Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Löggubandið
heimsækir félags
miðstöðvar
Frá Gísla Kr. Skúlasyni:
í FEBRÚAR og fram í mars heim-
sótti Hljómsveit lögreglunnar í
Reykjavík, Löggubandið, félags-
miðstöðvar í Reykjavík, Sel-
tjarnarnesi og Mosfellsbæ.
Tilgangurinn með því var að
nálgast unglingana, kynna Iög-
regluna og lögreglumanninn og
bijóta niður vegginn sem hefur
verið á milli unglinga og lögregíu.
Þótti okkur þetta takast vel og
var aðsóknin, í heildina litið, ágæt
þó svo að við hefðum viljað sjá
fleiri á sumum stöðunum.
Að sögn unglinganna hafði það
áhrif á mætinguna að þeir bjugg-
ust við þreyttum körlum syngjandi
heilræðavísur.
Hafi þau ekki búist við lögreglu-
mönnum sem spiluðu dúndrandi
rökk, röppuðu, fluttu pistla á létt-
um nótum, slógu á létta strengi
og fluttu leikþátt þar sem lög-
reglumenn léku unglinga og ungl-
ingar lögreglu. Ekki grunaði þau
að lögreglumenn gætu leikið ung-
linga á þann hátt sem þeir gerðu
þarna.
í leikþættinum var sýndur sá
misskilningur sem svo oft kemur
upp hjá unglingum og reyndar líka
hjá þeim fullorðnu í samskiptum
við lögreglu.
Hápunkturinn á öllu þessu
fannst okkur vera umræðurnar í
lokin.
Þar gátum við útskýrt ýmislegt
fyrir unglingunum og komu þeir
með margar spurningar.
Það sem oftat bar á góma var
útivistartíminn, samskipti lögreglu
og unglinga, hvað má lögreglan
gera og ekki gera, „lögregluof-
beldi“ og „unglingavandamálið"
svo að eitthvað sé nefnt.
Við gátum að vísu ekki rætt
einstök atvik vegna þagnarskyldu
okkar en við ræddum vítt og breitt
um starf lögreglunnar og uppgötv-
uðu unglingarnir margt sem þeir
vissu ekki áður.
Það kom okkur að vísu á óvart
hvað sumir unglinganna gerðu sér
miklar ranghugmyndir um lög-
regluna.
Oft er talað um unglingavanda-
málið en að okkar áliti er það
heldur ódýr Iausn að afgreiða
málið þannig. Það er ekkert ungl-
ingavandamál til að okkar mati
og eins og einn unglingurinn
sagði væru þetta einhveijar
tröllasögur sem margir væru til-
búnir að trúa.
Sögðum við unglingunum að
álíka tröllasögur væru til um lög-
regluna sem ótrúlega margir væru
tilbúnir að gleypa við.
Hvað varðar samskipti unglinga
og logreglu komumst við, þ.e.a.s.
unglingarnir og lögreglumennirn-
ir, að þeirri sameiginlegu niður-
stöðu að þetta væri spuming um
mannleg samskipti. Hver og einn
á að dæma fyrir sig sjálfan og
draga eigin ályktanir í stað þess
að gleypa við einhveijum trölla-
sögum.
Hugmyndin að þessari dagskrá
kviknaði um mitt ár 1995 og var
þá þessi mikla umræða um vímu-
efnavandann ekki byijuð. Við
sigldum síðan, alveg óvart, inn í
þessa umræðu.
Okkar hugmynd var ekki sú að
fara út í harðan áróður gegn
áfengi og eiturlyfjum, þó svo að
við þekkjum nokkuð vel til á þeim
slóðum.
Við teljum áróður vera mjög
vandmeðfarinn og má hann ekki
vera of mikill, og náttúrulega ekki
of lítill, því þá verður hann ómark-
viss, missir marks og skemmir ef
eitthvað er.
Við vildum byija á því að und-
irbúa jarðveginn áður en við
byijuðum að sá, þ.e.a.s. kynna þá
aðila sem myndu síðar miðla þekk-
ingu um málefnið út frá reynslu
sinni.
Þannig myndu unglingarnir
hugsanlega meðtaka boðskapinn
betur án fordóma gagnvart þeim
sem kæmu til með að flytja hann,
þ.e.a.s. lögreglunni í þessu tilfelli.
Við teljum okkur hafa gert það
að einhveiju leyti með þessari dag-
skrá þó svo að við hefðum ekki
farið víða. Þetta er þó byijun sem
lofar góðu.
Hvað við komum til með að
gera í framtíðinni er óráðið. Ekki
vantar viðfangsefnin og hugmynd-
irnar. Má t.d. nefna það að félag-
arnir í Mótorsmiðjunni, að öllum
öðrum ólöstuðum, eru að gera
stórkostlega hluti og væri hægt
að gera ýmislegt í samvinnu við
þá svo og forvarnadeild lögregl-
unnar.
Þetta er bara lítið dæmi sem
ég nefni hér og eru margir aðrir
að gera svipaða hluti og ef kraftar
allra væru nýttir sameiginlega, á
skipulegan hátt, væri hægt að
gera stórkostlega hluti. T.d. er
landsbyggðin algjörlega óplægður
akur hvað okkur varðar.
En eins og með allt er þetta
spurning um fjármagn og tíma.
Er það okkar von að við getum
haldið áfram að heimsækja ung-
linga, og einnig fullorðna, og spil-
að tónlist og miðlað fróðleik og
þekkingu þeim til yndisauka og
uppfræðslu.
GÍSLIKR. SKÚLASON,
lögreglumaður í Reykjavík.
-kjarni málsins!
MESSUR Á MORGUN
ASKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Ferming og altarisganga kl. 14.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í Bústöðum kl. 11. Ferm-
ingarmessa kl. 10.30. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. María Ágústsdóttir.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn Fl. Friðriksson. Eftir
messuna verður fundur í Safnað-
arfélaginu. Þar mun Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt segja frá
Hólakirkju og endurþyggingu
hennar. Bar'nastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 11 og í Vesturbæjar-
skóla kl. 13. Ferming og altaris-
ganga kl. 14. Prestarnir.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Fermingar-
messur með altarisgöngu kl. 10.30
og kl. 14. Prestar sr. Halldór S.
Gröndal og sr. Kjartan Örn Sigur-
þjörnsson. Organisti Árni Arin-
þjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 11. Organisti Hörður
Áskelsson. Sr. Karl Sigurþjörnsson
og sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Barnastarf á sama tíma.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir. Ferming kl. 13.30. Org-
anisti Pavel Manasek. Prestarnir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Fermingarmessa
kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju syngur. Barna-
guðsþjónusta í safnaðarheimilinu
á sama tíma í umsjá Sóleyjar Stef-
ánsdóttur.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Barnastarf á sama
tíma. Fermingarmessa kl. 13.30.
Félagar úr Kór Laugarneskirkju
syngja. Organisti Gunnar Gunn-
arsson. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Opið hús frá kl. 10. Munið
kirkjubílinn. Fermingarmessa kl.
11. Prestarnir. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Frank M. Halldórsson.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Ferming-
arguðsþjónusta kl. 14. Barnastarf
á sama tíma.
SELTJARNARNESKIRKJA: Ferm-
ingarmessur kl. 10.30 og kl. 13.30.
Organisti Vera Gulasciova. Prestar
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir
og sr. Hildur Sigurðardóttir. Barna-
starf kl. 11. í umsjá Elínborgar
Sturludóttur. Börnin gangi inn
niðri.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga.
Organleikari Sigrún Steingríms-
dóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
Guðspjall dagsins:
Jesús kom að luktum
dyrum.
(Jóh. 20.)
þjónusta kl. 11. Fermingarguðs-
þjónusta kl. 13.30. Samkoma ungs
fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Smári Óla-
son. Gunnar Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Ragn-
ar Schram. Ferming kl. 14. Altaris-
ganga. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son. Organisti Lenka Máteóva.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðöþjónusta kl. 11. Umsjón Hjört-
ur og Rúna. Fermingarguðsþjón-
usta kl. 13.30. Altarisganga. Órg-
anisti Ágúst Ármann Þorláksson.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fermingarmessa
kl. 10.30. Kór kirkjunnar syngur.
Barnaguðsþjónusta kl. 13 í umsjá
sr. Bryndísar Möllu og Dóru Guð-
rúnar. Kór yngri barna Snælands-
skóla syngur undir stjórn Heiðrún-
ar Hákonardóttur. Organisti
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Kyrrðar-
stund kl. 21 í umsjá safnaðarfé-
lagsins. Kyrrð, íhugun og bæn.
Allir velkomnir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Börn úr Kárs-
nesskóla syngja undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur kórstjóra. Org-
anisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guðs-
þjónusta kl. 14. Ferming. Organ-
isti Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga
messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg:
Samkoma á morgun kl. 17. Ræðu-
maður: Ástríður Haraldsdóttir.
Barnasamverur á sama tíma. Veit-
ingar seldar eftir samkomu.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræð-
issamkoma sunnudag kl. 20. Elsa-
bet Daníelsdóttir talar.
MOSFELLSKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 13.30. Jón Þor-
steinsson.
VÍDALÍNSKIRJA: Fermingarguðs-
þjónusta kl. 10.30. Bragi Friðriks-
son.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 10. Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Fimm ára
börn sérstaklega boðin velkomin.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón sr.
Þórhildur Ólafs. Munið skólabílinn.
Fermingarmessa kl. 10.30 og kl.
14. Flautuleikur Gunnar Gunnars-
son. Prestar sr. Gunnþór Ingason
og sr. Þórhildur Ólafs. Organleik-
ari Ólafur W. Finnsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:Barna-
samkoma kl. 11. Fermingarmessa
kl. 13.30. Orgel- og kórstjórn Krist-
jana Þ. Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfs-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Ferm-
ingarguðsþjónusta kl. 13.30. Bragi
Friðriksson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVALSNESKIRKJA: Messa kl. 14.
Ferming. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 14. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð-
mundsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Fermingarguðsþjónusta kl. 11
og kl. 14.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta laugardag kl. 11. Stjórn-
andi Sigurður Grétar Sigurðsson.
Fermingarguðsþjónustur sunnu-
dag kl. 11 og kl. 14. Björn Jóns-
son.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Guðþjónusta kl. 14.00.
Fermd verður:
Berglind Hildur Ágústsdóttir, GrjitaseB 4.
Þriðjudag kl. 16.00.
Kátir krakkar,
starf fyrir 8-12 ára. A