Morgunblaðið - 28.12.1995, Page 52

Morgunblaðið - 28.12.1995, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ADAM JÓHANIMSSON, Áiftamýri 18, lést á heimiii sínu á jóladag. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlína Björnsdóttir. t Faðir okkar, HANNES GAMALÍELSSON, Barónsstfg 41, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund á jóladag. Jón Þór Hannesson, Sólveig Hannesdóttir. t Móðir okkar og stjúpmóðir, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 26. desember. Sævar Örn Jónsson, Margrét Jónsdóttir, Þuríður Jónsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, ÓLAFUR ÁSGEIRSSON frá Höfðahólum, Fannborg 8, lést í Vífilsstaðaspítala 27. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Ásta Strandberg. t Bróðir okkar, ÁRSÆLL ELÍASSON, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lóst að morgni 26. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Systkinin. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR BERGMANN, er látin. Jarðarförin verður gerð frá Áskirkju föstudaginn 29. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Steinunn H. Yngvadóttir, Hörður Einarsson, Óttar Yngvason, Birna Daníelsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. t Elskulegur bróðir okkar og frændi, ÞÓRHALLUR SVEINSSON frá Borgarfirði eystra, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 25. desem- ber. Jarðarför auglýst síðar. Systur og systkinabörn hins látna. t Sambýliskona mín, FJÓLA GUÐBJÖRNSDÓTTIR, frá Máskeldu, Dalasýslu, síðast til heimilis að, Öldugranda 3, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 29. desember kl. 13.30 Fyrir hönd aðstandenda, Magnús Björgvin Jónsson. GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR ÓLISVAVAR HALLGRÍMSSON + Guðrún Ólafsdótt- ir fæddist að Strönd í Vestmanna- eyjum 27. október 1906. Hún lést í Land- spítalanum 19. desem- ber sl. Guðrún var dóttir hjónanna Guð- rúnar Bjamadóttur, f. 1879, d. 1954, og Ólafs Diðriks Sigurðs- sonar, f. 1881, d. 1944, sem bjuggu að Strönd. Þau eignuðust 10 böm. Þau hétu: Sigurður Gunnar, Bjami-Júlíus, Guðrún, Einar og Ingibjörg (tvíburar), Guðrún Lilja, Ingibjörg Gyða, Jómnn Ella og Guðný Unnur (tvíburar), Erla Unnur. Guðrún var tvígift. Fyrri maður hennar var Láms Guðnason, f. 16.7. 1895, d. 30.10 1940. Þau eignuð- ust tvö böm Ólaf Sigurð, f. 22.12. 1930, og Gerði Huldu, f. TÍMINN líður og mannlífið breyt- ist. Nú eru amma og afí bæði horf- in sjónum okkar. Þó hún amma væri orðin 89 ára gömul og líkam- inn farinn að gefa sig hafði seiglan í ömmu alltaf verið mun meiri en menn bjuggust við. Það hvarflaði því ekki að mér þegar ég heim- sótti hana skömmu áður en hún veiktist að við fengjum ekki að halda upp á níræðisafmæli hennar á næsta ári. En skjótt skipast veð- ur í lofti. Þegar ég hélt í hönd ömmu á sjúkrabeðinu var hönd hennar bæði falleg mjúk, hlý. Hönd hennar á þeirri stundu lýsir í raun vel persónuleika ömmu. Hún var mild og hlý kona og allir voru vel- komnir í hennar hús. Öllum varð að veita og gefa eitthvað sem til hennar litu. Einn mikilverðasti eig- inleiki í fari ömmu var þó að mínu mati umburðarlyndi hennar og æðruleysi. Ég heyrði hana aldrei hallmæla neinum eða dæma aðra fyrir að velja óhefðbundnar leiðir í lífinu. Hrósi var dreift á báða bóga og hið góða í fari okkar dreg- ið fram. Amma var frá Vestmanna- eyjum og var alltaf mikill Vestman- neyingur í sér. Myndir voru á veggjunum og margir Eyjamenn sóttu þau heim. Þannig finnst okk- ur afkomendum hennar alltaf að við eigum heilmikið í Vestmanna- eyjum þó fæst okkar hafi dvalið þar að einhveiju marki. Þrátt fyrir æðruleysi sitt var ekki svo að amma hefði gengið breiðan og auðfarinn veg í lífinu. Var hún, elsta systirin í tíu systkina hópi, búin að sjá á bak öllum systkinum sínum, mörgum fyrir aldur fram. Einnig sá amma á bak tveimur eig- inmönnum. Fyrri maður ömmu, Lárus Guðnason, drukknaði með skipinu Braga árið 1940, þá frá konu og tveimur ungum bömum. Amma hefur ætíð borið hring Lár- usar á hönd sér. Síðar þegar amma giftist Óla Hallgrímssyni tengdi hún giftingarhringana saman með gullsnúru. Þetta sýnir bæði trygg- lyndi og ástúð ömmu til Lárusar sem og virðingu og væntumþykju Óla afa í garð ömmu og bama henn- ar. Ekki var hægt að hugsa sér betri afa en Óla afa. Afi var blíður og brosmildur og gaman var að tala við hann um stjórnmálin, lífið og tilveruna þegar við krakkamir fórum að vaxa úr grasi og mynda okkur skoðanir á tilverunni. Afí var sérstaklega víðsýnn maður. Myndrænn hluti af bemskuminn- ingunni um afa er að hann tók í nefið og fylgdu því miklar tilfæring- ar. Einu sinni notaði afi langan tíma í að kenna mér að brjóta saman vasaklútinn til að pússa nefið eftir tóbaksinntökuna. Þar til þurfti lagni. Stutt var oft í góðlátlega stríðni hjá afa. Hann hafði t.d. mjög gaman af því að bjóða Trítli hundin- um okkar í nefið. En sá stutti sýndi því yfirleitt mikla fyrirlitningu, 10.2. 1933. Seinni maður Guð- rúnar var Óli Svavar Hallgríms- son, f. 30.5. 1912, d. 6.5. 1987. Ólafur Sigurður Lárusson giftist Sigríði Grímsdóttur þau eignuð- ust þijú börn, Guðrúnu, Óla Svav- ar og Hafþór. Þau skildu. Gerður Hulda Lárusdóttir er gift Stefáni Jónassyni. Hulda á Lárus Óla fussaði og hnussaði, og setti lopp- una yfír trýnið. Vom tilfæringamar álíka miklar hjá þeim félögunum. Amma og afí vom einstök hjón sem gott var að sækja heim og til- búin að veita öllum þeim er á stuðn- ingi þurftu að halda aðstoð sína. Við Stefán Hrafn þökkum þeim með hlýhug fyrir samverustundim- ar í lífinu. Ástarkveðjur, Gerður Stefánsdóttir og Stefán Hrafn Sigfússon. Elsku Gunna, eða öllu heldur amma og langamma, því það ertu alltaf í hjarta okkar. Þó það sé sárt að sjá á eftir þér og allri þeirri hlýju sem þú gafst okkur, þá vitum við að þú ert í höndum Guðs og hjá þeim sem þú annt. Við sem eftir emm hér á jörðu söknum þín sárt en eigum í okkar huga sælar minn- ingar sem hlýja okkur að hjartarót- um. Það var alltaf gott að koma til þín, þú varst ávallt glöð og sinnt- ir gestum vel. Faðmur þinn var allt- af opinn og þú sýndir öllum áhuga, sem í kringum þig vom. Gunnar saknar þeirra tíma er hann var lítill drengur á leið til þín í jólaboð. Þá kom öll fjölskyldan saman, allt var svo jólalegt og þú varst með okkur. Eða þegar hann fór í bíltúr með foreldrum sínum til að heimsækja þig að Strönd við Meðalfellsvatn. Þar tókstu svo vel á móti honum með útréttan faðminn og bros á vör. Elsku Gunna. Við þökkum fyrir allt sem þú varst. Fyrir hjartahlýju þína og gjafmildi. í herbergi dóttur okkar, Alexöndm, em fallegu hlut- imir sem þú gafst henni og munu þeir verða varðveittir um ókomin ár. Við þökkum fyrir þær stundir sem við fengum notið með þér og biðjum guð almáttugan um að varð- veita þig og gefa þér frið. Við vottum bömum þínum og öðmm aðstandendum okkar dýpstu samúð. Gunnar Hólm, Erna og Alexandra Ólöf. Nú er hún Gunna frænka dáin. Það er svo skrýtið, að þó að dauð- inn sé eðlilegur hluti tilverunnar, þá kemur hann okkur alltaf í opna skjöldu. Fólk sem við höfum þekkt alla okkar ævi er skyndilega horfíð á braut og eftir lifír minningin ein. Gunna frænka var systir Jómnn- ar Ellu, ömmu okkar, sem lést löngu fyrir okkar tíð. Það má segja að Gunna hafí komið í hennar stað og verið okkur sem amma. Á þessari stundu er okkur sökn- uður og þakklæti efst í huga. Þakk- læti fyrir að hafa kynnst þessari yndislega hlýju og gjöfulu konu sem sýndi okkur svo mikla umhyggju og ástúð. Gunna frænka var alltaf að Þorvaldsson frá fyrra þjóna- bandi og þau Stefán dæturnar Guðrúnu og Gerði. Langömmu- bömin em ellefu. Óli Svavar Hallgrímsson var fæddur að Skálanesi, Seyðis- firði, 30. maí 1912. Hann lést 6. maí 1987. Foreldrar hans vom Hallgrímur Ólason, f. 1989 d. 1965, og María Guðmunds- dóttir, f. 1891, d. 1969. Óli Svav- ar var elstur 10 systkina en þau heita Valgerður, Steinunn, Margrét , Guðmundur, Hulda, Grímur.Hólmsteinn, Sigffríð og Helga. Óli Svavar giftist Guð- rúnu Ólafsdóttur 1. ágúst áríð 1942 og gekk börnum hennar, Gerði Huldu og Ólafi Sigurði, í föðurstað. Óli Svavar starfaði lengst af sem kaupmaður og rak Bústaðabúðina í Reykjavík. Utför Guðrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. gauka einhverju að okkur og þegar við komum í heimsókn var hún ekki ánægð nema við tækjum hraustlega til matar okkar og allra best var ef við færum heim með eitthvað góðgæti. Gunna frænka hafði góða návist, hún var alltaf í góðu skapi og hlát- urmild. Gunnu fannst gaman að vera vel til höfð í fallegum kjól og vel greidd. En umfram allt minn- umst við hennar sem kærleiksríkr- ar, gefandi konu. Elsku Gunna, hvíl þú í friði. Jesús, af hjarta þakka ég þér, þú, Jesús, varst í dag með mér, gef þú mér, Jesús, glatt og rótt, góða og sæla værðamótt. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfí Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Jórunn Ella, Ólafur Diðrik og íris Guðrún. Elskuleg móðursystir mín, Guð- rún Ólafsdóttir frá Strönd í Vest- mannaeyjum, er látin eftir langa og gifturíka ævi. Hún var sú síð- asta af systkinunum tíu frá Strönd, sem kvaddi þennan heim. Gunna frænka, eins og ég ætíð nefndi hana, var mér ekki aðeins frænka, heldur var hún í huga mér móðirin sem ég gat alltaf leitað til og alltaf var til staðar. Nýfædda tók hún mig upp arma sína og ann- aðist mig í nokkra mánuði, þar sem móðir mín var berklaveik og gat ekki séð um mig. Síðan ólst ég upp í nokkur ár hjá foreldrum hennar, afa mínum og ömmu á Strönd. Upp frá því var Gunna sú sem ég leitaði alltaf til þegar eitthvað amaði að, og ráðin hennar reyndust mér ávallt góð. Gunna var yndisleg kona sem öllum vildi vel. Hún var einstaklega gestrisin og gjafmild. Enginn fékk að fara svangur frá henni, miklu fremur of saddur. Hún var bömum mínum og barnabömum afskaplega góð og þau litu alltaf á hana sem ömmu sína. Mörgum fallegum hlut- um, svo sem vettlingum og sokkum, stakk hún að þeim. Hún var lifandi dæmi þeirra sem þykir sælla að gefa en þiggja. Elsku Gunna mín. Ég kveð þig með söknuði og þakka þér alla þá ástúð og umhyggju sem þú ætíð sýndir mér. Börnum þínum og öðr- um aðstandendum votta ég samúð mína. Blessuð sé minning þín. Þú Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum fóður-örmum þínum. Og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta ég halla mér að þínu fóðurhjarta. (Matth. Jochumsson.) Þín Lóa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.