Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 10
t 10 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðleg ráðstefna um asma ALÞJÓÐLEG ráðstefna um asma í börnum verður haldin í Háskólabíói í dag, laugardaginn 13. apríl, sem 250 vísindamenn og læknar frá Englandij Skotlandi, Noregi, Sví- þjóð og Islandi sækja, þar af 150 erlendis frá. Ráðstefnan er haldin á vegum sænska lyfjafyrirtækisins Astra, en það er leiðandi í heiminum á sviði asmalyfja, og fjallar um meðhöndl- un asma meðal barna. Asmi hefur orðið stöðugt algeng- ari meðal barna víða um heim og verður athyglinni beint að fyrir- byggjandi aðgerðum og meðhöndl- un asma í.börnum. Míkilvægt þykir að börn fái rétta greiningu og með- höndlun svo fljótt sem kostur er til að koma í veg fyrir að sjúkdómur- inn nái sér á strik og valdi ofnæmis- sjúkdómum síðar meir. Ráðstefnan hefst kl. 9 með ávarpi Guðbjargar Alfreðsdóttur, mark- aðsstjóra Astra á íslandi, en síðan flytja fyrirlestra Unnur Steina Björnsdóttir læknir, Kjell Aas frá Noregi og Brinan Lipworth frá Bretlandi. Að loknu hléi flytur Björn Árdal, læknir á barnadeild Land- spítala, fyrirlestur um asma og veirusýkingar, Hans Bisgaard frá Danmörku, Leif Bjermer frá Noregi og loks Magnus Wickman frá Sví- þjóð. Ráðstefnunni lýkur svo með almennum umræðum um helstu niðurstöður. ♦ FRETTIR Laxá í Kjós opnuð fyrr SÍÐUSTU sumur hafa verið ýms- ar breytingar á opnunardögum í íslenskum laxveiðiám. Elliðaárnar verið færðar frá 10. til 15. júní, Laxá í Dölum fram undir mánaða- mót júní/júlí og Kjarrá hefur ver- ið með breytilegan opnunardag, allt eftir árferði hveiju sinni. Nú hefur það frést, að opnun í Laxá í Kjós hafi verið færð fram um nokkra daga. „Við opnum núna laugardaginn 8. júní. Það er helgi og stór- streymi nýafstaðið. Það virðist ætla að vora snemma og vel og við þykjumst vissir um að það verði kominn talsverður lax í Laxá. í venjulegu árferði koma fyrstu laxarnir í ána upp úr miðj- um maí þannig að við óttumst ekki að þetta sé of snemmt," sagði Páll G. Jónsson, leigutaki árinnar, í samtali við Morgunblaðið í vik- unni. Páll kom mönnum dálítið á óvart í fyrra er hann leyfði aðeins fluguveiði í opnuninni. Hann ætlar ekki að endurtaka það nú. „Við vorum óheppnir í fyrra, það var afar mikið vatn í ánni og kalt. Það kom ekki nógu vel út að nota bara flugu. En þetta var skemmti- leg tilraun," bætti Páll við. Veiða-sleppa í Vatnsdal Fyrirbæri það sem erlendis er kallað „catch and release" teygir nú arma sína til íslenskra laxveið- iáa. Það eru bandarískir laxveiði- menn sem standa fyrir þessu, fluttu það með sér tii Rússlands og auk þess hefur það víða náð fótfestu í Bretlandseyjum. Þetta felst í því að veiðimaður notar aðeins flugu, helst án agnhalds, og sleppir öllum laxi sem hann veiðir. Nokkur holl Bandaríkja- manna í íslenskum ám síðustu sumur hafa haldið þetta í heiðri. Þeir hafa verið í Selá, Hítará, Langá og víðar. Nú er útlendinga- tíminn í Vatnsdalsá seldur með þessari yfirskrift og herma fregn- SVONA lítur orkuboltinn Eezbee út. ir að það hafa síður en svo dregið úr áhuga manna á ánni. Innlendir veiðimenn sem á eftir koma hugsa sér auðvitað gott til glóðarinnar, enda verða fleiri fiskar eftir í ánni fyrir þá til að kljást við. Orkuboltinn ... Sverrir Geirmundsson hjá List- þjónustunni er byijaður að flytja inn æfingatæki sem hentar vel fyrir stangaveiðimenn. Á ensku heitir það Eezbee eða Dynabee, en Sverrir hefur velt fyrir sér hvort hann eigi að kalla fyrirbær- ið orkuboltann eða kraftkúluna. Kúla þessi er skel úr harðplasti og innan í er fest þung blýkúla sem snýst öfugt við snúning úln- liðsins. Það þarf að ýta blýkúlunni af stað og með nettum úlnliðs- hreyfingum eykst hraði blýkúl- unnar og getur mest náð 9.000 snúningum á mínútu, en það sam- svarar að menn séu að renna til 17 kg þunga í lófanum. „Þetta byggist á gömlu eðlis- fræðilegu lögmáli. Tækið þjálfar alla vöðva í lófa, úlnlið, framhand- legg og upp í öxl og hentar því stangaveiðimönnum vel. Kylfing- ar, fjallamenn og aðrir íþrótta- menn sem nota úlnliðina mikið ættu einnig að finna not fyrir kúluna, að ekki sé minnst á fólk sem notar mikið tölvur. Kúlan virkar t.d. vel gegn svokallaðri músaveiki," segir Sverrir. Stjórnarandstaðan gerir athugasemd við mætingar stjórnarþingmanna Alþingi sýnd lítilsvirðing Björgunar- tilraunir mistókust ísafirði. Morgunblaðið. Á ANNAN tug manna á fjórum bátum gerðu árangurslausa tilraun til að ná rækjubátnum Kolbrúnu af strandstað við Hrútey í Mjóafirði í ísafjarðardjúpi á miðvikudags- kvöld. Tilraunir til að ná bátnum af skerinu hófust síðdegis sama dag og hann strandaði en þeim lauk á ellefta tímanum um kvöldið með því að báturinn rann af skerinu og sökk enn dýpra. Vel mun hafa gengið að dæla sjónum úr bátnum en þegar því verki var nær lokið rann báturinn til og steyptist ofan í djúpið þar sem hann liggur nú nær á hvolfi á öðru skeri. í UPPHAFI þingfundar í gærmorg- un gerðu þingmenn stjómarand- stöðunnar athugasemdir við mæt- ingu stjómarþingmanna á fundi Alþingis. Einkum var gerð athugasemd við það að þingmenn í starfsnefndum væru ekki viðstaddir umræður um flókin og og mikilvæg mál sem ættu eftir að koma til kasta nefnd- anna. Var því beinttil forseta þings- ins að málið yrði tekið upp á vett- vangi forsætisnefndar og formanna þingflokka. Þingforseti sagði að málið yrði rætt á fundi forsætis- nefndar eftir helgi. Ágúst Einarsson, þingmaður Þjóðvaka, hóf umræðuna og sagði að á þingfundi daginn áður hefðu mjög mörg og flókin mál fjármála- ráðherra verið til fyrstu umræðu í þinginu. Stjómarþingmenn hefðu nær ekkert sinnt þessari umræðu og tímunum saman hefði einungis fjármálaráðherra verið í þingsaln- um auk stjórnarandstæðinga. Þetta væru algjörlega óviðunandi vinnu- brögð, því við fyrstu umræðu væru dregnar upp útlínur mála og ábend- ingar gefnar vegna nefndarstarfa. Samt hefði engin stjórnarþingmað- ur úr efnahags- og viðskiptanefnd, sem fengi málin til umíjöllunar, verið við umræðuna nema rétt í upphafi hennar. Með þessum vinnu- brögðum væru stjórnarliðar að sýna hinu háa Alþingi lítilsvirðingu. Fleiri þingmenn stjórnarandstöð- unnar tóku í sama streng og Svav- ar Gestsson, þingmaður Alþýðu- bandalagsins, sagði að ástandið í þessum efnum hefði verið sérstak- lega slæmt í vetur. Sanngjörn ósk Valgerður Sverrisdóttir, formað- ur þingflokks Framsóknarflokksins, sagðist telja að það væri sanngjarnt að óskað væri eftir því að þingmenn sætu betur fundi, sérstaklega þing- menn úr þeirri þingnefnd, sem fengi málin til umfjöllunar. Væri hún til- búin til þess að beita sér fyrir því í sínum þingflokki að bót yrði í þessum efnum. Geir Haarde, formaður þing- flokks Sjálfstæðiflokksins, benti á að þingmenn gætu fylgst með um- ræðum í sjónvarpi af skrifstofum sínum. Fundarseta segði því ekki alla söguna og engar reglur giltu um að þingmenn ættu að sitja fundi og af ýmsum ástæðum væri þeim það ekki alltaf fært. mumm LÁRUS Þ VALDIMARSSON, framkv/vMDasuoRi KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, ioggiiiur fasteignasaii Nýjar á söluskrá m.a. eigna: Frábært útsýni - Háaleitisbraut Nýl. mikið endurn. rúmg. 2ja herb. íb. 64,5 fm á 3. hæð v. Háaleit- isbr. Parket á gólfum. Nýtt gler. Sameign nýstandsett. Ágæt íbúð við Austurströnd Sólrík í lyftuh. 2ja herb. 62,5 fm á 5. hæð. Parket. Vönduð innr. Rúmg. svalir. Stæði í vel hirtu bílhýsi. Vinsæll staður. Heimahverfi - lækkað verð - skipti Sérhæð 5 herb. i þríb. á vinsælum stað. Skipti mögul. á minni eign. Nánari uppl. veitir Lárus á skrifst. Lækkað verð - skipti möguleg Stór, sólrfk 4ra herb. ib. ofarl. í lyftuh. í Vesturborginni. Skipti mögul. á 2ja-3ja herb. íb. Ýmsir staðir koma til greina. Nánari uppl. á skrifst. Úrvalsíbúð - aukaherb. - bflhýsi Stór 4ra herb. íb. á 2. hæð v. Fífusel. Úrvalsgóð innr. Sérþvhús. Stórt kjherb., nú 1 herb. íb. Mikil og góð lán fylgja. Tilboð óskast. Safamýri, vesturbær, Hlíðar, nágrenni Góð 3ja herb. íb. óskast fyrir traustan kaupanda. Ennfremur gott raðh. eða rúmg. sérhæð. Rétt eign verður greidd við kaupsamning. Auglýsingar eftir réttri eign gera fjórðu hverja sölu frá síðustu áramótum. • • Opiftídag kl. 10-14. Góð byggingalóð óskast. Eign með stækkunarmögu- leika kemur til greina. ALMENNA FASTEIGNASALAN UUGtVEB118 S. 552 115D-552 137B Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónleikamiðar í hraðbanka BRESKA poppstjarnan David Bowie heldur tónleika í Laugar- dalshöllinni þann 20. júní og flytur þar nýtt efni, en einnig nokkur eldri íög, s.s. Heroes og Under Pressure. Miðasala fyrir tónleik- ana hefst á mánudag og verður með nýstárlegum hætti, því kaup- endur fá miðana í hraðbönkum íslandsbanka um allt land. Hægt er að nota debetkort frá hvaða íslenskri bankastofnun sem er eða kreditkort. Kortunum er rennt í hraðbankann, sem hefur sérstaka valmynd fyrir miðasöluna. Svo velur kaupandinn iivort hann vill miða í eitt af 700 sætum á 3.900 krónur eða stæði á 3.600 krónur, hraðbankinn tekur uphæðina út af kortinu og miðinn prentast út. Ingvar Þórðarson, tónleikahald- ari, segir að þessi háttur á miða- sölu sé gjarnan hafður á erlendis, til dæmis á Spáni. Afgreiðslan sé örugg og miðafölsun útilokuð, því miðarnir verði skannaðir við inn- gang Laugardalshallarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.