Morgunblaðið - 18.11.1995, Page 50

Morgunblaðið - 18.11.1995, Page 50
ÍO LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6.45 og 9.15. ÞÖGUL SNERTING Sýnd kl. 5. Síðasta sýning. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. # H.T.Rás2. „Áhrifamikil og sterk mynd" . ★★★H.K.DV P „Enn eítt iistavérkid frá Zhang Yimou...Lœtur engan ósaortinn" ★ ★★72 Mbl. WATl-RVVOKLD Sýnd kl. 9.15. Aðalverðlaun dómnefndar í Cannes 1994. Sýnd kl. 4.45 og 7. .nmnm hreyfimynda- lagiö Kr 400 Tónstáld vaknar af dvala eftir 40 ára hlé og hefur að töfra fram tóna á ný. Aðalhlutverk: Max Von Sydow. Frá William Friedkin (French Connection) og Joe Eszterhas (Basic Instinct) kemur erótískasti sálfræðitryllir ársins! DAVID CARUSO LINDA FIORENTINO CHAZZ PALMINTERI Sumir draumórar St'x (louuv’ Pohuiaríty. m m nh Frumsýni Stórkostlegt Ijóðræm memaraverk frá Makedóníu sem sækir umfjöllunarefnið í stríðið í fyrrum Júgóslavíu en er þó fyrst og fremst um stríðið í hverjum manni. Hefur hlotið glæsilega dóma gagnrýnenda og fjöldamörg verðlaun víða um heim, sigraði m.a. á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í fyrra og var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin í ár. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára. ganga of langt. Milljónamæringur er myrtur og morðinginn virðist vera háklassa vændiskona sem gengur undir nafninu Jade. En hver er hún? David Caruso leikur saksóknara sem grunar fyrrum ástkonu sína (Linda Fiorentino) sem nú er gift vini hans (Chazz Palminteri) um að vera Jade. Ef hún er Jade, hversu hættuieg er hún? Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. HÁSKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó FRUMSYNING: JADE STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. H MOGULEIKHUSIÐ símí 562 5060 • ÆVINTÝRABÓKIN, barnaleikrit eftir Pétur Eggerz. Sýn. í dag kl. 14, uppselt, og kl. 16, uppselt, sun. 19/11 kl. 14, uppselt, kl. 16, laus sæti, lau. 25/11 kl. 14, uppselt, kl. 16, uppselt. Síðustu sýningar fyrir jól. Sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm. Miðaverð 700 kr. :agp HA TNARI 'IfiR DARLEIKHUSIt) HERMÓÐUR OG HÁÐVÖR SÝNIK HIMNARÍKI GEDKLOFINN GAMANLEIKLIR ,1 2 l’ÁTTUM EFTIR ÁRNA ÍBSEN Gamla bæjarútgeröin, Hafnarfirði. Vesturgötu 9. gegnt A. Hansen ÆHANSEN í kvold. uppselt í kvold. miönætursýning kl. 23.00. nokkur sæti laus fos. 24/11. uppselt lau. 25/11. nokkur sæti laus fos. 1/12 lau 2/12 (Árni Ibsen viöstaddur allar sýningar) Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega. Miöasalan er opin milli kl. 16-19. Tekiö á móti pontunum allan sólarhringinn. Pontunarsimi: 555 0553. Fax: 565 4814. býöur upp á þriggja rétta leikhúsmáltíð á aóeins 1.900 eftir Ólaf Hauk Símonarson Aukasýning til styrktar söfnuninni SAMHUGUR 1 VERKI þriðjudag nóv. kl. 20 «3 . Miðasala hafin % ÞJOÐLEIKHUSIÐ Sími 551 1200 Tossabekkurinn og landgönguliðinn KYIKMYNPIR Bíóborgin „DANGEROUS MINDS“ ★ ★ Vi Leikstjóri: Jack N. Smith. Framleiðendur: Don Simpson og Jerry Bruckheimer. Aðal- hlutverk: Michelle Pfeiffer, George Dzundsa, Wade Dominguez og Bruklin Harr- is. Hollywood Pictures. 1995. NÝJA myndin í Bíóborginni, „Dangerous Minds“ með Michelle Pfeiffer er ein af þessum bandarísku menntaskólamyndum sem við þekkj- um orðið talsvert vel. Tossabekkur í ríkisskóla í fátækrahverfi bandarí- skrar stórborgar fær nýjan kennara sem tekur upp breytta og óhefð- bundna kennsluhætti og gefur liðinu trú á eigin getu og von í lífinu í gegn- um menntun. Myndin fer mjög troðn- ar slóðir að þessu leyti en hefur við sig hráslagalegt raunsæi götunnar, styrkt af rappi og góðum leik, sérstak- lega krakkanna í skólastofunni. Frá- sögnin er keyrð áfram á góðum hraða svo aldrei er dauður punktur enda framleiðendurnir Simpson og Bruck- heimer ekki þekktir fyrir annað en hasar og myndin er ágætis afþreying. Sagan er ekki ný af nálinni en hún mun að einhveiju leyti byggð á sönn- um atburðum. Pfeiffer leikur fyrrum landgönguliða sem tekur að sér að kenna enskar bókmenntir miklum tossabekk er hrakið hefur frá sér hvern kennarann á fætur öðrum. Smátt og smátt vinnur hún traust og virðingu bekkjarins og opnar krökk- unum nýja sýn á lífið í gegnum skáld- skap manna eins og Bob Dylans og Dylan Thomas. Hún beitir mjög óhefðbundnum aðferðum við kennsl- una, á í höggi við forpokuð skólayfir- völd, glæpsamlegt umhverfi krakk- anna og bagalega sjálfsvitund þeirra. Öllu þessu segir hún stríð á hendur vopnuð engu öðru en ljóðlistinni. Bekkurinn er samsettur af gamal- kunnum persónum menntaskóla- myndanna. Gáfnaljósið á framtíðina fyrir sér. Aðaltöffarinn ekki. En myndin forðast að bjóða uppá einfald- ar lausnir á lífinu í fátækrarhverfínu og svíkur ekki lit að því leyti nema kannski á full sykursætum lokamínút- unum. Pfeiffer sleppur ágætlega frá hlutverkinu, sérstaklega þegar hún er að vinna traust krakkanna og öðl- ast vináttu þeirra en virkar stundum vandræðaleg frammi fyrir bekknum. Wade Dominguez sem töffarinn og Bruklin Harris sem gáfnaljósið standa sig best af krakkahópnum. Skólamyndir hafa margt jákvætt við sig. Þær höfða til krakka og ungl- inga og tali þær máli unglinganna geta þær náð til þeirra með uppbyggi- legum boðskap. „Dangerous Minds“ vegnaði mjög vel í miðasölunni í Bandaríkjunum einmitt af því hún höfðaði til unga fólksins og hoðskap- urinn um gildi menntunar og sjálfs- virðingar hittir { mark. í leiðinni er hún prýðileg skemmtun. Hún mætti vera frumlegri en það er að nokkru bætt upp með drungalegu stórborgar- raunsæi og góðri keyrslu. Arnaldur Indriðason IÐNHÖNNUN Nýr valkostur til framtíðar Innritað: 20.-23. nóv. I99S kl. 15.00-18.00. Klassískar kvikinynd- ir í Regn- boganum Á VEGUM Kvikmyndasafns íslands verða sýndar nokkrar klassíkar kvik- myndir frá 18. nóvember og fram til 17. desember í Regnboganum. í dag, laugardaginn 18. nóvem- ber, verða til sýnis myndirnar Pot- emkin, Hamlet og Inntak glæpsins. Orustuskipið Potemkin var gerð í tlefni tuttugu ára afmælis byltingar- innar í Sovétríkjunum 1905 er sov- éska ríkisstjórnin fól Eisenstein það verkefni. Upprunalega handritið sem hann fékk í hendur var gríðarmikil frásögn af atburðunum það ár, en Eisenstein notaði einungis einn at- burð úr handritinu sem varð að kvik- mynd í fullri lengd. Það var flotaupp- reisnin í Kronstadt sem leiddi til rúss- nesku byltingarinnar. Hamlet með Laurence Olivier var gerði í Breffandi árið 1948. Á hverri nóttu óttast verðir konungshallarinn- ar í Danmörku vofu konungsins sem eigrar þar um. Hann birtist syni sín- um Hamlet og segir honum hvernig hans eigin bróðir og' eiginkona spunnu ljótan vef til að fyrirkoma honum. Hamlet verður því að hefna föður síns en veitist það erfitt vegna ástar á móður sinni. Laurence Olivier lék sjálfur titilhlutverkið í þessari glæstu útgáfu af Hamlet auk þess að stjórna myndini sem hreppti Gull- ljónið í Feneyjum og Óskarsverðlaun- in fyrir bestu erlendu myndina árið 1948. Inntak glæpsins eða „Forbrydels- ens elmement“ er fyrsta kvikmynd danska leikstjórans von Trier í fullri lengd frá árinu 1984. Myndin er sögð yndi allra raunverulegra kvikmynd- afíkla enda hlaðin tilvísunum í fræg- ustu myndir kvikmyndasögunnar. í stuttu máli fjallar hún um ieynilög- reglumenn sem eru að reyna að leysa dularfulla morðgátu sem tengist lottóvinningum og nota til þess óvenjuiegar aðferðir sem feiast í því að komast inn í vitund glæpamanns- ins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.