Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ GuÖœundm Rapn Gemöal vcemanleqm poKseTapiacnhjóðandi Stefnuskrá, 6. liður af 12: „Að styðja vistvæna ræktun.“ itm-----sa Breskir seljendur meö mikið vöruúrval á frábœru verði. Peysur, sloppar, buxur, skyrtur, antikvara og margt fleira. QBenni hinn gódi í grillstadi ■ ..og býður úrval af grillkjöti á frábæru Kolaportsverði ■ Nú eru páskamir búnir og tími til að taka fram grillið og fá sér góða grillmáltíð í góða vcðrínu um helgina (vonandi snjóar ekki). Um þessa helgi verður Benni hinn kjötgóði með mikið úrval af grillkjöti á frábæm . verði og landsfræga áleggið sitt á verði sem passar svo vel fyrir þig. 0 Sprengiverd - f san kr. 99 kg. ■ ..1 kq af ýsuflökum og 1 frítt - 5. kg smáýsuflök kr. 985,- Sprengitilboð á ýsu kr. 99. kg. og tilboð á ýsuflökunum, þú greiðir eitt kg og færð annað ókeypis. Helgartuboðið er 5 kg pakkn. af smáýsuflökum á kr. 985,- (197 kr. kg). Einnig glæný stórlúða, rauðmagi, taðreyktur rauðmagi, söltuð grásleppa, smokkfiskur, hvalkjöt og sjósiginn fiskur. KOLAPORTIÐ Opið laugardag og sunnudag kl. 11-17 Á sunnudaginn svörum við í einu númeri 5251000 Aöfararnótt simnudagsins 14. apríl tengir Sjúkrahús Reykjavíkur saman símstöðvar sínar í Fossvogi og á Landakoti í eitt númer, 525 1000. Vegna þessara breytinga geta truflanir átt sér stað á símakerfinu frá kl. 02:00 til 05:00. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Söngklúbbur í Reykjanesbæ í VETUR hefur verið starf- ræktur söngklúbbur í Reykjanesbæ. Við hittumst annað hvert föstudags- kvöld í tjaldmiðstöðinni Stekk rétt við stórmarkað- inn Samkaup og syngjum saman, spjöllum saman og kennum hvert öðru lög og texta. Leikið er undir á gítara, ásláttarhljóðfæri og stundum einnig bassa. Þegar best lætur eru 3 gít- arar og bassi, bongó- tromma og tambúrína. U.þ.b. 15 manns hafa mætt í hvert sinn, en þegar flestir komu voru það um 40 manns. Á síðasta söng- kvöldi var ákveðið að klúbburinn skyldi heita Uppsigling. Ollum er velkomið að líta inn, hlusta og taka lagið eins og þeim sjálfum sýn- ist. Þeir sem eiga skemmti- lega texta ættu að taka þá með. Þeir sem treysta sér til að leika með á hljóð- færi ættu endilega að taka það með, hvort sem það er gítar, harmóníka, tromma, fiðla, flauta eða eitthvað annað. Allar nán- ari upplýsingar eru veittar í síma 421 3941. Ragnheiður og Þorvaldur Orn. Þakkir til Gísla MIG LANGAR að þakka Gísla S. Einarssyni, þing- manni Vesturlands, fyrir þingsályktunartillögu sem hann lagði fyrir Alþingi þess efnis að hækka beri lágmarklaun í 80.000 krónur og að hámarkslaun mættu ekki vera hærri en sexföld lágmarkslaun. Einnig finnst mér Þór- arinn V. Þórarinsson tala ómaklega til hans þegar hann segir að hann sé bara að auglýsa sjálfan með þessu frumvarpi og gera lítið úr hugsjónum hans. Sigurður Sveinsson. Tapað/fundið Týndurjakki á Kanaríeyjum Stúlkan, sem var að leita að jakkanum sínu í flug- stöðinni á Kanaríeyjum á heimleið 27. mars sl., er beðin að hringja í síma 551.2459. Hringur tapaðist GULLHRINGUR tapaðist miðvikudaginn 3. apríl í Fjarðarkaupum eða versl- unarmiðstöð Miðbæjar Hafnarijarðar. Hafi ein- hver fundið hringinn er hann beðinn að hringja í síma 424 6645 eftir kl. 19. Keðjuúr tapaðist GULLÚR í hálskeðju tap- aðist þriðjudaginn 9. apríl, gæti hugsanlega hafa verið í kringum Landspítalann eða Kringluna að Pfaff á Grensásveginum. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 560 1375 fyrir hádegi eða 551 3938 eftir hádegi. ' Golfkylfur töpuðust TVÆR golfkylfur af gerð- inni Ping-zing með grafít- skafti, nr. 8 og 9, töpuðust fyrir skömmu. Þær eru merktar á hausi „S. Sveinsson". Hafi einhver fundið kylfurnar er hann beðinn að hringja í síma 568 5784 eða 552 9900. Sessa úr stól fannst BLÁ sessa úr Trip-Trap stól fannst í Hamraborg fyrir nokkru. Uppl. í síma 564 2697. Lotta er týnd LOTTA er ljósgrá persnesk læða og á heima í Lindar- hvammi 2 í Hafnarfirði. Hún fór í heimsókn í Reyk- ás 33 föstudaginn 29. mars sl., en slapp þaðan út og hefur ætlað heim til sín en ekki ratað. Hafi einhver orðið ferða hennar vár er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 555 0141. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Hvítur leikur og vinnur SÆNSKI stórmeistarinn Ulf Andersson (2.630) er með gætnustu skákmönn- um allra tíma og bregður sér sjaldan í hlutverk bragð- arefsins. En hér hafði eitt- hvað farið úrskeiðis hjá Úlfi í stöðuuppbyggingunni og ekki um annað að ræða en að plata andstæðinginn sem var í tímahraki. Það tókst, hollenski stórmeistarinn Friso Nijboer (2.475) lék síðast 35. — Df2-f6?? í stað- inn fyrir 35. — Df5 og And- ersson vann glæsilega: 36. Hf4!! - Dxf4 37. Bd5+ - Df7 37. Dxg6+ og svartur gafst upp. Skákin var tefld á Kloster mótinu í Ter Apel í Hollandi, sem lauk fyrir mánaða- mótin og hún færði Svíanum sigurinn á mótinu: 1. Andersson 3 Vi v. af 5 mögulegum, 2. Pre- drag Nikolic, Bosníu 3 v. 3-4. Nijboer og Peter Svidler, Rússlandi 2 Vi v. 5. Peter Leko, Ungveija- landi 2 v. 6. Lembit Oll, Eistlandi \Vi v. Hraðskákmót Hellis fer fram mánudagskvöldið 15. apríl kl. 20 í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti. Tefldar verða 5 mínútna skákir, 7x2 um- ferðir, hverteflir 14 skákir. Verðlaun 5 þús, 3 þús og 2 þús. HÖGNIHREKKVÍSI S J Ú KRAH Ú S REYKJAVÍ KUR Víkveiji skrifar... EKKI fer á milli mála að þeim fjölgar stöðugt sem hjóla í og úr vinnu eða í og úr skóla. Fyrir nokkrum árum heyrði það til undan- tekninga að fólk sæist hjólandi en nú má stöðugt sjá fjölda fjölks hjól- andi um götur borgarinnar. Tvennt veldur líklega þessari byltingu öðru fremur. í fyrsta lagi hefur aðstaða hjólreiðamanna á höfuðborgar- svæðinu batnað stórlega með til- komu nýrra göngu- og hjólreiða- stíga. Það er þó enn langt í það að aðstæður til hjólreiða almenn- ings verði jafngóðar og í nágranna- ríkjunum. Borgarskipulag hefur alltof lengi verið miðað við þarfir ökumanna einvörðungu en lítið tillit verið tekið til gangandi vegfarenda og hjólreiðamanna. xxx ÞETTA er miður þar sem auðvit- að ætti að haga málum þann- ig að fólk væri hvatt til að nota aðra samgöngumáta en mengandi ökutæki. Það er hollt og hressandi að ganga eða hjóla og að auki er það mikið öryggisatriði fyrir börn á skólaaldri að þurfa ekki að ganga eða hjóla yfir fjölfarnar götur á leið sinni í skólann. En það sem hefur líklega valdið einna mestu bylting- unni varðandi hjólreiðar á Islandi er tilkoma fjallahjólanna. Þessi harðgerðu hjól eru tilvalin fyrir ís- lenskar aðstæður eða öllu frekar aðstöðuleysi. Að sama skapi henta þau betur íslenskri veðráttu en aðr- ar tegundir hjóla þó svo að veðrið verði líklega um alla framtíð það sem helst mun aftra mönnurn frá því að skilja bílinn eftir heima. xxx ERSLANAMIÐSTÖÐIN Kringlan virðist vera sama- staður margra unglinga, sem halda sig þar i hópum. Um það er auðvit- að ekkert nema gott að segja, enda er þetta lífsglatt og snyrtilegt fólk upp til hópa. Víkverja, sem á dag- lega erindi í Kringluna, hefur þó komið mjög á óvart hvers konar hegðun einstaka sauður í hjörðinni telur sig geta komist upp með þar innan dyra. Víkveiji hefur orðið vitni að því að einhverjir gúmmí- töffarar hræki á gólfið, hendi rusli þar sem þeir standa og veitist að eldra fólki með afkáralegum til- burðum. Þetta vekur í fyrsta lagi upp spurningar um það, hvað for- ráðamenn Kringlunnar telja við hæfi að láta viðgangast þar inni — í flestum fyrirtækjum yrði komplexeruðum töffurum með stæla fleygt út. I öðru lagi er þetta tilefni til að velta fyrir sér stöðu uppeldismála á sumum heimilum. Fyrst og fremst er það hins vegar fyrir neðan virðingu unga fólksins að láta svona. Það er kominn tími til að sá stóri meirihluti unglinga, sem er til fyrirmyndar, taki svörtu sauðina í gegn fyrir að spilla fyrir heildinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.