Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska Ee ekað Ht)esA UMAÐooesA einhjerjum ryein ad SKXifa ÆV/Söea /yii'HA 1/ELGeNGNI M'N VEReOfZ MÆ/tJUM LtSAHPA HVATNM6 ALLlRSeMeeu \ 1//LTV AB> ' A&hefja siein I éssmiFi HE/CSTVfí ■/ HANA, ye&u ae> j'-i rúLhjs? ICSA HAHAÍ f O, A/E/, Etda pu/ k>AÐ y/ee>/ a& vega e/nhuer / SEM ÞEH/í/H A4/G ) EHJC/ MJÖG VEEf' I Ferdinand it's a CAVALRV CHAR&E! five hundred 4-5 UUHAT > ARE YOU UUATCmNö? H0R5EMEN 6ALL0PIN6 ACROSS THE DE5ERT AT THE CRACK OF DAION! ' THEV F0R60T TO FEEDTHE D06.. ScjYtU BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Opið bréf til stjóm- anda Dagsljóss Frá Michael Jóni Clarke og Richard J. Simm: ÞAÐ VAR fyrst fyrir u.þ.b. mánuði sem ég undirritaður, Michael Jón Clarke, reyndi að ná sambandi við þig, þar sem mér var tjáð að þú tak- ir ákvörðun um hvaða efni fær að líta dagsins ljós í Dagsljósi, sem er eini þátturinn í Ríkissjónvarpinu sem tekur að sér að kynna listaviðburði á „íslandi“. Ég ásamt píanóleikaranum mínum Richard Simm vorum svo djarfir að ætla að leggja í tónleika- ferð með m.a. ljóðaflokkinn fræga „Astir Skáldsins" eftir Schumann ásamt ýmsum íslenskum söngperlum. Þegar loksins náðist í þig gerðir þú mér það strax ljóst að ekki kæmi til greina að listamenn fengju greiðslu kæmu þeir fram í þættinum, heldur væri eingöngu um kynningu að ræða. Sjálfsagt er svo komið fyrir iista- mönnum á landinu að flest gera þeir launalaust svo ég samþykkti þetta. Þú gast ekki lofað okkur að óathug- uðu máli stað í þættinum og baðst um upplýsingar um okkur og væntan- legt tónleikahald og síðan samdist okkur þannig að ég hefði samband seinna. Við sendum þér um leið eins mikið af upplýsingum og við höfðum, meðal annars mjög lofsamlega gagn- rýni um tónleikana okkar þegar þeir voru haldnir á Akureyri. Þegar ég talaði við þig næst var greinilegt að þú hafðir ekki lagt mikla vinnu í að lesa þessar upplýsingar þar sem þú hélst að ég væri ungverskur píanóleik- ari, sem kom fram í þættinum skömmu síðar. Þeir eru víst líka allir eins þessir útlendingar. Ég gerði margítrekaðar tilraunir til þess að fá svar frá þér og alltaf var ég látinn hringja seinna. Samt urðum við að bóka okkar flug suður í menninguna og taka frí frá kennslu í þeirri von að okkur yrði ekki gert lægra undir höfði en sunnlensku listamönnunum sem komið höfðu fram í þættinum að undanförnu. Tveimur dögum fyrir brottför sagðir þú að erfitt væri að fá stúdíópláss og að þú gætir engu lofað en ég ætti að hafa samband um leið og við kæmum til Reykjavíkur, sem við og gerðum. Þá tilkynntir þú mér að því miður kæmumst við ekki fyrir þar sem svo mikið væri um efni. Við biðum spenntir eftir að sjá þetta athyglisverða efni. Já viti menn, þjóðin fékk að njóta þess meðal annars að fylgjast með virtum dægurlagasöngvara eldsteikja lambasneiðar í sjónvarpssal!! Já tón- bókvitið verður ekki í askana látið! Nú er það svo að meira en hálf þjóðin býr utan höfuðborgarsvæðis- ins. Við beijumst á öllum sviðum fyrir lífi og tilverurétti okkar og borgum okkar afnotagjöld til Ríkis- sjónvarpsins. Við erum farnir að ef- ast um að Ríkisútvarp/sjónvarp standi lengur undir kjörorðinu „Út- varp og sjónvarp allra landsmanna". Málið er nefnilega það, Sigurður, að þú virðist treysta þér til þess að dæma hæfni okkar sem listamanna og taka ákvörðun um að við séum ekki athygli verðir, kannski vegna þess að við erum einfaldlega utan af landi, eða e.t.v. vegna þess að við erum með útlend nöfn, eða einfald- lega, sem við höldum að sé nær sann- leikanum, að þú fylgist ekki nógu vel með því sem er að gerast á lista- sviðinu úti á landi. Þar á greinilega ekki að vera nein menning, bara duglegt fólk sem vinnur fyrir launum sínum svo að það geti greitt afnota- gjöldin sín og horft á Dagsljós launa- lausu höfuðborgarlistamannanna. MICHAEL JÓN CLARKE, 060849-7579, RICHARD J. SIMM, 260246-2049, landsbyggðarlistamenn. Hókus pókus í peningakassann Frá Matthíasi Björnssyni: TIL ER máltæki sem segir: „Tölur ljúga ekki, en það er hægt að ljúga með tölum.“ Þetta á einkar vel við í allri umræðunni um fjármál Reykja- víkurborgar undir stjórn R-listans. Samkvæmt síðustu fréttum úr borgarstjórn er áætlað að skuldir borgarinnar aukist ekki „nema“ um 500 milljónir króna á þessu ári. Þetta þykir sumum bara bærilegur árang- ur, í ljósi þess að í fyrra jukust skuld- irnar hjá R-listanum um tæpan millj- arð króna. Hvernig gengur það upp að skuld- irnar skuli ekki aukast „nema“ um 500 milljóinr króna á sama tíma og útgjöld R-lista flokkanna hækka og hækka? Ástæðan er einföld. Meiri- hluti R-listans í borgarstjórn hefur einfaldlega aukið tekjurnar á móti útgjöldunum. Á mannamáli heitir þetta að skattar hafi hækkað. Hinar auknu tekjur eru teknar beint úr vösum borgarbúa. Annars vegar eru 600 milljónir króna í hol- ræsaskatt og heilbrigðisskatt. Hins vegar er 1,5 milljarðar króna sem fyrirtæki borgarinnar (einkum hita- veita, vatnsveita og rafmagnsveita) greiða í „arð“ til borgarsjóðs. Þessir peningar koma beint frá borgarbúum. Með þessu móti nælir meirihluti R-listans sér í rúmlega tveggja millj- arða króna tekjur umfram það sem meirihluti sjálfstæðismanna innheimti af borgarbúum. En þrátt fyrir þessa auknu skattheimtu tekst R-listanum ekki að lækka skuldir borgarsjóðs, heldur aukast þær og aukast. Ef ekki kæmi til hin aukna skatt- heimta R-listans myndu skuldir borg- arinnar aukast um 2,5 milljarða króna á þessu ári, miðað við þau útgjöld sem meirihlutinn hefur ákveðið. Skattarnir hækka og kosningalof- orð R-listans um að lækka skuldir og draga úr atvinnuleysi eru svikin. Er þetta sú breyting sem Reykvík- ingar óskuðu eftir við síðustu borgar- stjórnarkosningar? MATTHÍAS BJÖRNSSON, Neðstutröð 2, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Á hvað ertu að horfa? Þetta er riddaraliðsáhlaup! Þeir gleymdu að gefa hundin- Fimmhundruð riddarar þeysa um ... yfir eyðimörkina í herferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.