Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 21
IMEYTENDUR
Ódýrara að líftryggja
konur en karla
„ÍSLENSKAR KONUR lifa að
meðaltali lengur en íslenskir karl-
menn og þess vegna er ódýrara
að líftryggja þær en karlana með
venjulegri líftryggingu", segja
þeir Baldur Erlingsson deildar-
stjóri hjá Líftryggingafélagi ís-
lands hf. og Olafur Sigurðsson
forstjóri Alþjóða líftryggingafé-
lagsins. Þá er einnig tekið tillit til
aldurs fólksins, þ.e.a.s. iðgjöld
hækka með aldrinum og hjá Al-
þjóða líftryggingafélaginu er t.d.
tekið tillit til reykingavenja.
Síðan er heilsufar viðkomandi
tekið til athugunar. Ef fólk er með
vissa sjúkdóma þá getur það haft
áhrif á iðgjaldið tl hækkunar og
ef stunduð er til dæmis köfun eða
einkaflug í tómstundum getur það
einnig haft áhrif. Atvinna skiptir
ekki máli.
Ýmsir afslættir eru veittir frá
uppgefnu verði fyrir fasta við-
skiptavini og ef hjón eru
tryggð er gefinn sérstakur
afsláttur. Þá er ekki sama hvort
trygging er staðgreidd eða borguð
með mánaðarlegum
greiðslum af kreditkorti.
Þrítugur karlmaður
borgar sam-
kvæmt verð-
skrá Líftrygg-_
ingafélags ís-
lands 2.413 krónur fyrir
hveija milljón sem eftirlifandi ætt-
ingjar fá við andlát hans en konan
hinsvegar 1.448 krónur.
Hjá Alþjóða líftryggingarfélag-
inu borgar þritug reyklaus kona
I. 291 krónu en 1.414 krónur ef
hún reykir. Karlmaðurinn borgar
2.195 krónur ef hann reykir ekki
en ef hann reykir 2.294 krónur.
Sextug kona sem reykir ekki
greiðir 8.618 krónur fyrir hveija
milljón en líftryggi reyklaus karl-
maður sig borgar hann 13.693
krónur. Verðið er miðað við mán-
aðarlegar afborganir af kreditkorti
en lækkar, ef staðgreitt er, um 6%.
Reyki sextugt fólk og ætli að
líftryggja sig hjá félaginu hækkar
talan umtalsvert. Þá borgar konan
II. 415 krónur en karlinn 18.422
krónur.
Kaffívélin
sparar
rafmagn
MEÐ ÞVÍ að laga kaffi í kaffivél
í stað þess að sjóða vatnið í potti
og hella uppá með gamla laginu
minnkar rafmagnsnotkunin um
helming. Þetta kemur fram í
bæklingi sem Rafmagnsveita
Reykjavíkur gaf út og fjallar um
orkunotkun heimilistækja. Upp-
hitun á hellu og potti sparast.
Ráðlagt er að nýlöguðu kaffi sé
strax hellt á hitakönnu því álíka
mikið rafmagn þarf til að laga
einn lítra af kaffi og að halda
honum heitum á kaffivélinni í
eina klukkustund.
Sjálfvirk kaffivél notar um 0.1
kWh við hverja lögun af einum
lítra af kaffi. Ef hellt er upp á
tvisvar á dag verður ársnotkun
kaffivélarinnar 73kWh sem kost-
ar nálægt 550 krónum. Það spar-
ast um 30% með því að laga kaff-
ið í kaffivél í stað þess að nota
hraðsuðuketil og hella uppá á
gamla mátann.
Hraðsuðuketill
sparar líka rafmagn
í hraðsuðukatlinum er ele-
mentið alveg ofan í vatninu svo
að rafmagnshitinn nýtist betur
en þegar hitað er í potti á hellu.
Seljið ekki meira vatn í ketilinn
en það sem notað er í hvert
I skipti.
Franskt
garná
íslenskan
I markað
NÝLEGA fékk Garnbúðin
Tinna einkaleyfi á dreyfingu á
pijónagarni frá franska garn-
fyrirtækinu Phildar. Phildar
hóf framleiðslu á pijónagarni
árið 1932 en auk garnsins eru
flíkur úr ull, svo sem dragtir,
peysur og sokkar, framleiddar
hjá fyrirtækinu. Hér á íslandi
) mun fyrst í stað verða boðið
upp prjónagarn og uppskriftir
frá Phildar.
NISSAIM
MULTl-LlNK
o
Nissan Almera hlaðinn
auka og öryggisbúnaði
Stórsýning um
helgina frá
kl. 14-17
Innbyggð þjófavörn (NATS)
Loftpúði ístýri (SLXgerðir)
Hemlaljós á kistuloki
Stereo hljómflutningstœki
Verð frá kr. 1.248.000.-