Morgunblaðið - 17.04.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 7
FRÉTTIR
SKÓLAHÚS í Ólafsdal.
RIISHUS á Borðeyri.
ROALDSBRAKKI á Siglufirði.
155 fengu styrki
til viðhalds
á gömlum húsum
HÚSFRIÐUNARNEFND ríkisins
hefur samþykkt styrkveitingar
úr Húsfriðunarsjóði fyrir árið
1996. Veittir voru 155 styrkir
samtals að upphæð 43.450.000
kr. aðallega til endurbyggingar
og viðhalds gamalla húsa um
land allt.
Eftirtalin hús fengu slíkan
styrk: Vesturgata 3, Hlaðvarp-
inn, Reykjavík, byggingarár
1985-1903, Strandgata 49, Hafn-
arfirði, 1907, Skólahús í Ólafs
dal, Dalasýslu, 1896, Salthúsið,
Þingeyri, byggt, 1787, Riishús,
Borðeyri, 1862, Hildebrandtshús,
Blönduósi, 1877 eða eldra, Ro- -
aldsbrakki, Siglufirði, 1907,
Jensenshús, Eskifirði, 1837 og
Landlyst, Vestmannaeyjum
byggtárið 1847.
Húsfriðunarnefnd stjórnar
Húsfriðunarsjóði en hlutverk
sjóðsins er að veita styrki til við-
halds og endurbóta á friðuðum
húsum og mannvirkjum. Enn-
fremur til húsa sem hafa menn-
ingarsögulegt eða Iistrænt gildi
að mati nefndarinnar. Sjóðurinn
styrkir einnig verkefni sem
stuðla að rannsóknum á íslensk-
um byggingararfi og útgáfu rita
þar af lútandi.
Formaður Húsfriðunarnefnd-
ar er Þorsteinn Gunnarsson,
arkitekt. Framkvæmdastjóri
Húsfriðunarnefndar er Magnús
Skúlason, arkitekt.
Styrkúthlutun kærð
til Samkeppnisráðs
HÓTELSTJÓRINN í Hótel Reyni-
hlíð við Mývatn hefur óskað eftir
því við Samkeppnisráð að það
rannsaki hvernig staðið var að
úthlutun á 20 milljónum króna
úr ríkissjóði til að efla starfsemi
heilsárshótela á landsbyggðinni.
Samkeppnisráð hefur óskað eftir
skýringum í þessum efnum frá
samgönguráðuneytinu, en þriggja
manna nefnd skipuð af sam-
gönguráðherra úthlutaði fénu til
nokkurra hótela á landsbyggð-
inni.
Pétur Snæbjörnsson, hótel-
stjóri í Hótel Reynihlíð, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hefði farið fram á það við Sam-
keppnisráð að það aflaði skýringa
á því hvernig þessu fé hefði verið
varið. Menn hefðu ekki haft jafna
stöðu til að sækja um þetta fé.
Ekki nema nokkrir útvaldir ein-
staklingar í greininni hefðu vitað
að þetta fé var til reiðu og aldrei
hefði verið auglýst eftir styrkþeg-
um, verkefnum eða nokkru öðru.
Þannig hefði almennum fyrir-
tækjum ekki verið gefinn kostur
á að sýna hvað þau hefðu fram
að færa og sækja um styrkveit-
ingu.
Vill frá rökstuðning
fyrir styrkveitingum
Hann sagði að þegar hann hefði
frétt að búið væri að úthluta fénu
án þess að honum hefði verið
gefinn kostur á að sækja um það
hefði hann farið fram á skýring-
ar. Kæruna hefði hann sent inn
til Samkeppnisráðs í marsmánuði.
Hann vildi fá skilmerkileg rök
fyrir því á hvaða grundvelli þau
fyrirtæki hefðu verið valin sem
hefðu fengið styrk. Frá hans
bæjardyrum liti það þannig út að
þessi þriggja manna nefnd hefði
sest niður og valið lífvænleg hótel.
„Ef það er mat yfirvalda að ég
sé ekki með lífvænlegt hótel þá
þarf ég náttúrlega einhverjar
nánari skýringar á því vegna þess
að ég tel mig hafa mjög lífvæn-
lega einingu," sagði Pétur enn-
fremur.
Verðbréfasjóðir Lan dsb r éfa
Hæsta ávöxtun verðbréfasjóða í 5 ár
Samanburður á raunávöxtun innlendra verðbrétasjóða 1991-1995
Raunávöxtun á
Vaxtarsjóðir
Eignarskattsfrjálsir
vaxtarsjóðir
Skammtímasjóðir
Langtímasjóðir
1991 1992 1993 1994 1995 ársgrundvelli sl. 5 ár* Röð
KÞ Einingabréf 1 6,90% 6,90% 5,10% 3,30% 5,50% 5,53% 2
LBR íslandsbréf 7,90% 7,30% 7,80% 5,70% 5,60% 6,84% 1 1
VlB Sjóður 1 6,70% 6,80% 5,40% 5,30% 3,50% 5,53% 2
LBR Fjórðangsbréf 8,00% 7,90% 8,30% 8,60% 4,50% 7,45% C 11
LBR Launabréf - 8,40% 13,60% 5,80% 4,00% 7,88% 1 I
VÍB Sjóður 2 7,17% 7,47% 10,14% 8,47% 4,76% 7,59% 2
KÞ Einingabréf 2 5,10% 8,00% 10,90% 2,90% 3,80% 6,10% 3
LBR Öndvegisbréf 7,10% 8,60% 14,60% 5,60% 3,30% 7,77% 1 |
VÍB Sjóður 5 5,50% 8,80% 8,70% 9,30% 3,40% 7,12% 2
KÞ Skammtímabréf 6,20% 6,50% 9,40% 3,70% 4,80% 6,10% 1
LBR Reiðubréf 6,50% 6,70% 7,60% 3,50% 4,30% 5,72% 2 1
LBR Þingbréf 7,70% 8,10% 21,70% 8,10% 6,80% 10,35% 1
LBR Sýslubréf 8,90% 1,40% -2,00% 20,40% 11,70% 7,80% H
VÍB Sjóður 6 -7,00% -51,10% 61,80% 21,60% 34,40% 3,76% 3
Raunávöxtun verðbréfasjóða á ársgrundvelli
1991-1995
Allir innlendir sjóðir Raunávöxtun
á ársgrundvelli
Nr. Sjóður Fyrirtæki 1991-1995
1. Lingbréf Landsbréf t&35%H
2. laaunabréf1 JjjfH Landsbréf 7,88%
3. Sýslubréf Landsbréf 7,80%
4. Öndvegísbréf. Landsbréf ÆtKtKKá B
5. Sjóður 2 VÍB 7,59%
6. Fjórðungsbréf |f| Landsbréf 7,45%
7. Sjóður 5 VÍB 7,12%
8. íslandsbréf Landsbréf 6,84%
9. Skammtímabréf Kaupþing 6,10%
10. Reiðubréf Landsbréf 5,72%
11. -12. Einingabréf 1 Kaupþing 5,53%
11.-12. Sjóðurl VÍB 5,53%
13. Sjóðuró VÍB 3,76%
Kb= Kaupbing hf., LBR * Landsbréf hf., VÍB = Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. Fjárfestingarfélagið Skandia birtir ekki 5 ára ávöxtun.
‘Ávöxtun Launabréfa miðast við 4 ár (1992-1995). Heimild: Pcningasíða Morgunblaðsins, Kaupþing hf., VÍB hf.
Ábending frá L-andsbréfum: Athugið: Munur á kaup- og sölugcngi sambærilegra verðbréfasjóða getur verið mismikill.
Yfirlitinu er einungis ætlað að sýna samanburð á sögulegri ávöxtun verðbréfasjóða og á ekki að skoða sem vísbendingu um ávöxtun í framtíðinni.
, LANDSBRÉF HF.
Löggilt verðbrófafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANOSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, S!MI Ö88 9 200, B R E F A S I M I !. 8 8 8!. 9 8