stödd fjölleikasýningu og tæplega
verður myndbandstækið stillt á
upptöku meðan hún verður fjar-
verandi því talsmaður hirðárinnar
sagði drottninguna aldrei horfa á
Panorama-þáttinn.
Kannanir sýna að fímm milljón-
ir manna horfi að jafnaði á Panor-
ama-þáttinn en búist er við talan
fjórfaldist að minnsta kosti á
mánudagskvöld. Þá er sýnt að við-
talið á eftir að gefa BBC nokkuð
í aðra hönd. Búist er við að sýning-
arréttur í útlöndum skili stöðinni
á annað hundrað milljóna króna í
tekjur. Nú keppa til að mynda
allar helstu sjónvai’psstöðvar
Bandaríkjanna um að fá að sýna
viðtalið þar í landi.
„Brjálað veðnr
— á sænskan
mælikvarða“
Islendingar minnast ekki viðlíka fann-
fergis utan fósturjarðarinnar
ILLVIÐRIÐ sem reið yfír Danmörku
og suður- og vesturhluta Svíþjóðar
í gær er hið versta á þessum slóðum
um áratuga skeið. íslendingar í
Danmörku og Svíþjóð sem Morgun-
blaðið ræddi við kváðust aldrei hafa
lent í viðlíka ofankomu og skafrenn-
ingi í þau ár sem þeir hefðu búið í
Svíþjóð en bættu við að samgöngur
hefðu víða gengið úr skorðum vegna
þess að menn hefðu ekki verið und-
ir þessi umskipti búnir.
I Svíþjóð varð veðrið verst í
Gautaborg og nágrenni. Sveinn
Agnarsson hagfræðingur í Gauta-
borg sagði að varað hefði verið við
veðri þessu á fimmtudag. Þá um
kvöldið hefði snjó tekið að kyngja
niður og samgöngur hefðu þegar
farið úr skorðum. „Þetta er mesti
bylur sem ég hef séð síðan ég kom
hingað fyrir fimm árum. Feijusam-
göngur liggja niðri og nú er engin
umferð í borginni. Sporvagnamir
standa auðir, póstur var ekki borinn
út í morgun, dagblöð komu ekki út
og flestar búðir, bankar og veitinga-
staðir em lokaðir." Sveinn gat þess
að það heyrði til undantekninga að
snjóaði á þessum slóðum fyrir ára-
mót. „Menn voru ekki undir þetta
búnir, flestir bílstjórar eru enn á
sumardekkjum og hér eru aftur-
hjóladrifnir bílar algengir."
Vont áhlaup
Sveinn sagði að veðrið gæti talist
vont jafnvel þótt íslenskir mæli-
kvarðar væm notaðir. „Þetta er svip-
að veður og þarf að ríða yfír til að
skólar loki í Reykjavík. Þetta er vont
áhlaup en nú er veðrið að ganga
niður og hætt að snjóa. Börnin eru
hins vegar himinlifandi að fá frí í
skólanum og geta leikið sér úti.
Krakkarnir eru allir komnir á sleða
og fullorðna fólkið virðist líka njóta
þess að leika sér úti með börnunum."
Magnús Heimisson sem einnig býr
í Gautaborg sagði að flugvöllur borg-
arinnar væri lokaður sem væri mjög
óvenjulegt. „Veðurfræðingar hér
segjast ekki muna eftir viðlíka ofan-
komu og skafrenningi,“ sagði Magn-
ús og bætti við að nú væri veðrið
að ganga til austurs þannig að bú-
ast mætti við snjókomu í Stokk-
hólmi.
Eyddu nóttinni i bílunum
Guðrún E. Agústsdóttir sem býr
í Varberg, um klukkustundar akstur
Reuter
SPÓLAÐ í hálkunni í Gautaborg.
suður af Gautaborg, sagði í samtali
við Morgunblaðið að hraðbrautir í
þessum hluta Svíþjóðar hefðu lokast
strax á fimmtudagskvöldið. „Margir
vom fastir í bílum sínum frá því
klukkan níu um kvöldið og þurftu
því að eyða nóttinni í þeim,“ sagði
Guðrún. Hún kvaðst aldrei hafa séð
svo mikinn snjó í þau sex ár sem
hún hefði verið búsett í Svíþjóð.
„Hér er enginn á ferli, og hér kemst
enginn neitt. Á sænskan mælikvarða
er þetta bijálað veður en það er þó
aðallega vond færðin sem skiptir
sköpum." Guðrún sagði börnin í
Varberg alsæl. „Sex ára dóttir mín
fékk að nota snjóþotuna sína í fyrsta
skipti í mörg ár og er hin kátasta
yfir þessu fannfergi."
Páll Ingi Magnússon, formaður
íslendingafélagsins í Stokkhólmi,
sagði að þar væri tæpast unnt að
tala um óveður á íslenskan mæli-
kvarða þótt nokkrar tmflanir hefðu
orðið. Þar væri snjór og dulítill skaf-
renningur og mun færri bílar væm
sýnilega á ferðinni en venja væri til.
Mikil tilfærsla á köldu lofti
Hörður Þórðarson veðurfræðingur
á Veðurstofu íslands kvað lægð hafa
myndast yfir Bretlandseyjum á mið-
vikudag. Hæðarhryggur hefði þá
verið yfír Islandi og mikil tilfærsla
af köldu lofti norðan úr Ishafínu í
átt að lægðinni. „Hún fékk þar með
mikið fóður og fór vaxandi. Hún var
komin inn á sunnanverðan Norð-
ursjó á fimmtudag og færðist síðan
inn yfir Danmörku." Hörður sagði
skilin hafa verið skörp og gat þess
að suðlæg átt hefði verið í Kaup-
mannahöfn á miðnætti að íslenskum
tíma, rigning og átta stiga hiti. Sex
tímum síðar hefði verið skollin á
vestanátt upp á 6-7 vindstig, hitinn
kominn niður undir frostmark og
snjókoma. Hörður kvað veðrið að
ganga niður þó búast mætti við snjó-
komu í suðausturhluta Svíþjóðar.