Morgunblaðið - 28.12.1995, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 23
LISTIR
Hratt flýgnr stund
BÓKMENNTIR
Sagnfræði
ÁRIÐ 1994
Stórviðburðir í rayndum og máli eft-
ir Erich Gysling. Ritstj. Úrsúla Árna-
dóttir. 349 bls. Útg. Árbókin. Prent-
un: Druckerei Uhl, Radolfzell. 1995.
í BÓK þessari er mikill texti og
mikið myndefni og fáein kort. Mest
er sagt frá stjómmálunum. Mynd-
irnar eru líka flestar af stjómmála-
mönnum. íþróttir fá einnig sitt rúm.
Ennfremur frægðarpersónur ýms-
ar. Aðalhöfundur er svissneskur
fréttastjóri. Og sýnilega ræður hið
almenna fréttamat miklu um val
efnis. Afstaðan til manna og mál-
efna er sömuleiðis hin staðlaða evr-
ópska. Mannréttindum er mjög á
loft haldið. Kínvetjar em harðlega
átaldir fyrir mannréttindabrot.
Samkvæmt mannréttindakröfum
Evrópubúa má ríkið ekki hafa neins
konar ofbeldi í frammi gagnvart
þegnunum. Þar á móti em vægar
kröfur gerðar til ríkisins að það
vemdi mann fýrir ofbeldi sem aðrir
fremja. Það teldist órökrétt þar sem
ekki má beita neinn hörðu, ekki
heldur þann sem beitir aðra menn
hörðu. Vesturlandabúar eru sem sé
vemdaðir í bak og fyrir andspænis
því valdi sem þeir sjálfir kjósa yfir
sig. Annarrar verndar njóta þeir
ekki. Svo hlálegt sem það nú virð-
ist vera er eflaust mun háskalegra
að ganga eftir götu í evrópskri borg
en kínverskri. En Evrópubúar líta
svo til að allt sé best hjá sér. Og
allt rétt!
Miðað við mörg önnur ár aldarinn-
ar verður vart annað sagt en árið
1994 hafí verið bæði friðsælt og tíð-
indalítið. Sovétríkin fyrrverandi
stóðu í eins konar biðstöðu; voru úr
leik í bili. Mannskæð styxjöld í Afr-
íkuríki hreyfði ekki stórmikið við
tilfínningalífí Vesturlandabúa. Öðm
máli gegndi um styijöldina í Bosníu
Herzegovínu. Sameinuðu þjóðimar
stóðu frammi fyrir ósköpunum eins
og dæmigerður vandamálafræðing-
ur frammi fýrir vandamáli, spáðu
og spekúlemðu en aðhöfðust sama
og ekkert. Kort af landinu lítur út
eins og abstraktmálverk. Á því sést
gerla hversu mjög hefur þrengt að
múslimum. Þama blandast saman
hagsmunir, trúarbrögð og þjóðemis-
hyggja. Ljótara stríð hefur ekki ver-
ið háð í Evrópu öldum saman.
Margra alda hatur braust þama
fram eins og óbeislaður frumkraft-
ur. Skilst nú gerr að heimsstyijöldin
fyrri skyldi einmitt hefjast með einu
byssuskoti í — Sarajevó! Þó bráðum
sé liðin öld frá þeim minnisstæða
atburði em ágreiningsefnin enn hin
sömu. Vafalaust verða þau enn um
sinn jafnóleyst þó svo eigi að heita
að samið hafí verið um frið.
Þegar minnst er á fýrri heims-
styijöldina hvarflar hugurinn
ósjáifrátt til Þjóðveija. Að sjálf-
sögðu eru þarna greinar um þýsk
málefni. Með þeim er birt kort af
landinu eins og það leit út áður
en Hitler komst til valda. Inn á
kortið em svo merkt landsvæði þau
sem tekin voru af Þjóðveijum í lok
seinna stríðs, Slésía, Pommem og
Austur-Prússland. Formlega hafa
Þjóðveijar afsalað sér þeim land-
svæðum. Enda þótt þau séu enn
merkt inn á landakort læst enginn
muna eftir þeim, allra síst Þjóðveij-
ar sjálfir. Hvergi er þó tryggt að
þeir renni ekki augum í austur
þegar stundir líða. Draumlyndur
hlyti sá að teljast sem treysti því
að áttatíu milljóna iðnaðarþjóð
verði um aldur og ævi svo hijáð
af erfiðum minningum að hún taki
ekki einhvern tíma að hyggja að
því sem hún eitt sinn átti.
Frá Suður-Afríku er sagt undir
fýrirsögninni Söguleg umskipti.
Þau hlutu að koma fýrr eða síðar.
»10. maí stóð Nelson Mandela
frammi fýrir hvítum dómara í Pret-
oríu og sór embættiseið sem for-
seti.« Ohætt er að fullyrða að þar
hafi komið fram réttur maður á
réttum tíma. Mesta afrek hans var
auðvitað að lægja þá miklu spennu
sem margur óttaðist að bijótast
mundi út meðal blökkumanna jafn-
skjótt sem þeir fyndu að valdið
væri þeirra megin. Valdataka
Mandela hefur þegar haft dijúg
áhrif á stjórnarfarið í öðrum lönd-
um álfunnar þó svo að mörg þeirra
eigi enn langa leið fýrir höndum í
átt til friðar og öryggis.
Á vísinda- og tæknisviðinu ber
sennilega hæst opnun Ermarsunds-
ganganna. Prýðileg skýringarmynd
fylgir því einstæða og rándýra
tækniafreki. Rifjað er upp að hug-
mynd um slík göng hafi komið fram
þegar á 19. öld. Bresk stjómvöld
höfnuðu henni þá — af öryggis-
ástæðum!
Sérstakur kafli er þarna undir
fýrirsögninni Fellibyljafár. Við ís-
lendingar erum vanir að líta á
veðurtal sem eyðufyllingu í sam-
ræðum þegar við erum í vandræð-
um með umræðuefni, sem sagt
marklaust hjal. En veðrið skiptir
okkur miklu, meira en flest annað.
Sjaldan er hugsað til'hinna miklu
loftslagsbreytinga sem sífellt eru
að gerast á jörðinni og breyta bæði
löndum og lífskilyrðum. Þær gerast
svo hægt. Hingað til hefur engum
tekist að útskýra orsakir þeirra.
Góðar gervihnattamyndir eru þama
af fellibyljum, hringlaga sveipum
með gati í miðju.
Að lokum er svo greinargóður
kafli um íslenska atburði í máli og
myndum er Kjartan Stefánsson
hefur tekið saman. Þar fer að vísu
talsvert fyrir stjómmálunum líkt og
í öðrum hlutum bókarinnar en hlut-
fallslega meira fyrir almennum
fréttum af ýmsu tagi. Meðal gleði-
frétta ársins var björgun skipveija
á Goðanum sem strandað hafði í
Vöðlavík eystra. Þar vom sannköll-
uð afrek unnin. Miður gleðileg var
sú frétt að norska strandgæslan
hefði klippt á togvíra þriggja ís-
lenskra togara á norska fiskvernd-
arsvæðinu við Svalbarða. En deila
Islendinga og Norðmanna sannar
að allt getur gerst í samskiptum
þjóða. Áður en Smuguveiðamar
hófust hefði talist til ódæma ef
spáð hefði verið að illdeilur gætu
hafíst á milli frændþjóðanna. En
eindæmin em verst, segir máltækið.
Þannig leið ár þetta í aldanna
skaut og bar á brott með sér daga
sína og nætur með ljósi og skuggum
en skildi eftir margan vanda fyrir
ókomin ár að leysa.
Og senn líður að aldamótum. Þá
munu menn staldra við og horfa til
liðinnar aldar en einnig reyna að
skyggnast fram á veginn til kom-
andi ára. Þeir sem þá hafa lifað
öldina mestalla eða alla munu vafa-
laust segja að hundrað ár séu fljót
að líða, hvað þá eitt ár, hvílíkt svip-
leiftur! Enda skammur tími í lífí
þjóðar.
Erlendur Jónsson
Kónguló á háum hælum
BÓKMENNTIR
Ljóðabók
MÁNADÚFUR
eftir Einar Ólafsson. Bókmenntafé-
lagið Hringskuggar 1995.
MÁNADÚFUR er nafn á nýrri
ljóðabók Einars Ólafssonar og heitir
eftir samnefndu ljóði í bókinni. Þetta
er fallegt nafn og bókin geymir
mörg falleg ljóð. T.d. þetta:
Grænir hringir hnita
kringum piin hvít
með svörtum hömrum
og allt er bara svart og hvítt
en niðr’í bæ tiplar
fjallakónguló á háum hælum
og þykist vera frúarleg
en er meira en það!
í nótt étur hún kallinn sinn
(Ljóð á góu, s. 68)
Og:
Piparmánastelpan
litar húmið
yfír salatskálunum á svölunum
grænum pipar
(Ágústljóð, s. 66)
Einar er flinkur að yrkja um krydd
og mat. Þar er hann hugmyndaríkur
og á heimavelli. Kryddjurtasöngur
hans er frábærlega hugvitsamlegt
ljóð en ég held að það hefði mátt
stílísjera það pínulítið í viðbót, aðeins
örlítið. Þó hlýtur það að hreyfa við
hjarta- og nautnarót-
um fjölda lesenda.
Öðru máli gegnir um
pólitísk ljóð Einars.
Það er ekki af því að
pólitísk ljóð séu hall-
ærisleg því hallæris-
gangur hefur fyrir
löngu runnið af póli-
tískum ljóðum. Einar
nær ekki alveg að opna
gáttir í höfði lesandans
í pólitískum ljóðum
sínum. Lokalínur ljóðs-
ins Að morgni hins
virka dags eru fremur
fordómafullar:
„og ef til vill eitt
skáld sem hefur fengið
styrk / og slær ritvélina fálmandi /
eftir orðuni sem ná ekki að tengj-
ast.“ (s. 52)
Hér eru á ferð fordómar sem hafa
stundum heyrst. Hvað með það þó
að skáld fái styrk? Og hvað með það
þó að orð nái ekki að tengjast? Þetta
eru of lítilmótleg atriði til þess að
mæta í fordómafullu ljósi inní ljóð.
Ljóðið um einmana hermanninn,
sem er í pólitískum anda, hefur einn
kost, takturinn er góður og takturinn
skapar spennu ljóðsins, með endur-
tekningunni: - „klæddur / til að
drepa" - heppnast ljóðið eins og
best verður á kosið.
Mánadúfur Einars Ólafssonar er
heilsteypt verk. Þar eru gegnum-
gangandi þemu og hlutir sem koma
fyrir aftur og aftur. t.d.
tunglið, græni liturinn,
tveir menn, matur, vín
og staðir. Þau ljóð sem
bera af í Mánadúfum
eru ljóðin í tilfinninga-
lega kantinum (t.d. ljóð-
in hér að ofan) og þessi
einhvers konar stemmn-
ingsljóð sem ganga eins
og viðlög í gegnum bók-
ina (Yfir nýræktina
gengur maður, Kýr,
heiði og bíll, Yfír Hvít-
lauksveg í græna þorp-
inu, Fólkið undir heið-
inni) og ljóðin þar sem
er eldað og kryddað. Og
Dags Sigurðarsonar er
minnst á fallegan hátt í ljóðinu Frá
Degi til Dags.
Ljóðabókin Mánadúfur slítur sig
ekki svo auðveldlega frá lesandan-
um. Við fyrsta lestur virðast ljóðin
fremur nakin og stundum of hvers-
dagsleg, þar sem lítið er um hin
svokölluðu ljóðrænu tilþrif og flott-
heit í myndunum eða hljómnum. En
bókin sleppir manni ekki. Heimilis-
legur saumaskapur Ijóðanna - þá
er alls ekki verið að draga úr at-
vinnumennsku ljóðanna - sjarmerar
lesandann og stelur honum alltaf
aftur og aftur til sín.
Kápan og allt útlit bókarinnar er
til fyrirmyndar.
Kristín Ómarsdóttir
Einar Ólafsson
Afgreföslutímf
vramótahattar, 1 2 teg.
79 pr. stk.
Flöskuknöll, 9 í pakka
159
Knöll ó borð, fimm stk.
169
Svínakótelettur, eitt kíló
759
UN nautaroastbeefkeitt^
Vienett^^tert^2 teg. f
' 15W
Avocacfo, pT>stk.
29
Camembert ostur
Sítrón límonaði, Z/fff&r
79
Premium Cola, 33 cl
39
Sams salsasósa, 737g
179
MAARWflt^flögur m/salti, 250g
149
Þykkvab^ejcfr^aprikóskrúfur, 14~
LU
LES
119
"saltkex, þrír
GABI saltstangify/250g
49
LEO súkkulaði, fimm saman
—"Nhóift idi,
mom
NUS
Miðvikudagur 27. des 12.00 til 18.30
(Lokað í Holtagörðum)
Fimmtudagur 28. des. 12.00 til 18.30
Föstudagur 29. des. 12.00 til 19.30
Laugardagur 30. des. 10.00 til 18.00
Gamlórsdagur 10.00 til 12.00
Gleðilegt ár fyrir alla!