Morgunblaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 53 MIIMIMINGAR JÓHANNA ÞÓREY DANÍELSDÓTTIR + Jóhanna Þórey Daníelsdóttir fæddist 26. júlí 1901 á Blikalóni á Melrakkasléttu. Hún andaðist á Sól- vangi í Hafnarfirði hinn 23. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þorbjörg Jónas- dóttir og Daníel 111- ugason. Hún átti eina alsystur og fjögur hálfsystkini og eru þau öll látin. Hinn 1. febrúar 1924 giftist hún Þóri Þorsteins- syni frá Litlu-Reykjum í Reykjahverfi. Fyrstu búskap- arár sín bjuggu þau á Blikalóni JÓHÖNNU varð tíðrætt um þá góðu daga sem hún átti í æsku á Blika- lóni. Þar var mikill búskapur, tólf manns í heimili og mikill gesta- gangur. Það var að mörgu að huga og allir sem vettlingi gátu valdið höfðu sín verk að vinna. í lónunum sem bærinn dregur nafn sitt af var mikið af silungi, sem að hennar sögn hafði einstakt bragð. Hún hafði alla tíð gaman af veiðiskap og fór hún í síðustu veiðiferð sína í Hvammsvík með barnabarnaböm- um sínum, þá orðin níræð, og dró að iandi tvo væna silunga. Dún- tekja úr hólmunum var einnig mik- il og voru börnin látin hreinsa dún- inn. Hún minntist þess oft hve móðir hennar, Þorbjörg, var mikil sagnakona. Þegar börnin fóru að þreytast við dúnhreinsunina sagði hún þeim gjarnan eina af sínum og árið 1935 flutt- ust þau að Ytra- Krossanesi í Eyja- firði og bjuggu þár til vorsins 1945 er þau fluttust ásamt börnum sínum al- farin til Reykjavík- ur. Þórir lést 13. ágúst 1970. Jó- hanna og Þórir eigmiðust 7 börn. Þau eru: Hulda, Sigurborg sem er látin, Þorsteinn, Jón Skúli, Jónatan, Daníel Eyþór og Kári. Jóhanna verður jarðsungin í Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. skemmtilegu sögum. Jóhanna talaði oft um að á Blikalóni hafi alltaf verið nægur matur en öll matargerð fór fram á heimilinu. Hihn hefð- bundni, íslenski matur var ávallt á borðum hjá henni þegar boðið var til veislu. Jóhönnu var margt til lista lagt. Þegar hún var um tvítugt fór hún til Akureyrar til að læra að sauma karlmannafatnað. Hún talaði oft um það hve fljótt það kom í ljós að hún hneigðist til saumaskapar. Það átti eftir að koma sér vel að geta saumað flíkur á öll börnin og ekki má gleyma hve mörgum hún miðlaði af þekkingu sinni. Hún saumaði gjarnan fallega ungbarna- jakka þegar nýtt líf var í vændum og urðu þeir síðustu til þegar hún var um nírætt. Þegar hún fór að hafa góðan tíma fyrir sig fór hún að búa til ýmsa fallega hluti, alla unna úr efnum náttúrunnar. Mörg okkar hafa eignast falleg skrín skreytt kuðungum, skeljum og hval- tönnum. Einnig pressaði hún blóm og bjó til fallegar myndir. í húsi Jóhönnu og Þóris ríkti ávallt mikil gestrisni og gleði. Þau voru einstaklega samhent hjón og báru mikla virðingu hvort fyrir öðru. Þegar fjölskyldan kom saman var oft mikið sungið og börn jafnt sem fullorðnir höfðu gaman af. Laufabrauðsgerðin er okkur öll- um minnisstæð og voru líkt og „litlu jólin“ fyrir börnin. Haldið hefur verið í þessa hefð og reynt að hafa hana með svipuðu sniði og í þá gömlu góðu daga. Um síðustu jól var Jóhanna með okkur í laufa- brauðsgerðinni og fletti kökum, þá orðin 93 ára gömul. Jóhanna hélt sínu góða minni og allri sinni reisn allt fram til hins síðasta. Minningin um hana mun lifa í hugum okkar allra. Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi. Hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi og gæfa var það öllum er fenp að kynnast þér. (Ingibjörg Siprðardóttir) Jónatan, Ragnhildur, Elva Björk og Guðrún Dís. Að morgni fimmtudagsins 23. nóvember lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði yndisleg og góð kona að nafni Jóhanna Þórey Daníelsdóttir, 94 ára. Þessi góða kona sem er farin frá okkur var hún amma mín. Það er með miklum söknuði og trega sem ég kveð hana en jafnframt gleði, gleði yfir að hafa átt þessa yndislegu konu að í gegnum árin. Ég og amma vorum mjög nánar og var mikið og gott samband í gegnum árin. Sérstaklega þegar ég var ung. Svo margs er að minnast frá lið- inni tíð, en mér eru minnisstæðast- ar ferðirnar í Hvalfjörð þar sem afi minn heitinn starfaði sem verkstjóri í Hvalstöðinni. Ég og systur mínar vorum mikið hjá þeim á sumrin og var þá oft glatt á hjalla og mjög gaman. Samverustundirnar þegar bömin og barnabörn komu saman fyrir jól í laufabrauð á Langholtsveginum eru einnig í huga mínum á þessari stundu. Amma mín var fyrirmyndar hús- móðir, sem hugsaði vel um sig og sína. Hún var flink að baka og vom kleinur, plattar, laufabrauð og kök- ur alltaf vinsælar hjá henni. Á tímabili bjuggu foreldrar mínir og við systurnar hjá ömmu og afa á Langholtsveginum vegna bygg- ingaframkvæmda sem foreldrar mínir stóðu í á Tunguhálsinum. Amma mín var lánsöm í einkalíf- inu. Ung giftist hún afa mínum, Þóri Þorsteinssyni. En hann lést fyrir mörgum árum. Veit ég að afí hefur tekið vel á móti henni. Þau eignuðust 6 börn, eina dóttur og 5 stráka. Urðu bamabörnin mörg og einnig barnabarnabörnin. í sumar, hinn 2. ágúst eignuð- umst við Gaui myndarlegan strák sem við létum skíra Olaf Þóri, og var amma mín mjög ánægð með það. Elsku pabbi, Hulda, Kári, Eyþór, Jónatan og Steini. Betri og ástrík- ari móður gátuð þið ekki fengið og mun minningin um hana alltaf lifa í hjörtum okkar allra. Ég kveð ömmu mína með virð- ingu og þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur og það gerir fjöl- skylda mín líka. Ég sendi ástvinum ömmu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku amma mín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. «% Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Þín nafna, Jóhanna Þórey. Okkur systkinin langar með nokkrum orðum að minnast ást- kærrar langömmu okkar, sem hefur nú yfirgefíð þennan heim. Ekkert okkar getur rifjað upp okkar fyrstu kynni við hana, hún hefur ávallt verið hluti af tilverunni, að fara til ömmu Jóhönnu var hluti af því að fara til ömmu Huldu. Og við bræð- urnir réttum ósjálfrátt aðeins úr bakinu þegar hún tók á móti okkur með orðunum: „Þama koma höfðin- gjarnir." Aldrei þreyttist hún að predika yfir unga fólkinu hin gömlu góðu gildi og átti það til að fussa og sveia yfir framferði ungdómsins í dag, allt var þetta vel meint og"^* til þess að stuðla að betra lífi þeirra sem á hlýddu. Og hún hafði lúmskt gaman af því að láta hneyksla sig_ aðeins svo hún gæti predikað í framhaldinu. Kæra langamma, við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum að njóta samvista við þig, nú hverfur þú á braut til langafa, sem við því miður fengum aldrei að hitta, við vitum að það eru fagnaðarfundir. Einar, Hákon og Sigrún Huld. **c~ Afmælistilboð: Köflóttar skyrtur 3 litasamsetningar: 1 stk. 2.490.- 2 stk. 2.500.- Mount kuldaúlpur 4.990.- Cimber ullarpeysa Áður 3.590.- Afmælisverð 2.690 Opið sunnudag Kringlan s. 581 1944 Laugavegur 81 s. 5521844 UNLIMITED Við eigum afmæli SEVERIN CAFE CAPRICE kaffivélin sýður vatnið jyrir uppáhellingu. kr. 9.975 stgr. Hefur hlotið ótal viðurkenningar Lagar 8 stóra bolla eða 12 litla. Vapotronic suðukerfi. Innbyggð snúrugeymsla. 1400 W. Sér rofi fyrir hitaplötu. Dropastoppari. Yfirhitavörn. Glæsileg nútímahönnun - engri lík. Tllboðsverð nú aðeins REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og búið, Rafha, Suðurfandsbraut, H.G. Guðjónsson, Suðurveri, Húsasmiðjan, Skútuvogi, Glóey, Ármúla 19, Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf., Miðvangur, Hafnarfiröi. SUÐURNES: Staðafell hf. Keflavík, Samkaup, Keflavík, Rafborg, Grindavík. VESTURLAND: Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi, Trésmiðjan c Akur, Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgamesi, Blómsturvellir, Hellissandi, Versl. Hamar, Grundarfirði, Versl. E. <D Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksrjarðar, Króksfjarðamesi, Skandi hf., Tólknafirði, Kf. Dýrfirðinga, E Þingeyri, Laufið, Bolungarvík, Húsgangaloftið ísafirði, Straumur hf., ísafirði, Kf. Steingrimsfjarðar, Hólmavík. NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Boröeyri, Kf. V-Húnvetinga, Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi, Kf. O Skagfirðinga, Sauðárkróki, KEA, Akureyri, og útibú á Norðurlandi, Kf. Þingeyinga, Húsavík, Kf. Langnesinga, Þórshöfn. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði, Kf. Héraðsbúa, Seyðlsfirði, Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum, ^ Rafalda, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði, Kf. Fáskrúðsfjaröar, Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi, Kf. A-Skaftfelinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Ámesinga, Vik, Kf. Rangæinga, Hvolsvelli, Kf. Rangæinga, Ruðalæk, Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum, Kf. Ámesinga, Selfossi. Einar Farestveit&Cohf Borgartúni 28, símar 562-2901 og 562-2900.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.