Morgunblaðið - 01.12.1995, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 65
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Ættarsaga Egils -
og viðauki hennar
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
EITT ER það, sem ég hef engan
vitað minnast á í sambandi við Eg-
ils sögu, en einhveijir hljota þó að
hafa tekið eftir, og það er að þáttur-
inn um deilur Þorsteins á Borg og
Steinars á Ánabrekku er síðari við-
bót (þó hins sama höfundar). Það
er svo greinilegur niðurlagssvipur á
76. kaflanum, að engin missmíði
sæist á sögulokunum, þó hún hefði
aldrei orðið lengri.
Þetta er svo augljóst að varla
þarf að færa rök að því, en þó skal
nefnt: 76. kafii endar á orðunum:
„Frá börnum Þorsteins (Egilssonar)
er komin kynslóð mikil og margt
stórmenni; það er kallað Mýra-
mannakyn, ailt það er frá Skalla-
Grími er komið.“ En í lok sögunnar
eins og hún hefur orðið í endanlegri
gerð (87. kafla) stendur: „Frá Þor-
steini er mikil ætt komin og margt
stórmenni og skáld mörg; er það
Mýramannakyn og svo allt það er
frá Skalla-Grími er komið.“ Eg veit
ekki hvað það er að „endurtaka sjálf-
an sig“, ef þetta er ekki það. En
milli þeirra endurtekninga hafa liðið
mörg ár.
Þá verður líka með öllu ósenni-
legt, að stofninn í Eglu sé skrifaður
síðar en um 1225-1230, en einmitt
á þeim árum virðist hugur Snorra
hafa verið fijóastur. Þá er jólaveislan
fræga í Reykholti.
Þá hefur Snorri mest völd á AI-
þingi og er lögsögumaður. Um þetta
leyti eða litlu fyrr ætla menn að
Edda sé saman sett, enda er líklegt,
að dirfskuna til að skrifa slíkt rit í
trássi við miðaldakirkjuna, hafi hann
haft meðan völd hans voru mest.
Þá er það sem Sturla Sighvatsson
metur fræðimennsku frænda sín svo
mikils, að hann flyst til hans í Reyk-
holt (1230) og situr þar löngum við
að afrita „sögubækur eftir bókum
þeim er Snorri setti saman“. Þykir
mér maðurinn, sem fyrstur allra
varð til að uppgötva rithöfundinn
Snorra Sturluson, ekki ólíklegur til
að hafa sjálfur látið eftir sig snilldar-
rit, heldur manna líklegastur, og
kemur mér Laxdæla í hug í því sam-
bandi.
Við höfum orð Snorra Sturlusonar
fyrir því, að hann vildi „ekki á bæk-
ur setja vitnislausar sögur“, það er
hann skráði aðeins þær sögur sem
traustar heimildir voru fyrir - nema
þar sem hann hefur fyrirvara. Heim-
ildagagnrýni Snorra er kafii fyrir
sig, sem menn hafa of lítið sinnt,
og má þó heita að liggi í augum
uppi í ritum hans. Þetta þýðir þó
ekki, að hann hafi talið óleyfilegt
að beita frásagnarlistinni. En það
þýðir ennþá síður að nokkurt
minnsta vit sé í því að kaila ritverk
hans „lognar sögur“ eins og einhver
komst svo klaufalega að orði í „Þjóð-
arþeli" nýlega.
Sannleiksandi hinna bestu íslend-
inga sagna er þeim framandi sem
of litla grein hafa gert sér fyrir því
hve nauðsynlegt er að komast að
hinu sanna og segja satt.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Móðjr í vanda
á ísafirði
Frá Hinrík Fjeldsted:
ÉG VIL leggja nokkur orð í belg
vegna húsnæðisvandræða móður á
ísafirði sem heitir Sigrún Jónsdóttir,
Aðalstræti 15, ísafirði.
Hún fær ekki húsnæði hjá ísa-
íjarðarkaupstað. Þeir vilja einungis
senda hana með börnin sín inn í
Hnífsdal eða inn í fjörð. Hún er bíl-
laus og getur ekki verið með lítil
börn á snjóflóðahættusvæði eða í
Hnífsdal á meðan öll þjónusta er í
kaupstaðnum.
Hún hefur óskað eftir því að fá
leigða íbúð á svæðinu sem hún hefur
verið á, það er að segja í kaupstaðn-
um en ekki út úr honum. Svör ráða-
manna hjá bæjarskrifstofunum eru
allar á einn veg, ekki hægt að fá
húsnæði, en á sama tíma og þessi
kona tjáir mér vandræði sín er bæjar-
stjóri ísafjarðar að tala við frétta-
menn Bylgjunnar og tjá þeim að ísa-
fjörður sé tilbúinn að taka við flótta-
fólki og greiða götu þess.
Þessi kona sem á hlut að máli fiutt-
ist til ísafjarðar ung að aldri, hefur
skilað miklum tekjum til kaupstaðar-
ins í formi útsvars frá 18 ára aldri,
alið upp 9 börn sem nær öll búa á
þessu svæði og þau hafa greitt út-
svar oggjöld til ísafjarðarkaupstaðar
í formi vinnuframlags. En nú situr
ættmóðirin sem fastast inni á ætt-
ingjum og vinum vegna þess að hús-
næði er ekki fyrir hendi. Kannski er
það frátekið til þess að Isaljarðar-
kaupstaður geti látið að sér kveða í
mannúðarmálum fyrir flóttafólk.
Það er mjög göfugt af þeim að
sýna slíka riddaramennsku en er
ekki betra að bæta kjör íbúa sinna
áður en þeir sem ákveða slíka hluti
beija sér á brjóst og segja leyfið
börnunum að koma til mín. Þessi
kona er móðir með lítil börn og hún
væri ánægð ef ísafjarðarbær gæti
skaffað henni húsnæði og litla auka-
vinnu. Hún veit ekki hvað hún þarf
að gera til þess að fá úrlausn sinna
mála.
Hún heldur upp á afmæli sitt þann
4. desember 1995. Hvernig væri að
bæjarstjórinn á ísafirði eða sá sem
stjórnar úthlutun gefi henni veglega
afmælisgjöf sem væri húsnæði til
þess að leigja! Ekki af því að þeir
þekkja hana eða vegna þess að hún
er í einhverri klíku, heldur vegna
þess að hún hefur haldið uppi merki
Isafjarðar og hún hefur alið af sér
börn og barnabörn sem munu halda
áfram ijölgun á ísafirði og uppbygg-
ingu hans um ókomin ár.
HINRIK FJELDSTED
Smárahvammi 9, Hafnarfirði.
Virðum reg’lur um
útivistartíma
Frá Foreldrafélagi Hofsstaðaskóla:
AÐ GEFNU tilefni vill Foreldrafélag
Hofsstaðaskóla í Garðabæ koma eft-
irfarandi á framfæri:
Á fundum foreldra í Hofsstaða-
skóla hafa m.a. orðið miklar umræð-
ur um útivistartíma barna og reglur
þar um. Fram kom að í langflestum
tilfellum er farið eftir þessum reglum
og ekki talin ástæða til að breyta
þeim frá því sem nú er. Einnig kom
skýrt fram að þar sem útivistarregl-
ur væru bundnar í lög bæri foreldr-
um skyida að fara eftir þeim hver
svo sem skoðun einstakra foreldra
væri á gildi þeirra. Með því að hunsa
útivistarreglur eru foreldrar að
senda börnum skilaboð um að sjálf-
sagt sé að brjóta lög og reglur að
geðþótta! Þau skilaboð, sem komu
til barna og foreldra frá Siv Friðleifs-
dóttur þingmanni Reykjaneskjör-
dæmis í fréttatíma sjónvarps, um
að hún hunsaði reglur um útivistar-
tíma gagnvart eigin barni, voru
óheppileg og verða vonandi ekki til
eftirbreytni.
Fyrir hönd Foreldrafélags Hofs-
staðaskóla í Garðabæ.
KRISTÍN BJÖRG JÓNSDÓTTIR.
Frá Jónínu Hauksdóttur og
Gretu Benjamínsdóttur:
ÞESSA dagana eru að koma á
markaðinn jóladagatöl sem jafn-
framt eru skafmiðar. Við erum
ekki sáttar við þessi vinnubrögð,
þ.e.a.s. að happdrætti skuli beint
að þeim sem síst hafa þroska til
að flokka úr auglýsingaflóðinu en
eru jafnframt hvað móttækilegast-
ir fyrir hvers kyns nýjungum.
Þarna finnst okkur að verið sé að
brengla verðmætamat barnanna.
Þarf alltaf að koma til einhvers
konar umbun, hvað sem verið er
að gera? Fyrir börnin er það næg
umbun í sjálfu sér að eiga dagatal
og mega opna hólf daglega. Mynd-
in sjálf, hvort sem það er engill,
kerti eða annað, er bara til að
Risaskaf-
miði sem
endist
tiljóla
auka ánægjuna enn frekar.
Hætt er við að gleðin við að
opna dagatalið sitt fari fyrir lítið
þegar vinningsvonin er allsráð-
andi. Börnin verða sífellt fyrir
vonbrigðum þegar enginn vinning-
ur er á þeirra dagatali. Er ekki
spenningurinn fyrir jólin nægur,
þó ekki komi sífellt fleira til?
Það má ekki gleymast að jólin
eru hátíð ljóss og friðar og við
verðum að gæta þess að gleyma
okkur ekki í auglýsinga- og kaup-
fári.
Gaman væri að heyra hvað lá
að baki útgáfu Jóladagatals
Happaþrennunnar. Er verið að ala
upp fjárhættuspilara framtíðar-
innar?
Með von um ánægjulega og
afslappaða aðventu.
JÓNÍNA HAUKSDÓTTIR og
GRETA BENJAMÍNSDÓTTIR
leikskólakennarar.
w
Q/rOnixQj
1
9
lóo
'l
9
9
5
ckþck
FONIX 60 ARA
AFMÆLISTILBOÐ
Vegna frábærra undirtekta framlengjum við
afmælistilboð okkar og veitum jafnvel enn
hærri afslátt en áður.
EJ/rönixQ
9
E/rOmxH
m ASKO
ÞVOTTAVÉLAR-ÞURRKARAR- UPPÞVOTTAVÉLAR KÆLISKÁPAR-FRYSTISKÁPAR-FRYSTIKISTUR
NILFISK
NÝ NILFISK FYRIR NÚTÍMAHEIMILI
5-10% afslÁttvir
ÞÚ ÞARFT EKKI KASKO
EF ÞÚ KAUPIR ASKO!
- því Asko er trygging þín fyrir
hámarks árangri og sannkallaðri
maraþonendingu.
Nú er lag að fá sér sænskt hágæðatæki
frá Asko - með verulegum afslætti.
ASKO þvottavélar frá 69.990,-
ASKO tauþurrkarar frá 59.990,-
ASKO uppþvottavélar frá 49.990,-
5-15% ðfskxttvfr
Dönsku GRAM kæliskáparnir
eru rómaðir fyrir glæsileika,
hagkvæmni, styrk og endingu.
Þú getur valið um 20 gerðir
kæliskápa, með eða án frystis.
Einnig 8 stærðir frystiskápa og
4 stærðir af frystikistum.
Verðdæmi: GRAM KF-355E kæliskápur
með 272 I. kæli og 62 I. frysti.
HxBxD=174,2 x 59,5 x 60,1 cm.
Áður kr. 79.990,- Nú aðeins 69.990,-
3ja
ára ábyrgð
OMENGUÐ GÆÐI
20% ðfsUttwr
Allir vildu Lilju kveðið hafa,
en það er aðeins ein Niifisk!
Þær eru nú reyndar þrjár,
hver annari betri.
En hvað veldur, að allir vilja eignast
Nilfisk? Er það útlitið, krafturinn,
tandurhreina útblástursloftið eða
þessi magnaða ending?
Kannski allt þetta og ennþá fleira.
Nú bjóðum við nýja Nilfisk á
tilboðsverði, frá kr. 17.590,-
(£lIŒ§)
ÖRBYLGJUOFNAR MEÐ MEIRU
TURNTABLE MICROWAVE
immm, <ZA\> \/ \/
COMBI QRILL COMBI
▼▼▼ / / FAN \T ' J MICROWAVE \J
10-15% ^fsláttwr
Margar gerðir og litir af ofnum til
innbyggingar, með eða án blásturs,
á verði frá 24.800,-. Helluborð með
2 eða 4 hellum, bæði „venjuleg" og
keramik. Einnig gas-helluborð.
Frístæðar eldavélar frá 39.900,-
‘0.TURBO
ELDHÚSVIFTUR - MARGAR GERÐIR
10-15% akfsláttvir
7 gerðir: Val um ofna m/örbylgjum ein-
göngu, örbylgjum og grillelementi eða
örbylgjum, grilli og blæstri. Verðdæmi:
18 I. 800W örbylgjuofn 16.990,-
27 I. 900W örbylgjuofn 21.990,- --
17 I. 800W örb. + grill ^ 21.990,-
27 I. 850W örb. + grill + bl.38.900,-
§ O.ERRE
LOFTRÆSTING ER OKKAR FAG!
10-20% AfslÁttwr
15 gerðir og litir:
Venjulegar, hálfinnbyggðar,
m/útdregnum glerhjálmi, hálfháf-
formaðar eða til innbyggingar í háf.
Verð frá aðeins kr. 6.990,-
Mikið úrval af loftræstiviftum fyrir
hvers konar húsnæði, til heimilisnota
eða í atvinnuhúsnæði
Gott loft skapar vellíðan og eykur
afköst. Ef þú þarft að loftræsta,
komdu þá til okkar.
)á, við erum ( afmælisskapi um þessar mundir. Staðgreiðslu- og magnafsláttur, Euro-
og Visa-raðgreiðslur til allt að 36 mán., án útborgunar. FRÍ HEIMSENDING og við
FJARLÆGJUM GAMLA TÆKIÐ þér að kostnaðarlausu - um leið og við komum með
það nýja - glæsilegt, notadrjúgt og nI _ , .... .
sparneytið - og nú á afmælisverði. manud.-fÖStUU. 9-1 8
v^mT.ÍFonix. . , . , . Vjl U laugardaga 10-16
- heitt a konnunni og is fyrir bornin. ° °
10-15% Afsláttvir
Þeir eru notadrjúgir litlu
borðofnarnir frá DéLonghi.
Þú getur steikt, bakað og grillað að vild á
styttri tíma og með mun minni orkunotkun
en í stórum ofnum eða eldavélinni.
7 gerðir: 8 lítra, 13 lítra eða 28 lítra.
Verð frá aðeins 9.990,-
LITLU TÆKIN Á
LÁGA VERÐINU
10-30% AfsUttvir
Ávaxtapressur, brauðristar, brauð- og
áleggshnífar, djúpsteikingarpottar,
dósahnífar, eggjasjóðarar, handsugur,
hárblásarar, hitamælar, hnífabrýni,
hrærivélar, hraðsuðukönnur, mat-
vinnsluvélar, mínútugrill,
rafmagnsofnar, ryksugur, ryk- og
vatnssugur, safapressur, straujárn
- og ótal margt fleira.
Sextug og síung....
/rOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420