Morgunblaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 51
MINNINGAR
ljúfmenni í allri framkomu og kunni
manna best að segja frá. Margar
sögurnar um skondin atvik og
skemmtileg sagði hann okkur og
minni hans um liðinn tíma var
undravert.
Þau Guðný og Bjössi voru afar
samhent í öllu. Þau eignuðust 6
börn og dóttursonur þeirra ólst
meira og minna upp hjá þeim. Það
var því oft þröng á þingi í litla
húsinu á Hverfisgötu 39. Margrét,
móðir Bjöms, bjó einnig í hluta
hússins ásamt Jóhönnu, systur
Bjöms, en þau systkini vom mjög
samrýnd. Þá var ávallt gestkvæmt
hjá þeim hjónum og margur kaffi-
sopinn drukkinn og lífsgátan rædd.
Og það var ekki aðeins mannfólkið
sem leit við á Hverfísgötu 39, því
bæði vom þau miklir dýravinir og
það var fastur liður þegar komið
var í heimsókn að sjá mjólkurlögg
í skál og fiskbita á diski á veggnum
utan dyra, sem heimilislausir kettir
nutu góðs af.
Björn var langdvölum á sjó og
það kom því í hlut Guðnýjar að
annast heimilið í löngum fjarverum
Björns, eins og títt er með sjó-
mannskonur. En þegar Björn var í
landi tók hann sannarlega til hend-
inni við heimilisstörfin. Guðný hafði
það oft á orði við okkur bræður hve
óþreytandi bóndi sinn væri að létta
sér störfin, þó oft hafi hann komið
örþreyttur heim úr erfiðri sjóferð.
Það gefur augaleið að tómstund-
Amerfsku
heilsudýnurnar
Jólatilboð 1 Dýna - Queen stærð frá kr. 47.800 stgr.
Rekkjan hf.
Skipholti 35 • Sími 588 1955
fYRIRTÆKI
STOfNANIR.
VELJIÐ
ÍSLENSKAR
VÖRUR
íslenskt">M já takk
BÓKHALDSKERFI
HAGKVÆM LAUSN FYRIR
WORKGROUPS NETKERFI
glKERFISÞRÚUNHF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
ir hafa ekki verið margar á 9 manna
heimili en eitt var það sem Björn
fékkst við þegar tími gafst frá lífs-
baráttunni og svo hin síðari ár. Það
var ráðning á myndagátum og
krossgátum. Vitum við engan hon-
um fremri í þeim efnum. Gilti einu
hvort krossgátan var á íslensku eða
dönsku og jafnvel ensku. Þá vitum
við ekki til þess að honum hafi
mistekist að brjóta til mergjar þær
óteljandi myndagátur sem hann
glímdi við. Þau voru ekki fá skiptin
sem hringt var til hans þegar allt
var komið í strand með einhveija
myndagátuna og aldrei komið að
tómum kofunum.
Björn var fyrir nokkrum árum
kominn á eftirlaunaaldur og heilsa
hans var slík að flestir bjuggust við
að hann ætti mörg ár eftir og þau
Guðný gætu notið efri áranna sam-
an. Það var honum og fjölskyldunni
því mikið áfall þegar Guðný lést
skyndilega fyrir þremur árum. Ann-
að áfallið varð síðan þegar það
uppgötvaðist að hann gekk með
þann sjúkdóm sem svo marga hefur
lagt að velli. Í þeirri baráttu birtist
okkur sú hetjulund sem einkenndi
Bjöm í erfiðleikum. Aldrei var
kvartað og fremur brugðið á létta
strengi. Margoft virtist komið að
leiðarlokum en hann reis jafnóðum
upp af sjúkrabeði aftur og hélt
heim. Það var þó sýnt að hveiju
dró og honum var það best ljóst
sjálfum. Björn flíkaði ekki trú sinni
en í samtölum kom fram að hann
kveið í engu þeim vistaskiptum sem
framundan voru og fagnaði þeim
endurfundum sem hann vissi að
biðu hans.
Það verður tómlegra að fara
Hverfisgötuna eftirleiðis. Mannlífið
heldur að sjálfsögðu áfram en flest-
ir þeir sem við þekktum í bernsku
eru nú farnir yfir móðuna miklu.
Við eigum ekkert nema góðar
minningar um Björn Þorleifsson og
þökkum að leiðarlokum fyrir þá
vináttu sem hann alla tíð sýndi fjöl-
skyldunni í Strandarhúsinu.
Börnum hans öllum, systrum
hans, Jóhönnu og Sigríði, og öðrum
skyldmennum, sendum við samúð-
arkveðjur og við vitum að allar þær
góðu minningar sem þau eiga um
Björn eru huggun harmi gegn.
Bræðumir í Strandarhúsinu.
BARNAHLJOMLISTINA
faerð þú hjá okkur
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 - Sími 5512136
A
my
- með hollum mat!
Manneldisráð
mmtftmtmmrn
Sirria
daaar
'mmsm
1 ' 4
■ Jj *
Söludeild Pósts og síma í Ármúla 27
hefur verið breytt og hún endur-
bætt. Af því tilefni verðum við með
símadaga í versluninni þar sem við
bjóðum. afslátt af nokkrum úrvals
símum og faxtækjum.
Verið velkomin í glæsilega og endur-
bætta söludeild þar sem hægt er að
gera sannkölluð reyfarakaup.
Motorola Flare GSM
Breyftur afgreiðslutíini
Opið mán-t'ös. frá kl. 9-18
Sagem Safax
Léttur og meðfæri-
legur GSM farsími.
Þyngd aðeins 212 g.
49.900,-
Traust faxtæki.
34.860,-
Benefon Delta
Léttur og meðfæri-
legur NMT farsími.
Þyngd 350 g.
99.980,-
Jupiter
Ódýr og traustur borðsimí.
Sanyo 980
Sagem Safax 140 RC
Vandað faxtæki m/símsvara
og pappirsskera.
59.900,-
44.780,-
Söludeild Pósts og síma Ármúla 27 - nýtt símanúmer: 550 7800 - nýtt faxnúmer. 550 7809
Léttur og á|
traustur "
þráðlaus sfmi .
24.980,-
Beocom 9500 GSM
Telepocket
Létturog I
traustur
þráðlaus
sími.
25.200,-
Lltill farsími fyrir
GSM farsímakerfið.
Þyngd aðeins 225 g.
Opib laugardag og sunnudag
frá ki. 13-17
PÓSTUR OG SÍMI
VISA - EURO RAÐGREIÐSLUR