Morgunblaðið - 28.12.1995, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 28.12.1995, Qupperneq 62
62 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Eigum fyrirliggjandi og útvegum meö stuttum fyrirvara ýmiskonar stoð- og hjálpartæki sem létta störfin, auka öryggi og afköst. Leitið upplýsinga. SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725 Blab allra landsmanna! JHorötmblabib - kjarni málsins! Ábendingar á mjólkurunibúðuni, nr. 59 af 60. Hvað gerðist? Sögnin að „ske“ hefur verið notuð í málinu öldum saman. Hún er þó talin óvandað mál og betra að segja gerast, verða, koma fyrir. Það er beinlínis rangt að nota orðalagið „það skeði fyrir mig“. MJÓLKURSAMSALAN íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar, íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs. I DAG VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags SKAK Umsjon Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á síðasta stórmóti ársins, sem háð er í Groningen í Hollandi. Michael Adams (2.660), Englandi, var með hvítt og átti leik, en Curt Hansen (2.620), Danmörku, var með svart. 27. Rf5! - Hfe8 28. Rxe3 - Hxe3 29. Dh6 - He5 30. Dd2 Hvítur hefur unnið skiptamun auk þess sem svarti biskupinn á h8 er múraður inni. Daninn gafst því fljótlega upp. Mótið er athyglisvert að því leyti að þar tefla bæði Anatólí Karpov, FIDE- heimsmeistari og Gata Kamsky, áskorandi hans, en ein- vígi þeirra er fyrirhugað á næsta ári. Kamsky er nú mættur aftur til leiks eftir margra mán- aða frí frá taflmennsku, sem m.a. mun hafa stafað af veikindum. Þeir Karpov og Kam- sky tefldu innbyrðis í sjöttu umferð og gerðu jafntefli í 90 leikja bar- áttuskák. Staðan að loknum sjö umferðum: í. Karpov 4 '/2 v. 2—6. Kamsky, Leko, Ivan Sokolov, Van Wely og Svidl- er 4 v. 7-8. Almasi og Curt Hansen 3 '/2 v. 9-10. Lautier og Tivjakov 3 v. 11. Adams 2'/2 v. 12. Piket 2 v. Eftir er að tefla þrjár umferðir. Þakkir MIG LANGAR að þakka RÚV fyrir upplestur á mjög góðri sögu eftir 111- uga Jökulsson sem var á morgnana rétt fyrir kl. 10. Guðrún Gísladóttir les líka söguna alveg ein- staklega vel. Dísa, 66 ára. Tapað/fundið Heilsuvörur töpuðust SÉRSTAKUR hollustu- þvottapoki og tvær túbur af exemáburði töpuðust úr tösku á leiðinni frá Suðurbæjarlaug í Hafn- arfirði upp að Ölduslóð á tímabilinu 3.-10. desem- ber sl. Hafi einhver fund- ið þetta er hann beðinn að hringja í síma 555-0260 eftir kl. 13 næstu daga, eða koma með þá á Ölduslóð 38, uppi. María. Kveðjatil Vífilfells ARNFRÍÐUR Guð- mundsdóttir, Öldu- granda 1, hringdi og bað fyrir kveðjur og þakklæti til verksmiðjunnar Vífil- fells fyrir frábæra aðstoð og rausnarskap í sam- bandi við smáóhapp sem varð. Hún óskar starfs- fólkinu árs og friðar. Með morgunkaffinu ÉG kom hingað til að gleyma stúlku, en nú ætla ég heim og reyna að gleyma liðsforingjanum. COSPER Farsi Pennavinir BANDARÍSK stúlka með margvísleg áhugamál vill eignast íslenska pennavini: Shnyla. Kwiatkowski, P.O. Box 175, Winthrop Harbor, 60096 U.S.A. ÞRJÁTÍU og eins árs Slóv- eni með áhuga á sögu, stjörnuspeki, Nostradamusi o.fl.: Stane Esnersie, Ped hrasti 19, 61000 Ljubljana, Slovenia. TUTTUGU og sex ára Ghanastúlka með áhuga á íþróttum o.fl.: Rose Johnson, P.O. Box 390, Oguaa, Ghana. Víkveiji skrifar... GAMAN var að ganga um Laugaveginn og Kvosina að kvöldi Þorláksmessu. Þrátt fyrir mikinn kulda var gamli miðbærinn fullur af fólki sem hafði flest klætt sig í samræmi við veðrið, í skíða- galla og Kraft-galla. Víkverja fannst ríkja þarna hálfgerð karnival stemning þrátt fyrir kuldann. Börn voru í fylgd með foreldrum sínum og allir virtust skemmta sér vel. XXX GAMAN var að endurnýja kynn- in við kvikmyndina Börn nátt- úrunnar í Ríkissjónvarpinu að kvöldi annars dags jóla. Víkveiji sá þessa mynd í Stjörnubíói á sínum tíma og hreifst mjög af henni. Myndin var svo sterk í endurminn- ingunni að Víkveiji þorði varla að horfa á hana aftur, svo hræddur var hann um að spilla þeirri góðu minningu. En sá ótti var ástæðulaus. Mynd- in vann frekar á en hitt. Upp úr stendur sem fyrr stjörnuleikur Gísla Halldórssonar og Sigríðar Hagalín. Víkveiji hikar ekki við, að segja að þetta sé bezta íslenzka kvikmyndin sem hann hefur séð um dagana. xxx EFTIRFARANDI bréf hefur borizt frá Stefáni Haraldssyni framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs: Víkveiji gerði Bílastæðasjóð enn að umtalsefni sínu fimmtudaginn 21.12. 1995, að þessu sinni í nei- kvæðum tón vegna þess að greiðslu- vél í Ráðhúskjallaranum hefur ekki verið breytt svo hún taki hina nýju 100 króna mynt. í því sambandi er rétt að upplýsa að sama gildir um öll tæki Bílastæðasjóðs, það er 13 greiðsluvélar í bílahúsum, 25 miðamæla að ekki sé minnst á um 900 stöðumæla. Undirbúningur breytinga á greiðsluvélum og miða- mælum er þó í fullum gangi og má búast við að verkinu verði lokið strax í janúar. Breytingunum fylgir umtalsverður kostnaður, en að sinni eru engar breytingar á tímagjöldum fyrirhugaðar. Stöðumælarnir verða útundan í þessu máli að sinni, ekki kemur til greina að lengja leyfilegai. há- marksstöðutíma þar sem hann tak- markast við eina klukkustund á stöðumælastæðum og því má búast við að skoðanir verði skiptar um hvenær leyfa eigi notkun hinnar nýju myntar í gömlu stöðumælun- um. Undirritaður er þó þeirrar skoð- unar að ökumenn muni fljótlega kalla eftir þessari breytingu, vegna þess að miklu meira verður í um- fprð af hinni nýju mynt heldur en tilfellið er með 50 króna peninginn, og óneitanlega gæti komið sér vel að geta valið um 30 mínútur fyrir 50 krónur eða 60 mínútur fyrir 100 krónur. Með því móti myndu líkurn- ar á því að ökumenn hefðu tiltæka rétta mynt fyrir stöðumæla marg- faldast og gæti það orðið öllum aðilum til hagsbóta þegar upp er staðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.