Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 9 FRETTIR Starfshópur á vegum fjármála- og viðskiptaráðuneyta Opinberar stofnanir geti tekið þátt í útboðum FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur óskað eftir því við viðskiptaráðu- neytið að settur verði á laggirnar starfshópur til að kanna hvaða breytingar þurfi að gera á reglum um opinberar stofnanir til að þær geti tekið þátt í opinberum útboðum. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, upplýsti þetta við fyrstu um- ræðu á Alþingi í gær um frumvarp til laga um þjónustusamninga og hagræðingu í ríkisrekstri. Friðrik r.agði að opinberar stofnanir byggju oft yfir mikilli þekkingu og reynslu á þeim sviðum sem útboð færu fram á og það væri ástæðulaust að kasta þessari þekkingu fyrir róða þegar útboðsleiðin væri farin. Nefndi hann sem dæmi Hafna- og vitamálastofn- unina sem hefði yfir að ráða mjög hæfum starfskröftum. Sagði hann að þjónustusamningur hefði verið gerður við þessa stofnun og ef hægt væri að skipta upp starfseminni þannig að hluti hennar væri á sam- keppnisgrunni væri „full ástæða til þess að leyfa starfsfólkinu þar og stofnuninni að njóta þess að taka þátt í samkeppninni við aðrar sam- bærilegar einingar í þjóðfélaginu sem reknar væru á einkamarkaði." Form um þjónustusamninga í umræðunni gagnrýndu fulltrúar stjórnarandstöðunnar efni frum- varpsins og töldu það fela í sér víð- tækt valdaafsal frá löggjafarvaldinu til framkvæmdavaldsins. Með gildi- stöku þess hefðu ráðherrar það í hendi sér að gera þjónustusamninga án þess að bera það undir Alþingi. Fjármálaráðherra sagði að ráðherrar hefðu þetta vald nú eins og málum- væri háttað. Með frumvarpinu væri þess hins vegar freistað að skapa form um slíka þjónustusamninga. Hver kannást ekki við þessi farartæki Nú eru Scooter bifhjólin loksins fáanleg á Islandi. þessi hjól eru einstaklega þægileg í snatt og sendiferðir. Þau eru með u.þ.bþ 49,9 cc, m/rafst og Bílatorgi Haldin verður kynning hjá bílasölunni Funahöfða 1, laugardaginn 1 frákl. 10-16 o sunnudaginn 1 frákl. 13-16. Komiö og skoðið - sjón er sögu ríkari. Fyrstu 10 hjólin verða á sérstöku kynningar- verði við pöntun. Bermundas buxur og bolir TESS Opið virka daga neöst við kl. 9-18, Dunhaga, laugardaga sími 562 2230 kl. 10-14. V ne® V Múrkem ehf., Tangarhöfða 6 b. sími 567 9774 Andlát DANIEL ÁGÚSTÍN- USSON DANÍEL Ágústínusson, fyrrver- andi bæjarstjóri á Akranesi og varaþingmaður Framsóknar- flokksins í Vesturlandskjördæmi, er látinn, 83 ára að aldri. Daníel fæddist þann 18. mars árið 1913 á Eyrarbakka, sonur Ágústínusar Daníelssonar bónda í Steinskoti og Ingileifar Eyjólfs- dóttur. Daníel lauk prófi frá Hér- aðsskólanum á Laugarvatni árið 1934 og kennaraprófi 1936. Hann kenndi við Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði, barna- og unglinga- skólann í Stykkishólmi og Gagn- fræðaskóla Áusturbæjar. Daníel var bæjarstjóri á Akra- nesi árin 1954-1960 og aðalbókari § hjá bæjarfógetanum á Akranesi I frá 1961. Hann var bæjarfulltrúi I á Akranesi frá 1962, í bæjarráði § þar 1962-1974, forseti bæjar- | stjórnar Akraness 1970-71, 5 1972-73 og 1974-77. Daníel var varaþingmaður Framsóknar- flokksins 1959-1978 og tók sex sinnum sæti á þingi á því tíma- bili. Hann gegndi fjölmörgum öðr- um trúnaðarstörfum og sat í ýms- um nefndum og ráðum á vegum Framsóknarflokksins. Þá ritaði hann greinar í blöð og tímarit og ritstýrði Magna á Akranesi, mál- gagni Framsóknarflokksins, frá 1961-1978. Eftirlifandi eiginkona Daníels er Anna Erlendsdóttir. Þau eign- uðust tvö börn, sem bæði lifa föð- ur sinn. sem þú þarft ekki að láta þig dreyma um HYunpni til framtíðar oÆ, ei 5 gíra 2000 cc - 139 hestöfl Vökva- og veltistýri Rafdrifnar rúður og speglar Samlæsing Styrktarbitar í hurðum Utvarp, segulband og 4 hátalarar VERÐ FRÁ 1.678.000 KR. Á GÖTUNA rgir eiga sér draum um að eignast eðalvagn, stóran bíl með virðulegu yfirbragði, sem tekur öðrum fram í útliti og aksturseiginleikum. Við getum boðið þér bíl sem á við þessa lýsingu. Og við getum boðið þér hann á svo góðu verði að þér er óhætt að vakna upp af góðum draum og láta hann rætast. HYUNDAISONATA ... ekki bara draumur ÁRMÚLA 13 SÍMI: 568 1200 BEINNSÍMI: 553 1236 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.