Morgunblaðið - 28.12.1995, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.12.1995, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Hálfköruð samkeppni í skoðun ökutækja Það er tímaspursmál, segir Gunnar Svavars- son, að samkeppnis- hindranir verði brotnar á bak aftur. DÓMSMÁLARÁÐHERRA held- ur ennþá á boltanum. íbúar höfuð- borgarsvæðisins hafa á þessu ári tekið eftir gífurlegum þjónustu- breytingum sem átt hafa sér stað varðandi skoðun ökutækja. Allt frá því að samkeppni hófst í skoðun ökutækja í janúar á þessu ári hafa ekki einungis átt sér stað verðbreyt- ingar heldur hafa áherslur nýrra fyrirtækja tengdar styttri biðtíma, ábyggilegum skoðunartíma og lengri opnunartíma gengið eftir. Gera má ráð fyrir að heildar- lækkun í verði skoðana nemi um 25 milljónum króna, sem er beinn hagur neytenda. Samkeppnin hefur hingað til einskorðast við höfuð- borgarsvæðið þar sem þijú fyrir- tæki Aðalskoðun hf., Athugun hf. og Bifreiðaskoðun íslands hf. kepp- ast við að ná hylli neytenda. Samkeppni þegar hafin á landsbyggðinni Þessar þjónustu- og verðbreyt- ingar hafa ekki skilað sér að neinu marki á landsbyggðinni og hingað til hefur ekki komið upp samkeppni í aðalskoðunum þar, en Bifreiða- skoðun íslands hf. hefur komið sér fyrir á stærstu markaðssvæðunum á landsbyggðinni í skjóli einkaleyfa undanfarinna ára. Nú nýverið urðu þó enn ein tíma- mótin í skoðunarmálum lands- manna þegar Aðalskoðun hf. hóf skoðun í Ólafsfirði. Vegna heimild- arákvæða í reglugerð nr. 558/1993 er skoðunarstofu sem hlotið hefur faggildingu heimilt að sinna skoð- unarþjónustu á landsbyggðinni á endurskoðunarverkstæðum sem fengið hafa réttindi til endurskoð- unar ökutækja. Nú hefur Aðalskoð- un hf. riðið á vaðið með samstarfí við Bílaverkstæðið Múlatind sf. í Ólafsfírði, enda hafa forsvarsmenn Aðalskoðunar hf. alltaf lýst því yfír að áhugi sé fyrir hendi að leita allra hugsanlegra leiða til að bæta þjón- ustu gagnvart skoðun ökutækja á landsbyggðinni, í samvinnu við heimamenn á viðkomandi stöðum. Ólafsfírðingar, Dalvík- ingar og nærsveita- menn hafa undanfarin ár þurft að sækja skoð- un til Akureyrar en með tilkomu þessarar nýju þjónustu hefur því verið fagnað af heima- mönnum að komið sé á betra þjónustustigi og að boðið sé lægra verð en tíðkast hefur á landsbyggðinni. Samkeppni í sjónvarpi lík samkeppni í skoðun lega þá fá nýju stöðv- arnar ekki leyfí til að sinna þessum þjón- ustuþáttum. Vinnuhópurí dómsmálaráðu- neytinu? að sækja þess aðila Líkt og á sjónvarps- markaðnum eiga ný fyrirtæki undir högg vegna yfírburðarstöðu sem fyrst fékk starfsleyfí. Vegna þeirra staðreynda að ein sjónvarps- stöðin hefur betri áskriftartrygg- ingu en hinar auk þess sem tengsl stjórnvalda, sem ráða að miklu leyti umhverfinu, við einn sjónvarpsaðil- ann eru óneitanlega mikil verður samkeppnin ójöfn. Arftaki Bifreiðaeftirlits ríkisins hefur haft samkeppnislegt forskot enda byggt upp góða stöðu í skjóli einkaleyfa og það fyrirtæki hefur ennþá markaðs- og stjórnunarlega yfírburðarstöðu vegna einkaleyfa á fjölmörgum þáttum tengdum skoð- un og skráningu ökutækja þ.ám. ökutækjaskránni sem er yfírburða- markaðstæki. Þessar þjónustu- og samkeppnislegu hindranir gera vissulega nýjum skoðunarfyrirtækj- um og viðskiptavinum þeirra erfítt fyrir. Það er óeðlilegt að Qölmargir óánægðir neytendur þurfí að bera af því hærri kostnað en ella að hafa ekki tækifæri á að að notfæra sér þjónustu hjá nýjum aðilum, en undanfarin 66 ár hefur mátt sækja þjónustuna til skoðunarfyrirtækis. Þetta er einnig öfugsnúið í ljósi þess að á sama tíma og tækni- og gæðakröfur af hálfu stjórnvalda til skoðunarstöðva hafa aukist veru- Gunnar Svavarsson Allt frá því að Aðal- skoðun hf. var stofnuð í september á síðasta ári hafa verið þreifing- ar innan veggja dóms- málaráðuneytisins um að breyta á einhvern hátt þessum hindrun- um. Oft hefur verið komið á framfæri til ráðuneytisins efna sem fyrirtækið og viðskipta- vinir þess hafa komið á framfæri. Það er ekki einungis að samkeppn- islegar hindranir hafí verið látnar viðgangast, þrátt fyrir að Sam- keppnisstofnun hafí árið 1994 bent ráðherra á mismununina, heldur hefur umkvörtunarefnum eigi verið svarað bréflega en vísað til starfa vinnuhóps sem endurskoða eigi umhverfí tengt skoðun og skráning- um ökutækja. Dómsmálaráðherra nátengdur umhverfi skoðana um- STYRKTARFÉLAC LAMAÐRAOG FATLAÐRA Háaleitisbraut 11-13 Reykjavík Dregið var í Símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1995 þ. 23. desember sl. og komu vinningar á eftirtalin númer: 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 32. 33. 34. 35. vinningurtorfærubifreið Nissan Terrano IISLX vinningur Nissan Primera 4d, beinskiptur vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX ..ámÆtímmmmMm vinningur Nissan Micra LX vinningur Nissan Micra LX vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól vinningur Mongoose fjallahjól 557-5846. 465- 1168. 853-9108. 553-5594. 568-7255. 551 -7771. 553- 4512. 565-8702. 421-2560. 421-2776. 853-3344. 852-7222. 466- 1114. 481-2439. 562-9960. 893-1084. 562-6470. 588-0095. 568-2241, 852-8396. 892-7730. 587-5874. 564- 1477. 554- 3525. 565- 4998. 555- 4964. 431-2427. 852-3142. 852-1276, 462-5447. 462-1199. 478-1061. 896-9488. 483-1494. 561-3639. STYRKTARFÉLAGIÐ þAKKAR LANDSMÖNNUM VEITTAN STUÐNING. kvörtunarefnum, áhyggjum og um- fram allt ábendingum um það sem betur má fara án þess þó að í nokkru sé slakað á hinum ströngu tæknilegu kröfum stjórnvalda þar sem umferðaröryggislegt eftirlit er haft að leiðarljósi. Vissulega hafa það verið nýju fyrirtæki vonbrigði að ekki hefur verið tekið tillit til þeirra áhyggju- Nú er að verða eitt ár frá því Aðalskoðun hf. reið á vaðið í sam- keppni í skoðun ökutækja. Allir gera sér grein fyrir því óhagræði semi hlýst af samkeppnislegum hindrunum og mismunun hvort sem er í skoðun ökutækja eða á öðrum sviðum. Dómsmálaráðherra setur m.a. reglur varðandi skoðun og skráningu ökutækja en á um leið að fara með mál er varða eignar- aðild ríkisins að Bifreiðaskoðun ís- lands hf. Það er erfitt að sitja fyrir miðju borði en um leið að sitja við aðra hlið þess, sérstaklega þegar þarf að tryggja það að rekstrartekj- ur Bifreiðaskoðunar íslands hf. nægi fyrir eðlilegum rekstrargjöld- um og að hluthöfum fyrirtækisins skuli árlega greiddur eigi lægri arð- ur en 10% af hlutfjáreign sinni eins og segir í 5. gr samnings dómsmála- ráðuneytisins og Bifreiðaskoðunar frá 1988. Aðalskoðun hf. hefur ekki í hyggju að láta deigan síga í bar- áttu sinni að breyta þjónustuum- hverfí tengt skoðun og skráningum ökutækja. Metnaður þjónustufyrir- tækja á að vera tengdur þjónustu. Hlutlausar og óháðar skoðunarstof- ur sem hlotið hafa faggildingu og eru tæknilega hæfar til að skoða ökutæki koma til með að eiga í samkeppni um ókomna tíð, neyt- endum til heilla. Skoðunarstofurnar mega þó aldrei blindast af markaðs- stríði sínu heldur verða þær að taka þátt í tæknilegum samráðsvett- vangi bílgreinanna auk þess sem sjónarmið fjölmargra hagsmunaað- ila tengdum bættum umferðarmál- um verða að ná eyrum þeirra og stjómvalda. Það er tímaspursmál að sam- keppnislegar hindranir verði brotn- ar á bak aftur og aðilar geti unnið á fagsviðum sínum jafnfætis við þá sem fyrst komu sér fyrir á mark- aði, dómsmálaráðherra gerir sér vonandi grein fyrir því. Höfundur er verkfræðingur og er stjórnarfommður Aðalskoðunar hf. Árás á kennara? NÚNA fyrir jólin er að koma út skáldsagan Febrúarkrísur eftir góð- an vin minn, Ragnar Inga Aðal- steinsson frá Vaðbrekku. Ég sá bókina verða til, því að ég leit yfír handrit hennar í vor og sá síðan um umbrot hennar. Þá menn sem eru á móti því að aðrir menn skrifi um bækur vina sinna bið ég auð- mjúklegast að fyrirgefa mér, hætta lestri þessarar greinar og fara að lesa eitthvað annað. Þá sem verða enn hneykslaðri þegar þeir sjá mann, sem hefur unnið við bók, skrifa um hana bið ég einnig að afsaka siðferðisbrest minn og hætta lestrinum. Það er áreiðanlega eitt- hvað betra til fyrir hreinar sálir, því að auk alls þessa er ég góðkunn- ingi þeirra sem gefa bókina út. Sjálfur hef ég þó enga hagsmuni af sölu hennar og þess vegna víla ég ekki fyrir mér að óska eftir að þessi grein verði birt í útbreiddasta blaði landsins. Ragnar Ingi er kennari, ljóð- skáld, kennslubókahöfundur — og nú skáldsagnahöfundur. Sem kenn- ari skilst mér að hann sé mjög vin- sæll, sem ljóðskáld fínnst mér hann býsna góður og kennslubækur hans hafa nýst mér vel í kennslu. Auk þess er hann ágætur vinur og fé- lagi, ræðinn og úrræðagóður, já- kvæður og löngu hættur að drekka. Helsti ljóður á ráði hans er að hann er líka hættur að éta almennilegan mat, borðar ekkert nema steingeld- an jurtagróður. Nú, en hvað um það. Bókin hans. Ég er ekki bókmenntafræðingur eins og Matti bróðir og get því ekki fjallað um hana út frá forsendum bókmenntafræðinnar. Ég kýs þvl að skoða hana sem lesandi, jafnvel lesandi sem hefur sérstakan áhuga á efninu, sem kennari, sem kennari I heimavistarskóla, sem unglinga- faðir, sem áhugamaður um skóla- mál, og svo auðvitað sem vinur Ragnars Inga. Þessi bók gerist í heimavistar- skóla úti á landi. Þeim er nú óðum að fækka, en þó eru örfáir eftir, meðal annars Skógaskóli sem ég starfa við. Þess vegna kannast ég vel við margt af því sem fram kem- ur í bókinni. Ungur maður er að koma til starfa. Návígið við ungl- ingana er honum nýjung, samstarf- ið við samkennarana enn meiri nýj- ung Eða ættum við að segja sam- starfsleysið? Hún kemur nefnilega vel fram í þessari bók sú staðreynd að fáir eru eins einmana í starfí og kennarar. Um leið er það svo í heimavist- arskóla að kennarar kynnast nemendum sínum betur en í nokkr- um öðrum skólum, verða þeim oft eins konar staðgenglar for- eldra. Það kemur meira fram um kennarana. Og kannski meira en flestir kennarar eru til- búnir að samþykkja. Á kennarastofunni í þess- um skóla er lítið rætt Ragnar Ingi Aðalsteinsson um starfið, enn minna um nemend- ur og nám þeirra. Er það virkilega svo að kennarar séu upp til hópa áhugalausir um starf sitt? Eru þeir einlægt með hugann við eitthvað allt annað, félagsstarf, bísness, aukastörf og tómstundastörf, eða við einkalífið, svo sem ala upp eigin börn, stunda jeppasöfnun eða reyna að komast á séns með fallegum nemendum? Ragnar Ingi lætur mann halda það. Er það svo að jafnvel kennarar sjálfir líti margir á kennslu sem aröskur I formi slæmr- ar hegðunar fái sjald- an önnur viðbrögð frá uppeldisfræðimennt- uðum kennurum en skammir og lágar ein- kunnir? Ragnar Ingi lætur mann halda það. Ungur drengur sviptir sig lífí í skólan- um, á meðan flestir kennarar hans eru með hugann við allt annað en andlega vel- ferð hans, nám hans eða líf. Jafnvel þeir kennarar sem hafa áhuga á skólamálum Getur verið, spyr Guð- mundur Sæmundsson, að fólk fari ólæst og óskrifandi í gegnum grunnskólann? hálfgert bráðabirgðastarf, millibils- ástand áður en þeir fara að takast á við eitthvað merkilegra? Dreymir kennara flesta um að komast í önn- ur, kannski betur launuð störf, jafn- vel að takast á við eigin atvinnu- rekstur? Er kennslan aðeins launa- maskína á meðan? Ragnar Ingi lætur mann halda það. Getur það verið að í gegnum all- an grunnskólann fari fólk ólæst og óskrifandi án þess að kennarar séu almennt að gera sér nokkra rellu út af því? Er hugsanlegt að börn og unglingar sem gefa frá sér hjálp- eru svo fræðilegir að þeir hafa held- ur engan áhuga á einstaklingunum og tilfinningalífi þeirra, aðeins námi þeirra og þeirri tækni sem hægt sé að innræta þeim til að þeir ná meiri námsárangri. Hvers er slíkur skóli megnugur? Til hvers er hann? Fyrr á þessu ári fórum við kenn- arar í verkfall. Foringjar vorir höfðu uppi stór orð um mikilvægi starfs- ins og faglegan metnað kennara- stéttarinnar. En hljóta ekki ein- hveijar saklausar kennarasálir að efast ef hjalið á kennarastofunum er eins og Ragnar Ingi lýsir því? Ég hef ekki reynslu af svona kenn- arastofum, en Ragnar Ingi hefur verið kennari í miklu fleiri skólum en ég. Vafalaust eiga frámunalega léleg laun okkar kennara sinn þátt í sum okkar eru ekki jafn áhugasöm og önnur. Er nokkur ástæða til að kenna öðrum um? Verða kennarar bara ekki að sanna það fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir eigi hærri laun skilið? Sannfærir verkfall nokkurn mann? Gæti það jafnvel ekki orðið til skaða þegar það bitn- ar á öðrum en þeim sem deilt er við? Bókin hans Ragnars Inga gæti hjálpað okkur kennurum að skoða málin frá nýjum sjónarhóli. Auk þess er hún einnig ágæt og holl lesning fyrir unglinga sem sjálfír eru í skóla og umgangast kennara og skólakerfið daglega og þurfa að átta sig á að kennarar eru mannleg- ir — og breyskir. Gleðileg jól, Ragnar Ingi, og til hamingju með fyrstu skáldsöguna þína. Höfundur er kennari að Skógum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.