Morgunblaðið - 28.12.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 13
Sporvagn-
inn frum-
sýndur
SPORVAGNINN Girnd, eitt
frægasta leikverk tuttugustu
aldarinnar eftir bandaríska
leikritaskáldið Tennessee
Williams er á fjölum Leikfé-
lags Akureyrar um jólin, en
verkið var frumsýnt í gær,
27. desember.
Með aðalhlutverkin, hlut-
verk Blanehe og Stanley, fara
Rósa Guðný Þórsdóttir og
Valdimar Flygenring. Aðrir
leikarar eru Bergljót Arnalds,
Guðmundur Haraldsson,
Aðalsteinn Bergdal, Sunna
Borg, Skúli Gautason, Sigurð-
ur Hallmarsson, Þórey Aðal-
steinsdóttir og Valgarður
Gíslason. Leikstjóri er Haukur
J. Gunnarsson og hannar
hann jafnframt búninga. ís-
lenska þýðingu gerði Örnólfur
Árnason, leikmynd er eftir
Svein Lund-Roland og lýsingu
hannar Ingvar Björnsson.
Blues-tónlist sem setur mik-
inn svip á sýninguna er eftir
Karl 0. Olgeirsson.
Verkið var frumsýnt mið-
vikudagskvöldið 27. desem-
ber, en einnig verða sýningar
föstudagskvöldið 29. desem-
ber og laugardagskvöldið 30.
desember. Allar sýningar
hefjast kl. 20.30.
Litskyggnu-
sýning í há-
tíðarsal ÚA
LITSKYGGNUSÝNING verð-
ur haldin í kvöld kl. 20 í hátíð-
arsal (mötuneyti) Útgerðarfé-
lags Ákureyringa hf.
Þar mun Þorgeir Baldurs-
son sýna myndir sem hann
hefur tekið á sínum sjómanns-
ferii við leik og störf um borð
í togurum ÚA. Þorgeir mun
leitast við að svara þeim
spurningum sem upp kunna
að koma varðandi myndir sín-
ar og myndefni.
Síðasta djass-
kvöld ársins
SÍÐASTA djasskvöld ársins í
Deiglunni á Akureyri verður
haldið í kvöld, fimmtudaginn
28. desember. Þar leika af
fingrum fram Rúnar Georgs-
son á saxófón, Birgir Karlsson
á gítar, Jón Rafnsson á
kontrabassa, Karl Petersen á
trommur og um sönginn sér
Ragnheiður Ólafsdóttir.
Þeir félagar Rúnar og Birg-
ir léku saman í hljómsveit
Ragga Bjarna á árum áður
og verður spennandi að heyra
þá aftur og nú með nýju fólki.
Jón, Karl og Ragnheiður hafa
stuðlað að framgangi djassins
á Akureyri og leikið þar og
víðar með ýmsum hljóðfæra-
leikurum. Djasskvöldið hefst
kl. 21.30 og aðgangur er
ókeypis.
Jólaball Þórs
JÓLABALL íþróttafélagsins
Þórs fer fram í Hamri föstu-
daginn 29. desember og hefst
kl. 17.00.
Jólasveinar koma í heim-
sókn og hljómsveitin Örvænt-
ing leikur fyrir gesti. Kaffi
og tertur verða á boðstólum
og börnin fá eitthvað gott í
poka. Aðgangseyrir er kr. 500
en frítt fyrir börn 4ra ára og
yngri.
Morgunblaðið/Kristján
HEITAVATNSÆÐ fór í sund-
ur í Sunnuhlíð og voru Krist-
ján Hálfdánarson og Hreinn
Grétarsson, starfsmenn Hita-
og vatnsveitu Akureyrar,
mættir með loftpressu og ætl-
uðu að komast fyrir lekann.
Með þeim er Franz Árnason,
framkvæmdasljóri. Á minni
myndinni er Rafn Herberts-
son að þíða kaldavatnslögn í
vegg í húsi við Byggðaveg.
Kuldakast norðanlands undanfarna daga og frostið fór niður í 20 gráður
Osparir á heita vatnið
AKUREYRINGAR hafa verið
ósparir á heita vatnið í frosthörk-
unum að undanförnu og hefur
vatnsnotkunin verið með allra
mesta móti síðustu daga. í gær-
morgun fór frostið niður í rúmar
19 gráður á mæli Veðurstofunnar
við Lögreglustöðina á Akureyri og
víða í Eyjafirði var frostið um og
yfir 20 gráður.
Franz Árnason, framkvæmda-
stjóri Hita- og vatnsveitu Akur-
eyrar, segir að á einni viku, frá
19. til 26. desember, hafi verið
seld 125.000 tonn af heitu vatni,
fyrir 14,5 milljónir króna. Þetta
er tæplega helmingi meiri vatns-
notkun en meðalnotkunin er á viku.
Ekki komið til skömmtunar
„í desember er hins vegar ekk-
ert óalgengt að fólk noti um 13%
af því vatni sem það notar yfir
árið. Það var nokkuð hlýtt fyrri
partinn í desember og því er ekki
víst að meðalnotkunin nú verði
neitt meiri en undanfarin ár,“ seg-
ir Franz.
Ekki hefur komið til skömmtun-
ar á vatni og hitaveitan á enn eina
dælu ógangsetta ef þörf krefur og
áður en þarf að hita vatn með olíu.
„Við stöndum vel að vígi og miklu
betur en fyrir ári og það er ein-
göngu vegna þess að við virkjuðum
á Þelamörk í fyrra. Annars værum
við trúlega farnir að hita vatn með
olíukyndingu en við getum búið
við svipað ástand nokkuð lengi án
þess að lenda í vandræðum.“
Starfsmenn Hita- og vatnsveitu
Akureyrar hafa haft í nógu að
snúast við að aðstoða fólk í heima-
húsum, þar sem kaldavatnsleiðslur
hafa frosið. Bæði er um að ræða
að kaldavatnsinntökin hafi frosið
en einnig eru dæmi um að leiðslur
hafi frosið í veggjum og inni í
húsunum sjálfum. „Okkar menn
hafa aðstoðað fólk eftir bestu getu
en þetta er óvenjulegt og í raun
vont ástand,“ sagði Franz og vildi
jafnframt koma því á framfæri að
fólk gætti þess að hafa hita þar
sem kaldavatnsinntök eru í húsum
þess.
Litlujólin
á Álfasteini
LITLU jólin voru haldin í nýjum
leikskóla, Álfasteini í Glæsibæj-
arhreppi, í síðustu viku. Gengið
var í kringum jólatré ogjóla-
sveinninn kom í heimsókn.
Leikskólinn sem er syðst í
hreppnum, nálægt Dverga-
steini, var opnaður í byrjun
ágúst. Húsið er um 100 fermetr-
ar að stærð og geta verið þar
allt að 16 börn í einu, en nú eru
þar um 26 börn yfir daginn.
Að sögn Rannveigar Oddsdótt-
ur leikskólastjóra eru nokkur
börn úr nágrannasveitarfélög-
unum í leikskólanum, til að
nýta þetta velbúna húsnæði.
Morgunblaðið/Diðrik
Ungmenni
fara á ís-
hokkímót í
Svíþjóð
HÓPUR ungmenna frá
Skautafélagi Akureyrar, á
aldrinum 12-14 ára, heldur á
morgun áleiðis til Svíþjóðar,
þar sem þau munu taka þátt
í íshokkímóti, svokölluðu
Gurka-pucken í Vasteras.
Eftir því sem næst verður
komist er þetta í fyrsta sinn
sem íshokkílið frá Islandi fer
í keppnisferðalag erlendis.
Mótið hefst 2. janúar og munu
akureyrsku ungmennin leika
10 leiki í mótinu, við lið frá
Finnlandi, Svíþjóð og Sviss.
Alls 12 ungmenni fara í
þessa ferð auk fararstjóra, en
hópurinn kemur heim 6. jan-
úar nk.
Rólegt var á fæðingardeild sjúkrahússins um jólin
11 tvíburafæðingar
JÓLIN voru með rólegasta móti á
fæðingardeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, að sögn Ingi-
bjargar Jónsdóttur deildarstjóra.
Þó var ekki alveg frí hjá starfsfólk-
inu, því tvö börn fæddust á Þor-
Iáksmessu, eitt barn á jóladag og
tvö börn á annan í jólum.
Ingibjörg segist eiga von á
nokkrum fæðingum til viðbótar á
árinu, því einar 8 konur séu
skrifaðar á tíma fram að áramót-
um. Þó sé líklegt að einhvetjar
þeirra fæði ekki fyrr en komið er
fram á nýtt ár og trúlega vilji flest-
ar þeirra bíða fram á nýja árið
héðan af. „Vonandi fáum við ára-
mótabarn á deildinni en það eru
orðin nokkur ár síðan fyrsta barn
ársins fæddist hér,“ segir Ingi-
björg.
Engir þríburar í ár
Engir þríburar hafa fæðst á FSA
í ár en tvíburafæðingar tiafa sjald-
an eða aldrei verið fleiri, eða alls
11. „Tvíburafæðingar eru óvenju
margar í ár og þó ekki sé von á
fleiri fjölburafæðingum stefnir í
að þetta verði metár. Við höfum
verið með þetta frá einni og upp
í 8-9 fjölburafæðingar á ári. Tví-
burafæðingum hefur aðeins fjölgað
eftir að glasaftjóvgunardeildin tók
.til starfa og eitthvað af tvíburunum
sem fæddust hér eru glasabörn.“
í gær höfðu 382 börn fæðst á
fæðingardeild FSA á árinu en allt
árið í fyrra voru fæðingarnar 407.
„Það er eitthvað rólegra yfir núna
og við náum ekki þeirri tölu í ár,“
segir Ingibjörg.