Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 LANDIÐ VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÝMSIR brugðu sér í kaffihús nemenda. Morgunblaðið/Björn Björnsson Opnir dagar í Fjölbrauta- skólanum á Sauðárkróki Sauðárkróki - Nýlega er lokið hefðbundnum Opnum dögum í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, en um nokk- urra ára skeið hefur það verið hluti skólastarfsins síðla vetrar að bijóta upp hefðbundna kennslu og hafa kennarar og nemendur snúið sér að allt öðrum hlutum, en þeim sem við er að glíma hversdagslega. Þeir Eyþór Einarsson, forseti nemendafélagsins, og Ársæll Guð- mundsson, aðstoðarskólameistari, sögðu að þessu sinni hefðu dagarn- ir byrjað á miðvikudagskvöldi og staðið til helgar og hefði verið mjög fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, þar sem allir hefðu fund- ið eitthvað við sitt hæfi. Nemend- um var boðið að skrá sig í hópa, sem störfuðu frá hálfum degi til tveggja daga, og fengust þeir við hin ýmsu verkefni undir leiðsögn kennara eða sérþjálfaðra leiðbein- enda. Mikil þátttaka var í hópstarfinu, þar sem menn gátu kynnst af eig- in raun bjargsigi, hinum ýmsu greinum íþrótta, joga, farið á dans- námskeið eða í fjallgöngur, kynnt sérförðun, skrautskrift eða hesta- mennsku, flakkað um internetið, stundað myndlist, ljóðlist og ljóða- gerð eða logsuðu, fengist við blaða- útgáfu, ljósmyndun eða mynd- bandagerð og er þó fátt eitt talið. Magnús Skarphéðinsson, sem þekktastur er sem hvalfriðunar- maður, kom og hélt fyrirlestra meðal annars um framliðna, en einnig hélt Skúli Lorenzon miðill skyggnilýsingarfund. Þá var farin hópferð um sögu- slóðir í Skagafirði, undir leiðsögn sögufróðra manna, og var fullbók- að í þá ferð og urðu einhveijir frá að hverfa. I tengslum við Opnu dagana var verknámshús skólans opið öllum sem vildu kynna sér aðstöðu og verkefni í grunndeild raf- og málm- iðna svo og í líffræði og efna- fræði, en í bóknámshúsinu voru fyrirlestrar og sýningar. Einnig var þar opið kaffihús þar sem borð svignuðu undan girnilegu meðlæti, en skólakórinn og Ragnar Már Magnússon, fulltrúi skólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna, og Harmonikkufélags Skagafjarð- ar skemmti gestum. Rás FÁS, sem er útvarpsstöð þeirra fjölbrautaskólanema, út- varpaði allan sólarhringinn. Öll kvöldin létu gestakokkar hendur standa fram úr ermum, og buðu ljúffengar kræsingar í matsal heimavistarinnar, en Opnu dögun- um lauk síðan með árshátíð skól- ans, sem haldin var í félagsheimil- inu Höfðaborg í Hofsósi. Eyþór Einarsson sagði mjög ánægjulegt hve þátttaka hefði ver- ið almenn og góð og bæði nemend- ur og kennarar lagt mikla vinnu af mörkum til þess að þessir dagar mættu takast sem best og verða eftirminnilegir. NYUNGAR í SKIPASMÍÐUM Námsstefna á Hótel Sögu 19. apríl 1996 Á ráðstefnunni gefst íslenskum skipasmíðastöðvum, smíðaverkstæðum, útgerðum, verk- og tæknifræðingum og hönnuðum tækifæri tii að kynnast nýjungum í skipa- smíðum með notkun nýrra léttefna. Námsstefnan er sérstaklega sniðin fyrir verkefni af því tagi er hentað geta í íslensku atvinnulífí. Fyrirlesarar: Karl-Axel Olsson, prófessor við Tækniháskólann í Stokkhólmi, fjallar um hin nýju léttefni, eðli þeirra og notkun. Brian Hayman, sérfræðingur við Det norske Veritas í Osló, fjallar um nýjar reglur varðandi ál, plast og komposit skip. Sven-Erik Heilbratt, framkvæmdastjóri við Karlskorna skipasmíðastöðina, sýnir dæmi um notkun léttefna við skipasmíðar í Karlskrona. Niels Mathiesen, framkvæmdastjóri Mathis skipasmíðastöðvarinnar í Álaborg, rekur dæmi um nýja kynslóð lítilla fiski-, eftirlits og sportbáta. Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor og framkvæmdastjóri Verkfræðistofnunar, er námsstefnustjóri og stýrir pallborðsumræðum. Námstefnugjald er 6.500 kr. Innifalin eru námsgögn, hádegisverður og kaffí. Skráning fer fram hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands í síma 525 4923 525 2425 eða í myndsíma 525 4080. Norræni Iðnaðarsjóðurinn Verkfræðistofnun Háskólans Endurmenntunarstofnun Háskólans Samtök iðnaðarins Stærsta skip Eimskips sjósett NÝTT gámaskip Eimskips var sjósett í Stettin í Póllandi fyrr í þessum mánuði. Skipið er hið stærsta sem félagið hefur eign- ast til þessa og er því ætlað að sigla á nýrri siglingaleið félags- ins, Norðurleið, frá Reykjavík til Hamborgar og Norðurlanda- hafna með viðkomu í Þórshöfn í Færeyjum. Vinna við skipið hefur gengið vonum framar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskip, og er fyrirhugað að það verði afhent félaginu í byrj- un júnímánuðar. I ávarpi sínu af tilefni sjósetningar skipsins, sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélagsins, þetta vera merkan viðburð í sögu félagsins í ljósi þess að nýja skipið væri fyrsta nýsmíði Eimskips í aldarfjórðung. Skipið getur flutt allt að 1.012 gámaeiningar og er 150 metrar að lengd. Burðargeta þess er 12.500 tonn og aðalvélin 9.500 hestöfl. Ganghraði skipsins er 18 mílur á klukkustund. Nýja skipið hefur raforkufram- leiðslugetu til að flytja fleiri en tvö hundruð 40 feta frystigáma. Gengið var frá samningum um smíði skipsins í september sl. í kjölfar ákvörðunar um að endurnýja skipastól félagsins í Evrópusiglingum og vegna breytinga á siglingaáætlun. Til- gangur þeirra breytinga er að auka þjónustu við viðskiptavini félagsins með styttri flutninga- tíma og tíðari flutningum til og frá Evrópu. Með tilkomu skips- ins verða ekjuskipin Brúarfoss og Laxfoss leigð eða seld úr landi. Hagnaður treystir stöðu Mercedes Stuttgart. Reuter. MERCEDES-BENZ AG bifreiða- verksmiðjurnar, stolt Daimler- Benz AG, jók hagnað sinn um 23% 1995 og mun auka sölu sína á þessu ári að sögn Daimlers. Hreinn hagnaður jókst í 2,28 milljarða marka úr 1,85 milljörð- um 1994. Aukin sala vörubíla og niðurskurður útgjalda vó á móti styrkleika marksins. Árið 1996 hefur einnig byijað vel og hafa tekjur Mercedes aukizt um 6,8% í 18.1 milljarð á fyrsta fjórðungi vegna góðrar sölu E-línu bíia að sögn DB. Þá telur fyrirtæk- ið að sala á fólksbílum og bifreið- um fyrirtækja ætti að aukast í ár þrátt fyrir veikleikamerki í efna- hagslífinu. Sala fólksbíla jókst í 145.400 úr 139.365 á fyrsta ársfjórðungi, aðallega vegna mikillar eftirspurn- ar eftir E-bílum að sögn Mercedes. Hreint tap Daimlers nam 5.7 milljörðum marka 1995 vegna kostnaðar við endurskipulagningu á dótturfyrirtækjunum Daimler- Benz og ÁEG. Bílasala Mercedes 1995 minnk- aði um 2% í 583.432 og segir Mercedes það aðallega skýrast af því að viðskiptavinir drógu bíla- kaup þar til E-línan var sett í sölu. Sala sendibíla, vörubíla, almenn- ingsavagna, fjölnotabíla og ann- arra bifreiða fyrirtækja jókst hins vegar í 320.100. Daimler lagði áherzlu á að stefna fyrirtækisins í fjárfesting- armálum miðaði að því að viðhalda störfum innanlands. Fyrirhugað er að veija sex milljörðum marka til fjárfestinga 1996, þar af 4,4 milljörðum í Þýzkalandi. Ráðstefna um framtíð * iðnaðar á Islandi RÁÐSTEFNA um framtíð iðnaðar á íslandi verður haldm á vegum Verkfræðingafélags íslands og Tæknifræðingafélags íslands, í samvinnu við Samtök iðnaðarins og Iðnaðarráðuneytið nk. fímmtudag. Á ráðstefnunni munu margir af frumkvöðlum íslensks iðnaðar fjalla um þær aðgerðir sem þeir telja nauðsynlegar til að tryggja samkeppnishæfni íslensks iðnað- ar, hvort sem þar er um að ræða matvælaiðnað, byggingariðnað, sjávarútveg, hugbúnaðariðnað eða annan iðnað. Meðal annars verður tekið á opinberri stefnumótun, uppbygg- ingu einstakra iðnaðargreina og helstu vaxtarbroddum framtíðar- innar. Meðal þátttakenda og ræðu- manna verða Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Jón Asbergs- son, framkvæmdastjóri Útflutn- ingsráðs. í lok ráðstefnunnar mun Páll Kr. Pálsson stjórna pallborðs- umræðum. Ráðstefnan verður haldin í Húsi iðnaðarins að Hallveigarstíg 1, fimmtudaginn 18. apríl kl. 13-18:30. Skráning fer fram á skrifstofu VFÍ og TFÍ og lýkur 17. apríl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.