Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 1
80 SIÐUR LESBOK/C/D
84. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR13. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ohollusta
af yfir-
vinnunni
London. Reuter.
ÞAÐ er ekki allt fengið með
því að heimta meiri aukavinnu
því að of mikið vinnuálag og
of langur vinnutími eru hættu-
leg heilsunni og geta komið
mönnum beint í gröfma. Er það
niðurstaða rannsókna, sem
gerðar hafa verið í ýmsum
löndum.
Bresku vísindamennirnir
Susan Michie og Anne Cockc-
roft segja í grein í breska
læknablaðinu, að niðurstaða
allra rannsókna sé sú, að of
mikið vinnuálag valdi auknum
veikindum og fleiri dauðsföll-
um. Það sé því á ábyrgð vinnu-
veitenda að tryggja, að álagið
sé hóflegt og taka þátt í kostn-
aði vegna veikinda eða kvilla,
sem sannanlega stafi af vinnu-
aðstæðum.
í greininni er getið rann-
sókna, sem gerðar hafa verið
í Danmörku, Italíu, Svíþjóð og
Bretlandi. í Danmörku var
fylgst með 2.465 strætis-
vagnabílstjórum í sjö ár og
kom þá í ljós, að dauðsföll og
veikindi voru næstum helmingi
meiri meðal þeirra, sem skiluðu
lengstum starfsdegi, en hinna,
sem voru undir skaplegu álagi.
Mikil vinna, lítið félagslíf
„Vaxandi vinnuálag og að
sama skapi minna félagslíf
eykur hættuna á hjartaáföll-
um,“ segja þær Michie og
Cockcroft í greininni og minna
á, að „of mikil yfirvinna" sé
nánast viðurkennd dánarorsök
í .J apan.
I ítölsku rannsókninni var
sýnt fram á, að þeir, sem
stunda likamlega erfiðisvinnu
en bera litla ábyrgð, eru veikir
fyrir lungnakvefi og öðrum
slíkum kvillum og ósjaldan of-
beldisfyllri en gerist og gengur.
Þúsundir Líbana
flýja árásir Israela
Flugskeytum skotið á sýrlenska herstöð í Beirút
Beirút, Jerúsalem, Teheran. Reuter.
ÍSRAELSKAR herflugvélar gerðu árásir á skotmörk í Beirút og suður-
hluta Líbanons í gær, annan daginn í röð, til að hefna árása skæru-
liða Hizbollah-samtakanna á norðurhluta ísraels. Þúsundir óbreyttra
borgara í suðurhlutanum flúðu heimili sín þar sem þeir óttuðust frek-
ari loftárásir og mörg þorp urðu alveg mannlaus.
Reuter
ISRAELSKIR skriðdrekar skjóta á suðurhluta Líbanons til að svara
flugskeytaárásum skæruliða Hizboilah á norðurhluta ísraels.
Ekki er vitað um manntjón í suður-
hluta Líbanons, en að minnsta kosti
tólf hermenn og óbreyttir borgarar
særðust í úthverfum Beirút, að sögn
lækna í borginni. Sjónarvottar sögðu
að þijár ísraelskar þyrlur hefðu skot-
ið flugskeytum á sýrlenska herstöð
við aðalveginn að flugvelli borgarinn-
ar og nálægt mosku Hizbollah (Flokks
guðs), sem nýtur stuðnings Irana.
Fregnir hermdu að fimm sýrlenskir
hermenn hefðu særst, en Israelsher
sagði árásirnar ekki beinast að sýr-
lenskum hersveitum. Loftárásimar á
Beirút hófust á fimmtudag og eru
þær fyrstu á borgina í 14 ár.
Þúsundir íbúa suðurhluta Líban-
ons flúðu heimili sín eftir að útvarp
bandamanna Israela á svæðinu var-
aði við því að ísraelsher myndi gera
árásir á 18 þorp og bæi til að hefna
flugskeytaárása Hizbollah.
Einn sýrienskur hermaður féll og
fimm særðust alvarlega, í flug-
skeytaárásum Hizbollah á norður-
hluta ísraels. Shimon Peres, forsæt-
isráðherra ísraels, heilsaði upp á
hermenn á svæðinu og sagði Israela
hafa fullan rétt til árása á skotmörk
í Beirút til að svara árásum á ísra-
elska bæi.
Sakaðir um brot á samningum
Stjórnvöld í íran mótmæltu árás-
um ísraela og lýstu þeim sem
„hryðjuverkum" og „hámarki rag-
mennskunnar“. Al-Baath, málgagn
sýrlenskra ráðamanna, sagði að þrátt
fyrir árásirnar myndi ísraelum ekki
takast að „tortíma vilja Líbana til
að veijast og frelsa hernumdu svæð-
in í landi sínu“.
Blaðið sagði hernaðaraðgerðir
ísraela hafa alvarlegar afleiðingar
fyrir friðarferlið í Miðausturlöndum
og sakaði ísraela um brot á samning-
um sem banna árásir á óbreytta
borgara.
José Aznar
Spánn
Aznar falin
stjómar-
myndun
Madrid. Reuter.
SPÁNARKONUNGUR fól í
gær José María Aznar, leið-
toga Þjóðarflokksins, að
mynda nýja ríkissljórn.
Þjóðarflokkurinn vann sig-
ur i þingkosningunum á
Spáni í byijun mars en hlaut
ekki meirihluta. Aznar þarf
því að tryggja sér stuðning
nokkurra smáflokka, þ. á m.
þjóðernissinna í Katalóníu
sem hafa 16 menn á þinginu
í Madrid.
Katalónar vörðu einnig
fráfarandi minnihlutastjórn
sósíalista falli þar til síðasta
haust. Leiðtogi þjóðernis-
sinna hefur gefið til kynna
að þeir muni selja stuðning
sinn dýru verði og lýsti yfir
því í gær að krafan væri sú
að héraðið fengi svipaðan
sess á Spáni og Quebec í
Kanada. Almennt er búist
við að Aznar takist stjórnar-
myndunin en ýmsir frétta-
skýrendur spá því að stjórn
hans verði ekki langlíf.
■ Leiðtogi/19
Reuter
Kantor viðskiptaráðherra
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
skipaði í gær Mickey Kantor, við-
skiptafulltrúa Bandaríkjanna, í
embætti viðskiptaráðherra. Tek-
ur hann við af Ron Brown er
lést í flugslysi í Króatíu í síðustu
viku.
Þá var Charlene Barshevsky,
aðstoðarsamningamaður, skip-
aður viðskiptafulltrúi.
Kantor hefur verið einn helsti
ráðgjafi Clintons í viðskiptamál-
um og gegnt stöðu viðskiptafull-
trúa frá árinu 1993. Hefur hann
haft forystu um gerð fjölmargra
alþjóðlegra viðskiptasamninga
fyrir hönd Bandaríkjanna.
Á myndinni má sjá Kantor á
blaðamannafundi fyrr um daginn
þar sem að hann greindi frá nýj-
um tölum um aukinn bandarísk-
an bílaútflutning.
Bandaríkjamenn loka umdeildri herstöð á Okinawa
Vonast til að draga úr
spennu niilli ríkjanna
Tókýó, Washington. Reuter.
BANDARISK og japönsk stjórnvöld
hafa gert samkomulag um að um-
deildri herstöð á eyjunni Okinawa
verði lokað. Greindu Ryutaro Hash-
imoto, forsætisráðherra Japans, og
Walter Mondale, sendiherra Banda-
ríkjanna, frá þessu í gær en Bill Clint-
on Bandaríkjaforseti kemur í opinbera
heimsókn til Japans í næstu viku.
Futenma-fiugstöðinni á suður-
hluta Okinawa-eyju verður sam-
kvæmt samkomulaginu lokað á
næstu fimm til sjö árum og land-
svæði það sem Bandaríkjamenn hafa
haft til afnota afhent japönskum eig-
endum á ný.
Um fjögur þúsund hermenn og
hundrað herþotur eru staðsettar í
Futenma. Þó að hún sé ekki stærsta
herstöðin á Okinawa hefur hún verið
ein sú umdeildasta vegna nálægðar
við byggð.
Mondale sagði að gripið yrði til
margvíslegra annarra aðgerða á
næstunni til að vera Bandaríkjahers
í Japan og þá ekki síst á Okinawa
yrði ekki jafn „uppáþrengjandi“.
Kröfur um að Bandarikjamenn
hyrfu á brott frá Okinawa blossuðu
upp á ný eftir að, þrír bandarískir
hermenn voru handteknir í fyrra fyr-
ir að nauðga tólf ára japanskri
stúlku.
Um 75% bandarískra herstöðva í
Japan eru staðsettar á Okinawa og
þar er einnig helmingur þeirra 47
þúsund hermanna, sem að jafnaði
eru í Japan. Nýta Bandaríkjamenn
alls um fimmtung eyjunnar undir
herstöðvar sínar. Mikilvægi japönsku
herstöðvanna jókst til muna eftir að
Bandaríkjamenn lokuðu herstöðvum
sínum á Filippseyjum árið 1992.
Bandarískir embættismenn sögðu
í gær að kostnaðurinn við að færa
starfsemi frá Okinawa til annarra
svæða í Japan myndi verða um millj-
arður Bandaríkjadollara og myndu
Japanir standa straum af kostnaðin-
um að mestu leyti. Sögðust þeir vona
að lokun herstöðvarinnar drægi úr
spennu milli ríkjanna.
Okinawa var eini hluti Japans er
var hernuminn af Bandaríkjamönn-
um í síðari heimsstyijöldinni. Eyjan
var afhent Japönum að nýju árið
1972.