Morgunblaðið - 01.12.1995, Side 38

Morgunblaðið - 01.12.1995, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 3S Jllrogntiitöifeife STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FRIÐ ARFRAML AG BANDARÍKJANNA BILL Clinton Bandaríkjaforseti kom í gær í opinbera heimsókn til Norður-írlands, fyrstur starfandi for- seta Bandaríkjanna. Það fer ekki milli mála að Banda- ríkjastjórn átti mikinn þátt í því að samkomulag náðist fyrr í vikunni um að hefja friðarviðræður um Norður- írland á ný. Framlag Clintons og Bandaríkjastjórnar réð einnig úrslitum varðandi þá lausn er fundist hefur á Bosníudeil- unni. Sú ákvörðun að senda fjölmennt bandarískt herlið til Bosníu og skuldbinda Bandaríkin þar með til beinna afskipta af deilunni er til marks um pólitískt hugrekki, ekki síst í ljósi þess að forsetakosningar fara fram á næsta ári. Án afskipta Bandaríkjastjórnar er hins vegar ólíklegt að hægt hefði verið að leysa deiluna. Þátttaka og aðstoð Bandaríkjastjórnar hefur einnig skipt sköpum í friðarviðræðunum í Mið-Austurlöndum. Margir höfðu á sínum tíma efasemdir um utanríkis- málastefnu Clintons enda lagði hann í kosningabarátt- unni og upphafi forsetaferils síns megináherzlu á innan- ríkismál. Þeirrar tilhneigingar hefur einnig gætt í Bandaríkjun- um á síðustu misserum að beina sjónum inn á við. Sögu- leg fordæmi eru fyrir bandarískri einangrunarstefnu. Saga þessarar aldar sýnir okkur hins vegar einnig að Bandaríkin eru eina rikið sem er þess megnugt að gegna forystuhlutverki í baráttunni fyrir friði og lýðræði. Á sunnudag undirritar Bill Clinton á Spáni umfangs- mikið samkomulag um að efla og treysta samstarf Evr- ópusambandsins og Bandaríkjanna á fjölmörgum svið- um. Kjarni samkomulagsins er að samskipti Bandaríkj- anna og Evrópuríkja séu það mikilvæg að ekkert megi verða til að varpa skugga á þau. Þetta samkomulag er enn ein staðfesting þess mikil- vægis sem Clinton leggur greinilega á samskiptin við Evrópu og hlutverk Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi. Hann hefur sýnt að hann er reiðubúin að axla þá ábyrgð er fylgir forystuhlutverki Bandaríkjanna, jafnvel þó að í því felist pólitísk áhætta heima fyrir. Þróunin á Norð- ur-írlandi, í Bosníu og Mið-Austurlöndum sýnir jafn- framt að engu minni þörf er fyrir þessa forystu en fyrr á öldinni. VINNUFRIÐUR ÆTLA verður að með því samkomulagi, sem náðst hefur á milli ASÍ og VSÍ og með þeim aðgerðum, sem ríkisstjórnin hefur tilkynnt af sinni hálfu hafi vinnu- friður verið tryggður og jafnvægi treyst í efnahagsmál- um út næsta ár. Þótt einstök aðildarfélög Verkamanna- sambands íslands hafi sagt upp samningum er líklegt, að þau muni endurskoða afstöðu sína á næstu dögum. Fari svo, að Félagsdómur úrskurði uppsögn verkalýðsfé- lagsins Baldurs á ísafirði ólöglega má búast við, að ^önnur aðildarfélög VMSÍ láti kyrrt liggja. Launþegar hafa fengið umtalsverðar kjarabætur út úr þeim viðræðum, sem staðið hafa að undanförnu milli aðila vinnumarkaðar og við ríkisstjórn. Talið er, að þeg- ar á heildina er litið muni kaupmáttur launþega batna um eitt prósentustig til viðbótar við það, sem áður hafði verið áætlað til loka samningstímans eftir eitt ár. Það er sérstök ástæða til að fagna því, að ábyrgir aðilar innan verkalýðshreyfingarinnar hafa tekið af skar- ið með þessum hætti. Það var ekkert vit í því út frá hagsmunasjónarmiði launþega að efna til ófriðar á vinnu- markaði og fórna mörgu af því, sem áunnizt hefur eins og rakið var í forystugrein Morgunblaðsins í fyrradag. Nú hefur tekizt samfleytt í 6 ár að halda jafnvægi í samskiptum vinnuveitenda og launþega um kaup og kjör. Það er mikilsverður árangur. Niðurstöður þeirra sviptinga, sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur eru ótvíræð vísbending um, að samskipti aðila vinnumarkað- ar séu komin í farsælan farveg og engin ástæða til að ætla annað en að takast megi að halda því jafnvægi út öldina. NIÐURSTAÐA LAUNAIUEFIMDAR Morgunblaðið/Kristinn Formenn ræða málin FORMENN aðildarfélaga Alþýðusambands íslands báru saman bækur sínar á fundi síðdegis í gær. * * Launanefnd ASI og VSI komst í gær að þeirri niðurstöðu að forsendur kjarasamn- inga á almennum vinnumarkaði stæðust. Jafnframt ákvað nefndin að leggja til þá breytingu á samningum að hækka desem- beruppbót hjá þeim, sem lægsta uppbót hafa. Morgunblaðið leitaði álits nokkurra verkalýðsleiðtoga á niðurstöðunni. Sigurður Tr. Sigurðsson Selja okkur ekki sama pakka aftur og aftur „NÚ hefur enn verið staðfest að það eru tvær þjóðir í landinu. Ríkisstjórn- in styður þá ríkari, hinir mega éta það sem úti frýs. Það éru engar for- sendur til að þiggja það sem boðið er upp á,“ sagði Sigurður Tr. Sigurðs- son, formaður Verkamannaféiagsins Hlífar í Hafnarfirði. Sigurður sagði að það væri ekki í valdi sín eins að ákveða hvort upp- sögn samninga yrði dregin til baka. „Það, sem nú hefur verið samið um, kemur aðeins hluta okkar félags- manna til góða. Sem dæmi um það má nefna að verkamaður þarf að starfa hjá vinnuveitanda í 20 vikur til að eiga rétt á desemberuppbót. Hjá ófaglærðum eru breytingar á atvinnu svo örar, að þeir missa oft uppbótina. Á meðan þessu er ekki breytt er tómt mál að koma með svona sýndarboð." Sigurður sagði að ríkisstjórnin hefði verið búin að Iofa skattfrelsi á lífeyrisiðgjöldum, með ákveðnum reglum. „Þessu var búið að lofa og ríkisstjórnin selur okkur ekki sama pakkann aftur og aftur. Fleira var gefíð í skyn við kjarasamninga, það var svikið og núna er það sett fram sem einhveijar kjarabætur. Þetta er hrein blekking og á heima í Útvarpi Matthildi, en ekki hjá okkur.“ Sigurður kvaðst j gærkvöþdi ekkert hafa .heyrt frá ASÍ eða VSÍ. „Félög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesj- um hafa ekki hlotið náð fyrir augum svokallaðra toppa í ASI. Fulltrúar utan af landi standa mun betur að vígi, þótt miklu færri standi að baki þeim. Ég er ekki að tala um klofn- ing, en það þarf að breyta mjög miklu hjá ASI.“ Hervar Gunnarsson Meirihlutinn taldi forsend- ur standast „ÞAÐ er í valdi stjórnar félagsins og trúnaðarmannaráðs að stíga næsta skref. Meirihluti launanefndar komst að þeirri niðurstöðu að forsendur samninganna hefðu haldist, en við höfum frest til 8. desember að taka ákvörðun um framhaldið," sagði Her- var Gunnarsson, formaður Verkalýðs- félags Akraness og 2. varaforseti ASÍ> Hervar sagði skoðanamun innan ASÍ, _en ekki klofning. „Félög innan VMSÍ lögðu áherslu á hækkun á laun- atöxtum, sem ekki varð. Við verðum að vinna okkur í gegnum þetta.“ Aðspurður vildi Hervar ekki spá neinu um hvort félagið myndi draga uppsögn sína til baka. Kristján Gunnarsson Ríkissijórn og ASÍ eiga að skamm- ast sín „MIÐAÐ við tóninn, sem ríkti á fé- lagsfundi, þá hafna menn allsnarlega því sem boðið er,“ sagði Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. „Ef þeir sem eru í forystu verkalýðshreyf- ingarinnar halda að einhvetjar sjö þúsund krónur bjargi vanda láglauna- heimila, þá eru þeir verulega firrtir." Kristján sagði að ríkisstjórnin setti svokallaðar kjarabætur fram með þeim hætti, að hóta fyrst skerðingu, en láta svo eins og verkalýðshreyfing- unni væri gerður sérstakur greiði með því að hætta við þau áform. „Ríkis- stjórnin og forysta ASÍ eiga að skammast sín.“ Kristján sagði forystumenn _ASÍ langt frá forystumönnum VMSÍ og greinilegur klofningur. Aðspurður hvort hann reiknaði með að félagið drægi uppsögn sína til baka kvaðst hann ekki geta sagt til um það fyrr en félagsmenn hefðu fundað. „Guð- irnir sendu mér fax áðan og gáfu frest til 8. desember að draga upp- sögn til baka, svo tíminn er nægur,“ sagði Kristján og vísaði þar til VSI. Jón Kjartansson Aumingja- skapur og lít- ilsvirðing „NIÐURSTAÐAN er ákaflega dapur- leg og mér þykir leitt að þurfa að segja að aumingjaskapur verkalýðs- hreyfingarinnar er að verða algjör," sagði Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. „Við vissum af klofningi í gær- kvöldi og uppsögn okkar er í raun táknrænn stuðningur við VMSÍ og formann þess. Það er búið að mis- bjóða láglaunafólki svo, að það er ekki hægt annað en að reyna að reisa rönd við þeirri lítilsvirðingu sem at- vinnurekendur og stjórnvöld sýna þeim, sem þeir telja sig eiga í fullu tré við. Þetta er til skammar.“ Jón sagði ríkisstjórnina bjóða það sem búið hefði verið að lofa. Hann gæti tekið undir samlíkingu formanns VMSÍ, að ríkisstjórnin væri eins og þjófur, sem stæli öllu innbúi manns, en byðist svo til að 'afhenda hjónarúm- ið ef íbúðareigandinn hefði sig hæg- an. „Stjórnvöld hafa alltaf leikið þetta, bæði hægri og vinstri stjórnir. Það verður hins vegar að koma í Ijós hvað við getum gert. VSÍ og ríkis- vald telja sig hafa lögin sín megin og það er nú ekkert nýtt.“ Jón sagði að gjáin milli láglauna- fólksins og þeirra sem betur mega væri alltaf að breikka innan ASÍ. „Það er beðið eftir að láglaunafólkið í Verkamannasambandinu leggi neðsta lag í launakökunni og svo koma hinir og vilja allir vera talsvert hærri.“ Grétar Þorsteinsson Ekki klofn- ingur inn- an ASÍ „EINS og málin horfa við nú gerum við ekki athugasemdir við afstöðu meirihluta launanefndar og töldum ekki stöðu til að segja upp samning- um,“ segir Grétar Þorsteinsson for- maður Samiðnar. „Það þýðir hins vegar ekki að við séum sáttir við ástandið, en það er önnur saga.“ Hann segir Samiðnarmenn hafa litið svo á frá upphafi að ákvörðun um uppsögn samninga lægi alfarið hjá launanefnd aðila vinnumarkaðar- ins, en ekki hjá einstökum félögum. Friður ræðst af viðbrögðum „Eg hef ekkert í höndunum til að meta hvað þessi félög gera og lít ekki svo á að afstaða þeirra sýni klofning innan ASI, því það eru ein- faldlega uppi misjafnar skoðanir í þessum efnum. Afstaða Samiðnar er Ijós, en ég ber samt fulla virðingu fyrir skoðunum annarra og þau félög sem hafa sagt upp verða að gera það sem þeim þykir skynsamlegast við þessar aðstæður. Það á eftir að koma í ljós hvernig félögin halda á málum, en mér þykir ólíklegt að í ljós komi að verkalýðshreyfingin þoli ekki að uppi séu mismunandi skoðanir um þessa ákvörðun eða önnur efni. Ég þori hins vegar ekki að meta á þess- ari stundu hvort við horfum fram á fjölda sérsamninga eða ekki,“ segir Grétar og kveðst telja að hugleiðingar um hvort friður muni ríkja á vinnu- markaði næstu mánuði ráðist mjög af frekari viðbrögðum þeirra félaga sem hafa sagt upp. „Við vitum að núverandi samning- ur rennur út eftir þrettán mánuði. Við munum auðvitað nota tímann til fulls og munum væntanlega strax í vetur hefja undirbúning á endurnýjun kjarasamninga, þar sem þeir verða augljóslega og óumdeilanlega opnir innan skamms. Við teljum okkur eiga ýmislegt vantalað við okkar viðsemj- endur,“ segir hann. Jón Karlsson Vil meiri samstöðu „VIÐ hefðum viljað sjá meiri sam- stöðu og öðru vísi haldið á málum, enda mikil ólga í mörgum aðildarfé- lögum Verkamannasambands Is- lands,“ segir Jón Karlsson, formaður verkalýðsfélagsins Fram á Sauðár- króki og varaformaður VMSÍ. „Hins vegar eru ýmsar fleiri hliðar á þessu máli, enda ekki algengt að kjarabót- um sé náð inn í samninga sem ekki eru lausir." Fram sagði ekki upp samningum, en Jón segir þá afstöðu ekki sýna ágreining innan forystu VMSÍ um uppsögn, heldur sé það einfaldlega vegna anna hans fyrir sambandið að ekki hafi gefist ráðrúm til að taka afstöðu innan _ stjórnar félagsins á Sauðárkróki. „Ég læt það ósagt hvort að Fram hefði sagt samningum upp, en hins vegar ályktaði stjórn félagsins í þeim anda eins og önnur félög innan VMSÍ, en félagsfundur komst ekki á sökum anna minna seinustu vikur,“ segir Jón. Athuga sinn gang Hann segir núverandi ástand sýna að samstaðan innan ASÍ sé ekki mjög þétt. „Ég hef hins vegar þá trú að félög, sem eru að segja upp núna, eigi eftir að athuga sinn gang aðeins betur, enda var ákvörðun þar að lút- andi tekin í mikilli tímaþröng. Ég sé ekki fyrir mér klofning innan ASI og tel mikilvægast að menn standi sam- an nú til að búa sig undir næstu samn- ingagerð," segir Jón. Hann kveður ekki ljóst hvort friður muni ríkja á •vinnumarkaði næstu þrettán mánuði, en niðurstaða Fé- lagsdóms í máli Baldurs á ísafirði muni væntanlega hafa mikið að segja um þróunina. Guðmundur Þ. Jónsson Oánægður með niður- stöðu launa- nefndar „ÉG er mjög óánægður með niður- stöðu launanefndar og firinst desemb- eruppbótin lítil og ekki til mikillar jöfnunar, ekki síst miðað við þróunina sem verið hefur síðan í febrúar," seg- ir Guðmundur Þ. Jónsson formaður Iðju. Stjórn Iðju ákvað að segja ekki upp samningum, en klofnaði í afstöðu sinni, þannig að fimm greiddu at- kvæði á móti uppsögn, þrír með og tveir sátu hjá. Guðmundur var einn þeirra sem voru mótfallnir uppsögn. „Knappur meirihluti taldi rétt að í ljósi þeirrar óvissu sem skapaðist við að segja upp samningnum, væri rétt að una þessari niðurstöðu. Það breyt- ir ekki þeirri skoðun minni að launa- nefndin hefði átt að segja upp samn- ingum og hefði launþegahreyfingin verið samstíga og sýnt styrk í sam- stöðu, hefðum við getað rétt okkar hlut. Ég harma það í raun að við skyldum sleppa því tækifæri," segir hann. Ekki samstíga Hann' kveðst telja afstöðu þeirra félaga sem hafa lýst yfir uppsögn og skiptar skoðanir í launanefnd sýna að verkalýðshreyfingin væri augljós- lega ekki samstillt. „Hvort ég geti beinlínis talað um klofning er annað mál og það er ekki svo að félög séu að segja sig úr Alþýðusambandinu. Fyrr hefur gerst að misjafnar skoðan- ir séu innan ASÍ, enda ekki óeðlilegt. Hreyfingin stendur þetta af sér því að hún stendur á traustum merg,“ segir hann. Hann segir torvelt að spá um þróunina á vinnumarkaði á næstu mánuðum. Væntanleg niðurstaða Fé- lagsdóms í máli verkalýðsfélagsins Baldurs á ísafi'rði sé prófmál í hans huga. „Mér þætti skrýtið ef dómurinn kæmist að ólíkri niðurstöðu í öðrum samskonar málum, en ef uppsögnin verður tekin gild er svigrúm hjá þeim félögum, sem hafa sagt upp, til að hreyfa sig,“ segir Guðmundur. Magnús L. Sveinsson Ekki á valdi félaga að segja upp „NIÐURSTAÐA launanefndar kom mér ekki á óvart,“ segir Magnús L. Sveinsson formaður Verslunarfélags Reykjavíkur. „í samningum er skýrt kveðið á um hvað þurfi til að segja upp samningum, þ.e. neikvæð verð- lagsþróun, og allir viðurkenna að hún er innan þeirra marka sem forsendur gerðu ráð fyrir.“ Magnús kveðst telja að eftir loforð ríkisstjórnar á miðvikudag um að- gerðir í kjaramálum hafi þorri form- anna félaga launþega talið að yfirlýs- ing ríkisstjórnar frá því í febrúar stæðist. „Það breytir hins vegar ekki því að menn sjá að launajöfnunarstefna hefur raskast, en það er ekkert ákvæði í okkar samningum sem kveða á um að þó að launabilið aukist fáist heimild til uppsagnar. Það er mikill misskilningur hjá einstökum félögum, að mínu mati, að þau geti sagt upp samningunum. Skýrt er tekið fram í samningum að það er á valdi launa- nefndar, eins og hver læs maður get- ur séð, þannig að ekki er hægt að misskilja það,“ segir Magnús. Eins samningar útilokaðir Hann kveðst telja augljóst að skipt- ar skoðanir innan launanefndar og uppsögn félaganna tuttugu og þriggja sýni alvarlegan_ klofning innan Al- þýðusambands íslands. „Þetta segir manni að aldrei verður hægt að gera samning eins og þann sem er nú í gildi aftur. Menn voru með febrúarsamningunum að reyna að tryggja að þeir sem bera minnst úr býtum fengju mest af bata sem er í þjóðfélaginu. Síðan gerist það með úrksurði Kjaradóms og gjörningi for- sætisnefndar um miðjan september að þingmenn taka sér 60-120 þúsund krónur í launahækkanir og sprengja um leið allt saman í loft upp og fara í þveröfuga átt við það sem þeir lögðu áherslu á við okkur. Alþingismenn og stjórnvöld bera því fyrst og fremst ábyrgð á þeim óróleika sem er í þjóðfélaginu." Kostnaður vinnuveitenda vegna hækkunar desemberuppbótar er 800 millj. Meðallaun ASI hækkaum 1,1% SAMKOMULAG vinnuveitenda og tveggja fulltrúa ASÍ í launanefnd gerir ráð fyrir að desemberuppbót hækki í ár úr 13.000 krónum í 20.000 krónur. Gildandi samningar mæla fyrir um að desemberuppbót á næsta ári verði 15.000 krónur, en samþykkt launanefndar gerir ráð fyrir að hún fari í 24.000 krónur. Úm 15.000 félagsmenn Alþýðusam- bandsins fá enga hækkun þar sem þeir hafa í sínum samningum ákvæði um hærri desemberuppbót. Útgjöld vinnuveitenda vegna hækkunar á desemberuppbót eru metin á samtals um 800 milljónir króna. Upphaflega buðust vinnuveit- endur til að hækka launaútgjöld sín um 500-600 milljónir, en þeir bættu við tilboð sitt á síðasta fundi launa- nefndar í gær. Sú hækkun á desemberuppbót, sem samið var um í launanefndinni er varanleg. Uppbótin verður 24.000 í lok samningstímans. Hækkunin í ár og á næsta ári þýðir um 1,1% hækkun meðallauna. Þeir sem hafa lægri laun fá hlutfallslega meira. Þannig fær maður sem hefur 65.000 krónur í mánaðarlaun 2,1% hækkun launa. Desemberuppbot Hefði Verður: 24.000 orðið: 1. des. 1. des. 1995 1996 Þessihækkun leiðirtil 1,1% hækkunar meðallauna 1. des. 1. des. 1995 1996 Breytingar á verði grænmetis og svína- og allíuglaafurða er taldar lelða tila.m.k. 0,3% aukningar á kaupmætti. Breyting á desemberuppbót miðar m.a. að þvi að samræma hana milli launahópa í landinu, en opinberir starfsmenn hafa fengið mun hærri uppbót í desember en almenni mark- aðurinn. U.þ.b. 6.000 félagsmenn ASÍ vinna hjá ríki og sveitarfélögum. Þeir hafa fengið yfir 20.000 krónur í desemberuppbót. Sama á við u.þ.b. 8.000 aðra félagsmenn ASÍ. Þessi hópur fær enga hækkun launa sam- kvæmt samkomlagi launanefndar frá í gær. Áformað er að afnema allar verð- lagshömlur á svínakjöti, eggjum og alifuglakjöti. Jafnframt gera tillögur ASÍ og vinnuveitenda ráð fyrir að- tollar á innfluttu grænmeti verði lækkaðir. Gylfi Arnbjörnsson, hag- fræðingur ÁSÍ, sagði að varlega áætlað gætu þessar breytingar leitt til 0,3% meiri kaupmáttar. Hugsan- lega gæti kaupmáttaraukningin orð- ið meiri. Skattleysismörk hækka Skattleysismörk eru í dag 58.536 krónur. Við gerð samninganna í febr- úar hét ríkisstjórnin því að hætta tvísköttun á iðgjöldum í lífeyrissjóð. Þessi breyting átti að koma til í áföngum. Mörkin áttu að fara í 59.014 krónur um næstu áramót. í fjárlagafrumvarpinu ákvað ríkis- stjórnin að afnema tengingu per- sónuafsláttar við vísitölu, en það hefði leitt til mun minni hækkunar, í fyrradag samþykkti ríkisstjórnin að falla frá þeim áformum. "Þetta þýðir að skattleysismörkin hækka 1. júlí 1996 í 60.660 krónur. Morgunblaðið/RAX FORYSTUMENN VSÍ bera saman bækurnar á sambandsstjórnarfundinum í gær, Víglundur Þorsteins- son varaformaður, Þórarinn J. Þórarinsson framkvæmdastjóri og Ólafur B. Ólafsson formaður. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ Býst við að félög falli frá uppsögnum ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands, segir vinnuveitendur ganga út frá því að félög Verka- mannasambandsins, sem sögðu upp kjarasamningum í gær, dragi upp- sögnina til baka í ljósi yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og tilboðs VSÍ um kjarabætur. Sambandsstjórn VSÍ var kölluð saman með stuttum fyrirvara á Hótel Loftleiðum í hádeginu í gær og sam- þykkti hún samningsumboð til samn- inganefndar sambandsins. „Niður- staðan hjá sambandsstjórninni var sú að rétt væri að teygja sig langt,“ seg- ir Þórarinn. „Vinnuveitendur eru að bæta við 800 milljónum króna á samn- ingstímanum og það er miklu til ko- standi að halda trausti." Þórarinn segir að á sambands- stjórnarfundinum hafi menn verið sáttir við að bjóða þá hækkun desemb- eruppbótar, sem raunin varð, en ekki tilbúnir að ganga lengra. Hann segir það valda nokkrum von- brigðum hversu seint niðurstaða hafi fengizt í málið. „Þessar uppsagnir, sem Verkamannasambandið hefur hvatt til meðal aðildarfélaga sinna, eru augljós- lega ákveðnar áður en yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar kom fram og áður en okkar innlegg kom fram seinni partinn í dag [í gær]. Við göngum því út frá því að félögin taki nú tíma til að endur- meta stöðuna. Þau hafí talið sér nauð- synlegt að senda uppsagnimar inn nú fyrir mánaðamótin til að falla ekki á því. Við væntum því að málið komi til endunnats í félögunum á næstu vik- um,“ segir Þórarinn. Hann segist raunar vita, eftir samt- öl við forystumenn nokkurra þeirra félaga VMSÍ, sem hafi sagt samning- unum upp, að málið verði endurmetið í næstu viku vegna breyttra viðhorfa. „Þetta eru ný viðhorf, sem ég trúi að komi nokkuð á óvart. Ég held að menn hafi ekki átt von á að sextán þúsund króna launaauki lægi á lausu fyrir næsta ár. Við metum það svo að nú sé búið að tryggja að kaupmátt- urinn fari vel vaxandi á næsta ári. Af okkar hálfu eru bundnar verulegar vonir við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um verðlagsmál. Við væntum góðs samkomulags um aðgerðir, sem geti stuðlað að lækkandi matvælaverði í þessu samhengi." Tvær ákvarðanir Þórarinn leggur áherzlu á að launa- nefnd ASÍ og VSÍ hafi tekið tvær sjálf- stæðar ákvarðanir í gær. Annars veg- ar hafi hún komizt að þeirri niður- stöðu að forsendur kjarasamninga séu; ekki brostnar. Verðbólga sé vel innar við það, sem hún sé í samkeppnislönd- unum, og ríkisstjórnin hafi jafnframt staðið við yfirlýsingu sína frá því fyrr á árinu með viðunandi hætti. Hins vegar hafi nefndin tekið sjálf- stæða ákvörðun um að leggja til breyt- ingar á desemberuppbót þeirra, sem sömdu fyrir 15. apríl og njóta því lægri uppbótar en þeir sem sömdu síðar. „Þarna er verið að reyna ac fylgja eftir launajöfnunarmarkmiðun- um, sem ýmsir kunna að halda að hafi gengið á skjön hér og þar,“ seg- ir Þórarinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.