Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 39 EIRÍKUR HAMALL ÞORS TEINSSON -4- Eiríkur Hamall ‘ Þorsteinsson fæddist í Ósló 16. september 1964. Hann lést 8. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans eru Steingerður Þor- steinsdóttir og Þor- steinn Guðjónsson. Eiríkur ólst upp hjá foreldrum sínum í Reykjavík og Kópa- vogi, ásamt bræð- rum sínum tveim, Gaut og Þorsteini. Eiríkur varð stúd- ent frá MR 1983. Hann lauk B.S. prófi í eðlisfræði við Há- skóla Islands vorið 1987, og kenndi stærðfræði við MR 1987-1988. Eiríkur varð Diplom-Physiker í kennilegri eðlisfræði við Hamborgarhá- skóla 1994. Hann var kennari við framhaldsskólann á Laug- um veturinn 1995-1996. Minningarathöfn um Eirík verður í Reykholtskirkju í dag og hefst klukkan 14. Fyrstu minningar mínar um Ei- rík bróður minn eru bundnar leik og starfi á Úlfsstöðum í Borgar- firði, þar sem við báðir dvöldum að sumarlagi um margra ára skeið. Við sóttum kýrnar, rákum kindur úr túninu og komum heyjum í hlöðu ásamt frændfólki okkar. Á f kvöldin var farið í boltaleik eða setið á tali við Þorstein afa um * uppruna og eðli lífsins og allrar I tilveru. Bróðir minn varð, eins og margir aðrir, fyrir miklum og góð- um áhrifum af afa sínum og bjó að þeim æ síðan. Samband hans við önnur ættmenni var einnig náið og gott og er óhætt að segja að öllum hafi líkað við hann vel. Hann fékk snemma á sig orð fyrir heiðarleik og sannsögli og þróuð- ! ust þeir eiginleikar með honum frá { bernsku til dauðadags. Ávallt sýndi J hann drenglyndi í samskiptum við annað fólk, hallmælti engum og tók málstað þeirra, sem minna máttu sín. Skólaganga Eiríks var alllöng orðin, þeg- ar fráfall hans bar að. Barnaskólanám stundaði hann í Kópa- vogi og nam þar einn- ig um skeið fiðlu- og píanóleik. Síðan lá leiðin í Menntaskól- ann í Reykjavík og tók þá hugur hans að hneigjast að raun- greinanámi, þótt segja mætti að hann væri nokkuð jafnvígur á allar greinar. Hann eignaðist ágæta vini í menntaskól- anum og minntist námsáranna við þá stofnun sem einhverra hinna bestu á sinni ævi. Var oft á heim- ili okkar rætt um hinn gamla, góða skóla, því faðir okkar tók þaðan stúdentspróf, líkt og Eiríkur, og báðir stunduðum við bræðurnir þar kennslu um skeið er við höfum lokið námi okkar við Háskóla ís- lands. Eiríkur stundaði eðlisfræðinám við Háskóla íslands og náði þar ágætu sambandi við samstúdenta og kennara. Hann var vandvirkur við nám sitt, líkt og annað, sem hann tók sér fyrir hendur og lagði ávallt áherslu á að skilja viðfangs- efni sín frá grunni. Var það ríkur þáttur í eðli hans að hugsa sjálf- stætt og leggja eigið mat á fræði- kenningar þær, sem hann braut til mergjar á námsárunum. Sumar- störf vann hann á þessu tímabili í fiskiðjuverum á Stokkseyri og Flat- eyri og síðar við Raunvísindastofn- un. Frístundunum fækkaði með árunum, en þó gafst við og við tækifæri til að slást í för með bræðrum og frændum, þegar haldið var i útilegu á Arnarvatnsheiði. Hann hreifst af fegurðinni á þeim slóðum og vildi heldur stunda nátt- úruskoðun en taka þátt í silungs- veiðum. Oft horfði hann til jöklanna hvítu í íjarska og eignaði sér stund- um Eiríksjökul í gamni. Þegar bróðir minn hélt til fram- haldsnáms í Hamborg var ég við MIIMIMIIMGAR nám og störf í Kaupmannahöfn og hittumst við þá stundum til að bera saman bækur okkar. Og þegar ég var kominn til starfa í Bremerhaven haustið 1992 var styttra á milli okkar en áður og heimsóttum við hvor annan reglulega. Hann var þá orðinn vel kunnugur þýsku þjóð- lífi, menningu og hugsunarhætti eftir nokkuiTa ára dvöl í Hamborg og miðlaði mér af reynslu sinni og þekkingu. Fórum við margar ferðir saman á listasöfn og í tónleikahús og töluðum um heimspeki og vís- indi. Kynntist ég honum betur á þessu tímabili en nokkru sinni áður og má segja, að mér hafi þá fyrst orðið fullljóst, hversu merkilegur maður hann var. Eiríkur var hógvær maður og flíkaði lítt tilfinningum sínum. Hann var góðmenni og næmur í lund og sýndi áhuga öllu því, sem háleitt er og fagurt. Hann lagði stund á menntir og menningu hverskonar og heyjaði sér fróðleik úr öllum áttum. íslensk fornrit voru honum hugstæð og yndi hafði hann af ljóðum Jónasar Hallgrímssonar og annarra góðskálda. Og eins og mörg ættmenni hans hafa gert lagði hann stund á kenningar þær, sem dr. Helgi fyeturss bar fram í Nýalsritum sínum fyrr á öldinni og hafði hugsað sér að vinna að rann- sókn og kynningu þeirra rita í fram- tíð. Bróðir minn gekk ekki heill til skógar síðustu þrjú ár ævi sinnar. Sjúkdómsins kenndi hann fyrst er hann var iangt kominn með nám sitt í Hamborg, sem honum þó tókst að ljúka þrátt fyrir veikindin. Hann tók veikindum sínum af æðruleysi og stefndi ávallt að því að ná fullum bata á ný. Nokkru eftir heimkom- una bauðst honum kennslustarf á Laugum í Þingeyjarsýslu og gekk honum þar allt í haginn nú í vetur, þar til reiðarslagið kom skyndilega hinn 8. apríl sl. Missir hans er okk- ur nánustu ættingjum hans mjög þungbær, en minningin um góðan dreng, sem öllum vildi vel, mun lifa í hugua okkar. Við munum einnig minnast þess, að margir studdu Eirík á margvíslegan hátt í veikind- um hans og sýndu honum tryggð og vináttu og vil ég fyrir hönd ættingja færa þeim öllum bestu þakkir. Okkur hefur á þessum erfið- leikatímum orðið það betur ljóst en SIGRÚN < SIG URÐARDÓTTIR Sigrún Sigurðardóttir fæddist á Dalvík 10. októ- ber 1916. Hún lést á Sjúkra- húsi Seyðisfjarðar 10. mars síðastliðinn og fór útförin fram frá Seyðisfjarðarkirkju 16. mars. Móðir mín er látin. Sjúkdóminn I bar brátt að og skyndilega var öllu lokið. En minningarnar lifa. Við systkinin ólumst upp á Siglufirði I á Lindargötu 20 í góðu yfirlæti. Þar var reglusemi í hávegum höfð. Allt var hreint og strokið. Svo var mömmu fyrir að þakka, en hún starfaði utan heimilis alltaf við fiskvinnslu og síld. Vinnudagurinn hófst kl. 7 að morgni og lauk um kl. 7 að kvöldi. Oft var unnið um helgar. Á meðan ég ólst upp tók 1 móðir mín aldrei sumarfrí. Það var I vinna og aftur vinna. En heimilið i glansaði samt sem áður. Alltaf voru til heimabakaðar kökur og hádegismatur var á slaginu 12, heitur matur, og ég hljóp heim úr skólanum til þess að mæta tíman- lega í hádegismatinn, því að stund- vísi var ein af reglum heimilisins. Eg smitaðist af dugnaði mömmu. Annað var ekki hægt. Krafturinn I var svo mikill og atorkan að það sópaði af henni. Alltaf var þvottur- inn hreinn, svo að vinkonur mínar I spurðu mig, hvort ég þvæði sjálf. En ég fékk ekki einu sinni að snerta ryksuguna hvað þá annað. Ef hún átti frístund þá var sauma- vélin tekin fram og hún saumaði á mig fallega kjóla og kápur, pijón- aði peysur á okkur systkinin. Þegar ég var 6 ára gömul lang- aði mig að prófa að fara í síld með mömmu. Hún saumaði á mig síldarpils og ermar, og ég átti að leggja niður svo langt sem ég náði. Þetta ævintýri mitt stóð nú stutt, því að mér fannst ómögulegt að óhreinka mig í þessu og hætti fljót- lega. Mamma sagði ekki orð um alla sína fyrirhöfn heldur hló og fyrirgaf mér. Þegar ég stálpaðist færðist síld- in austur á firði á sumrin. Mamma fór með. Pabbi varð verkstjóri í Fiskiðjunni á Seyðisfirði og mamma saltaði. Hún lét sér ekki nægja að vera bara í Fiskiðjunni heldur fór hún á önnur plön og saltaði þar líka. Aldrei kvartaði hún um þreytu. Krafturinn var svo mikill að hún varð síldardrottning á Seyðisfirði sumarið 1965. Ég vann um þetta leyti yfir sum- arið í verslun en skrapp í síld um helgar. Þá gætti ég þess að standa ekki nálægt mömmu. Einu sinni prófaði ég það og ætlaði í kapp við hana en það endaði með því að ég skar mig í fingur í öllum látunum, enda tæmdist síldin svo fljótt úr kassanum þar sem mamma stóð. Árið 1977 fluttust foreldrar mínir til Seyðisfjarðar og keyptu sér einbýlishús þar. Síldin var þá reyndar að hverfa en eitthvað var um fiskvinnslu. Mamma tók þátt í því í nokkur ár, en þegar um hægðist varð hún eirðarlaus. Þá var barnabarnabörnunum tekið að fjölga og nú var setið öllum stund- um við pijónaskap og sauma. Allir fengu peysur, sokka og vettlinga. Alltaf var til á heimilinu nóg af kökum en þetta var henni ekki nóg. Hún kvartaði um aðgerðar- leysi og leti, og ef barnabörnin komu ekki í heimsókn varð hún leið. Síðustu árin hafði hún hægt um sig, en það átti nú síst við hana. Vinnuþreyta lét á sér bera og henn- ar sjúkdómur ágerðist en áfram var pijónað. Hún gafst ekki upp. Nú tók föndrið við. Hún fór að mála myndir og dúka, og það tókst prýðilega. í lokin vil ég segja, að allt sem þessi kona, hún móðir mín, tók sér fyrir hendur, gerði hún ágætlega vel og af prýði. Ég vil síðan þakka öllum þeim, sem sýndu móður minni hlýhug við útförina og bið föður mínum velfarnaðar og góðrar heilsu í ell- inni. Lifið öll heil. Lifendum guð minn likna þú, liðnum þú miskunn gefur. Veit huggun þeim, sem harma nú hvíld veita þeim er sefur. Góðir menn, Drottinn gef þú, að í góðra manna komi stað, á öllu ráð einn þú hefur. (Sveinbj. E.) Anna G. Jónsdóttir. nokkur sinni áður, hversu mikils virði það er að eiga góða að. Þorsteinn Þorsteinsson. Kæri félagi. Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þér svo ungum og bjartsýnum á það sem framtíðin bar í skauti sér. Sjá á bak þér svo snemma á vit skapanorna þinna, í átt til þess sem þú veltir stundum fyrir þér - hvað tæki við að jarð- vist lokinni. Þú, sem varst að búa þig undir að takast á við ný verkefni, njóta sumarsins í faðmi dásemda þeirra sem landið býður okkur upp á hér á Laugum. Þú, sem varst orðinn hvers manns hugljúfi og aufúsu- gestur hvar sem þú komst. Tókst þátt í lífinu hér með okkur á stutt- um ferli þínum síðan í haust. Varst 'að vinna sigra á sjálfum þér, um- hverfi og aðstæðum. Varst að búa í haginn og koma þér fyrir með blómlega daga og hækkandi sól í hugskoti þínu. Síðast í sátt við sjálf- an þig, guð og menn. Síðan horfinn á braut og eigin vegi, þótt þú hafir ekki frekar en við ætlað að Iíf þitt tæki enda með svo skjótum hætti. Við þökkum þér kæra samfylgd og þátttöku í samfélagi sem þú varst farinn að eygja framtíð þína í. Söknum þín í návist og samveru, hláturs þíns og gamanyrða, þagnar þinnar stundum og lítillætis. Kveðj- um þig með fátæklegum orðum og hlýjum hugsunum. Með spum á vörum, horfum hvert á annað en spyijum einskis, leitum ekki svara við því sem ekki er unnt að skýra út. Farnist þér vel, kæri félagi, í reginvíddum eilífðarinnar. Megi góður Guð og helgar vættir styrkja fjölskyldu þína í djúpri sorg hennar og söknuði. F.h. samstarfsfólks og nemenda Framhaldsskólans á Laugum, Hjalti Jón Sveinsson. t KRISTJÁN Þ. KRISTJÁIMSSON, frá Bolungarvík, andaðist í Sjúkrahúsinu í Bolungarvík 11. apríl. Vandamenn. t Elskulegur fósturbróðir og frændi okkar, SIGURÐUR GUÐBJÖRN EINARSSON, frá Rúffeyjum, síðast til heimilis á Hverfisgötu 16, Rvík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi 11. april. F.h. annarra ættingja, Ebba H. Ebenesersdóttir, Þorlákur Ebenesersson. t Elskuleg dóttir okkar og systir, SIGRÍÐUR HULD KJARTANSDÓTTIR, Sæbólsbraut 17, Kópavogi, lést í Landspítalanum að kvöldi 11. apríl sl. Guðrún Sigurðardóttir, Kjartan Stefánsson, Stefán Kjartansson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, FINNBOGI FINNBOGASON, Heiðargerði 1b, Reykjavík, lést 21. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigurveig Jóhanna Árnadóttir, Finnbogi Finnbogason, Jónas Finnbogason, Edda Finnbogadóttir, Þráinn Finnbogason og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.