Morgunblaðið - 28.12.1995, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 59
Margir gistu
fangagey mslur
23.-28. desember.
Dagbók lögreglunnar
MIKIÐ var um umferðaróhöpp í
Reykjavík yfir jólin og telur lög-
regla að þær tilkynningar, sem
henni bárust um árekstra, alls 60
talsins, segi ekki alla söguna.
Bókfærð eru 439 tilvik í dagbók-
ina á tímabilinu. Mest ber á fjölda
tilkynntra umferðaróhappa, eða
rúmlega 60 talsins. Meiðsli á fólki
urðu í þremur tilvikum. Þá lést
farþegi um áttrætt í bifreið er lent
hafði á ljósastaur í Ártúnsbrekku
að kvöldi Þorláksmessu. Ætla má
að umferðaróhöppin hafi verið
mun fleiri því einungis hluti þeirra
er tilkynntur til lögreglu. Það hef-
ur verið reynsla lögreglunnar und-
anfarin ár að mikið er um árekstra
og slys dagana fyrir jólin. Hún
ásamt öðrum reyndi að vekja at-
hygli fólks á þessu í tíma og koma
á framfæri upplýsingum og ábend-
ingum um hvemig betur mætti
fara, en svo virðist sem enn vanti
talsvert á að það tileinki sér þau
heilræði eða að þau vilji gleymast
í önnum við jólaundirbúninginn.
Um og eftir jólahátíðina var til-
kynnt um 14 innbrot og 19 þjófn-
aði. í flestum þjófnaðartilkynning-
um var um hnupl í verslunum að
ræða. Afskipti af ölvuðu fólki, sem
ekki kunni fótum sínum forráð,
voru 50 talsins, en 49 einstakling-
ar gistu fangageymslumar yfir
hátíðirnar, ýmist sjálfviljugir eða
vegna mála, sem komið höfðu
upp. Það telst óvenjumikið miðað
við jól undanfarinna ára.
Sex ökumenn, sem stöðvaðir
vom í akstri, eru grunaðir um að
hafa verið undir áhrifum áfengis,
en lögreglan á Suðvesturlandi hef-
ur fylgst sérstaklega með þeim
þætti umferðarmálanna í desemb-
ermánuði. Það mun hún enn gera
næstu daga og þá ekki síst um
áramótin.
Á föstudagskvöld var maður á
fertugsaldri fluttur á slysadeild
eftir að hafa sprautað sig með
amfetamíni, sem hann hafði keypt
skömmu áður. Talið var að sölu-
maður hefði blandað í efnið rottu-
eitri eða einhverju sambærilegu.
Á laugardagskvöld var ungur
maður handtekinn á veitingastað
í austurborginni þar sem hann var
sagður vera að reyna að selja fíkni-
efni. Á honum fundust nokkrar
töflur af ætluðu fíkniefni.
Aðfaranótt sunnudags voru
tveir menn handteknir í miðborg-
inni eftir að þeir höfðu sparkað
þar í söfnunarkassa hjálpræðis-
hersins og tekið úr honum pen-
inga, sem í hann höfðu verið látnir.
Tilkynnt var um lausan eld í
húsi við Hverfísgötu aðfaranótt
miðvikudags. Þegar lögreglumenn
komu á vettvang lagði eldtungur
út um glugga á fyrstu hæð húss-
ins og náðu upp á þak. Húsið er
tveggja , hæða bárujárnsklætt
timburhús með kjallara. íbúar á
efri hæð höfðu reynt að slökkva
eld í gardínum, sem kviknað hafði
í út frá jólaskreytingu í einum
glugganum. íbúi í kjallara vaknaði
og kom sér sjálfur út. Miklar
skemmdir hlutust af.
Tiltölulega fátt fólk var í mið-
borginni aðfaranótt laugardags,
eða um 1.000 manns þegar flest
varð eftir að skemmtistöðunum var
lokað. Afskipti voru höfð af fimm
unglingum og þeir færðir í athvarf
ÍTR þangað sem þeir voru sóttir
af foreldrum sínum. Mun færra
fólk var í miðborginni aðfaranótt
sunnudags.
Lögreglan vekur athygli fólks á
að fara varlega með flugelda og
blys um áramótin. Enginn má
versla með skotelda í smásölu
nema hann hafí til þess leyfi frá
hlutaðeigandi lögreglustjóra. Þeg-
ar hefur verið veitt leyfí fyrir um
30 slíkum stöðum í umdæmi lög-
reglunnar í Reykjavík. Skotelda
má ekki selja yngri en 16 ára. Öll
sala á skoteldum til barna yngri
en 12 ára er óheimil nema annars
sé sérstaklega getið.
Fullorðið fólk þarf að hafa vit
fyrir börnunum og gæta þess að
þeim stafí ekki hætta af blysum
og flugeldum. Bömin geta stund-
um orðið áköf, vilja gleyma sér
við spennandi aðstæður og ganga
þá stundum lengra en æskilegt
getur talist. Munið - slysin gera
ekki boð á undan sér. Lesið leið-
beiningamar sem fylgja flugeldum
og blysum og farið eftir þeim. Og
umfram allt - farið varlega.
Lögreglan hvetur fólk til að
gæta hófs í áfengisneyslu og for-
eldra að gleyma ekki bömum sín-
um svo allir megi eiga ánægjuleg
áramót. Hveijum og einum má
vera það ljóst að meðferð áfengis
og notkun flugelda og blysa fara
alls ekki saman.
Lögreglan óskar öllum gleði,
farsældar og friðar á nýju ári.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Saga Húsmæðraskólans
á Laugarvatni komin út
Selfossi, Morgunblaðið
AÐ LAUGARVATNI í ljúfum
draumi heitir bókin sem Samband
sunnlenskra kvenna gefur út og
fjallar um Húsmæðraskólann á
Laugarvatni, starfsemi skólans og
líf námsmeyja í gegnum tíðina.
»SSK hefur alltaf látið sig skólann
varða og barðist fyrir stofnun
hans,“ sagði Guðrún Jónsdóttir,
formaður SSK, í kaffisamsæti þar
sem bókin var kynnt. „Konur eru
alltaf bjartsýnar og þegar þær
standa samán þá ganga hlutirnir
upp með aðstoð góðra manna,“
sagði Guðrún einnig og þakkaði
þeim fjölmörgu sem studdu útgáfu
bókarinnar. Eyrún Ingadóttir
sagnfræðingur ritaði bókina.
Það var árið 1929 að fyrst voru
reifaðar hugmyndir um stofnun
Húsmæðrakólans. Þetta gerðist á
fundi hjá SSK. Skólinn hóf síðan
starfsemi sína í janúar 1943 sem
Bók um ör-
nefni og
gönguleiðir
Voffum, Morgunblaðið.
LIONSKLUBBURINN Keilir hefur
gefið út bókina Örnefni og göngu-
leiðir í Vatnsleysustrandarhreppi
eftir Sesselju Guðmundsdóttur.
Bókin er 152 bls. og prýdd fjölda
mynda af landslagi og mannvistar-
leifum. Þá eru í bókinni kort sem
eru unnin af Landmælingum Is-
lands. í örnefnabókinni eru tæplega
900 örnefni.
Sesselja sagði ástæðuna fyrir því
að hún tióf söfnun og skráningu ör-
nefna í hreppnum þá að vernda þyrfti
örnefnin og söguna sem felst í þeim.
deild í Héraðsskólanum á Laugar-
vatni en varð sjálfstæð stofnun
1944. í bókinni er greint frá bar-
áttu SSK fyrir stofnun skólans og
saga hans rakin þar til hann var
lagður niður 1986. Lífi kennara
og námsmeyja eru einnig gerð
skil. í bókinni er einnig fjöldi
mynda af öllum árgöngum skólans
og nafnaskrá.
Þegar bókin var kynnt sungu
nokkrar fyrrum húsómeyjar vin-
sæl húsólög og fögnuðu útkoniu
bókarinnar og heiðursgestunum,
Jensínu Halldórsdóttur skóla-
sljóra og Gerði H. Jóhannsdóttur
sem viðstaddar voru útgáfukynn-
inguna. Á myndinni eru þær Guð-
rún Jónsdóttir, formaður SSK,
Gerður H. Jóhannsdóttir, Jensína
Halldórsdóttir skólasfjóri og Eyr-
ún Ingadóttir sagnfræðingur.
„Saga landbúnað-
arins hér í hreppn-
um felst að hluta til
í ömefnunum en
landbúnaður í þessu
héraði heyrir nú
sögunni til og því
mikilvægt að ræða
við eldri menn og
Sesselja Guð- fá upplýsingar um
mundsdóttir ömefnin og gamlar
leiðir,“ sagði Ses-
selja. Útgáfa bókarinnar var kynnt
fréttariturum á fundi í Vogum fyrir
skömmu og þar þökkuðu Lionsmenn
Sesselju sérstaklega þann heiður að
hafa treyst klúbbnum fyrir þessu
verki.
í útgáfunefnd sátu Jóhann Hann-
esson, Steinarr Þórðarson og Jón
Bjarnason, en hjá honum er hægt
að fá bókina keypta; sími 424 6542.
Jólamessa
Kvennakirkj-
unnar
JÓLAMESSA Kvennakirkjunnar
verður haldin í kvöld kl. 20.30 í
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
prédikar og talar um boðskap jól-
anna, um umburðarlyndið gagnvart
sjálfum okkur. Bára Kjartansdóttir
kennari flytur hugleiðingu um trú
sína. Hallfríður Ólafsdóttir leikur á
flautu.
Kór Kvennakirkjunnar og aðrar
kirkjukonur syngja jólasálma við
undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdótt-
ur. Jólakaffi verður í safnaðarheim-
ilinu eftir messu.
Bandarískir
unglingar
tefla hér
JOHN W. Collins, hinn kunni skák-
kennari frá New York, kemur til
íslands 29. des. nk. með 27 banda-
ríska unglinga
sem munu tefía
við íslenska jafn-
aldra sína um ára-
mótin.
Með ungling-
unum verða for-
eldrar þeirra.
Skákkeppni þessi
hefst í Skákheim-
ilinu í Faxafeni
12, föstudaginn
29. desember kl. 20. Margir af
þekktustu skákmönnum Bandaríkj-
anna voru lærisveinar Johns W.
Collins. Frægastur þeirra var Bobby
Fischer, fyrrverandi heimsmeistari
í skák. Collins er nú 82 ára gamall.
Guðsþjónusta
aldraðra
KIRKJUSTARF aldraðra heldur
guðsþjónustu í Neskirkju 28. des-
ember kl. 14. Sr. Ólöf Ólafsdóttir,
prestur á Skjóli, prédikar. Prestar
eru séra Guðlaug Helga Ásgeirs-
dóttir, prestur aldraðra, og séra
Frank M. Halldórsson sóknarprest-
ur. Kór Melaskóla syngur fyrir
guðsþjónustu, stjórnandi Helga
Gunnarsdóttir. Litli kórinn, kór
Neskirkju syngur undir stjórn Ingu
J. Backman. Organisti er Reynir
Jónasson.
Guðsþjónusta þessi er samstarfs-
verkefni Ellimálaráðs Reykjavíkur-
prófastsdæma og Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkurborgar, öldrunar-
þjónustudeildar.
Tónleikar á
Tveimur vinum
í KVÖLD, fimmtudaginn 28. des-
ember munu hljómsveitirnar Ó.
Jónsson og Gijóni, Múldýrið og
Brim leika á tónleikastaðnum Tveir
vinir og annar í fríi. Ókeypis er inn
á tónleikana og hefjast þeir kl.
22.30.
„Sögur og ævin-
týri í íslenzkri
myndlist44
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands
hefur gefið út dagatal fyrir árið
1996 með eftirprentunum úr ís-
lenskri myndlist. Þetta er í fjórða
sinn sem VfS gefur út dagatal með
þessum hætti.
Björn Th. Bjömsson listfræðing-
ur valdi verkin og skrifaði texta um
hvert myndverk. í vali sínu á mynd-
verkum notast Björn við íslensk
sagnaminni, sögur, þjóðsögur og
ævintýri; þá hulduveröld sem er að
finna þegar við lítum „til þess innra
í þjóðlífinu“, eins og Björn orðar
þar í inngangstexta sínum að daga-
talinu.
Meðal þeirra sagna sem fá líf
hjá þeim myndlistarmönnum sem
Bjöm hefur valið eru „Móðir mín í
kví, kví“ (Ásmundur Sveinsson),
„Flugumýrarbrenna" og „Djákninn
á Myrká“ (Ásgrímur Jónsson), Ólaf-
ur Liljurós (Baldvin Björnsson) og
„Draumur Álfakýrinnar“ (Gunn-
laugur Scheving).
Hönnun og umsjón var í höndum
auglýsingastofunnar Góðs fólks en
öll prentvinnsla fór fram í Svans-
prenti.
Hægt er að nálgast dagatalið á
skrifstofum Vátryggingafélags ís-
lands að Ármúla 3.
-leikur að Iteral
Vinningstölur 23. des. 1995
3*7* 10*15 «20*22 «28
Vinningstölur 27. des. 1995
2*9* 18 «19 * 20*28 «30
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 af 5 0 8.139.930
O 4 af 5 ^■Plús ^ W 3 225.510
3. 4al5 109 10.700
4. 3af5 4.297 630
Heildarvinningsupphæö: 12.689.870
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bflasala
Gleðilega hátíð
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
Nýr jéppi: Suzuki Sidekick 1.8 Sport ’96,
svartur og grár, 5 g., ABS bremsur, rafm.
í rúðum o.fl. V. 2.230 þús.
Honda Civic DXi Sedan '94, vinrauður, 5
g., ek. 32 þ. km. V. 1.250 þús.
Toyota Corolla GL Special Series '92, 5
dyra, 5 g., ek. aðeins 36 þ. km.f rafm. í
rúðum o.fl. Fallegur bfll. V. 790 þús.
Toyota Corolla Touring XL 4x4 '91, grár,
5 g., ek. 86 þ. km. V. 1.030 þús. Tilboð
920 þús.
Fjöldi bfla á tilboösverði
og góðum lánakjörum.
MMC Colt GL '90, 5 g., ek. 116 þ. km.
(uppt. girkassi), álfelgur o.fl. Tilboðsv. 490
þús.
Grand Cherokee SE 4.0L '93, græn-
sans., sjálfsk., ek. 66 þ. km. Fallegur
jeppi. Tilboðsv. 2.890 þús.
M. Benz 280 GE 4x4 '87, grár, sjálfsk.,
ek. 168 þ. km., álfelgur o.fl. Óvenju gott
eintak. V. tilboð (skipti).