Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Farfuglarnir
fyrr á ferðinni
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
FARFUGLARNIR eru mun fyrr á
ferðinni norðanlands á þessu vori
en vant er.
Þorsteinn, Ingólfsson bóndi og
fuglaáhugamaður í Gröf í Kaup-
vangssveit hefur skráð komu far-
fuglanna mörg undanfarin ár og
segir hann að í svona góðu árferði
eins og nú er láti farfuglamir sjá
sig mun fyrr á Norðurlandi en
þegar kalt er í ári.
Álftirnar
komu fyrst
Fyrsti farfuglinn sem Þorsteinn
sá á þessu vori voru álftir en þær
komu 20. mars. í sama mánuði
kom tjaldurinn, en hann sá Þor-
steinn fyrst 29. mars, síðan hafa
þeir komið jafnt og þétt nú í apríl,
auðnutittlingur, stelkur, skógar-
þröstur, grágæs og hettumávur.
Þá hefur Þorsteinn tekið eftir
því að stokkendur sem lifa á Pollin-
um við Akureyri að vetrinum eru
farnar að flytja sig um set og
huga að varpstöðvum sínum á
Fiskilækjareyrunum og víðar í
sveitinni. Einnig hefur hann séð
hávellu, sem heldur sig lengst
norður á höfum að vétri til, en er
nú farin að koma að landi.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun. Mun-
ið kirkjubílana. Guðsþjónusta kl.
14 sunnudag. Biblíulestur í safn-
aðarheimilinu á mánudagskvöld
kl. 20.30.
GLERÁRKIRKJA: Bamasam-
koma í kirkjunni kl. 11. Foreldrar
hvattir til að mæta með bömum
sínum. Messa kl. 14 á morgun,
fermdur verður Guðlaugur Bragi
Magnússon. Aðalsafnaðarfundur
Lögmannshlíðarsóknar í safnað-
arsal kirkjunnar kl. 16 á sunnu-
dag.
HJALPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli á morgun kl.
13.30, bænastund kl. 19.30, al-
menn samkoma kl. 20. Heimila-
samband kl. 16 á mánudag,
krakkaklúbbur á miðvikudag kl.
17 og biblíulestur kl. 20.30 á
fimmtudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Samkoma í umsjá ungs fólks kl.
20.30 í kvöld. Vakningasamkoma
GLERÁRKIRKJA
á morgun kl. 15.30, krakkaklúb-
bur 9-12 ára miðvikudag kl.
17.30 og biblíulestur kl. 20.30
sama dag. Á föstudag er krakka-
klúbbur kl. 17 og bæn og lof-
gjörð kl. 20.30. Allir velkomnir.
Jörð í Eyjafirði
Jörðin Gilsá I í Eyjafjarðarsveit er til sölu.
Á jörðinni er ágætt 114 fm íbúðarhús - í úti-
húsum má hýsa 20-30 hesta - rúmgóð hlaða áfost.
Ennfremur vélageymsla.
Ræktuð tún um 10-12 hektarar.
Enginn framleiðsluréttur.
Ákjósanlegur kostur fyrir þá sem vilja góða
aðstöðu og gott rými til þess að rækta hross.
Á jörðinni er einnig skógrækt.
Hafið samband við Fasteigna- og skipasölu Norðurlands.
Sími 461 1500. Fax461 2844.
Hvar flnnur þú orku til að standast
vinnuálagið Og reka heimili Og sinna
bömunum ogstunda félagslífið og
stunda líkamsræktina Og...?
Efþérlíðurstundum einsog þig vanti
orku ofunnennis til að ráða við þetta
allt gæti I belgur á dag af Ostrín
GTZ plus verð eínmitt það sem
þú þarfnast. Hentarsérstaklega
íþróttamönnum og öldmðum.
Sendum í
Skipagötu 6, Akureyri
sími/fax 462 1889.
Morgunblaðið/Kristján
ÞEIR bræður Jóhann og Heimir Ingólfssynir, kartöflubændur á Ljómatjörn, voru að pakka útsæði,
ásamt Ægi syni Jóhanns, er ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð í Grýtubakkahreppi í vikunni.
Kartöflubændur farnir að huga að útsæðinu
Marga farið að
klæja í fingnrna
KARTÖFLUBÆNDUR eru famir’
að huga að útsæðinu enda styttist
í að hægt verði að setja niður.
Jóhann Ingólfsson, kartöflu- og
refabóndi á Lómatjörn, segist von-
ast til að geta farið að setja niður
fljótlega upp úr næstu mánaða-
mótum.
Jóhann segir að í fyrravor hafi
ekkert verið sett niður fyrr en í
júní vegna tíðarfarsins og var það
í fyrsta skipti á hans búmanns-
ferli, sem hófst 1979, að ekki var
hægt að setja niður kartöflur í
maímánuði. Nú er útlitið hins veg-
ar mun betra enda tíðin verið ein-
stök í vetur.
Enn til íslenskar kartöflur
Uppskera síðasta árs var í minni
kantinum, að sögn Jóhanns, en
aftur voru söluaðstæður þeim mun
betri. Enn eru til íslenskar kartöfl-
ur á markaðnum og sagðist hann
reikna með að kartölfubirgðir ent-
ust fram í lok maí eða byijun júní.
Jóhann og bróðir hans Heimir,
sem reka félagsbú á Lómatjörn,
voru að vonum ánægðir með tíðar-
farið í vetur, „enda annað ekki
sanngjarnt“, sagði Heimir. Jóhann
segir að nú hafi komið kippur í
sölu á útsæði enda fari marga að
klæja í fingurna þegar veðrið væri
gott.
Þeir bræður hófu refarækt á ný
í vetur en þeir höfðu hætt þeim
búskap fyrir um 6 árum. Húsin
voru hins vegar til staðar og nú
eru þeir með 60 læður og stendur
pörun yfir þessa dagana. Verð á
refaskinnum hefur hækkað mikið
á síðustu misserum og er því mun
bjartara yfir loðdýraræktinni um
þessar mundir.
5,6 milljóna króna tap á reksti verka-
lýðsfélagsins Einingar á síðasta ári
Atvinnuleysi setti
svip á starfsemina
ATVINNULEYSI setti mjög svip
sinn á starfsemi verkalýðsfélags-
ins Einingar á síðasta ári að því
er fram kom í máli Björns Snæ-
bjömssonar, formanns félagsins, á
aðalfundi þess í vikunni.
Heildarniðurstaða af rekstri
allra sjóða félagsins er jákvæð um
3,3 milljónir króna, en það er
vegna hækkunar á gengi hluta-
bréfa félagsins í Útgerðarfélagi
Akureyringa. Þótt tekjur Einingar
hafi aukist milli ára varð 5,6 millj-
óna króna rekstrartap á félaginu.
Sjúkrasjóður var rekinn með 5,9
miiljóna króna tapi árið 1995 og
voru samþykktar breytingar á
reglugerð sjóðsins sem vonast er
til að komi í veg fyrir eins mikinn
hallarekstur á næsta ári.
Félagið styrkti átakið
„ísenskt, já takk“
Félagið veitti styrki til nokkurra
mála á liðnu ári, rekstarstyrk tii
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, til
átaksins „íslenskt, já takk,“ til
Mæðrastyrksnefndar, Neytend-
afélags Akureyrar og nágrennis
og hátíðarfundar vegna 20 ára
afmælis kvennafrídagsins, alls um
320 þúsund krónur.
Fræðslusjóður kostaði eða
styrkti 13 félagsmenn til að sækja
námskeið og gaf enn fremur öllum
10. bekkingum á Eyjafjaðarsvæð-
inu bækling um réttindi og skyldur
launamanna en hann heitir Vega-
bréf á vinnumarkaði.
Á þriðja hundrað manns tóku
þátt í ýmsum starfsmenntunar-
námskeiðum sem haldin voru á
liðnu ári.
Félagsmönnum
fjölgaði milli ára
Aðalfélagar í Verkalýðsfélaginu
Einingu er nú 4.193 talsins og
aukafélaga 822 eða alls 5.015 og
hefur félögum fjölgað um 227
milli aðalfunda. Langflestir eru í
Akureyrardeild eða 3.834.
í stjórn Einingar eru Bjöm
Snæbjörnsson formaður, Matthild-
ur Sigurjónsdóttir varaformaður,
Ólöf Guðmundsdóttir ritari, Erna
Magnúsdóttir gjaldkeri, Hilmir
Helgason, Sigurður Búason og
Sigríður Rut Pálsdóttir meðstjórn-
endur.
Aðalfundur
Einingar
Arásum á
launafólk
svarað af
hörku
AÐALFUNDUR Verkalýðsfé-
lagsins Einingar sem haldinn
var í vikunni mótmælir harð-
lega „þeim ásetningi félags-
málaráðherra og þar með rík-
isstjórnar íslands að skerða
vald félagsmanna einstakra
stéttarfélaga til afgreiðslu kja-
rasamninga, boðun verkfalla
og ekki síst að kljúfa félögin
niður í lítil vinnustaðafélög,"
eins og segir í ályktun sem
samþykkt var á fundinum.
Enn fremur segir að þessari
árás félagsmálaráðherra verði
íslenskt launafólk að svara af
fullri hörku og bijóta aftur
stefnu hægri aflanna í landinu
og hvetur launafólk til að
standa saman gegn slíkri árás.
„Fundurinn skorar á þing-
menn kjördæmisins að gera
kjósendum sínum skýra grein
fyrir afstöðu sinni til frum-
varps félagsmálaráðherra,
þannig að launafólk eigi auð-
veldara með að gera upp hug
sinn í næstu kosningum.“