Morgunblaðið - 01.12.1995, Síða 48
Á. -
48 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995
!':1öaia'
Reykjavík
Selfoss
Keflavík
ísafjöröur
Bolungarvík
Siglufjörður
Ólafsvík
Homafjörður
Þín verslun um allt la
MOMMU
SOWP ÁVAXTASU
TODLERONE
MACKINTOSH
__________________________MORGUNBLAÐIÐ
MIIVININGAR
+ Hallsteinn
Sveinsson
fæddist á Kolsstöð-
um í Miðdölum i
Dalasýslu 7. júlí
1903. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 21. nóvember
síðastliðinn, 92 ára
að aldri, og fór út-
för hans fram frá
Borgarneskirkju
30. nóvember.
í DAG verður borinn
til hinstu hvílu minn
elskulegi frændi Hall-
steinn Sveinsson. Hallsteinn, eða
Halli eins og hann var einatt kallað-
ur, var einn þeirra manna sem hafði
slíka útgeislun og svo ómótstæði-
legan persónuleika að hann gleym-
ist seint þeim sem urðu þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast honum.
Hann var alveg sér á parti, bæði í
útliti og skoðunum - einn af þess-
um mönnum sem eru svo skemmti-
lega sérstakir af guðs náð og eru
slíkt krydd í tilveruna að hún verð-
ur aldrei söm eftir að þeir eru horfn-
ir á braut.
Halli var fæddur að Kolsstöðum
í Dölum 1903, níundi í röðinni af
ellefu systkinum. Það sem hefur
einkennt þennan systkinahóp öðru
fremur er verklagni og endalaus
sköpunarþörf. Systurnar sá maður
ekki öðruvísi en með pijóna eða
heklunálar á milli handanna og
bræðurna smíðandi eða tálgandi
þegar stund gafst aflögu. Þeir eru
ófáir staðirnir sem finna má verk
eftir Kolsstaðasystkinin og er þá
Ásmundur Sveinsson myndhöggv-
ari óefað þar fyrirferðarmestur og
þekktastur.
Síðustu árin bjó Halli á Dvalar-
heimili aldraðra í Borgarnesi og
hafði þar til umráða ágæta vinnu-
stofu þar sem hann dvaldi löngum
stundum. Halli smíðaði og renndi
skálar og aska, svo hundruðum
skiptir, kistla og kistur, svo fátt
eitt sé nefnt. Auk þess að vera
haglega gerðir bera þeir munir er
Halli smíðaði sterk höfundarein-
kenni auk þess sem hann var stöð-
ugt að gera tilraunir með efni og
form. Fyrir ekki mörgum árum er
ég heimsótti hann var hann önnum
kafinn við að búa til litla abstrakt
skúlptúra þar sem hann notaði slíp-
uð kindarhorn sem meginefni. Það
fór ekki á milli mála að þarna lá
fijó og nútímaleg formhugsun að
baki. Þó Halli væri kominn af
bændafólki var hann lítið gefinn
fyrir búskap. Hann veiktist ungur
af magasári og því einatt illa gerð-
ur til erfiðsvinnu. Hann hafði þeim
mun meira dálæti á listum og þá
sérstaklega abstraktlistinni. Hann
aðstoðaði Ásmund bróður sinn auk
þess sem hann rammaði inn fyrir
marga þá listamenn
sem sett hafa mark sitt
á íslenska listasögu.
Listamennirnir greiddu
honum gjarnan með því
að gauka að honum
myndum og þannig
eignaðist Hallsteinn
með tíð og tíma dágott
listaverkasafn sem
hann síðan gaf Borgar-
nési á áttræðisafmæli
sínu.
Það sem einkenndi
persónuleika og töfra
Halla ekki hvað síst var
húmorinn. Hann var
húmoristi af guðs náð. Allar hans
skoðanir og öll hans viðhorf voru
hlaðin af húmor og slíkri glettni
að menn kepptust um að sitja sem
næst honum á mannamótum því
gullkornin hrutu af vörum hans.
Glettni hans gat verið skemmtilega
beinskeytt, hann var harður vinstri
maður og taldi sig jafnvel vera eina
kommúnistann á íslandi og naut
þess að hæðast og hneykslast góðl-
átlega að „framsóknaríhaldinu"
innan um bændurna. Auk þess að
tala í háði um menn og málefni
hafði Halli ekki síður gaman af að
gera góðlátlegt grín að sjálfum sér,
og sagðist t.d. hafa verið einn þeirra
fáu heppnu sem sluppu við að bind-
ast í hjónaband. Væri hann sáttur
við eitthvað sagðist hann vera svo-
lítið montinn af hinu eða þessu, en
fyndist honum menn hrósa honum
um of reyndi hann að draga úr því
með að segjast vera orðinn óttalega
lélegur.
Halli var slíkur jafnlyndismaður
að ég efast um að hliðstæða finn-
ist. Mér er til efs að hann hafi
nokkru sinni æst sig eða skipt skapi.
Hann lét ekkert raska ró sinni,
beitti heldur fyrir sig háði og frum-
legri hugsun. Sjálfur dáði ég mann-
inn allt frá því ég sá hann fyrst.
Hann virkaði á mig eins og seið-
karl úr ævintýri; hár og grannur
með æðaberar kræklóttar hendur,
kinnfiskasoginn með stórt nef eins
og á ránfugii og með skalla sem
náði aftur á kúptan hnakkann.
Augun voru lítil en leiftruðu af
kímni og skemmtilegum skoðunum.
Hann tók mikið í nefið eins og til
að skerpa hugsunina. Hann töfraði
fram svo listilega útskorna aska að
mér þótti það dularfullt, hann tal-
aði um abstraktsjón og kompósisjón
í myndlist, tungumál sem frænd-
fólkið skildi ekki en fannst óstjóm-
lega fyndið. Halli var ákaflega
barngóður og held ég að mér sé
óhætt að segja að hann var okkar
eftirlætis frændi. Hann var svo
sterkur persóntileiki að maður
komst ekki hjá því að elska hann
og dá. Mér er það sérstaklega minn-
isstætt að í hvert skipti er við fórum
um Hvalfjörðinn, á leiðinni í Borg-
arfjörðinn, sungum við krakkarnir
í aftursætinu hástöfum: „Hatturinn
hans Halla, hatturinn hans
Halla..." og bentum á eyjuna sem
er eins og hattur í laginu. Fyrir
mér er og verður eyja þessi ekkert
annað en hatturinn hans Halla.
Hallsteinn Sveinsson var lífskúnstn-
er og þjóðsagnapersóna í lifanda
lífi og að hafa þekkt hann er manni
ómetanlegt veganesti á lífsleiðinni.
Elsku Halli, ég þakka þér fyrir
þær skemmtilegu stundir sem ég
hef átt í návist þinni og fyrir lista-
verkabækurnar sem þú gafst mér
um árið. Þegar ég fletti þeim hugsa
ég til þín.
Guð gefi þér góða nótt.
Þinn frændi,
Þorfinnur Sigurgeirsson.
Það húraar
við sundið
aðfallið ber
lognölduna
að klettunum
svartir fuglar
fljúga við Brákarey
það er íshröngl
í flæðarmálinu
mjalldrífan
sest í hár mitt
fellur í augu mér
hljóð og köld
eins og kyrrð
þessa kvölds
aðeins fjarlægur
gnýr hafsins
boðar mér
nýjan storm
að morgni.
(Séra Rögnvaldur Finnbogason)
, Lifsljósið hans Halla frænda er
slokknað. Hann hvarf úr okkar
heimi hægt og hljótt að áliðnum
degi og hann var áreiðanlega hvíld-
inni feginn og að fullu sáttur við
að kveðja, enda æviganga orðin
með því lengsta sem gerist eða rúm
92 ár.
Þrátt fyrir það var hann „maður
án aldurs", gat rætt hvaða málefni
sem var við hvern sem var og fylgd-
ist ótrúlega vel með öllu kringum
sig. Fullri andlegri reisn hélt hann
til æviloka. Við hittumst síðast ör-
stutta stund kvöldið áður en hann
kvaddi. Hann sagði sér líða prýði-
lega og gat meira að segja gantast
svolítið og strítt mér eins og venju-
lega á sinn sérstæða hátt með blik-
ið gamalkunna og kæra í augunum
sínum, sem voru þó einsog farin
að skyggnast eilítið inn í eilífðina.
Hann velti því stundum upp í sam-
ræðum, hvort nokkurt líf væri eftir
þetta líf, hvort maður yrði ekki
bara steindauður, eins og hann
komst að orði á sína vísu. Nú veit
hann það og sú vissa verður honum
góð.
Hallsteinn Sveinsson var einn af
þeim mönnum sem mér hafa staðið
hjartanu næst um ævina. Ef til vill
andlegur skyldleiki, allavega vorum
við skyld, því langamma mín og
faðir hans voru systkini vestur í
Dölum endur fyrir löngu. Hann var
einn af þeim gagnmerku Kolsstaða-
systkinum sem allt lék í höndunum
á, sama hvort voru smíðar, hann-
yrðir, höggmyndalist eða annað.
Miklir hæfileikar á ýmsum sviðum
hafa gengið í erfðir hjá afkomend-
um þeirra og mun áreiðanlega verða
ættarfylgja þessa fólks á ókomnum
árum.
Við Hallsteinn kynntumst fyrst
eftir að hann fluttist í Borgarnes á
Dvalarheimili aldraðra fyrir u.þ.b.
25 árum. Hann var einn af fyrstu
og fram til þessa annar af þeim er
lengst hafa búið þar. Oft kom ég
til hans ýmist á verkstæðið eða upp
á herbergi þegar mér fannst ég
þurfa að hressa sálartetrið við eftir
annasama daga við barnastúss og
annað er fylgir frumbýlingsárunum.
Og alltaf fór ég betri manneskja
og léttari í lund heim aftur til ung-
anna minna, enda þótt við værum
ekki sammála um alla hluti og hann
hefði strítt mér mestallan tímann.
Ekki er hægt að minnast hans
án þess að geta þess hve höfðing-
lega hann kom fram við nýja sveit-
arfélagið sitt er hann fluttist hingað
búferlum. Það hefur margur gefið
minna en tugi listaverka sem urðu
ARBEN
KYNNING
í Holtsapóteki,
Glœsibœ,
í dagfrá kl. 13-18.
Nýr ilmur frá
Elizabeth Arden
True Love,
og þrjár nýjar tegundir
af andlitsfarða.
20%
kynningarafsláttur
aföllum
Eiizabeth Arden
vörum.
Óvœntur glaðningur.
HALLSTEINN
SVEINSSON